Morgunblaðið - 01.12.2001, Síða 43

Morgunblaðið - 01.12.2001, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 43 Nýlegar ar dregið ólgu í efa. sem eng- vo virðist r til þess séu ekki . í saman- ímans. jórnvalda beinast í kiptahall- r eftir að- ahalli er viðskipta- s að fjár- aðila mun væntan- ða aukinn ns. Við- ætti ekki ki á gengi árfestingu lega við- gengisað- um hefur m, og þótt hækkað í unin mun eiðum. Ef yrri tíðar ekki hafa u 2000 og verulega. nd býr við því hvorki rlagahalla nar. Tveir ahalla ár- af minnk- og einn ngu. Gríð- essum ár- kið frelsi í að veru- halla und- d að við- r að rekja til marks ert að að- Nei, ekki að gáð á átt í við- t vera við leyti sem gið vera tryggingu lántökur. til í eigu ríkisins, og erlendir lánardrottnar hafa tilhneigingu til þess að trúa því að ríkið muni bjarga mikilvægum bönkum ef þeir lenda í vandræðum. Stjórnvöld hafa þar að auki áhrif á væntingar einkaaðila um framtíðar- tekjur. Þar sem viðskiptahalli er al- mennt talinn vera áhættuþáttur hvað fjármálakreppur varðar getur mikill viðskiptahalli aukið líkurnar á kreppu þótt hann sé góðkynja, einungis vegna þess að markaðsað- ilar hafa ótta af þeirri reynslu að samband sé milli viðskiptahalla og fjármálakreppu.“ Almenn sátt um að fast- gengisstefna sé óheppileg Að lokinni þessari umfjöllun um efnahagsvanda Íslands fjallar Stigl- itz um þá stefnu sem almennt er æskilegt að stjórnvöld fylgi við þær aðstæður sem lýst er hér að ofan. Hann segir að ábati aukinnar al- þjóðavæðingar sé svo mikill að ekk- ert land vilji einangra sig og missa þannig af honum, en alþjóðavæð- ingunni fylgi þó áhætta. Áhættu- stjórn sé í hnotskurn sá vandi sem lítil og opin hagkerfi standi frammi fyrir. Stiglitz tengir vandann frjálsu flæði fjármagns og telur réttlætan- legt að ríkið hafi afskipti af fjár- magnsflæði vegna áhrifa þess á flesta í þjóðfélaginu. Hann segir nokkrar gerðir takmarkana fjár- magnsflæðis koma til greina, svo sem upplýsingaskylda, skattar, ýmsar gerðir reglna eða bein höft. Eins og annars staðar megi færa rök fyrir því að takmarkanir sem hafi áhrif á verð, svo sem skattar, hafi mikilvæga kosti umfram bein höft. Þá segir hann almenna sátt vera að komast á um að fastgengisstefna sé óheppileg og að hún gangi vart til lengdar. Hann segir að menn séu ekki enn á eitt sáttir um það hvort eða í hversu miklum mæli seðla- bankar eigi að stunda íhlutun á gjaldeyrismarkaði, sú saga sé ekki sérlega glæsileg. Hins vegar sé lík- legt að íhlutun geti hentað því betur sem markaðurinn er þynnri. Stiglitz segir að of mikil áhersla á reglur um eiginfjárhlutfall banka geti haft óæskilgar afleiðingar þeg- ar kreppa ríði yfir. Þess vegna sé mikilvægt að stjórnvöld notist einn- ig við annars konar reglur, svo sem takmarkanir á hraða útlánaaukn- ingar og takmarkanir á gjaldeyris- áhættu. Æskileg stefna íslenskra stjórnvalda Loks segir í samantekt Seðla- bankans úr skýrslu Stiglitz: „Að lokum fjallar Stiglitz um æskilega stefnu stjórnvalda á Íslandi í ljósi þeirrar stöðu sem komin er upp í efnahagsmálum: 1. Umfjöllunina um stefnu stjórn- valda hér að ofan má nú nota til þess að átta sig á æskilegum við- brögðum íslenskra stjórnvalda um þessar mundir. Viðskiptahallinn er ekki endilega raunverulegt vanda- mál, en hann veldur hættu á óstöð- ugleika og því er æskilegt að gripið sé til aðgerða til þess að lækka hann. 2. Fastgengisstefna stjórnvalda sem horfið var frá í mars sl. ýtti undir fjármagnsflæði til landsins og þar með viðskiptahallann því mark- aðsaðilar vanmátu líkurnar á geng- isfellingu. Að auki virðist kenningin um hagkvæm myntsvæði benda til þess að fljótandi gengi henti Íslandi betur en fast gengi. Upptaka verð- bólgumarkmiðs og afnám vikmarka krónunnar var því heppileg stefnu- breyting. 