Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Líkt og Gyllti áttavitinn er Lúmski hnífurinn spennandi og stórbrotin fantasía fyrir börn og fullor›na í anda Harry Potter. Metsölubók um allan heim ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S E D D 16 11 7 1 1/ 20 01 MIKLAR skemmdir urðu á húsnæði Lýsis hf. við Grandaveg í eldi sem gaus upp í rannsóknarstofu fyrir- tækisins snemma í gærmorgun. Enginn slasaðist í eldsvoðanum eða hlaut reykeitrun samkvæmt upplýs- ingum Slökkviliðs höfuðborgarsvæð- isins sem kom á vettvang kl. 6.53. Upphaflega barst tilkynning frá lögreglunni til slökkviliðsins um reyk í porti hússins án þess að eldur sæist og var viðbúnaður miðaður við það. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang braust út mikill eldur sem óx næstu klukkustundina uns kalla varð út allt tiltækt lið slökkviliðsins. Um 60 slökkviliðsmenn börðust við eldinn fram eftir morgni og miðaðist slökkvistarfið m.a. við að bjarga tveim vetniskútum út úr bygging- unni áður en þeir spryngju. Íbúar nærliggjandi húsa voru beðnir að halda sig frá gluggum í íbúðum sínum á meðan sprengihætt- an vofði yfir. Auk vetniskútanna tveggja voru nokkrir súrefnis- og köfnunarefniskútar sem reykkafar- ar fundu í byggingunni. „Við höfðum mestar áhyggjur af vetniskútunum auk þess sem gasflöskur voru á neðri hæð hússins,“ sagði Halldór Hall- dórsson, starfsmannastjóri slökkvi- liðsins, á vettvangi í gær. „Slökkvi- starfið gekk út á að kæla vetnis- kútana og verja vesturhluta bygg- ingarinnar sem aðskilinn er frá þeim austari með eldvarnarvegg. Það gekk mjög vel og hætta á frekari út- breiðslu eldsins var aldrei fyrir hendi.“ Á meðan slökkviliðsmenn athöfn- uðu sig á vettvangi var hluta Grandavegar lokað fyrir umferð. Slökkvistarfi lauk síðan um kl. 10 í gærmorgun og sprengihættu var af- lýst. Talið er að efri hæð hússins sé að mestu ónýt eftir brunann, en þak hússins hrundi í brunanum. Á rann- sóknarstofunni var vinnuaðstaða fyrir fimm manns en á hæðinni var ennfremur aðstaða fyrir starfsfólk verksmiðjunnar. Að sögn Þóris Karls Jónassonar, stöðvarstjóra slökkviliðsins, gekk slökkvistarfið ágætlega „en það var lítill mannskapur í byrjun vegna þess að tilkynningin benti til að þetta væri lítilræði. En við misstum eldinn upp í allt þakið.“ Vonumst til að halda okkar striki í framleiðslunni Á rannsóknarstofunni fóru fram allar lýsismælingar fyrir fyrirtækið, skýrslugerðir auk þess sem unnið var að tilraunverkefnum á stofunni. „Við verðum töluverðan tíma að vinna upp þær upplýsingar sem glöt- uðust í eldinum, en öll framleiðslu- tæki fyrirtækisins eru í lagi og ég vonast til að við getum haldið okkar striki í framleiðslunni,“ sagði Snorri Már Egilsson, verksmiðjustjóri Lýs- is, um áhrif eldsvoðans á starfsem- ina. Hann sagði húsið vera í mörgum brunahólfum og það sætti reglulega eldvarnareftirlitsins. Hann sagðist ekki geta metið tjónið til fjár, en ljóst væri af verksummerkjum að dæma að það hlypi það á milljónum króna. Eldsupptök eru ókunn og hefur lögreglan í Reykjavík tekið tildrög eldsvoðans til rannsóknar. Katrín Pétursdóttir, fram- kvæmdastjóri Lýsis, sagði að bruna- varnir hefðu átt að vera í lagi en skaðinn væri verulegur og tilfinnan- legur. Forráðamenn Lýsis funduðu í gær með starfsfólki þar sem rætt var hvernig málin yrðu best leyst. „Síðan munu starfsmenn kanna skemmdir og fara yfir þetta með lögreglu og slökkviliði,“ sagði Katrín. Til stend- ur að starfsemi Lýsis hf. flytjist í annað húsnæði innan fimm ára. Morgunblaðið/Júlíus Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á