Morgunblaðið - 01.12.2001, Side 52
Aglow Reykjavík
með jólafund
AGLOW Reykjavík, kristileg samtök
kvenna, halda sinn árlega jólafund
mánudaginn 3. desember í Kristni-
boðssalnum á Háaleitisbraut 58 í
Reykjavík, kl. 20. Jón Þór Eyjólfsson,
forstöðumaður Hvítasunnukirkjunn-
ar Klettsins, talar til gesta og Guðrún
Magnúsdóttir (Dúrý) syngur jólalag.
Þetta er opinn fundur fyrir karl-
menn og eru eiginmenn, synir og aðr-
ir hvattir til að koma með konunum.
Jólakaffi, hlaðborð. Þátttökugjald er
600 kr. Allir velkomnir.
STARFSMENN Ásgarðs ætla að
vera með nokkrar sölusýningar á
leikföngum sínum fyrir jólin á
eftirtöldum stöðum: Eiðistorgi
laugardaginn 1. desember kl. 11–
17, í Kringlunni fimmtudaginn 6.
desember kl. 11–17, í Borgarleik-
húsinu í sambandi við leiksýningu
Ásgarðs á Hamlet, sunnudaginn
8. desember, í Fjarðarkaupum
miðvikudaginn 12. desember kl.
11–17, á Eiðistorgi laugardaginn
15. desember kl. 11–17. Einnig er
hægt að haft samband við Ásgarð
og panta leikföng.
Ásgarður er verndaður vinnu-
staður sem stofnaður var 1993 og
er með verkstæði sem framleiðir
aðallega leikföng úr íslensku tré.
Starfsmenn leggja áherslu á að
hanna og þróa einföld og sterk
leikföng sem eiga sér samsvörun
í íslenskum þjóðháttum, segir í
fréttatilkynningu.
Jólasala Ásgarðs
LJÓS verða tendruð á Hamborg-
artrénu í 36. sinn í dag kl. 17. Gef-
andi trésins er Hamborgarhöfn.
Ýmsir hafa lagt hönd á plóginn til
að koma trénu til landsins, en þar
má fyrst nefna Karl Konrad skóg-
arhöggsmann, þýska herinn sem
flutti tréð til hafnar, trygginga-
miðlarann Georg Duncker, mark-
aðsdeild Hamborgarhafnar, sem sá
um alla umsýslu og Eimskipafélag
Íslands hf., sem sá um flutninginn
til landsins.
Jürgen Sorgenfrei, forstjóri
markaðssviðs hafnarinnar í Ham-
borg og sendiherra Þýskalands á
Íslandi, Hendrik Dane, afhenda
forsvarsmönnum Reykjavíkurhafn-
ar tréð í dag, laugardag. Í ár eru
36 ár liðin frá því að fyrsta tréð
barst til landsins. Eimskipafélag
Íslands hf. hefur í öll skiptin flutt
tréð endurgjaldslaust til Reykja-
víkur.
Árleg afhending trésins er þakk-
lætisvottur til íslenskra sjómanna
fyrir matargjafir til barna í Ham-
borg sem þeir af myndarskap
færðu stríðshrjáðum börnum eftir
síðari heimsstyrjöldina. Upphafs-
menn að þessari hefð voru Her-
mann Schlünz og Werner Hoenig
sem minntust rausnarskapar Ís-
lendinga og ákváðu árið 1965 að
minnast hans með þessum hætti.
Þeir stóðu að skipulagningu og
undirbúningi við gjöfina frá upp-
hafi en síðustu ár hefur markaðs-
svið Hamborgarhafnar, Reykjavík-
urhöfn og Þýsk-íslenska
verslunarráðið tekið við.
Við afhendinguna syngur kór
Kársnesskóla undir stjórn Þórunn-
ar Björnsdóttur.
Kveikt á
jólatré
á Mið-
bakka
Félag um lýðheilsu
STOFNFUNDUR Félags um lýð-
heilsu verður haldinn mánudaginn
3. desember kl. 17, í fundarsal (1.
hæð) Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur.
Ávarp flytja Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra og Sigurður Guðmundssson,
landlæknir.
