Morgunblaðið - 01.12.2001, Page 32
ERLENT
32 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁTÖKIN í Afganistan hafa staðið
samfellt í 23 ár og efnahagurinn er í
rúst; börn og unglingar í landinu
hafa aldrei kynnst öðru en styrjöld.
Þau hafa tekið að sér drjúgan hluta
allrar vinnu þar sem vinnufærir
karlar hafa flestir verið uppteknir
af hernaðinum. Og konur máttu í
valdatíð talibana ekki gegna nein-
um störfum. Drengir á táningsaldri
hafa í borginni Jalalabad séð um
gjaldeyrisviðskipti, gert við hús-
gögn og vélar, bakað brauð og hald-
ið uppi eftirliti með riffil um öxl.
Einn hinna síðastnefndu er Mo-
hammad Karim sem er 18 ára.
Hann var nýlega á verði við hótel
eldsnemma að morgni og hélt á
slitnum Kalasnikov-hríðskotariffl-
inum sem hann hefur borið frá því
að hann var barn og gerðist her-
maður. Hann segist aldrei hafa
haldið á penna eða blýanti og kann
ekki að skrifa nafnið sitt.
„Ég sagði föður mínum einu
sinni að mig langaði til að læra en
það var enginn skóli í þorpinu okk-
ar og barist mikið svo að byssan
varð allt mitt líf,“ sagði hann.
Islamuddin er 17 ára og vinnur
við að setja óunna bómull í vél sem
fjarlægir fræin svo að hægt sé að
spinna hana. Hann var byrjaður
klukkan fimm um morguninn, loftið
var mengað bómullarryki sem
þrengdi sér í gegnum grisjuna sem
hann bar.
Fáir nemendur
„Faðir minn dó þegar ég var
barn svo að ég og bróðir minn höf-
um alltaf unnið til að sjá fyrir fjöl-
skyldunni,“ segir Islamuddin.
Hann hefur unnið í bómullarverk-
smiðjunni frá því að hann var 14 ára
og er kominn með lungnasjúkdóm
vegna ryksins.
Hvorki hann né Mohammed
vissu að skólarnir í Jalalabad voru
settir í vikunni, margir þeirra í
fyrsta sinn í fimm ár. Mörg afgönsk
börn eru á framfæri mæðra sem
eru ekkjur vegna stríðsins langa og
hafa því ekki efni á að kosta skóla-
göngu barnanna þótt hún bjóðist.
Talibanar leyfðu flestum drengjum
aðeins að lesa Kóraninn og stúlkur
yfir 8 ára aldri máttu ekki læra
neitt. Talið er að um 250.000 manns
búi í borginni og nokkur þúsund
nemendur voru þegar skráðir til
náms en flest börn og unglingar
héldu þó áfram að gera það sem
þau gerðu áður: strita við hvers
kyns framleiðslu og þjónustu. Þau
eru flest ólæs og óskrifandi.
Erlendar stofnanir fjármögnuðu
rekstur nokkurra skóla sem talib-
anar leyfðu stundum en ofsóttu
þess á milli. Fjölskyldur reyndu
sumar að kenna stúlkum á laun.
Þótt nemendur væru nú fáir mið-
að við fyrri tíma voru um 500 stúlk-
ur á lóðinni við grunnskóla númer 2
í Jalalabad er hann var settur á
miðvikudag. Foreldrarnir létu ljós
létti og um leið eftirvæntingu
vegna umskiptanna og sögðust
hafa haft stöðugar áhyggjur af því
að dæturnar myndu dragast aftur
úr í menntun. Aðstæður eru erfiðar
við skólahaldið, enginn hiti í húsinu,
hvorki til bækur né töflukrít, borð
eða stólar.
„Ég er hér vegna þess að ég vil
að börnin í landinu mínu fái mennt-
un, þá verður hægt að byggja Afg-
anistan upp á ný svo að það geti
staðist samanburð við vestræn
lönd,“ segir Aman Jan, sem kennir
tungumál og raungreinar en selur
grænmeti eftir skólatíma.
Kushan er 18 ára og það er kalt í
stofunni hans. Hann segist vilja
verða læknir. „Nú þegar við erum
frjáls eru sumir strákarnir búnir að
kaupa sér plötur og farnir að horfa
á sjónvarp. En ég held að Afganist-
an þurfi að auka þekkingu á raun-
greinum og vísindum,“ segir hann.
„Talibanar hugsuðu bara um stríð
og bænir. Þeir hefðu átt að hugsa
um að auka framfarir í landinu.“
„Þetta er kaka“
Táningur sem gekk fram hjá
bómullarverksmiðju í borginni
heilsaði fréttamönnum á reiprenn-
andi ensku. Hann sagði föður sinn,
sem er kaupmaður, hafa borgað
fyrir einkatíma í ensku handa sér
allt valdaskeið talibana. Og pen-
ingavíxlarinn Nasrullah, sem
stundar iðju sína í hliðargötu við
markaðstorg í Jalalabad, sagðist
vona að 12 ára sonur sinn myndi
geta byrjað fljótlega aftur í skóla
en hann varð að hætta í fjórða bekk
til að fara að vinna. Drengurinn er
hljóður meðan faðirinn talar en
baslar á meðan við að rifja upp fá-
einar setningar sem hann lærði í
enskutíma. Skyndilega segir hann
hvellum rómi á ensku: „Hérna er
hnífur. Þetta er kaka. Þarna er
penni.“
Þrátt fyrir allt eru merki um að
hægt verði að koma í veg fyrir að
kynslóð Afgana verði útundan og
missi af allri hefðbundinni skóla-
menntun, áhugann skortir greini-
lega ekki.