3. Veiking krónunnar á undan- förnum mánuðum ætti að lækka viðskiptahallann, jafnvel þótt hún gangi að hluta til baka og raun- lækkunin verði minni vegna auk- innar verðbólgu. Aðgerðir til þess að koma böndum á aukin útlán og til þess að minnka gjaldeyrisáhættu innlendra aðila sem ekki hafa tekjur í erlendri mynt ættu einnig að hjálpa til við að minnka við- skiptahallann. Þessar aðgerðir duga líklega ekki til þess að koma jafnvægi á viðskipti við útlönd. Ekki er skynsamlegt að freista þess að lækka viðskiptahallann með því að auka aðhald í fjármálum. En ýmsar aðrar aðgerðir eru hugsan- legar, svo sem hækkun vörugjalds á varanlegar neysluvörur. 4. Mikilvægustu fyrirbyggjandi aðgerðir sem stjórnvöld geta gripið til eru þær sem minnka sveiflur í flæði fjármagns, s.s. skattar á fjár- magnsflutninga, upplýsingaskylda og reglur sem setja bönkum skorð- ur (sjá umfjöllun hér að ofan). Lausafjárkvaðir sem Seðlabankinn setti á árið 1999 höfðu jákvæð áhrif. Stjórnvöld ættu að íhuga víðtækari reglur af sama tagi sem taka tillit til gjaldeyrisáhættu skuldunauta bankanna. 5. Stjórnvöld ættu einnig að setja nýjar reglur um upplýsingaskyldu þeirra sem skulda í erlendri mynt. 6. Takmörk á hraða útlánaaukn- ingar einstakra banka eru ef til vill einnig heppileg, sérstaklega í ljósi þess að hraður vöxtur útlána virðist oft hafa verið ein af meginorsökum fjármálakreppu á síðari árum og að öryggisnet fjármálakerfisins hvet- ur banka til að taka áhættu að hluta til á kostnað almennings. Slíkar hraðatakmarkanir gætu verið í formi reglna og/eða skatta. Til greina koma hærri eiginfjárkröfur, hærri innborganir í innlánstrygg- ingarkerfi eða meira eftirlit hjá þeim stofnunum sem þenjast út hraðar en tiltekin mörk leyfa. 7. Hækkað lágmark eiginfjár- hlutfalls banka er ef til vill einnig heppilegt um þessar mundir. Slík stefna hefur samt ókosti, og því má ekki leggja of mikið upp úr henni. Þar að auki er mikilvægt að hafa það í huga að ef hagkerfið lendir í samdrætti getur ósveigjanlegt lág- mark á eigið fé banka haft slæm áhrif.“ ans Joseph Stiglitz á íslensku hagkerfi ptahallinn vandinn slands samdi snemma árs í fræðinginn Joseph Stiglitz erði úttekt á íslensku hag- þáttum sem varða fjármála- eika. Hér er birtur hluti af eðlabankans úr skýrslunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg belsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz. SAMSKIPTI Rússa við Atl-antshafsbandalagið hafaverið í brennidepli eftirárásir hryðjuverkamanna á Bandaríkin 11. september. Yves Brodeur, talsmaður NATO, sagði í samtali í höfuðstöðvum bandalags- ins í Brussel að þar væri um að ræða nýtt skref í ferli, sem hafist hefði á síðasta áratug, en ekki kúvendingu. Stefnt væri að því að í ákveðnum málum tækju Rússar og NATO sameiginlegar ákvarðanir, en hins vegar kæmi ekki til greina að Rúss- ar fengju neitunarvald í málum, sem snertu öryggishagsmuni aðildar- ríkjanna. „Ég tel lykilatriðið vera að sam- skiptin milli NATO og Rússlands hafa verið að þróast í rétta átt í nokkurn tíma. Allt frá 1997 þegar Stofnsáttmálinn um samskipti, ör- yggi og samvinnu