Undanfarna mánuði hefur hópur
fólks unnið að því að undirbúa stofn-
un félags um lýðheilsu. Á fundi sem
haldinn var í maí komu fulltrúar
margra faghópa, félaga og stofnana
og lýstu fundarmenn sig reiðubúna
til að vinna að stofnun slíks félags.
Fundarmenn litu á félagið sem
tækifæri til að stilla saman strengi
og vinna að nýjum verkefnum á
sviði forvarna og heilsueflingar. Fé-
laginu er ætlað að verða nokkurs
konar regnhlífarsamtök áhugafólks
um lýðheilsu. Sambærileg félög eru
starfandi í nágrannalöndum okkar
og einnig eru til alþjóðasamtök sem
leitað verður eftir samstarfi við.
Lýðheilsa varðar félagslega og
heilsufarslega þætti þjóða og hópa.
Lýðheilsa miðar að því að bæta heil-
brigði, lengja líf og bæta lífsgæði
þjóða og hópa með almennri heilsu-
vernd, heilsueflingu, sjúkdómavörn-
um og annarri heilbrigðisþjónustu.
Félag um lýðheilsu yrði félag fag-
manna og áhugafólks um lýðheilsu á
Íslandi, segir í fréttatilkynningu.
FRÉTTIR
52 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝ ÚTGÁFA af Fjölskylduvefnum
var opnuð nýlega við hátíðlegt
tækifæri að viðstöddum við-
skiptavinum og velunnurum fyr-
irtækisins Mentors. „Hinn nýi vef-
ur, Fjölskylduvefurinn, er alger
nýjung í veflausnum skóla. Með til-
komu hans geta foreldrar skráð sig
inn á vefinn með lykilorði sem þeir
fá sent frá skólanum og fá þá að-
gang að sérstakri heimasíðu fjöl-
skyldunnar þar sem upplýsingar
um öll börn viðkomandi heimilis
birtast, hvort sem þau eru í leik-
skóla eða grunnskóla,“ segir m.a. í
fréttatilkynningu frá Mentor ehf.
„Sýnishorn af því sem koma skal
má finna á eftirfarandi slóð: http://
www.mentor.is/mentor_v03. Þar
er smellt á „Tengjast fjölskylduvef“
til hægri á skjánum til þess að sjá
sýnishorn af því sem koma skal.
Skólastjórnendur, ritarar og
kennarar hafa möguleika á að
senda upplýsingar á vefinn með
hjálp Stundvísi og því er mjög auð-
velt fyrir skólana að viðhalda vefn-
um,“ segir þar ennfremur.
Morgunblaðið/Sverrir
Ingunn Sigurrós Bragadóttir, fulltrúi foreldra, Björn Bjarnason
menntamálaráðherra og Pétur Pétursson, stofnandi Mentor.
Fjölskylduvefurinn
Basar og
kaffisala KEFAS
KEFAS, kristið samfélag, heldur
sinn árlega basar sunnudaginn 2.
desember kl. 14–17. Að þessu sinni
er basarinn til styrktar nýju kirkju-
byggingunni sem risin er á Vatns-
endabletti 601 við Vatnsendaveg.
Á boðstólum verða heimabakaðar
kökur, matvara, föndur og ýmsar
gjafavörur. Hátíðartónlist verður
flutt af hjómsveit hússins og kaffi og
rjómavöfflur verða seldar.
KEFAS fluttist af Dalveginum
fyrr á árinu og í september var húsið
tekið formlega í notkun, segir í
fréttatilkynningu.
Gengið í Jósepsdal
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til
ferðar í Jósepsdal sunnudaginn 2.
desember. Dalurinn er undir Ólafs-
skarði og suðaustan undir Vífilsfelli.
Áætlaður göngutími er um 2–3 klst.
Verð 1.200/1.500 kr. Fararstjóri
verður Sigurður Kristjánsson. Lagt
verður af stað frá BSÍ kl 10.30 með
viðkomu í Mörkinni 6.