vettvang skömmu fyrir kl. 7 og slökkti eldinn rúmum tveim klukkustundum síðar. Vakt var við húsið til kl 15. Hámarksviðbúnaður Slökkviliðs í stórbruna í húsi Lýsis hf. við Grandaveg „Höfðum mestar áhyggj- ur af vetniskútunum“ HEIMUR vínsins eftir Stein- grím Sigurgeirsson vann nýlega forkeppni til alþjóðlegra verð- launa fyrir matar- og vínbækur, The Gourm- and World Cookbook Awards. Þetta er að sögn út- gefanda virt og viður- kennd keppni og eru þátttakendur frá næstum öllum Evrópulöndun- um, Bandaríkjunum, Japan, Perú, Nýja-Sjálandi og víðar að. Af þessu tilefni er Steingrími boðið til gala-kvöldverðar á einn glæsilegasta veitingastað í Frakklandi þann 6. desember, þar sem úrslitin verða tilkynnt. Bókaútgáfan Salka gaf Heim vínsins út á síðasta ári í sam- vinnu við Morgunblaðið, en bók- in er byggð á pistlum Stein- gríms sem birst hafa í blaðinu undanfarin ár, en höfundur leit- aði fanga víða um heim. Bókin er 200 blaðsíður, prýdd litmynd- um og var prentuð í Prentsmiðj- unni Gutenberg. Heimur vínsins fær við- urkenn- ingu Steingrímur Sigurgeirsson KAUPENDUR Fóðurblöndunnar hafa áfrýjað úrskurði samkeppnis- ráðs um yfirtöku Mjólkurfélags Reykjavíkur svf. og Lýsis hf. á Fóð- urblöndunni hf. til úrskurðarnefndar samkeppnismála. Búnaðarbankinn er aðaleigandi Fóðurblöndunnar og sagði Guð- mundur Guðmundsson, forstöðu- maður fyrirtækjaráðgjafar Búnað- arbankans Verðbréfa, að það væri mat lögfræðinga kaupenda að rök Samkeppnisstofnunar fyrir þeirri ákvörðun sinni að heimila ekki sölu Fóðurblöndunnar til Mjólkurfélags- ins væru veik. Hann sagði að samhliða áfrýjun- inni væri Búnaðarbankinn að skoða aðrar leiðir varðandi framtíðareign- arhald á fyrirtækinu. Yfirtakan á Fóðurblöndunni Kaupendur áfrýja BJÖRK Guðmundsdóttir verður með aukatónleika í Háskólabíói 21. desember næstkomandi, en uppselt er á tónleikana sem verða í Laugardals- höll 19. desem- ber. Sinfón- íuhljómsveit Íslands leikur með Björk á tónleikunum og auk þess verður grænlenskur stúlknakór með í för. Björk er nú í Japan þar sem hún heldur þrenna tónleika. Fyrstu tónleikarnir þar verða í Tókýó á morgun, en að und- anförnu hefur hún farið víða um heim til að kynna nýútkomna breiðskífu sína, Vespertine, og hefur m.a. verið með tónleika í Bandaríkjunum, Kanada, Bret- landi, Þýskalandi, Belgíu, Hol- landi, Frakklandi, á Spáni og Ítal- íu. Hún verður síðan aftur með tónleika í Englandi 16. desember og kemur þaðan til Íslands. Tónleikarnir í Háskólabíói verða með sama sniði og í Laug- ardalshöll en vegna þeirra flytur hún til landsins um 8 tonn af ýms- um búnaði, sem hún notar í tón- leikaferðinni. Um 2.500 miðar á fyrri tónleikana seldust upp á mjög skömmum tíma. Á tón- leikana í Háskólabíói verða um 900 miðar í boði, en tónleikar Bjarkar eru í samstarfi við Sím- ann. Miðasala hefst mánudaginn 10. desember og kostar miðinn 7.900 krónur, en á fyrri tón- leikana var miðaverðið 5.900 kr. Björk með aukatón- leika í Háskólabíói Björk ÍSFÉLAG Vestmannaeyja hf. fagnar 100 ára afmæli í dag, en fé- lagið var stofnað 1. desember 2001. Það mun vera elsta starfandi hluta- félag landsins. Margt verður gert til hátíðar- brigða í dag, að sögn Ægis Páls Friðbertssonar framkvæmda- stjóra. Síðdegis verður móttaka fyrir gesti í frystihúsi félagsins við Strandveg. Í kvöld verður svo af- mælisfagnaður fyrir starfsfólk og dansleikur í Höllinni í Vestmanna- eyjum. Þá kemur út afmælisrit um sögu félagsins. Ísfélag Vestmannaeyja Elsta starf- andi hluta- félagið ald- argamalt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.