Morgunblaðið - 01.12.2001, Side 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞINGFLOKKUR Samfylkingarinn-
ar, alls sautján þingmenn, lagði á
fimmtudag fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um að fela ríkis-
stjórninni að beita sér fyrir því á al-
þjóðavettvangi að Ísraelsmenn dragi
heri sína frá hernumdu svæðunum í
Palestínu, í samræmi við friðarsam-
komulagið sem gert var í Ósló árið
1993, og geri þannig Palestínumönn-
um kleift að lifa sem frjáls þjóð í eigin
landi. Alþingi lýsi yfir að þjóðum
heims beri að stuðla að því að Palest-
ínumenn og Ísraelsmenn leysi úr
ágreiningsmálum sínum á grundvelli
alþjóðaréttar, samþykkta Sameinuðu
þjóðanna og mannréttindasamninga.
Alþingi styðji einnig hugmyndir um
að alþjóðlegt gæslu- og eftirlitslið
verði sent á vettvang til að koma í veg
fyrir vopnahlésbrot. Tillagan var lögð
fram í tilefni af alþjóðlegum degi
Sameinuðu þjóðanna til stuðnings
Palestínumönnum og í greinargerð
segir að ástandið sem Palestínumenn
búa við sé með öllu óviðunandi. Sífellt
magnist ófriðarbálið og með því
hörmungar hins almenna borgara,
ekki síst barna og ungmenna.
„Ekki er ofmælt að staðan versnar
ár frá ári. Heilar kynslóðir Palestínu-
manna alast upp í flóttamannabúðum
og sjá ekki annan tilgang með lífinu
en að ganga ofbeldi og hryðjuverkum
á hönd. Eina leiðin út úr ógöngunum
og til að stöðva mannréttindabrotin,
ofbeldið og hryðjuverkin er að gera
palestínsku þjóðinni kleift að lifa sem
frjáls þjóð í eigin landi,“ segir í grein-
argerð með tillögunni.
Þar kemur einnig fram að friður
með sæmd fyrir botni Miðjarðarhafs
væri táknrænt dæmi þess að alþjóða-
samfélagið hefði snúið blaðinu við og
ætlaði í upphafi nýrrar aldar að
standa þannig að málum að hvergi líð-
ist mannréttindabrot eða yfirgangur í
krafti valds gagnvart þjóðum og þjóð-
arbrotum heimsins.
„Ísland hefur alltaf sýnt frumkvæði
að því að viðurkenna ný sjálfstæð ríki,
svo sem Eystrasaltsríkin og fyrrum
lýðveldi Júgóslavíu. Það væri því í
takt við fyrri framgöngu á alþjóða
vettvangi tækju Íslendingar upp mál-
stað Palestínumanna. Vissulega mun
það ekki leysa deiluna fyrir botni Mið-
jarðarhafs þótt Palestínumönnum
verði gert kleift að stofna sjálfstætt
ríki. Forsenda þess að raunverulegur
friður komist á fyrir botni Miðjarð-
arhafs er að Palestínumenn fái aðstoð
til að byggja upp innviði samfélags
síns og leggja góðan grunn að farsælu
efnahagslífi. Þess vegna er þessi til-
laga lóð á vogarskál friðar,“ segir í
greinargerð með tillögunni.
Nokkrar umræður urðu um
ástandið í Palestínu og fyrir botni
Miðjarðarhafs í umræðum um
skýrslu utanríkisráðherra á Alþingi í
fimmtudag, en tillögunni var dreift
meðan á umræðunni stóð. Steingrím-
ur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, lýsti þá þeirri skoðun sinni
að hann styddi stofnun sjálfstæðs rík-
is Palestínu en kvaðst telja að betra
hefði verið að leita stuðnings út fyrir
þingflokk Samfylkingarinnar fyrir
slíkri tillögu.
