Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 49 ✝ Aðalbjörg Jóns-dóttir fæddist á Siglufirði 9. desem- ber 1934. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 18. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigrún Ólafía Markúsdóttir og Jón Friðrik Marinó Þór- arinsson. Systkini Aðalbjargar eru Bryndís, Sigurbjörg, Þórarinn og Sigurð- ur Ágúst, sem öll eru látin, og Kári, sem búsettur er á Siglufirði. Bræður Aðalbjargar sammæðra eru Júlíus, Hafliði og Gylfi Júl- íussynir sem búsettir eru í Hafnafirði. 1952 kynntist Aðal- björg lífsförunauti sínum, Guð- jóni Ólafi Guðmundssyni frá Bergsstöðum í Vestmannaeyjum, f. 1. nóv. 1927, d. 24. des. 1975. Börn þeirra eru: 1) Jón Sigurð- ur, f. 23.8. 1954, maki Rósa Rúnudóttir. Börn þeirra eru Æv- ar Ingi og Jón Óli; 2) Guðbjörn, f. 22.11. 1956, maki Hrafnhildur Gísladóttir og eiga þau Guðjón Ólaf og Rakel. 3) Guðmundur, f. 5.8. 1958, sambýliskona hans er Aðalheiður Runólfsdóttir og er sonur þeirra Guðjón Ólafur. Börn Guðmundar með Hrafnhildi Sig- urðardóttur eru Jó- hanna Björk, Ingi- björg, og Anna Marý. 4) Þóra, f. 14.12. 1961, sam- býlismaður hennar er Sigurður Sveins- son. Börn þeirra eru Thelma og Sveinn. Aðalbjörg var í síld á Siglufirði á sumrin til 17 ára aldurs, er hún flutti til Vestmannaeyja. Hún vann ýmis störf með hús- móðurstörfunum á þessum árum og sat í stjórn og trúnaðarráði Verkakvennafélagsins Snótar í Vestmannaeyjum og í stjórn Norðlendingafélagsins í Vest- mannaeyjum. Aðalbjörg vann í fatahreinsuninni Straumi í nokk- ur ár og á Rauðagerði sem mat- ráðskona. Eftir að hún flutti frá Eyjum vann hún hjá Pósti og Síma sem matráðskona í vinnu- flokki í tvö sumur, en síðan í þvottahúsi á Hrafnistu í Hafn- arfirði meðan heilsan leyfði. Útför Aðalbjargar fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyj- um í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ég var úti á sjó þegar ég frétti að tengdamóðir mín væri látin. Hún varð ekki gömul, blessunin, aðeins 67 ára. Æja var alltaf létt í skapi, þótt ýmislegt bjátaði á var hún alltaf bjartsýn og aldrei man ég eftir að hún hefði talað illa um nokkurn mann. Hún hafði mjög ákveðnar skoðanir á málunum, og alltaf sagði hún sína meiningu.Við vorum ekki alltaf sammála. Það urðu oft heitar umræður okkar á milli, þar sem við komust ekki að niðurstöðu. Hún hafði mjög gaman af að ferðast og fór oft með okkur á húsbílnum norður á Siglufjörð þar sem hún átti rætur. Alltaf fannst henni jafn- gaman að koma þangað, þar hitti hún ættingja og systur sína. Hún kom oft til Eyja og stoppaði þá eins lengi og hún gat, enda voru þær mæðgurnar mjög nánar, töluðust við á hverjum degi og ég held að henni hafi alltaf liðið mjög vel í ná- vist við dóttur sína, því hún var hjá okkur hver einustu jól eða við hjá henni. Hún flutti heldur ekki fyrr en dóttir hennar var flutt í eigið húsnæði. Aðalbjörg var mikil félagsvera og hafði gaman af söng og dansi. Hún kenndi börnum mínum að spila, enda sátu þau oft í eldhúsinu að spila. Hún hafði ótrúlega gaman af að spila, þó að hún hefði varla heilsu til að setjast upp lét hún sig hafa það að spila við barnabörnin sín tímunum saman. Það var alltaf gott að koma til hennar og sama hvort það voru vinir eða vandalaus- ir, allir voru jafnvelkomnir. Alltaf var hún búin að finna til mat eða kaffi, hvort sem við komum frá út- löndum eða bara úr Herjólfi, það breytti engu hvort klukkan var 4 að nóttu eða degi, alltaf voru kræs- ingar á borðum. Mig langar til að þakka þér fyrir ferðirnar þegar skroppið var á hús- bílnum norður á Sigló. Þakka þér fyrir samveruna í gegnum árin, þar sem ég