Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 34
LISTIR 34 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á ÁRSÞINGI Þjóðrækn-isfélags Íslendinga íVesturheimi (INL), semhaldið var í Vancouver í Kanada í apríl sem leið, var frek- ari undirbúningur að eflingu heildarsamtaka allra Íslendinga- félaga í Norður-Ameríku helsta málið. Ray Johnson, forseti INL árin 1998 til 2000, hefur unnið öt- ullega að málinu og segir að 83. ársþing INL, sem haldið verður í Minneapolis í Bandaríkjunum í apríl á næsta ári, marki þáttaskil. „Þingið í Minneapolis verður tímamótaþing,“ segir hann. „INL var stofnað 1919 og síðan þá hef- ur þingið verið haldið árlega í Kanada, aðallega í Manitoba en félög utan Manitoba hafa líka séð um þingið. Þetta verður í fyrsta sinn sem þingið verður í Banda- ríkjunum en Minneapolis varð fyrir valinu sem miðpunktur Bandaríkjanna, Kanada og Ís- lands. Með þessu viljum við ná til allra félaga í Norður-Ameríku og leggja áherslu á að Þjóðrækn- isfélagið eru regnhlífarsamtök þeirra allra.“ Á stefnuskrá Þjóðræknisfélags- ins í Vesturheimi er m.a. að við- halda íslenskri menningar- arfleifð, styrkja tengslin milli fólks af íslenskum ættum og við Ísland og efla samstarf ýmissa Ís- lendingafélaga vestra. „Við höf- um mikinn meðbyr frá því í fyrra og hann verður við að nýta,“ seg- ir Ray Johnson og vísar til hátíð- arhaldanna í tengslum við landa- fundina, árþúsundaskiptin og 125 ára afmæli Íslandsbyggðar í Nýja-Íslandi í Manitoba í Kanada. Búist við meira en 300 manns Á ársþinginu í Vancouver voru um 80 þingfulltrúar frá 16 Íslend- ingafélögum í Kanada, Bandaríkj- unum og Íslandi en Ray Johnson segir að gera megi ráð fyrir um 200 þingfulltrúum í Minneapolis auk annarra gesta. Í því sam- bandi nefnir hann að rætt hafi verið um að halda fund ræð- ismanna Íslands í Bandaríkjunum og Kanada í tengslum við þingið. Eins sé mikill áhugi á að útflutn- ingsráð skipuleggi kaupstefnu eða aðra kynningu í Minneapolis á sama tíma og ársþingið fer fram. Ray Johnson segir að hann hafi haft samband við fulltrúa 15 ann- arra félaga í Bandaríkjunum og boðið þeim að sækja þingið og ganga í INL. Flestir viti af félag- inu en samt ekki allir og því sé þörf á að kynna það. Hann segir að í sumum félögum, eins og til dæmis í Washington, séu fé- lagsmenn sem séu til þess að gera nýfluttir frá Íslandi og þeir hafi hugsanlega aðrar þarfir og önnur áhugamál en félagar í t.d. Riverton og Árborg, sem séu fyrst og fremst fólk af annarri og þriðju kynslóð Íslendinga vestra. Samt sem áður sé það hlutverk INL að finna sameiginlegan far- veg og mikilvægt sé að öll Íslend- ingafélög vestra séu undir sama hatti. „Við viljum efla Þjóðrækn- isfélagið og um leið styrkja ein- stök félög og það gerum við með því að fá öll Íslendingafélög til liðs við okkur,“ segir hann, en rúmlega 2.000 manns eru starf- andi í félögum og deildum innan Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi. Ray Johnson segir að rætt hafi verið af alvöru um aukna sam- vinnu allra Íslendingafélaga vest- an hafs undanfarin þrjú ár. Jón Sig. Guðmundsson, ræðismaður Íslands í Louisville í Kentucky í Bandaríkjunum, hafi opnað um- ræðuna en í raun hafi ekkert gerst fyrr en á aðalfundinum í Gimli fyrir tæplega tveimur árum og síðan hafi málið verið tekið föstum tökum í Vancouver á liðnu vori. „Þótt við séum dreifð um Kanada, Bandaríkin og Ísland eigum við svo margt sameiginlegt og Þjóðræknisfélagið getur stuðl- að að ýmsum góðum málum til þess að efla og styrkja tengslin. Snorraverkefnið hefur þegar sannað sig og því þarf að halda áfram í einhverri mynd, gagn- kvæmar heimsóknir listamanna hafa gefið góða raun og til við- bótar má nefna hugmyndir eins og nemendaskipti, kennaraskipti, heimsóknir félagsmanna, skipti á húsnæði í fríum og svo fram- vegis. Menningararfleifðin er mikilvæg og í því sambandi skipt- ir mjög miklu máli að ná til unga fólksins því að þess er framtíðin.