Árni R. Árnason (D) tók einnig
undir kröfur um sjálfstæði Palestínu
og gat þeirrar skoðunar sinnar, að að-
skilnaðarstefna Ísraelsstjórnar gagn-
vart Palestínumönnum gengi sum-
part lengra en í Suður-Afríku á árum
áður hjá hvíta minnihlutanum í garð
blökkumanna. Halldór Ásgrímsson,
utanríkisráðherra, lét þess getið að
lausn deilunnar fyrir botni Miðjarð-
arhafs þurfi að fela í sér stofnun sjálf-
stæðs ríkis Palestínumanna.
„Að mínu mati er mikilvægt að
lausn finnist á svæðisbundnum
ágreiningsmálum sem oft virðast vera
rót þess haturs sem öfgamenn byggja
tilveru sína á,“ sagði hann. „Langar
mig í því samhengi að ítreka nauðsyn
þess að alþjóðasamfélagið beiti aukn-
um kröftum í að leysa deilurnar fyrir
botni Miðjarðarhafs en slík lausn þarf
m.a. að fela í sér stofnun sjálfstæðs
ríkis Palestínu og að Ísrael verði
tryggt öryggi innan alþjóðlega viður-
kenndra landamæra.“
Þingsályktunartillaga Samfylkingar
Stuðningur
við sjálfstæða
Palestínu
Utanríkisráðherra
segir slíka lausn
nauðsynlega
GERÐ fjárlaga hefur sett svip sinn
á haustþingið og af og til sjást von-
góðir sendimenn hagsmunahópa
sitja fyrir þeim fulltrúum löggjaf-
arsamkundunnar sem valist hafa í
fjárlaganefnd, í því skyni að eiga
með þeim orð eða tvö um þann bráð-
nauðsynlega málstað sem þeir
standa fyrir og hversu lífs-
nauðsynlegt það er fyrir áframhald-
andi rekstur að hljóta nú ofurlitla
náð fyrir augum fjárveitingavalds-
ins. Það er á slíkum stundum sem
rifjað er upp hið eldra nafn nefnd-
arinnar; fjárveitinganefnd.
Í breytingartillögum meirihluta
nefndarinnar er gert ráð fyrir aukn-
um útgjöldum frá frumvarpinu
sjálfu upp á litla 2,2 milljarða króna,
en á sama tíma hafa forystumenn
ríkisstjórnarinnar látið þau boð út
ganga að stefnt sé að niðurskurði
fyrir lokaafgreiðslu upp á 3–4 millj-
arða kr. Ekki er því ljóst hverjar af
tillögunum um aukin útgjöld munu
lifa niðurskurðinn af og komast til
lokaafgreiðslu og setti það nokkurn
svip á langa og ýtarlega umræðu á
þriðjudeginum sem stóð langt fram
á nótt og var í reynd almenn efna-
hagsumræða. Þeim mun fróðlegra
var að kynna sér margbreytilegar
breytingatillögur meirihlutans.
Fjárlaganefnd gerir í viðamiklu
nefndaráliti sínu tillögur um aukin
útgjöld til starfsemi á sviði menn-
ingar, ferðaþjónustu, íþrótta og fjöl-
margra annarra þátta og raunar
virðist sem fátt mannlegt sé henni
óviðkomandi. Meginþema nefnd-
arinnar á undanförum árum hefur
falist í því að rétta hlut landsbyggð-
arinnar, m.a. með uppbyggingu
menningartengdrar ferðaþjónustu.
Svo er að sjá að það starf haldi
áfram, þegar rýnt er í tillögurnar
nú, og örugglega eru það ekki ómak-
legustu útgjöld hins opinbera. Samt
er eins og læðist að manni sá grun-
ur, þegar tillögur nefndarinnar eiga
í hlut, að ekki séu allir rekstrarað-
ilar, t.d. á sviði ferðaþjónustu, jafn
duglegir að koma sér á framfæri, og
fyrir vikið hljóti sumir og ekki aðrir
náð fyrir augum fjárveitingavalds-
ins.
