Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 77

Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 77
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 77 SVINDLVERKEFNIÐ (The Bogus Witch Project) GAMANMYND Bandaríkin, 2000. Skífan VHS. Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn: Steve Agee, Kelly Anne Conroy o.fl. Aðalhlutverk: Ýmsir. EKKI er kvikmynd fyrr búin að slá í gegn en einhverjir af hinum síður lánsömu meðlimum kvik- myndagerðarstéttarinnar reyna að kreista út einhvern hluta þess gróða með því að búa til eftir- hermur. Í þessu tilfelli er það fyrst og fremst hið víðförla kynning- arveggspjald hrollvekjunnar vin- sælu, The Blair Witch Project, sem notað er til verknaðarins. Nokkrir einstaklingar hafa sem sagt tekið sig til og gert skopstæl- ingu af ofan- greindri hroll- vekju, í formi stuttra sagna, og slegið mjög slöku við, en vonast til að selja að minnsta kosti ein- hverjar afurðanna út á hið kunnug- lega veggspjald, og hinn kunnug- lega titil. Í þessu tilfelli er ung- lingurinn með húfuna að bora í nefið, sem er reyndar mjög lýsandi fyrir skopskyn myndarinnar og ætti að vera gestum myndbanda- leiga til áminningar um að slysast ekki til að leigja sér eintak. ½ Heiða Jóhannsdóttir Allt er nú reynt SÍÐASTLIÐINN föstudag fögn- uðu þau Gunnar Már Sigfússon, Anna Sigurðardóttir og Magni Már Bernhardsson útkomu Þjálf- unar og heilsu í Húsi málarans. Um er að ræða pakka sem sam- anstendur af bók og myndbandi, en höfundarnir eru allir einka- þjálfarar og starfa hjá Þjálfun.is. Í ritinu/myndbandinu er fjallað um allt sem snýr að heilsu á öfga- lausan hátt. Aðaláhersla er lögð á heilsuna sem slíka og lögð drög að því hvernig ná má varanlegum árangri að því leytinu til. Ýmislegt var á seyði vegna þessa viðburðar. Sjálfur Herbert Guðmundsson tók lagið og tísku- sýning frá Nike var í boði ásamt vænum veitingum. Herbert Guðmundsson tók lag- ið. Hér er hann ásamt útvarps- manninum Ívari Guðmundssyni. Hér eru höfundarnir; Magni Már, Anna Sigurðardóttir og Gunnar Már ásamt útgefandanum, Magnúsi Einarssyni. Útgáfuveisla vegna Þjálfunar og heilsu Morgunblaðið/Árni Sæberg Heilbrigður lífsstíll án öfga VERNDARINN (Guardian) SPENNUMYND Bandaríkin 2000. (89 mín.) Bönnuð inn- an 16 ára. Leikstjórn: John Terlesky. Að- alhlutverk: Mario Van Peebles og Ice-T. HÉR ER á ferð nett neðri deild- armynd með tveimur leikurum sem hófu feril sinn í úrvalsdeildinni en hafa síðan fallið um allnokkrar deildir. Mario van Peebles og rapphundurinn Ice-T áttu báðir góðan leik í stræt- ismyndinni New Jack City en hafa engan veginn náð að fylgja því eftir. Dómgreindarleysi í vali á hlutverkum hefur vafalítið ráð- ið mestu um að þau sem bjóðast í dag eru af svipuðu sauðahúsi og í Vernd- aranum, sem er yfirnáttúruleg spennumynd um illan morðóðan anda sem Kanar flytja með sér frá „stríðshrjáðu“ Írak (en ekki hvað- an?) á „friðsælar“ heimaslóðir. Þar eru þeir í sínum kunnuglegu stöðum, Peebles í hetjuhlutverkinu en Ice-T fautinn, og standa sig því miður lítið betur en meðspilararnir leyfa. Allt er fremur ódýrt, lausnir einfaldar og markmiðið greinilega það eitt að skila skotheldri formúlu með sem minnstri fyrirhöfn. Það fer enginn upp um deild með slíkri frammi- stöðu. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Illu öflin frá Írak
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.