Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 18
SUÐURNES 18 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ VATNSÖFLUNARSVÆÐI Suður- nesjamanna, Lágasvæðið svo- nefnda, er sérstaklega viðkvæmt, að sögn Freysteins Sigurðssonar, jarðfræðings hjá Orkustofnun. Er því mikilvægt að vernda það vel. Freysteinn flutti erindi á fjöl- mennum fræðslu- og umræðufundi um jarðfræði og jarðhita, grunn- vatn og efnistöku á Reykjanes- skaga sem Náttúrustofa Reykja- ness efndi til í Eldborg í Svartsengi í fyrradag. Sagði hann frá grunn- vatni á Reykjanesskaga og eigin- leikum svæðisins, sérstaklega þeirra þriggja vatnsöflunarsvæða sem nýtt eru, það er að segja að Lágum við Grindavíkurveg og tveggja á Vatnsleysuströnd. Sagði hann meðal annars frá því að grunnvatnslagið væri þunnt og þyrftu menn að gæta að sér við dælingu úr borholum vegna þess að hætta væri á að sjórinn sem er í berginu undir hækkaði á kostnað grunnvatnsins ef of mikið væri dælt. Þá sagði hann frá sprungu- kerfi svæðisins og áhrifum þeirra. Jarðfræðingurinn sagði að grunnvatnið væri efnaríkt og væri eitt hollasta neysluvatn sem fyndist hér á landi. Hann sagði að vatnsverndar- svæðið þyrfti að vera tiltölulega stórt og að það þyrfti að vernda sérstaklega vegna þess hversu lekt það væri og vegna þess hversu litla vernd það fengi af gróðri og jarð- vegi. Ekki mætti til þess koma að mengandi efni lækju ofan í jarðveg- inn á þessu svæði. Gera verði ráð fyrir framtíðinni. Ef vatnsbólunum yrði spillt myndi það hafa áhrif í áratugi. Ekki mikil mengunarhætta Spurður um áhættuna af akstri eldsneytisflutningabíla yfir vatns- bólin við Reykjanesbraut og Grindavíkurveg sagði Freysteinn að hættan af mengun væri fyrir hendi en taldi að hún væri ekki mikil. Menn yrðu að meta líkurnar og hvað þeir væru tilbúnir að gera til að draga úr henni. Sagði hann að ýmislegt væri hægt að gera, svo sem að þétta vegarkanta. Einnig mætti hreinsa svæðið að einhverju leyti með því að bora og dæla olíunni upp ef slys yrði. Hann sagði að ef mikil olía læki niður og ekkert væri að gert gætu vatnsbólin eyðilagst. Ef slíkt gerðist, til dæmis í Lágum við Grindavíkurveg væri hægt að bora eftir vatni á Strandarheiði og tengja við dreifikerfið eða tengja það við vatnsból Vogamanna, eða öfugt, en til þess þyrfti tíma og það væri dýrt. Fjölsóttur fræðslufundur um jarðfræði, grunnvatn og efnistöku Mikilvægt að vernda vatnið Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Áætlað er að milli 60 og 70 gestir hafi mætt á fræðslufund um jarðfræði og vatnsvernd á Reykjanesskaganum. Reykjanesskaginn KRISTJÁN Sæmundsson, jarð- fræðingur hjá Orkustofnun, flutti fróðlegt erindi um jarðfræði og jarðhita á Reykjanesskagans og kom m.a. innan á aldur hrauna og eldvirkni á svæðinu. Hvað varðaði hættu á eldgosi á svæðinu sagði Kristján að tíminn væri afstæður í því tilfelli m.a. væri það hraun sem rann síðast til Hafnarfjarðar 8.000 ára og það hraun sem rann til Reykjavíkur væri 5.000 ára gamalt. Svarts- engishraunið væri frá 1227 en í umræðunni hefur verið að hraun ætti að renna á 1.000 ára fresti á Reykjanessvæðinu en Kristján sagði að ekki væru til staðreyndir sem sönnuðu þá fullyrðingu. Hvað varðaði áhættuna við að byggja á svæðum sem væru nærri eldvirknisvæðum væri þetta spurning um að vega og meta hlutina. Verður að vega og meta áhættuna SORPEYÐINGARSTÖÐ Suður- nesja sf. fékk fimmtán tilboð frá tíu fyrirtækjum í nýja móttöku- og sorp- brennslustöð sem til stendur að byggja í Helguvík. Tilboðin voru frá rúmum 500 milljónum og upp í tæpar 1,4 milljónir kr. en stærðir stöðvar og tækni er afar mismunandi. Tilboðin virðast hagstæð, miðað við kostnaðar- áætlun. Flutningatækni með lægsta tilboð Tilboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu og önnuðust Ríkis- kaup það verk. Auglýst var eftir til- boðum í fullkomna brennslustöð með að lágmarki 6.000 tonna afkastagetu og 1.000 til 1.500 fermetra móttöku- stöð. Gerðar voru ýtrustu kröfur um mengunarvarnir, aukna flokkun, end- urnýtingu og endurvinnslu í nýju stöðinni, svo og nýtingu varmans. Lægsta tilboðið barst frá Flutn- ingatækni ehf., 509 milljónir tæpar. Þar er um að ræða 8.000 tonna stöð og er meðalverð á hverju tonni í afkasta- getu rúmar 63 þúsund krónur. Eykt ehf. býður 6.120 tonna stöð á 549 milljónir og Hekla hf. og Járnbending ehf. bjóða 7.200 tonna verksmiðju á tæplega 550 milljónir. Í báðum tilvik- um er