Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 38
LISTIR 38 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN um starfsemi Haf- rannsóknastofnunar er ofarlega á baugi um þessar mundir, sérstak- lega í ljósi þess ofmats stofnunarinn- ar á þorskstofninum, sem fram hefur komið. Umræðan um starfsemi stofnunarinnar er fjarri því að vera ný af nálinni. Hún hefur staðið yfir áratugum saman, en misá- berandi. Margir hafa orðið til þess að gagnrýna stofn- unina, meðal annars vegna ákvörðunar um heildarafla. Einn þeirra er rithöfund- urinn, bóksalinn og sjó- maðurinn Ásgeir Jakobs- son frá Bolungarvík, en hann er látinn fyrir nokkru. Um tuttugu ára skeið gagnrýndi Ásgeir fiskveiðiráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar í greinum sem birtust í Morgunblaðinu. Nú hefur úrval þessara greina verið gef- ið út á bók undir nafninu Fiskleys- isguðinn. „Hann taldi fiskifræðinga ekki búa yfir nægilegri þekkingu á lífríki sjávar til að fara í stjórnunarleik með fiskveiðarnar. Hann benti á þá sögulegu staðreynd að íslenzk fiski- slóð þarfnaðist jafnrar og góðrar grisjunar. Þannig fengist af henni jafnbezti aflinn og ekki minna en 400 þúsund tonn árlega af þorski. Haf- rannsóknastofnun hefði tekið skakk- an pól í hæðina og stjórnað þorsk- stofninum í felli,“ eins og segir á bókarkápu. Ásgeir er ekki einn um þessa skoðun og hafa á síðustu misserum margir orðið til að gagnrýna starf- semi Hafrannsóknastofnunarinnar, stofnstærðarmat hennar og fisk- veiðiráðgjöf. Það sem vekur hins vegar athygli við lestur þessara greina, sem saman eru komnar á eina bók, er hve vel þær eldast, hve vel að sér Ásgeir hefur verið, hve vel hann hefur kynnt sér viðfangsefnið og hve vel hann setur skoðanir sínar fram. Greinar, sem hann skrifaði fyr- ir meira en aldarfjórðungi, gætu eins hafa verið skrifaðar í dag að meg- inefni. Ádeiluefnin eru þau sömu. Hér er ekki ætlunin að taka af- stöðu til þess hvort fiskveiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar hafi verið rétt eða röng, þótt rök Ásgeirs þess efnis að ráðgjöfin hafi verið röng séu sterk, heldur skal rýnt að nokkru í efnistökin. Ásgeiri lætur greinilega vel að skrifa um þessi mál. Í grein sem ber heitið Þeir vita mest – skakkt frá 1979 vitnar Ásgeir í erlenda fiskifræðinga, meðal ann- ars í grein um fiskveiði- stjórnun í Norðursjó þar sem sagt er að stærsta hindrunin í verndun fiski- stofna sé fiskurinn sjálfur. Hann leiðir síðan rök að því að grisj- un sé rétta leiðin til að skapa sem mestan afrakstur og bendir á mik- ilvægi þess að rannsaka samspil teg- undanna. Hann vill fá haldbærar skýringar á því af hverju hafi ekki tekizt að byggja fiskistofnana upp eins og fiskifræðingar höfðu fullyrt, yrði farið að þeirra ráðum. Þetta eru einnig rauðu þræðirnir í greinaskrif- um Ásgeirs. Þessi grein hefði líklega alveg eins getað verið skrifuð í dag, eins og um- ræðan er nú, og svo er um flestar greinar Ásgeirs í þessari bók. Grein- arnar eru líflegar og vel skrifaðar enda vöktu þær verðskuldaða at- hygli á sínum tíma og gera það vafa- lítið enn. Fyrir þá sem hafa áhuga á hafrannsóknum og fiskveiðistjórnun er þessi bók ágæt lesning. Ágæt lesning BÆKUR Greinar Greinar eftir Ásgeir Jakobsson. Nýja bókafélagið 2001. 