held að við höfum náð ágætlega saman þótt við værum ekki alltaf sammála. Þinn tengda- sonur, Sigurður. Elsku amma mín, núna ertu búin að fá hvíldina. Ég er ekki alveg búin að ná því ennþá en það hlýtur að koma ein- hvern tíma. Ef þú varst ekki besta amma í heimi, þá er hún ekki til. Það var alltaf svo gott að koma til þín. Þú varst alltaf svo góð og gerð- ir bókstaflega allt fyrir okkur. Allt- af í svo góðu skapi en lést mann nú samt alveg heyra það ef maður var að gera eitthvað vitlaust eða eitt- hvað sem þér líkaði ekki. Æ, það er svo erfitt að koma þessu útúr sér, mig langar að segja svo mikið. Þú fylgdist mikið með fótboltanum hjá mér, og horfðir á hvern einasta leik sem þú gast. Einu sinni þegar ég var í 6. flokki vorum við að keppa á fótboltamóti, gekk ekkert svaka vel, en svo komst þú með brúnköku handa okkur stelpunum og fullan disk af heitum pönnukökum, eftir einn leikinn og síðan þá varstu allt- af kölluð „Góða amman hennar Thelmu“. Og meira segja einu sinni, þegar ég var að fara að keppa í fyrsta skiptið um Íslands- meistaratitillinn, lánaðirðu mér uppáhalds hálsmenið þitt, sem þú tókst varla af þér því þér þótti svo vænt um það. Ég var rosalega ánægð að þú skyldir hafa treyst mér fyrir því. Því átti að fylgja ákveðin lukka og hún virkaði sko vel. Það var alltaf svo notalegt að vera hjá þér, alltaf eitthvað gott til, kökur, nammi, ís og bara nefndu það. Og á hverjum einasta sunnu- degi þegar ég var hjá þér eða þú hjá mér bakaðirðu pönnukökur, og svo var farið einn ísbíltúr þegar líða tók á daginn. Ég var alltaf svo spennt að fá að fara til Reykjavíkur til ömmu í blokkinni. Þú kenndir mér fullt af sögum, vísum og lög- um, og spila líka. Við spiluðum stundum heilu dagana, og næturn- ar þess vegna líka, og gleymdum stundum að borða og allt, því það var svo gaman, og það var ekki hægt að hætta. Það fyrsta sem ég gerði þegar ég fékk einkunnirnar á vorin var að hringja beint í þig og lesa þær fyrir þig, og alltaf fékk ég þvílíkt hrós. Amma, þú varst alltaf hjá mér á jólum, nema ein þegar ég fór til Kanarí og það verður rosalega erf- itt og skrítið að hafa þig ekki hjá okkur næstu jól. Engin „Æ-amma“ hjá mér, engin „ömmuknús“ og ekki neitt. Mér þykir svo vænt um þig að það eru ekki til orð sem lýsa svo mikilli væntumhyggju. En nú ertu loksins komin til afa, hann er búin að bíða eftir þér svo lengi. Þú ert yndislegasta amma í heimi. Ég mun aldrei, aldrei gleyma þér. Góða nótt, elsku amma mín. Þín ömmustelpa Thelma. Elsku amma mín, af hverju dóstu svona snemma? Við sem átt- um eftir að gera svo margt. Okkur þótti svo gaman að spila saman, gátum spilað tímunum saman, enda kenndirðu mér að spila. Alltaf voru tekin upp spil þegar við vorum á ferðalagi á húsbílnum, enda náðum við mjög vel saman og áttum sama afmælisdag. Ég man alltaf eftir því þegar ég fór einn til þín með flugi, þú sóttir mig og fórst beint í Hag- kaup og keyptir á mig golfföt, sem ég var mjög montinn af þegar ég kom heim. Þú fylgdist alltaf vel með mér þegar ég var á golfmót- um, vildir alltaf vita hvernig gekk og hringdir á hverjum degi til þess að vita um árangur. En amma, núna ertu komin til guðs og búin að hitta afa. Góða nótt, amma mín. Sveinn Sigurðsson. AÐALBJÖRG JÓNSDÓTTIR ✝ Sigríður Frið-riksdóttir fæddist 4. júlí 1917 í Pytta- gerði í Skagafirði. Hún andaðist á Sjúkrahúsi Sauðár- króks 24. nóvember síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Guðný Jónasdóttir, f. í Hróarsdal 16. mars 1877, d. 1949, og Friðrik Sigfússon bóndi, f. 20. des. 1879, d. 1959. Systk- ini hennar eru: Stein- grímur, f. 1906, Steinunn, f. 1907, Margrét, f. 