meðalverð hærra en í tilboði Flutningatækni. Lægsta meðalverð á hverju tonni er í tilboði frá Eykt ehf., rúmlega 53 þúsund krónur. Sú stöð er hins vegar mun stærri en þær sem áður eru nefndar, eða fyrir 12.240 tonna brennslu á ári. Hekla hf. og Járn- bending ehf. bjóða 12.000 tonna verk- smiðju á 651 milljón og er meðalverð á hvert tonn heldur hærra en hjá Eykt, eða rúmlega 54 þúsund. Ístak býður 12 þúsund tonna verksmiðju á 685 milljónir og er meðalverð á tonn í henni 57 þúsund kr. rúmar. Tilboð komu frá fleiri innlendum og einnig erlendum fyrirtækjum. Kostnaðaráætlun verkkaupa var 514 milljónir kr. fyrir verksmiðju með 6.000 til 7.000 tonna afkastagetu. Tek- ur Guðjón Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Sambands sveitarfé- laga á Suðurnesjum sem reka sorpeyðingarstöðina, fram að áætlun- in sé reiknuð út á gengi frá því á síð- asta ári. Samsvarar kostnaðaráætlun- in því 85–100 þúsund kr. á hvert tonn, miðað við gengið um þessar mundir. Rekstrarkostnaður metinn Guðjón segist ánægður með þátt- tökuna í útboðinu, hún hafi verið meiri en vonast var til. Þá segir hann að eftir sé að yfirfara tilboðin en fljótt á litið virðist vera hægt að semja um sorpeyðingarstöð á viðráðanlegu verði. Við mat á tilboðunum sem fram- undan eru verður, auk stofnkostnað- ar, farið yfir áætlaðan rekstrarkostn- að þeirra stöðva sem boðnar eru fram, sveigjanleika þeirra og tækni. Hefur verkkaupi fjóra mánuði til þess en Guðjón segir stefnt að því að ljúka samningum fyrr. Gert er ráð fyrir að stöðinni verði skilað fullbúinni ekki síðar en í desember 2003. Mikill áhugi á að byggja brennslustöð fyrir Sorpeyðingarstöð Suðurnesja Lægstu tilboð rúmar 500 milljónir kr. Helguvík AÐVENTUTÓNLEIKAR verða haldnir í Keflavíkurkirkju næstkom- andi sunnudag, klukkan 20.30. Þar munu Kirkjukórar Keflavíkurkirkju og Kirkjukór Grindarvíkurkirkju flytja saman verk eftir Buxtehude, Bach og Öhrwald. Í verkunum munu flautuleikar- arnir Birna Rúnarsdóttir og Dagný Marinósdóttir spila fylgiraddir með söngnum. Á tónleikunum munu einnig einsöngvararnir Ingunn Sig- urðardóttir og Guðmundur Sigurðs- son syngja einsöngslög eftir Kalda- lóns, Sigurð Þórðarson og fleiri. Eins munu börn úr barnastarfi kirkjunn- ar syngja jólalag og kór Keflavíkur- kirkju mun auk þess flytja fjölda þekktra jólalaga. Séra Sigfús Baldvin Ingvason mun flytja hugvekju og efnt verður til almenns samsöngs á tónleikunum með hátíðlegum brag. Organleik og kórstjórn annast Hákon Leifsson starfandi organisti við Keflavíkurkirkju og Örn Falkner organisti Grindarvíkurkirkju. Syngja saman á aðventu- tónleikum Keflavík ÍRIS Jónsdóttir og Kolbrún Björns- dóttir, Kolla, opna í dag sýningu í Gallerý Hringlist í Keflavík, undir heitinu 2001.nótt. Sýningin stendur til 16. desember. Eins og titillinn ber með sér er þetta ævintýrasýning og er framlag þeirra til að skapa ævintýraheim, því eins og við vitum er fátt betra en að taka þátt í ævintýri, hvort sem er við lestur, upplifun eða sjá þau gerast, segir í fréttatilkynningu um sýn- inguna. Verk Kollu eru myndir þar sem hún notast við pappír og blandaða tækni, svokölluð collage-verk. Íris sýnir akrýlverk á striga og blandaða tækni þar sem hún notar meðal ann- ars gler og málmþynnur í verkin. Öll verkin á sýningunni eru unnin á þessu ári. Kolla og Íris útskrifuðust frá mál- aradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1997 en einnig stunduðu þær nám við Accademia di Belle Arti di Brera í Mílanó árið 1996. Hafa þær starfað við myndlist undanfarin ár og haldið sýningar jafnt heima sem er- lendis. Sýningin er opin á verslunartíma Gallerýs Hringlistar og einnig á sunnudögum frá og með 9. desember. Ævintýrasýn- ing í Hringlist Keflavík KVEIKT verður á jólatrjám Reykjanesbæjar í dag klukkan 18 og á sama tíma á laugardag- inn eftir viku. Unglingar í félagsmiðstöð- inni Fjörheimum sjá um dag- skrána í dag í tilefni af því að kveikt verður á ljósum jólatrés- ins við Ytri-Njarðvíkurkirkju í Njarðvík. Tréð er gjöf frá Pandrup í Danmörku, vinabæ Reykjanesbæjar. Kveikt verður á ljósunum klukkan 18. Boðið verður upp á heitt kakó og tónlistaratriði og jólasveinar koma í heimsókn. Eftir viku, laugardaginn 8. desember, verður síðan kveikt á jólatrénu við Tjarnargötutorg í Keflavík en það er gjöf frá Kristiansand í Noregi, vinabæ Reykjanesbæjar. Kveikt á jólatré í dag Njarðvík ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.