Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 28
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 28 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ HLUTHAFAFUNDUR skó- framleiðslufyrirtækisins X-18 samþykkti á miðvikudag tillögu stjórnar félagsins um að hefja sameiningarviðræður við Ís- lenska skófélagið ehf. Ennfremur var samþykkt að auka hlutfé X-18 um 150 millj- ónir króna að nafnvirði en hlutafé félagsins nemur fyrir 187,5 milljónum króna. Íslenska skófélagið, ÍSF, flytur inn skó til landsins, m.a. undir merkjum Diesel og Skec- hers. Félagið veltir um 200 milljónum króna á ári en eig- endur þess eru að jöfnum hlut fyrirtækin Sportvörur og Út- gerðarfélagið Saga. Eigendur ÍSF eiga meirihluta hlutafjár í X-18 X-18 er hönnunar-, fram- leiðslu- og dreifingarfyrirtæki á X-18 skóm út um allan heim. Hluthafar félagsins eru alls um 150 talsins en eigendur ÍSF, Sportvörur og Útgerðarfélagið Saga, eru jafnframt eigendur meirihluta hlutafjár í X-18, eiga hvort um sig um 32% hlut. Samkvæmt upplýsingum frá X-18 verða nú hafnar samein- ingarviðræður við ÍSF en hlut- hafafundur mun aftur taka af- stöðu til málsins ef grundvöllur reynist til sameiningar. X-18 og ÍSF í sam- einingar- viðræður PRO PR á Íslandi, nýtt kynningar-, markaðs- og auglýsingafyrirtæki, hefur hafið starfsemi. Helstu eigendur eru Hallur Halls- son, Sigursteinn Másson og Einar Magnús Magnússon. Starfsmenn eru fimm. Pro PR býður upp á rannsóknar- og greiningarþjónustu í samvinnu við sérfræðinga. Félagið býður al- hliða kynningar-, markaðs- og aug- lýsingaþjónustu. Það á jafnt við gerð auglýsinga fyrir ljósvaka- og prent- miðla. Þá er viðskiptavinum boðið nám- skeið: Fyrirtækið og fjölmiðlar, sem miðar að því að kynna stjórnendum íslenska fjölmiðla, áfallastjórnun, fjölmiðlaherferðir og leiðsögn um framkomu í sjónvarpi. Á námskeið- inu er sérstaklega fjallað um áföll sem dunið hafa yfir íslensk fyrirtæki og hvaða lærdóm megi af þeim draga. Pro PR hefur starfsemi HRAÐFRYSTISTÖÐ Þórshafnar hf. var rekin með 51 milljónar króna tapi fyrstu níu mánuði ársins. Tölur fyrir fyrstu níu mánuði síðasta árs liggja ekki fyrir til samanburðar. Allt síðasta ár nam tap félagsins 364 milljónum króna. Rekstrartekjur félagsins fyrstu níu mánuði ársins námu 1.386 millj- ónum króna og rekstrargjöldin 1.023 milljónum króna. Fjármagnsgjöldin námu 220 milljónum en þar er tekið tillit til 89 milljóna króna hagnaðar af sölu hlutabréfa. Veltufé frá rekstri var jákvætt um 169 milljónir króna og er veltufjár- myndun rekstrar meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Eigið fé Hraðfrysti- stöðvar Þórshafnar er neikvætt um 96 milljónir króna. Í tilkynningu til Verðbréfaþings Íslands kemur fram að meginorsök á tapi félagsins sé óhagstæð gengis- þróun og tap af rekstri dótturfélags- ins Íslensks kúfisks upp á 48 millj- ónir króna. Nýr framkvæmdastjóri ráðinn Magnús Hilmar Helgason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf. Ráðning Magnúsar er tímabundin en hann hefur störf hjá félaginu 1. desember í stað Jóhanns A. Jónsson- ar sem að eigin ósk lætur af störfum frá og með næstu áramótum. Magn- ús Helgason er fæddur 1958. Hann lauk verslunarprófi 1978 og útskrif- aðist sem fisktæknir frá Fisk- vinnsluskólanum 1982. Hann starf- aði sem verkstjóri, skrifstofustjóri og síðar útgerðarstjóri hjá Hrað- frystistöð