Jón Kristjánsson, heilbrigð-
isráðherra og fyrrverandi formaður
fjárlaganefndar, gerði hinn mikla
fjölda umsókna og beiðna einmitt að
umtalsefni í fyrravetur við af-
greiðslu fjárlaga og sagði að í sum-
um tilvikum mætti líta svo á að með
styrkveitingunni væri Alþingi að
lýsa velþóknun sinni á mikilvægum
störfum einstaklinga og samtaka.
Jón benti á, og því hefur nýr for-
maður nefndarinnar, Ólafur Örn
Haraldsson, fylgt vel eftir, að skort
hefði nokkuð á upplýsingar til
nefndarinnar um afdrif þeirra verk-
efna sem hlytu fjármagn og því yrði
hér eftir við úthlutun farið fram á
skýrslu þar sem fram kæmi hvort
markmið umsækjanda hefðu náðst.
Formanns fjárlaganefndar og
fleiri nefndarmanna bíður nú vinna
um helgina við að móta niðurskurð-
artillögur sínar fyrir þriðju og síð-
ustu umræðu um fjárlögin í lok
næstu viku. Margra augu munu þá
beinast að nefndinni og þingflokkum
stjórnarflokkanna og eflaust verða
ekki allir jafn ánægðir með nið-
urstöður hennar, eins og gengur.
Pétur H. Blöndal er einn þeirra
þingmanna sem gagnrýnt hafa þess-
ar fjárveitingar Alþingis á und-
anförnum árum og segir fara alþing-
ismönnum betur að semja lög í stað
þess að standa sjálfir í fram-
kvæmdum; grafa skurði, byggja
hús, lækna hunda og hross og ala
þorsk. Sat hann því hjá við breyting-
artillögur til útgjaldaauka þegar
greidd voru um þær atkvæði.
Örugglega eru margir sammála
þessu sjónarmiði þingmannsins, en
á móti er á það að benda að Alþingi
fer með hið endanlega fjárveit-
ingavald og ber því og á að bera hina
endanlegu ábyrgð í þessum efnum.
Atkvæðagreiðslur taka þegar oft
langan tíma því bera þarf upp ótal
liði og tíðum þurfa einstakir þing-
menn að gera grein fyrir afstöðu
sinni. Jón Bjarnason, þingmaður
VG, átti þó án efa ummæli vikunnar,
alveg óvart, þegar hann sté í ræðu-
stól og gerði grein fyrir atkvæðum
síns þingflokks og sagði: „Við sitjum
hjá – í grófum dráttum.“
Hló þá þingheimur dátt og brást
ekki að Blöndal að baki þingmanns-
ins í stóli forseta Alþingis tókst þeg-
ar allur á loft og sást grípa jafn-
hendis til pennans. Þóttust
þingreyndir þá merkja kviðling í
smíðum. Reyndist það rétt vera:
Núna kvað við nýjan tón
náðu Vinstri grænir áttum
þegar um síðir sagði Jón:
„Við sitjum hjá í grófum dráttum.“
Fjárlögin og þingmenn sem sitja hjá í grófum dráttum
EFTIR BJÖRN INGA HRAFNSSON
ÞINGFRÉTTAMANN
bingi@mbl.is
HJÁLPARSTARF kirkjunnar og
Reykjavíkurdeild Rauða krossins
hafa tekið höndum saman við
Kringluna og Borgarleikhúsið um
fjáröflunartiltæki vegna jólasöfn-
unar til aðstoðar einstaklingum
hérlendis. Er átakið nefnt „gleðileg
jól handa öllum“.
Á þremur sölubásum í Kringl-
unni verður seldur geisladiskur og
jólastjarna og Borgarleikhúsið
leggur söfnuninni lið með styrkt-
arsýningu á Blíðfinni laugardaginn
8. desember kl. 13. Kostar að-
göngumiðinn 1.600 kr.