Rússa og NATO hafa hvorir tveggju verið að skoða hvernig mætti víkka þá samvinnu út og bæta samskiptin. Um leið var stofnað hið varanlega sameiginlega ráð [PJC eða Permanent Joint Council] sem er samráðsvettvangur fyrir Rússland og NATO til að ræða málin. Við höfum verið að leita leiða til að víkka PJC því að sá vettvangur ræðst af því hvað út honum er gert. Það eru með öðrum orðum engin takmörk fyrir umfangi starfsemi hans. Fyrir 11. september var títt samráð við Rússa. Við höfðum starf- að saman á Balkanskaga við að koma á friði og stöðugleika. Það var samráð milli bæði utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra aðildarríkja NATO og Rússlands. Hlutirnir gengu því vel, þótt í hreinskilni verði að taka fram að Rússar hafi ekki verið með öllu ánægðir. Hér kemur tvennt til. Rússar hafa ekki dregið dul á það að þeir líta stækkun NATO ekki jákvæðum augum og töldu að hún væri hótun og ónauðsynleg. Þeim fannst einnig að PJC væri að- eins vettvangur til samráðs og vildu hafa meiri sveigjanleika til að taka ákvarðanir með NATO þar sem hagsmunir fóru saman. Áhrif 11. september voru þau að ýta á þessa þróun.“ Af samráðsstigi í að taka sameiginlegar ákvarðanir Skömmu eftir 11. september – 3. október nánar tiltekið – hitti Ro- bertson lávarður, framkvæmda- stjóri NATO, Vladímír Pútín, for- seta Rússlands, í Brussel. „Þegar Pútín hitti framkvæmda- stjóra NATO hér í Brussel áttu þeir athyglisverðar samræður,“ sagði Brodeur. „Robertson spurði hvort Rússar vildu ganga í NATO. Ef svo væri ættu þeir að sækja um, en ef ekki ætti skoða hvernig hægt væri að vinna að aukinni samvinnu og gleyma aðildarspurningunni. Pútín svaraði því til að Rússar hefðu ekki áhuga á aðild. Þá sagði Robertson að hann vildi leggja til að stofnuð yrði hugmyndasmiðja, sem hefði það verkefni að stefna saman sérfræðingum Rússa og NATO til að finna á hvaða sviðum hægt væri að eiga raunverulegt sam- starf milli NATO og Rússlands og aðildar- ríkja NATO og Rúss- lands. Bent hafði verið á nokkur svið, þar á meðal leitar- og björg- unaraðgerðir vegna náttúruhamfara, ger- eyðingarvopn, aðgerð- ir gegn hryðjuverka- starfsemi og jafnvel möguleikann á að líta á endurskipulagningu herja. Heim- sókn Pútíns til Bandaríkjanna hrað- aði enn atburðarásinni. Robertson fór til Rússlands í síð- ustu viku í boði Pútíns og þar áttum við könnunarviðræður við forystu- menn í Rússlandi um það hvaða svið væru hentug til aukins samstarfs og jafnvel sameiginlegra ákvarðana. Það var hins vegar engin umræða um það hvaða verklagi yrði komið á í því skyni. Hugmyndin um nýtt ráð fyrir þessar tuttugu þjóðir, það er aðildarríkin nítján og Rússland, er komin frá Tony Blair, forsætisráð- herra Bretlands og er ekki enn af- staða NATO. Bandalagsríkin eiga enn eftir að setjast niður og ákveða hvað beri að gera. Við höfum því ekki lagt fram tillögu fyrir Rússa því að við höfum ekki ákveðið hvernig halda eigi málinu áfram. Það er einnig ljóst að ákvörðun um að koma á verklagi til að taka sameiginlegar ákvarðanir mun ekki útiloka rétt NATO og aðildarríkjanna 19 til að ákveða hvað bandalaginu sé fyrir bestu og því er allt tal um neitunar- vald Rússa út í hött.