1909, Friðrik, f. 1910, Anna, f. 1915, og Jóhanna, f. 1920. Auk barna sinna ólu þau Friðrik og Guðný upp einn fósturson, Karl Hólm Helgason, f. 1930. Eftirlifandi systkini hennar eru Friðrik og Anna. Sigríður gift- ist 1941 Sveini Þ. Sveinssyni, f. 2. nóv. 1914, d. 1. des. 1995. Börn þeirra eru Úlfar, f. 1943, kvæntur Elínu Tómasdóttur, Lilja, f. 1946, gift Sveini J. Sveinssyni, Eyjólfur, f. 1948, kvæntur Ingibjörgu Axels- dóttur og Guðný, f. 1955, gift Smára Jó- hannssyni. Barna- rbörnin eru þrettán og langömmubörnin þrjú. Sigríður ólst upp hjá foreldrum sínum í Pyttagerði, Jaðri og síðast í Kálfárdal. Sigríður og Sveinn bjuggu að Ing- veldarstöðum á Reykjaströnd til ársins 1995. Frá 1995 til 1999 bjó hún hjá Lilju dóttur sinni á Selarn- arnesi þar til hún fluttist á Dval- arheimili aldraðra Sauðárkróki. Útför Sigríðar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Ég vil í örfáum orðum minnast ömmusystur minnar, Sigríðar Frið- riksdóttur frá Ingveldarstöðum á Reykjaströnd í Skagafirði, sem í dag verður til moldar borin frá Sauðár- krókskirkju. Eflaust hefur hún Sigga frænka verið hvíldinni fegin þar sem hún átti við töluverða vanheilsu að stríða síð- ustu misseri. Nú þegar komið er að leiðarlokum, rifjast upp margar góð- ar minningar úr æsku minni og teng- ist Sigga á Ingveldarstöðum þeim. Þær eru ófáar stundirnar sem við systkinin dvöldum á Reykja- ströndinni hjá Siggu og Sveini, bónda hennar, enda ríkti mikil vinátta milli þeirra og foreldra okkar. Oftar en ekki er við komum í heimsókn til Siggu, á Ingveldarstaði, var kaffi- borðið drekkhlaðið af gómsætu bakk- elsi og voru veitingunum ætíð gerð góð skil. Eru ástarpungarnir hennar Siggu mér ofarlega í huga því enginn steikti eins góða ástarpunga og hún. Sigga hafði yndi af lestri góðra bóka og var víðlesin og fróðleiksfús. Mest þótti henni gaman af því að segja okkur börnunum sögur af huldufólki og tröllum sem dagaði uppi í nágrenninu, svo sem söguna af karli og kerlingu sem dagaði uppi ásamt kú sinni. Kúna þekkjum við sem Drangey í Skagafirði og stendur kerling enn keik við hlið hennar þótt karl sé löngu horfinn í hafið. Siggu var margt til lista lagt og var hún hagyrðingur mikill. Átti hún ekki í erfiðleikum með að kasta fram einni og einni stöku þegar mikið lá við og eitthvað þurfti að kveða til sveitung- anna á góðum stundum. Hún var jafnframt sérlega áhugasöm um blómarækt og lét reisa sér myndar- lega blómastofu áfasta húsinu henn- ar. Þar ræktaði hún býsn af rósum og ýmsar fleiri framandi blómategundir. Var hrein unun að staldra við í blóma- stofunni hennar þegar staðið var upp frá kræsingunum og sjá þegar blóma- skrúðið var sem mest. Þá var Sigga í essinu sínu, hreykin sýndi hún okkur plönturnar sínar og græðlinga. Mátti þá heyra á tali hennar hve annt henni var um þetta áhugamál sitt. Óvíða er eins fallegt og á Reykja- ströndinni í Skagafirði, sér í lagi á sumrin og er þá Jónsmessan mér of- arlega í huga. Þegar ég var drengur reistu foreldrar mínir sumarbústað í næsta nágrenni við Ingveldarstaði. Hefur fjölskyldan eytt þar mörgum Jónsmessunóttum í gegnum tíðina, ásamt Siggu og hennar fjölskyldu. Þetta eru mér ógleymanlegar stundir og vil ég þakka þér, kæra frænka, fyrir þær samverustundir sem við höfum átt. Sigga frænka lætur eftir sig stóran hóp afkomenda. Þeim votta ég samúð mína og bið þeim Guðs blessunar. Steingrímur Rafn Friðriksson. Nú er hún elsku amma mín farin. Margar eru minningarnar úr sveit- inni þar sem ég bjó hjá henni á hverju sumri á yngri árum. Við fórum oft saman í berjamó upp í fjall og þar sagðir hún mér sögur af álfum og hvar mætti tína