Sigurveig H. Sigurðardóttir,
framkvæmdastjóri Reykjavík-
urdeildar RKÍ, og Anna Ólafsdóttir,
upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs
kirkjunnar, tjáðu Morgunblaðinu
að hugmyndin með átakinu væri að
afla sérstaklega fjár til þessarar að-
stoðar við einstaklinga. „Við höfum
í allmörg undanfarin ár átt sam-
starf um þetta verkefni. Hjálp-
arstarf kirkjunnar hefur séð um
framkvæmdina og lagt til húsnæði
og nokkurt fjármagn en Rauða
kross deildin útvegað sjálfboðaliða
og lagt fram fé að auki,“ segir
Anna.
Þær eru sammála um að með
slíku samstarfi náist meiri árangur
og það sé hagkvæmara bæði þiggj-
endum og gefendum að einn aðili
sjái um aðstoð við einstaklinga.
„Rauði krossinn býr svo vel að eiga
hóp sjálfboðaliða sem getur tekið
að sér verkefni sem þessi,“ segir
Sigurveig. „Þeir munu manna sölu-
básana þrjá í Kringlunni og í leið-
inni get ég nefnt að 5. desember
verður dagur sjálfboðaliða sem
minnir á mikilvægi þeirra. Sjálf-
boðaliðar sinna líka samtölum í
Vinalínunni og heimsóknarþjón-
ustu en fyrir utan það hversu marg-
ir hafa það erfitt efnahagslega eru
margir einmana á þessum árstíma
og það er mikil þörf á að sinna þeim
einstaklingum líka.“
Nýtt fyrirkomulag í ár
Innanlandsaðstoðinni nú fyrir
jólin verður hagað með nokkuð öðr-
um hætti en áður. Byrjað verður að
taka við umsóknum á skrifstofu
Hjálparstarfs kirkjunnar við Vatns-
stíg næsta mánudag og þriðjudag
og aðstoð síðan úthlutað fimmtu-
dag og föstudag. Verður svo í þrjár
vikur í desember. Í ár verður einnig
úthlutað venjulegum heimilismat
en ekki hátíðarmat eins og verið
hefur og er stefnt að því að hver og
einn fái tvær til þrjár máltíðir og
verða settir saman staðlaðir pakk-
ar.
Beinn kostnaður beggja aðila við
aðstoð við einstaklinga hefur alls
verið nærri 7 milljónir króna allt
árið og segir Anna að verðmæti
matvöru sem fyrirtæki hafa gefið
sé önnur eins upphæð. Þörf á að-
stoð við einstaklinga hefur farið
vaxandi undanfarin ár. Um 60%
þeirra sem leita aðstoðar eru ör-
yrkjar. Í fyrra leituðu 1.640 ein-
staklingar eftir aðstoð og kom yfir
helmingur þeirra í desember.
Á geisladiskinum Kringlujól, sem
er sérstaklega framleiddur fyrir
átakið, er syrpa jólalaga. Diskurinn
kostar 1.500 og renna þúsund krón-
ur í verkefnið. Einnig verður boðin
sérhönnuð jólastjarna fyrir jólatré
og kostar hún 500 kr. Auk Kringl-
unnar og Borgarleikhússins hafa
margir stutt jólasöfnunina með
ýmsum hætti, m.a. Íslenska auglýs-
ingastofan, Katla, Prentmet, Bolur,
Sýningarkerfi, Sjóvá-Almennar og
Bylgjan.
Morgunblaðið/Sverrir
Gleðileg jól handa öllum er yfirskrift átaks um aðstoð við einstaklinga. Frá vinstri: Einar I. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar, Sigurveig H. Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Reykjavíkurdeildar Rauða kross-
ins, Anna Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar og Ívar Sigurjónsson markaðsstjóri.
Samstarf um fjáröflun
vegna einstaklingsaðstoðar