192 bls. FISKLEYSISGUÐINN Hjörtur Gíslason Ásgeir Jakobsson „ÞAÐ má eiginlega segja að þessi sýning sé Morgunblaðinu að þakka því fyrir tveimur árum var sagt frá jólakortagerð okkar pabba í grein. Greinin vakti at- hygli Kristínar Guðnadóttur, for- stöðumanns Listasafns ASÍ, og hún hafði samband við mig og spurði hvort hún mætti ekki halda sýningu á kortunum,“ segir Þorri Hringsson myndlistarmaður en í dag verður opnuð sýning á jóla- kortum eftir hann og föður hans, Hring Jóhannesson listmálara, sem látinn er fyrir nokkrum ár- um. Þorri segir að undirbúningur hafi staðið þetta ár en alls eru um 400 jólakort á sýningunni 300 eft- ir Hring og 100 eftir Þorra. „Pabbi var búinn að festa þessa hefð vel í sessi þegar ég byrjaði á þessu. Elsta kortið er frá 1945 en hann var þá 13 ára gamall. Síð- ustu kortin teiknaði hann fyrir jólin 1995. Hann teiknaði myndir af jólasveinum á kortin og sendi nánustu vinum og ættingjum. Eft- ir að hann var sestur að í Reykja- vík og búinn að stofna fjölskyldu í kringum 1960 stækkar hópurinn sem fékk kort fyrir hver jól. Hann bjó til á milli 30 og 40 kort fyrir hver jól í 35 ár. Yfirleitt byrjaði hann á þessu um miðjan nóv- ember og var stundum ekki búinn með þau síðustu fyrr en rétt fyrir jól. Það hvarflaði aldrei að honum að kortin mætti fjölfalda og selja. Þau voru í hans huga persónuleg kveðja til viðkomandi og að hluta til jólagjöf og að hluta til kort. Ég man eftir því einu sinni að systur mínar fengu hann til að teikna jólakort sem þær seldu til söfn- unar í nemendasjóð.“ Þorri segir myndefni kortanna iðulega vera í gamansömum stíl. „Það eru alltaf jólasveinar á myndinni og viðtakendur eiga að þekkja þar sjálfa sig. Oftast er myndefnið byggt á einhverju sem viðkomandi hafðist að það árið og kortin eru auðvitað misfyndin eft- ir því hversu duglegir menn höfðu verið að gera eitthvað af sér. Þeir sem voru orðnir full- orðnir og ráðsettir fengu kannski mynd af jólasveini að labba í landslaginu en aðrir fengu stríðn- ari myndir. Ekki jafn stórtækur og pabbi Í upphafi voru kortin einfaldar pennateikningar en síðar litaði hann þau gjarnan með vatnslitum. Frá því um 1980 eru öll kortin í litum. Stíllinn er frjálslegri og einfaldari en fólk á að venjast af málverkunum enda lá hann ekki yfir þessu á sama hátt.“ Sjálfur segist Þorri hafa byrjað á jólakortagerð þegar hann var í Myndlista- og handíðaskólanum 1986–87. „Ég er ekki jafn stórtækur og pabbi og það eru kannski 10–15 manns sem fá kort frá mér. Ég fer aðra leið að því leyti að ég reyni alltaf að teikna skopmyndir af fólkinu sem fær kortin. Kortin okkar beggja eiga þó það sameig- inlegt að þótt atburðurinn sem sýndur er á kortinu hafi gerst um sumar setjum við alltaf jólasveina- húfur á fólkið. Ég hef alltaf haft kortin frá mér í lit og nota ýmist litblýant eða vatnsliti. Ég held að pabba hafi alltaf þótt þetta skemmtilegt. Þegar hann var byrjaður á þessu í nóv- ember kom hann iðulega heim og sýndi okkur skissurnar og þá var oft mikið hlegið. Þetta var hluti af jólaundirbúningi hans og að- ferð til að finna jólastemmn- inguna.“ Jólakort Þorra Hringssonar til vinar síns er fór í Kúbuferð 1999. Jólakort Hrings til Dags Jóhannessonar bróður síns, oddvita í Aðaldal, en hann tók þátt í spurningakeppni árið 1990. Aðferð til að finna jóla- stemmn- inguna Jólakort Hrings Jó- hannessonar og Þorra Hringssonar á sýningu                ! "   #$  %% &% , Síðumúla 34 • 108 Reykjavík • Sími 533 3331• Fax 533 1633 25% afsláttur laugardag og sunnudag Speglar Plaggöt Rammar Innrömmun Ásgrímur Jónsson eftirprentun, innrömmuð í karton. Stærð 45x56. Tilboðsverð kr. 5890. Afgreiðum innrömmun alla daga til jóla Opið um helgina, laugardag 10-18, sunnudag 12-17 Íslensk myndlist – gott verð. Laugardagstilboð Stakir sófar Stök borð Stakir stólar 20% afsláttur Victoria Antik, Síðumúla 34, sími 568 6076 Antik er fjárfesting Antik er lífsstíll Opið mán.-fös. kl. 12-18, lau. kl. 11-16.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.