Ólæs og óskrifandi en
kann á Kalasnikov-riffil
Jalalabad. The Washington Post.
Afganskir unglingar strita fyrir
heimilið eða stunda hermennsku
Washington Post/Pamela Constable
Islamuddin, 17 ára unglingur, við vinnu sína í rykmettuðu loftinu í
bómullarverksmiðju í Jalalabad. Hann hefur aldrei gengið í skóla.
’ Talibanar hugsuðu bara um
stríð og bænir ‘
JÚRÍ Balújevskí, fyrsti að-
stoðaryfirmaður rússneska
herráðsins, sagði í gær, að
Rússar myndu aldrei gefa
neitt eftir gagnvart Banda-
ríkjamönnum hvað varðaði
ABM-gagneldflaugasáttmál-
ann. Samkvæmt honum er
Bandaríkjamönnum óheimilt
að koma sér upp gagneld-
flaugakerfi. Lét hann þessi
ummæli falla daginn áður en
Bandaríkjamenn gera sína
fimmtu tilraun með að skjóta
niður eldflaugar.
Fréttaskýrendur segja, að
ekki sé víst, að þetta sé hin op-
inbera afstaða rússneskra
stjórnvalda, heldur endur-
spegli yfirlýsingin þá miklu
óánægju, sem er innan rúss-
neska heraflans með einhliða
ákvarðanir Bandaríkjastjórnar
í afvopnunar- og vígbúnaðar-
málum.
Rússneska utanríkisráðu-
neytið fagnaði því í gær, að
allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna skyldi hafa sam-
þykkt á fimmtudag með 84 at-
kvæðum gegn fjórum, að stað-
ið skyldi við ABM-sáttmálann.
Fulltrúar 61 ríkis sátu hjá.
Pútín heiðr-
ar Jeltsín
VLADÍMÍR Pútín, forseti
Rússlands, sæmdi í gær fyr-
irrennara sinn í embætti, Borís
Jeltsín, æðsta
heiðursmerki
landsins fyrir
þann þátt,
sem hann átti
í að tryggja
framtíð lands
og þjóðar eft-
ir hrun Sov-
étríkjanna
1991. Gerði
hann það að
viðstöddum
12 leiðtogum
ríkjanna í
Samveldi
sjálfstæðra
ríkja.
Jeltsín, sem stendur á sjötugu,
þakkaði Pútín fyrir að hafa
„það hugrekki“ að sæma hann
orðunni en um var að ræða
„Föðurlandsorðuna“ af fyrstu
gráðu. Þakkaði hann einnig
löndum sínum fyrir það um-
burðarlyndi, sem þeir hefðu
sýnt honum, en óhætt er að
segja, að á ýmsu hafi gengið á
síðara kjörtímabili hans.
Skæruliðar
felldir
í Nepal
TALSMAÐUR stjórnvalda í
Nepal sagði í gær, að 81
skæruliði maóista hefði fallið í
átökum við stjórnarherinn,
sem væri í mikilli sókn. Sagði
hann, að ótiltekinn fjöldi
skæruliða væri tilbúinn til að
ganga til liðs við herinn. Nep-
alstjórn lýsti yfir neyðar-
ástandi í landinu fyrir nokkr-
um dögum og stefnir að því að
vera búin að kveða niður óöld-
ina í landinu eftir hálft ár.
Hafa Bandaríkjamenn og Ind-
verjar boðið henni stuðning og
líklega var það ástæðan fyrir
sprengjuárás skæruliða á
Kóka kóla-verksmiðju í Kat-
mandú í fyrradag.
STUTT
Vara við
brotum
á ABM
Jeltsín
MASAKO, krónprinsessa í Japan,
veifar til aðdáenda við heimreið
keisarahallarinnar í Tókýó í gær.
Við hlið hennar er eiginmaðurinn,
Naruhito ríkisarfi. Masako er
barnshafandi og var í gærkvöldi
flutt á sjúkrahús, fæðingarinnar
var vænst á hverri stundu. Krón-
prinsessan er 37 ára, árinu eldri en
Naruhito, og hefur ekki áður eign-
ast barn. Ef um son verður að ræða
mun hann verða næstur Naruhito í
röð ríkiserfðanna. Japönsk lög
leyfa ekki enn, að kona taki við
krúnunni. Talsmaður hirðarinnar
sagði að Masako væri við góða
heilsu og Naruhito væri hjá eig-
inkonu sinni á sjúkrahúsinu.
Masako á sjúkrahús