Lýst eftir vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi er varð
á Reykjanesbraut, skammt sunnan
Álfabakka, fimmtudaginn 22. nóv-
ember kl. 8.49. Þar varð árekstur
með hvítri Subaru Forester-fólksbif-
reið og blárri Hyundai H-1-sendibif-
reið, sem báðum var ekið norður
Reykjanesbraut. Þeir sem upplýs-
ingar geta veitt um málið eru vin-
samlega beðnir um að hafa samband
við Lögregluna í Reykjavík.
Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir
tjónvaldi eða vitnum að því er ekið
var á stóra hvíta Mercedes Benz-
sendibifreið merkta BYGG á hliðum
en ekið var á hægri hlið hennar mið-
vikudaginn 20. nóvember á milli kl.
15 og 15.30 í porti Húsasmiðjunar í
Súðarvogi.
Þann 1. nóvember sl. var ekið á
bifreiðina TH-627, sem er blá VW
Golffólksbifreið, þar sem hún stóð
kyrr og mannlaus á bifreiðastæði við
Mýrargötu.
Hafði bifreiðinni verið lagt þar um
morguninn og stóð þar til næsta
morguns. Sá sem ók á bifreiðina fór
hins vegar af vettvangi án þess að til-
kynna það hlutaðeiganda eða lög-
reglu og er því hann eða aðrir sem
geta gefið frekari upplýsingar beðn-
ir að snúa sér til lögreglunnar í
Reykjavík.
Opnun sögusýningar í gömlum strætisvagni
Strætó í 70 ár
„UM ÞESSAR mundir eru 70 ár
síðan almenningssamgöngur hófust
á höfuðborgarsvæðinu. Lækjartorg-
Kleppur var fyrsta strætisvagna-
leiðin og hinn 31. október 1931 var
fyrsta ferðin farin. Af þessu tilefni
verður sögusýningin „Strætó í 70
ár“ opnuð í gömlum strætisvagni á
Lækjartorgi, í dag kl. 14. Sýningin
stendur til kl. 17 og er opin almenn-
ingi,“ segir í fréttatilkynningu frá
Strætó.
„Ljósgrænn Volvo-strætisvagn
frá árinu 1968 hýsir sögusýninguna
þar sem getur að líta gamla ein-
kennisbúninga, leiðabækur, farmiða
og skiptimiða, módel af elstu vögn-
unum og ýmsa aðra muni sem
tengjast almenningssamgöngum.
Næstu vikur mun strætisvagninn
ferðast á milli grunnskóla á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem nemend-
um í 5. bekk verður boðið á sögu-
sýninguna. Um helgar verður
sýningin opin almenningi á mis-
munandi stöðum á höfuðborgar-
svæðinu og er aðgangur ókeypis.
Jón Hallur Stefánsson tónlistar-
maður hefur samið lag um strætó
sem hann kallar „Leiðasöng“ og
verður lagið frumflutt við opnun
sýningarinnar.
Strætó í 70 ár er skemmtileg og
lifandi sýning sem sýnir hversu
stóran þátt strætisvagnar eiga í
daglegu lífi höfuðborgarbúa og
menningarsögu þjóðarinnar, segir í
fréttatilkynningu. Við undirbúning
sýningarinnar fundust hátt í tvö
hundruð ljóð sem tengjast stræt-
isvögnum á einn eða annan hátt og
verða nokkur þeirra til sýnis í
vagninum.
Einnig verða ljóð fest upp í loftið
á nokkrum vögnum Strætó bs.
meðan á sýningunni stendur.
Næstu tvo mánuði tekur leiðsögu-
maður sér far með vögnunum en
hann mun segja farþegum frá því
sem fyrir augu ber og sögu þeirra
svæða sem ekið er um. Þessar ferð-
ir verða auglýstar sérstaklega,“
segir jafnframt í fréttatilkynningu.
Sigríður Bachmann sagnfræðing-
ur hefur annast uppsetningu sýn-
ingarinnar.
ÁRLEG jólasýning Árbæjarsafns
verður opin sunnudagana 2. og 9.
desember frá kl. 13–17. Þá gefst
gestum tækifæri til að fylgjast með
undirbúningi jólanna eins og hann
var í gamla daga, flest hús safnsins
verða opin og mikið um að vera.
Í Árbænum sitja fullorðnir og
börn með vasahnífa að skera út
laufabrauð sem er steikt í eldhús-
inu og gestum boðið að bragða á.