“ Ekki leið Rússa til að lama NATO Hann sagði að enginn vildi sjá þetta samstarf mistakast og því mundi enginn leggja út í viðræður við Rússa um málefni þar sem litlar líkur væru að samkomulag næðist og því væri ekki verið að tala um neitunarvald: „Það er einfaldlega ekki raunhæft að ætla að Rússar myndu geta komið í veg fyrir ákvarðanir aðildarríkjanna nítján til eflingar hagsmunum bandalagsins. Þess utan tóku Rússarnir skýrt fram í viðræðunum fyrir viku að þeir vildu ekki ræða hernaðarmál, þeir vildu ekki verða meðlimir í NATO, hvorki gegnum framdyrnar né bak- dyrnar, og litu ekki á þetta sem leið til að lama NATO. Þeir væru ekki að leitast eftir neitunarvaldi og þeir vissu að það fengju þeir ekki.“ Brodeur sagði að Robertson myndi í næstu viku gefa Norður-Atl- antshafsráðinu skýrslu um viðræður sínar í Moskvu og þar yrði farið yfir hvernig best væri að halda áfram. Á fundi utanríkisráðherra NATO 6. og 7. desember yrðu samskiptin við Rússa síðan rædd. Hann sagði að erfitt væri að segja til um það hvaða áhrif hryðju- verkin myndu hafa á framtíð NATO. „Hryðjuverkin munu ekki leiða til stórkostlegra breyt- inga á NATO,“ sagði hann. „Við erum þegar með fast skipulag, en það má þó vænta breytinga að því leyti að hryðjuverk munu vega mun þyngra í um- ræðunni. Við höfum til dæmis verið að ræða hinar nýju ógnir 21. aldarinnar, þar á meðal útbreiðslu gereyðingar- vopna, og það er ljóst að hryðjuverk munu bætast þar við.“ Brodeur játti því að áður hefðu verið lögð á ráðin um hryðjuverk og 1993 hefði verið gerð tilraun til að sprengja upp World Trade Center í New York. Staðreyndin væri hins vegar sú að 11. september hefði fólk áttað sig á því að til væri fólk, sem væri reiðubúið til að myrða saklausa borgara svo þúsundum skipti, til að ná fram markmiðum sínum. „Þetta eitt og sér hefur áhrif,“ sagði hann. „Ekki bara vegna þess hve margir létu lífið heldur vegna þess að það hafði áhrif á öryggi fólks og efnahagslífið. Þetta er þáttur, sem hefur áhrif á stöðugleika og er því ógn, sem steðjar að öllum. Þann- ig sáu bandalagsríkin þetta og þess vegna var ákveðið að virkja fimmtu grein stofnsáttmála Atlantshafs- bandalagsins.“ Fundurinn í Reykjavík gæti fengið sérstaka merkingu A vori komanda verður fundur ut- anríkisráðherra Atlantshafsbanda- lagsins haldinn í Reykjavík. Brod- eur sagði að hann gæti orðið sögulegur. „Gestgjafinn býður okkur að halda fundinn og við þiggjum boðið,“ sagði hann. „Síðan er það á ábyrgð gestgjafans að skipuleggja fundinn. Hann tryggir öryggið. Ef við kom- umst að þeirri niðurstöðu að það sé áhætta yrði það vegna þess að Ís- lendingar segðu að það væri ástæða til að huga betur að þessum málum. En það hefur enginn áhyggjur hjá NATO og flesta hlakkar til að koma til Reykjavíkur. En fundurinn gæti einnig orðið athyglisverður vegna þess að þar verður lögð fram síðasta matsskýrslan um stækkun og þar með verður hið formlega ferli fyrir fundinn, sem haldinn verður í Prag haustið 2002 til að ákveða hvaða ríki verði næst í stækkunarferlinu. Ég held að Reykjavík fái sérstaka merkingu bæði vegna þess og einnig vegna þess að þar gæti í fyrsta sinn orðið fundur með nýju fyrirkomu- lagi varðandi Rússa.“ Rússar fá ekki neitunarvald Yves Brodeur, helsti talsmaður Atlantshafs- bandalagsins, segir að aukið samstarf við Rússa og hugsanleg þátttaka þeirra í ákvarðanatöku muni ekki færa þeim neit- unarvald í hernaðar- málum. Karl Blöndal ræddi við hann um stöðu mála eftir 11. september. Reuters Robertson lávarður, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, og Vladímír Pútín, forseti Rússlands, í Moskvu 23. nóvember. Yves Brodeur kbl@mbl.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.