“ Framtíðin mikilvæg Aðalfundur Þjóðræknisfélags Íslendinga fór fram í Reykjavík í liðinni viku og var Ray Johnson sérstakur gestur fundarins. Hann fæddist í Manitoba en er af ís- lenskum ættum og er stoltur af því. „Amma mín og langamma Halldórs Ásgrímssonar utanrík- isráðherra voru systur svo við er- um náskyldir og höfum auk þess báðir brennandi áhuga á viðhaldi og vexti Þjóðræknisfélagsins,“ segir þessi eldhugi, sem hitti m.a. Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra og Björn Bjarnason menntamálaráðherra meðan hann var hér. Hann áréttar að utanrík- isráðherra hafi sýnt sérstakan áhuga á starfi Þjóðræknisfélags- ins og honum hafi verið boðið að sækja þingið í Minneapolis og ávarpa það. Ray Johnson var kennari og skólastjóri í gagnfræðaskóla í 34 ár en hefur verið viðloðandi Þjóð- ræknisfélagið undanfarin sjö ár, þar af þrjú ár sem varaforseti og tvö ár sem forseti. „Það fer ekki á milli mála að starfsemi Þjóð- ræknisfélagsins, félaga þess og deilda var sérstaklega sýnileg í tengslum við alla viðburðina í fyrra,“ segir hann og áréttar að á þessum grunni þurfi að byggja. „Margir unnu hörðum höndum í tvö ár við að undirbúa hátíð- arhöldin en ekki má láta þar við sitja heldur halda áfram og því er þingið í Minneapolis svo mik- ilvægt. Þar viljum við sameina kraftana með framtíðina í huga.“ Ársþing Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi í Minneapolis í apríl 2002 Tímamót í sögu félagsins Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Markús Örn Antonsson, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga, býður Ray Johnson, fyrrverandi formann Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vest- urheimi, velkominn á aðalfundinn í Reykjavík. steg@mbl.is      Ársþing Þjóðrækn- isfélags Íslendinga í Vesturheimi verður í Minneapolis í apríl á næsta ári og verður þetta í fyrsta sinn sem þingið fer fram í Banda- ríkjunum. Steinþór Guðbjartsson settist niður með Ray Johnson, fyrrverandi forseta félagsins, og fræddist um gang mála. MEÐAL birtingarmynda samtím- ans í myndlist er leiksviðið, án þess þó að myndlistin geti kallast leikhús í eiginlegri merkingu. Það hefur varla farið framhjá almenningi hve aukin áhersla er lögð á umgjörð og umbúðir við uppfærslu leikrita, líkt og hinn sjónræni þáttur leiksýningarinnar vildi hrifsa til sín eins stóran skerf af mikilvægi textans og unnt væri. Á því er enginn vafi að leikhús samtímans er undir afarsterkum áhrifum mynd- listar og virðast þau áhrif vaxa með hverju nýju leikári. Það gætir ákveðinnar tilhneigingar hjá leikhúsfólki að draga úr bók- menntalegu mikilvægi leikrita en leggja þeim mun meiri áherslu á aðra þætti sem lúta að stundlegri upplifun leikhússgesta. Þannig er leikstjórinn í bullandi samkeppni við leikritaskáld- ið um athygli almennings. Besta leið- in til að tempra vægi textans er að benda mönnum á það að höfundurinn hafi litla sem enga tilfinningu fyrir uppsetningu verks síns og textinn sé dauðadæmdur fái hann ekki þá virku umgjörð sem leikstjórinn einn sé fær um að veita honum. En um leið og sviðsetningin herjar á leiktextann reynir myndlistin að færa sér í nyt aukið sjónrænt vægi leikhússins. Svo er komið að ákveðinn hluti myndlistar er líkastur þögulu leiksviði, eða að minnsta kosti fámálu, þar sem sagan er fyrir borð borin en leiktjöldunum látið eftir að lýsa ástandi sem er eins og augnablikssýn í veruleikann. Ragnar Kjartansson skóp sér ómælda athygli á síðustu Vorsýningu Listaháskólans þegar hann tróð upp í eigin óperatísku skipan, klæddur hnébuxum, silkijakka og hvítpúðruðu parruki. Allan tímann sem sýningin stóð söng Ragnar endalaust resitatíf á ítölsku með tilheyrandi handasnún- ingum og látbragði, hallandi sér upp að nýklassískri arinhillu, eða spíg- sporandi um sinn nauma bás á hæla- háum spennuskóm með hvítvafða