Einnig verða steypt kerti í skemm-
unni, bæði úr tólg og vaxi. Uppi á
baðstofulofti verður spunnið,
prjónað og saumaðir roðskór,
krakkar vefja jólatré lyngi og jóla-
sögur verða lesnar.
Í Hábæ verður hangikjötið kom-
ið í pottinn og leikfangasýningin í
Kornhúsi hefur fengið jólasvip, þar
verður einnig sýnt jólaföndur og
gestir fá að föndra. Í Efstabæ er
jólaskrautið komið úr kössunum,
og skatan komin í pottinn. Í List-
munahorninu verður sýning á jóla-
skrauti og í salnum í húsinu Lækj-
argötu 4 verða sýnd jólatré af
ýmsum toga. Dillonshús býður upp
á ljúffengar veitingar, heitt súkk-
ulaði og jólalegt meðlæti.
Klukkan 14 verður messa í safn-
Jólasýning
Árbæjar-
safns
kirkjunni og klukkan 15 hefst jóla-
trésskemmtun.
Sunnudaginn 2. desember syngja
skólabörn úr Ártúnsskóla jólalög.
Síðan verður dansað í kringum
jólatréð. Jólasveinar, þessir gömlu
íslensku, verða á vappi um safn-
svæðið frá kl. 14–16.30 hrekkjóttir
og stríðnir að vanda og taka þeir
þátt í dansinum kringum jólatréð,
segir í fréttatilkynningu.
Lágvöru-
verðsverslun í
blómasölu
„FYRSTA lágvöruverðsverslun hér-
lendis í blómasölu tekur til starfa í
dag, laugardag kl. 10, með fjöl-
breyttu úrvali blóma, bæði afskorn-
um blómumog pottablómum og ýms-
um varningi sem tengist ræktun og
umhyggju blóma,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Blómalagernum.
Verslunin heitir Blómalagerinn/
beint frá bóndanum, og er í eigu
þriggja garðyrkjustöðva: Greinar-
innar, Hveragerði – Þorvaldar
Snorrasonar, Reykjadals, Mosfells-
sveit – Erlings Ólafssonar, og Rósar-
innar ehf., Hveragerði – Jóhanns
Sigurðssonar. Blómalagerinn/beint
frá bóndanum verður á viðskipta-
svæðinu við Smáratorg 1 í Kópavogi.
„Með stofnun og starfrækslu
Blómalagersins/beint frá bóndanum
er stefnt að því að koma við marg-
víslegri hagræðingu og þannig gefa
almenningi kost á að kaupa blóm á
miklu hagstæðara verði en fólk á að
venjast.
Opnunartími Blómalagersins/
beint frá bóndanum verður virka
daga kl. 13–19, laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 10,“ segir þar ennfrem-
ur.
UM ÞESSAR mundir eru 20 ár síð-
an Bjarma Didriksen stofnaði Misty,
við Laugaveg 40, og hóf að versla
með kvenundirföt. Í tilefni af því
munu 4 klassískar, sem eru söngkon-
urnar Björk Jónsdóttir, Jóhanna
Þórhallsdóttir og Signý Sæmunds-
dóttir ásamt Aðalheiði Þorsteins-
dóttur undirleikara skemmta með
söng sínum og kynna nýjan geisla-
disk sinn, laugardaginn 1. desember.
Þær munu koma fram milli kl. 15 og
17 og eru vegfarendur boðnir vel-
komnir. Boðið verður upp á kaffi og
piparkökur í versluninni, segir í
fréttatilkynningu.
4 klassískar
í Misty
Basar í
Hafnarfirði
ÖRKIN hans Nóa, kristilegt starf
sem leggur áherslu á bænina og
bænalíf meðal fólks, verður með jóla-
basar sunnudaginn 2. desember kl.
14-17 á Reykjavíkurvegi 68, Hafn-
arfirði.
Á boðstólum verður bútasaumur,
trévara, jólakransar, krukkur og
dúkar, ásamt barnaföndri. Kaffi og
vöfflur ásamt jólatónlist, segir í
fréttatilkynningu.