berin og hvar ekki. Við höfðum alltaf með okkur nesti og súkkulaðibita. Mjög gestkvæmt var í sveitinni á sumrin bæði innfæddir og útlendingar og ég man að mér fannst amma þekkja svo rosalega marga. Eitt af ævintýrunum okkar gerðist inn í Kálfárdal. Amma bað mig að koma með sér að leita að „gulli“. Við fundum staðinn eftir þónokkra göngu og klifur. Þarna rættist gamall draumur hennar að komast á æsku- slóðirnar. Við lentum í öðru ævintýri þegar við fórum til Noregs að heimsækja Berglindi frænku og Styrmi. Hún var svo hissa á því að ég skildi rata og alltaf fara réttu leiðina þó ég hefði aldrei komið þangað áður. En ég fylgdi bara skiltunum og fór eftir leið- beiningum. Við lentum í háskaför í eitt skipti er við rerum út í hólma með Úlfari frænda í ágætis veðri og til að tína æðardún og egg. Þegar við rerum af stað heim var byrjað að hvessa. Það var orðið mjög hvasst þegar við nálguðumst land og okkur rak út að messuklöppum sem er þónokkuð frá innsiglingunni. En við komumst öll heilu og höldnu í land. Í sveitinni var nokkuð sem hét „heilaga-stundin“ en það var veður- fréttatíminn. Þá átti maður að hafa hljótt um sig. Það var mikið sungið í sveitinni og oft heyrðist langar leiðir hvar amma var. Amma steikti oft kleinur, sem voru í uppáhaldi hjá mér. Við systkinin kölluðum hana oft „kleinu-ömmu“. Svo gerði hún líka ástarpunga og hafði nokkra dökka sérstaklega fyrir afa. Blessuð sé minning þín. Þín, Margrét Þóra. SIGRÍÐUR FRIÐRIKSDÓTTIR Þau voru þung skrefin sem við tókum vinirnir frá líknar- deildinni fyrir rúmri viku. Við höfðum setið hjá þér, vit- andi að við vorum að kveðja þig. Að þú værir að fara frá okkur. Erfið stund en falleg. Uppfull af þeim kærleika sem við reyndum að hafa í heiðri þegar við hittumst vikulega STEFÁN BRANDUR STEFÁNSSON ✝ Stefán BrandurStefánsson fædd- ist í Baltimore í Maryland 29. október 1954. Hann lést á líknardeild Landspít- alans fimmtudaginn 15. nóvember síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Frí- kirkjunni í Hafnar- firði 27. nóvember. í þrjú ár og ræddum andans mál og efnis- leg. Á þessum árum reyndum við að öðlast betri skilning á tilver- unni. Skilja sjálfa okkur betur. Við studdum hvorir aðra, hvöttum, gagnrýnd- um, hlógum og grét- um. Sálargæslubræð- ur. Í hugum og hjörtum hvers okkar eru þessar stundir ómetanlegar og reynslan sem við hlutum af þeim hefur reynst okkur dýrmæt á þroska- brautinni. Og þó fundirnir hefðu lagst af fyrir nokkru, tengdumst við böndum sem eru órjúfanleg. Það fundum við alltaf þegar við hittumst. Þarna á líknardeildinni héldum við enn einn fundinn. Stund sem enginn okkar hefði viljað missa af. Síðasti fundurinn … í bili. Það sem eftir stendur er minningin um vin sem aldrei óskaði nokkrum manni illt. Hafði óbilandi trú á það góða í lífinu. Ef fleiri hefðu hjartalagið þitt væri þetta sannarlega bless- aður heimur, því kærleikur þinn hefur reynst okkur gott veganesti. Við munum aldrei gleyma hversu æðrulaus þú varst undir lokin, hversu hetjulega þú tókst hinu óhjákvæmilega. Og hversu fallega konan þín, hún Sessa og dreng- irnir, Hrafnkell, Markús og Ragn- ar, studdu þig í gegnum hverja raun. Að fylgjast með ykkur á þessum stundum auðgaði anda okkar og gaf okkur aukna trú á styrk lífsandans. Innilegustu samúðarkveðjur til þín Sessa og ykkar strákanna. Far vel, kæri vinur, sjáumst aft- ur. Jón Ágúst, Ólafur, Sigurbjörn, Ægir. EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingar- degi. Þar sem pláss er tak- markað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Skilafrestur minning- argreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.