Þórshafnar hf. á tíma- bilinu 1981-1995 og á árununum 1995-1996 var Magnús frystihúss- stjóri hjá KEA í Hrísey. Frá 1996 hefur Magnús starfað á Stöðvarfirði, fyrst sem framkvæmdastjóri Gunn- arstinds hf. og síðar sem rekstrar- stjóri Snæfells. Magnús er nú rekstrarstjóri Samherja hf. á Stöðv- arfirði. Hraðfrystistöð Þórshafnar með 51 milljón í tap SAMÞYKKT hefur verið sem stjórnarfrumvarp frumvarp til laga um breytingu á lögum um verðbréfa- viðskipti (nr. 13/1996). Í frumvarpinu eru lagðar til breyt- ingar á ákvæðum laganna sem varða innherjaviðskipti, „til þess að taka af tvímæli um að þeim sem búa yfir trúnaðarupplýsingum sé óheimilt að afla eða ráðstafa þeim verðbréfum sem trúnaðarupplýsingarnar tengj- ast, óháð því hvort um ásetnings- eða gáleysisbrot er að ræða.“ Ákvæðið sem um ræðir hljóðar nú svo með fyrri breytingum: „Innherj- um er óheimilt að nýta trúnaðarupp- lýsingar, beint eða óbeint, til öflunar eða ráðstöfunar verðbréfa.“ Lagt er til að orðalagi ákvæðisins verði breytt þannig: „Innherjum er óheimilt að afla eða ráðstafa verð- bréfum, fyrir eigin reikning eða ann- arra, búi þeir yfir trúnaðarupplýs- ingum.“ Vísað er í athugasemdum við frumvarpið í dóm kveðinn upp í Hér- aðsdómi Reykjavíkur 29. október sl. (svokallað Skeljungsmál). Þar komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að samkvæmt ákvæðum laganna yrðu trúnaðarupplýsingar að vera ákvörð- unarástæða fyrir viðskiptunum, samanber orðasambandið „að nýta til öflunar“. Frumvarpið á að taka af tvímæli um að gáleysi sé nægileg forsenda refsinæmis. Innherjum sé óheimilt að afla eða ráðstafa verðbréfum ef þeir búa yfir trúnaðarupplýsingum um útgefanda bréfanna, bréfin sjálf eða önnur atriði sem ekki hafa verið gerð opinber en eru líkleg til að hafa áhrif á markaðsverð bréfanna. Frumvarp til breytinga á lögum um verðbréfaviðskipti Gáleysi nægileg forsenda refsi- næmis innherja SAMKOMULAG hefur orðið á milli Stjörnugríss hf. og Sláturfélags Suð- urlands (SS) um kaup SS á 37,5% hlut í kjötvinnslufyrirtækinu Fersk- um kjötvörum (FK), Síðumúla 34, sem er í eigu Stjörnugríss og tengdra félaga. Velta FK á þessu ári er áætluð um 1.100 mkr. og starfsmannafjöldi er 80. Upplýsingar um fjárhagshlið kaupanna eru ekki veittar og þær sagðar trúnaðarmál. Í tilkynningu um kaupin kemur fram að SS mun á næstu 3 árum kaupa 20% hlut til viðbótar og eign- ast þar með 57,5% fyrirtækisins. Áætluð hlutdeild beggja fyrirtækja á kjötmarkaði er um 35%. Markmið kaupanna er hagræðing í framleiðslu unninna kjötvara, að því er fram kemur í tilkynningunni. Af- koma fyrirtækja á þessu sviði hefur verið slæm undanfarin ár og þörf hagræðingar til að lækka kostnað. Samvinna SS og FK gerir kleift að hagræða í innkaupum og á vissum sviðum framleiðslu og í rekstri stoð- deilda. SS og FK verða áfram rekin sem aðskilin og sjálfstæð fyrirtæki með eigin framleiðslu, söludeildir og vöru- dreifingu. Með samvinnu er áætlað að rekstrarkostnaður lækki og bæði fyrirtækin verði betur í stakk búin til að framleiða og selja gæða kjötvörur á lægsta mögulega verði og styrkja þar með stöðuna gegn fyrirséðri aukningu í innflutningi kjötvara. Sláturfélag Suðurlands hefur keypt 37,5% hlut í kjötvinnslufyrirtækinu Ferskar kjötvörur. Myndin er tekin í kjötvinnslu SS á Hvolsvelli. SS kaupir 37,5% í Ferskum kjötvörum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.