kálfa. Undir stiganum í Gallerí i8 kýs Ragnar að halda sig til hlés en láta sviðið sjálft tala sínu máli. Hann hefur múrað upp í hinar lágu dyr að komp- unni. Bakvið múrinn heyrist sársauk- fullur kvenmannsgrátur sem óhjá- kvæmilega gerir sýningargestum bilt við. Það er því engu líkara en einhver óprúttinn skálkur – svona eins og þeir gerast verstir í smásögum Poe – hafi múrað inni lifandi konu. Þótt verkið láti lítið yfir sér er það óneitanlega mjög grípandi, en það virðist einmitt vera aðal Ragnars Kjartanssonar, ef marka má hin bráðsnjöllu verk sem hann hefur sýnt á árinu. Múruð inni MYNDLIST Gallerí i8, Klapparstíg Til 3. desember. Opið þriðjudaga til laug- ardaga frá kl. 13–17. BLÖNDUÐ TÆKNI RAGNAR KJARTANSSON Halldór Björn Runólfsson Múrverk Ragnars Kjartansson- ar í Galleríi i8. Thorunn „Tóta“ Vigfusson lést að morgni miðvikudagsins 19. nóv- ember á Betel elliheimilinu í Gimli, rúmlega 101 árs að aldri, en útför hennar fór fram frá Árdal-Geysir Lúthersku kirkj- unni í Árborg í Manitoba 24. nóvember. Séra Otto Christen- sen, prestur safnaðarins, jarðsöng. Tóta var fædd 15. september árið 1900 í Lundi við Íslendingafljót þar sem nú heitir Riverton. Hún var eina barn foreldra sinna Trausta Vigfússonar og Rósu Aldísar Oddsdóttur. Trausti var kunnur smiður í Nýja Íslandi og byggði nokkrar kirkjur. Á Íslandi hafði hann unnið að smíðum bæði á Akranesi og á Ísa- firði. Móðir Thorunnar var dóttir séra Odds Gíslasonar og Önnu Vil- hjálmsdóttur sem fluttust vestur um haf vorið 1894 er séra Oddur gerðist prestur safnaðarins í Nýja Íslandi. Við útförina flutti ættfræðingurinn og fræðimaðurinn Gerrard Nelson minningarræðu þar sem hann rakti æviferil Thorunnar. Hún fluttist tveggja ára gömul með foreldrum sínum að Vatnsdal á Geysissvæð- inu þar sem þau bjuggu til ársins 1950 að þau fluttu til Árborgar. Thorunn starfaði meginhluta æv- innar að búskap á býli foreldra sinna. Hún var vinsæl og vel látin og sjór af fróðleik um fyrri tíma. Hún var landnemadóttir og líklega síðust til að kveðja úr hópi þeirrar kynslóðar. Thorunn giftist ekki og átti ekki afkomendur. Hún var jarðsett í Geysiskirkju- garðinum. Agnes Frances Kane, sem hét áð- ur Guðrún Böðvarsdóttir, lést 8. október sl., 78 ára að aldri. Hún var búsett í Las Cruces í Nýja Mexíkó í Bandaríkjunum, en fædd- ist á Íslandi 4. janúar 1923. For- eldrar hennar voru Böðvar Guð- jónsson og Sigrún Þorláksdóttir og lætur hún eftir sig sex börn, sem öll búa í Bandaríkjunum. Thorunn „Tóta“ Vigfusson ANDLÁT Í VESTURHEIMI MYNDLISTARMENNIRNIR Jón Sæmund- ur Auðarson og Páll Banine opna sýn- inguna „Séð og heyrt“ í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39, í dag, laugardag, kl. 18. Hljómsveitin Svartfuglarnir leikur við opnunina. Í sýningarskrá er brot úr viðtali sem Haraldur Jónsson, myndlistarmaður, átti við þá félaga í tilefni sýningarinnar: „HJ: Hafið þið eitthvað að fela? S: Nei, þvert á móti. Við erum miklu frekar að vekja at- hygli á ykkur og því að vera maður sjálf- ur. Þetta er afhjúpun á félagslega rándýr- inu sem er inni í okkur öllum. Fæstir þora að horfast í augu við það nema þá í augum nágrannans eða þegar maður er kominn undir sæng með þeim sem maður elskar alla leið.“ Jón Sæmundur útskrifaðist úr fjöltækni- deild MHÍ, 1999 og lauk í sumar masters- gráðu í myndlist frá Glasgow School of Art, Skotlandi. Páll Banine útskrifaðist úr fjöltæknideild síðastliðið vor með BA- gráðu frá LHÍ. Báðir hafa þeir verið virkir í myndlistalífinu bæði hér heima og erlend- is allt frá því að þeir hófu skólagöngu sína. Gallerí Skuggi er opið kl. 13–17 alla daga nema mánudaga. Á slóðinni www.- galleriskuggi.is má fá upplýsingar um myndlistarsýningar og aðra viðburði gall- erísins. Séð og heyrt í Skugga Listamennirnir Jón Sæmundur Auðarson og Páll Ban- ine sýna á sér ný andlit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.