Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 71
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 71
LAGERSALAN TUNGUHÁLSI 7
HELDUR ÁFRAM
Opið föstudaga, laugardaga og sunnudaga frá kl. 11 til 17.
Eigum margs konar skreytingarvörur fyrir aðventuna.
Einnig er komin ný gjafavara.
Tunguháls 7 er fyrir aftan Sælgætisgerðina Kólus.
Sími 567 1210.
HEILDVERSLUN MEÐ JÓLA- OG GJAFAVÖRUR Í 35 ÁR
HINN 27.11. sl. var ferðaskrifstofan
Samvinnuferðir-Landsýn úrskurðuð
gjaldþrota og lauk þar með 22 ára
merkilegum kafla í sögu ferðamála
með heldur nöturlegum hætti.
Sársaukafyllst í þessu sambandi
er að tæplega 80 manns missa við
þetta vinnuna.
Fullyrða má að Samvinnuferðir-
Landsýn hafi átt mjög ríkan þátt í að
skapa þá samkeppni sem verið hefur
á íslenskum ferðamarkaði á undan-
förum árum og áratugum. Sam-
keppnin hefur gert fjölda Íslendinga
mögulegt að ferðast yfirleitt og öðr-
um að ferðast oftar en ella.
Auk þess að bjóða upp á ferðir á
viðráðanlegu verði hefur ferðaskrif-
stofan boðið upp á ferðir til ýmissa
landa sem ekki var áður hægt að
fara til nema með óheyrilegum
kostnaði.
Hér nefni ég til borgarferðir ýms-
ar, ferðir til Kúbu og Bahamaeyja og
fleira.
Ekki má gleyma stéttarfélags-
ferðunum sem var mjög merk nýj-
ung og hleypti miklu lífi í ferðalög
þúsunda Íslendinga þó svo að fólk
þyrfti fyrstu árin að standa í bið-
röðum til að fá miða úr takmörk-
uðum ferðapotti.
Hvers vegna endaði saga Sam-
vinnuferða-Landsýnar með gjald-
þroti? Nefnt hefur verið til sögunnar
sjómannaverkfall, stórfelld gengis-
felling og hermdarverkin í New
York 11. sept. sl. og afleiðing þeirra.
Mjög líklegt er að ef ekkert af fyrr-
nefndu hefði komið til, þá hefðu
Samvinnuferðir-Landsýn lifað af.
Trúlega hefði rekstur ferðaskrifstof-
unnar þó verið mjög erfiður áfram
þar sem farið var að halla undan fæti
af öðrum ástæðum en fyrr eru
nefndar.
Ég er hræddur um að hér eigi
stóran hlut að máli svokallað „Flug-
frelsi“ sem ferðaskrifstofan fór að
bjóða upp á í hittiðfyrra, ef ég man
rétt. Þessi möguleiki var auðvitað
stórkostlegur fyrir viðskiptavininn
en trúlega of gott til að vera satt (les
allt of kostnaðursamur fyrir ferða-
skrifstofuna). Komið hefur fram í
fjölmiðlum að „Flugfrelsið“ hafi þýtt
mikinn stofnkostnað og mikinn
fjölda starfsmanna hafi þurft til að
sinna því.
Vonandi er að nýr aðili komi inn á
ferðamarkaðinn til að fylla upp í það
tómarúm sem myndast við brott-
hvarf Samvinnuferða-Landsýnar en
hætt er við að það taki einhvern
tíma.
Illt væri það alla vega fyrir þann
fjölda Íslendinga sem hafa yndi af að
ferðast að þurfa að sæta fákeppni til
lengdar.
Að lokum þakka ég Samvinnu-
ferðum-Landsýn fyrir margar
ánægjustundir sem ég og mitt fólk
hefur átt á erlendri grund fyrir til-
stilli ferðaskrifstofunnar.
ÓLI GUNNARSSON,
Fögrubrekku 42, Kópavogi.
Svartur dagur
í sögu ferðamála
Frá Óla Gunnarssyni:
BRÉF Ásgeirs Haraldssonar pró-
fessors um jólakaffi Hringsins
birtist degi of fljótt í blaðinu. Því
skal ítrekað að jólakaffi Hringsins
er á morgun, fyrsta sunnudag í
aðventu, og hefst kl. 13.30. Jóla-
kaffið er á Broadway.
Ásgeir og aðrir hlutaðeigendur
eru beðnir velvirðingar á mistök-
unum.
Jólakaffi Hringsins
á morgun
Alltaf á þriðjudögum