Morgunblaðið - 01.12.2001, Síða 63
MESSUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 63
h v e t j a n d i b æ k u r
s a l k a f o r l a g . i s
S T E L P A S T A T T U Á Þ Í N U !
Nauðsynleg fyrir allar ungar stúlkur
og þá sem vilja styðja við bakið á þeim
Avis
mæli
r me
ð Op
el
Góður kostur fyrir landsbyggðarfólk
Sími: 591 4000
Fax: 591 4040 E-mail: avis@avis.is - Knarrarvogur 2 - www.avis.is
Þarftu bíl í
borginni?
2.999
pr. dag, ótakmarkaður akstur í
7 daga, tryggingar og vsk.
Aðeins kr.
Jólatilboð í Reykjavík
Útvegum einnig bíla erlendis
Umboðsmenn:
Akureyri, Vestmannaeyjum, Höfn, Egilsstöðum og Ísafirði
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11:00. Brúðuleikhús Helgu Steffen-
sen kemur í heimsókn. Aðventuhátíð kl.
17:00. Prestur Sr. Hjörtur Hjartarson.
Kirkjukórar Grindavíkur- og Keflavík-
urkirkju ásamt Brimkórnum syngja.
Stjórnendur: Örn Falkner, Hákon Leifs-
son og Ester Helga Guðmundsdóttir.
Hugvekja: Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir.
Fermingarbörn lesa jólasögur. For-
eldramorgnar! Jólaundirbúningur fyrir
jólaball er hafinn, þeir sem vilja taka þátt
mæti þriðjudaginn 4. des. kl. 10:00. Fyr-
irhugað er að halda jólaballið hinn 11.
des. í safnaðarheimilinu. Sóknarnefndin.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Fyrsti sunnudagur í
jólaföstu. Guðsþjónusta kl. 14. Kirkju-
dagur kvenfélagsins Gefnar í Garði.
Kvenfélagskonur annast ritningarlestra.
Barnakór Útskálakirkju og fermingarbörn
syngja. Að guðsþjónustunni lokinni
standa kvenfélagskonur fyrir basar í
safnaðarheimilinu Sæborgu. Boðið upp á
Suðurnesjakaffi að guðsþjónustu lokinni.
Organisti Pálína Fanney Skúladóttir.
Sóknarprestur Björn Sveinn Björnsson.
Garðvangur: Helgistund kl 15:30.
HVALSNESKIRKJA: Fyrsti sunnudagur í
jólaföstu. Guðsþjónusta kl. 17. Barnakór
Hvalsneskirkju og fermingarbörn syngja.
Boðið upp á Suðurnesjakaffi að guðs-
þjónustu lokinni. Organisti Pálína Fanney
Skúladóttir. Næstkomandi sunnudag, 2.
desember, verða Útskálakirkja og Hvals-
neskirkja opnar frá kl. 13–17 í tilefni af
„Kirkjuskoðunardegi“ á Suðurnesjum.
Allir velkomnir. Sóknarprestur Björn
Sveinn Björnsson.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Messa og
altarisganga fyrsta sunnudag í aðventu,
2. desember, kl. 14. Eldey, kór Félags
eldri borgara á Suðurnesjum, syngur
undir stjórn Alexöndru Pitak. Nýr org-
anisti Ytri-Njarðvíkurkirkju, Natalía Chow,
leikur á orgelið og verður hún sér-
staklega boðin velkomin til starfa við
þessa messu. Sunnudagaskóli sunnu-
daginn 2. desember kl. 11. Æðruleys-
ismessa 2. desember kl. 20.30, fyrsta
skiptið í Ytri-Njarðvíkurkirkju, og verða
þær eftirleiðis haldnar í kirkjunni fyrsta
sunnudag hvers mánaðar, sjö til átta
sinnum á ári. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
sóknarpresti. AA-félagar verða með
reysnslusögur. Organisti er Einar Örn Ein-
arsson og mun hann leiða almennan
söng. Hvetjum við alla til að mæta en
sérstaklega alla AA-félaga sem og að-
standendur þeirra. Sóknarprestur og
sóknarnefndir.
NJARÐVÍKURKIRKJA: (Innri-Njarðvík).
Sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur og
sóknarnefndir.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Aldursskiptur
sunnudagaskóli kl. 11 árd. Undirleikari í
sunnudagaskóla: Helgi Már Hannesson.
Aðventutónleikar Kórs Keflavíkurkirkju og
Kórs Grindavíkurkirkju verða kl. 20.30.
Einsöngvarar: Ingunn Sigurðardóttir og
Guðmundur Sigurðsson. Flautuleikarar:
Birna Rúnarsdóttir og Dagný Mar-
inósdóttir. Börn úr barnastarfi kirkjunnar
syngja: Bjart er yfir Betlehem. Organistar
og söngstjórnar: Hákon Leifsson og Örn
Falkner. Sr. Sigfús Baldvin Ingvason flyt-
ur hugvekju.
SELFOSSKIRKJA: Kl. 11 messa og
sunnudagaskóli. Eftir messu býður Kven-
félag Selfosskirkju upp á ávaxtasafa,
kaffi og smákökur og heldur laufa-
brauðsbasar. Tónleikar Unglingakórs Sel-
fosskirkju kl. 20. Morguntíð sungin
þriðjudag til föstudags kl. 10. Kaffi og
brauð að henni lokinni. Jólafundur hjá
Geisla þriðjudag kl. 20. Foreldrasamvera
miðvikudag kl. 11. Krakkaklúbbur kl.
16.10–17 á miðvikudögum. Sókn-
arprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Messa kl. 14. Sókn-
arprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Aðventustund kl.
16:00. Söngfélag Þorlákshafnar undir
stjórn Róberts Darlings og barnakórar frá
Grunnskólanum undir Stjórn Esterar
Hjartardóttur og Stefáns Þorleifssonar og
Kyrjukórinn og Lúðrasveit Grunnskólans
og Lúðrasveit Þorlákshafnar undir stjórn
Stefáns Þorleifssonar. Ræðumaður Guð-
rún S. Sigurðardóttir kennari. Eftir stund-
ina verður athöfn á Ráðhústorginu þar
sem tendrað verður ljós á jólatré bæj-
arins. Sóknarprestur. Sunnudagaskóli kl.
11:00.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Aðventusamkoma kl. 20.30. Fjöl-
breytt dagskrá. Jón Ragnarsson.
SAFNKIRKJAN í Árbæ: Aðventumessa
sunnudag kl. 14. Tilvalið tækifæri fyrir
foreldra til að leyfa börnum að kynnast
undirbúningi jólanna í gamalli íslenskri
kirkju og syngja gömlu góðu barnasálm-
ana. Organisti Ingimar Pálsson. Kristinn
Friðfinnsson.
STÓRA-NÚPSPRESTAKALL: Guðsþjón-
ustur verða í Stóra-Núpsprestakalli 1.
sunnudag í aðventu, 2. desember, sem
hér segir: kl. 11:00 í Stóra-Núpskirkju,
kl. 14:00 í Ólafsvallakirkju. Minnt er á
basar kvenfélags Skeiðahrepps við upp-
haf aðventu í Brautarholti og kaffi að lok-
inni guðsþjónustu á Ólafsvöllum. Axel
Árnason sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 14. Skálholtskórinn syngur. Sókn-
arprestur.
HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa: Aðventu-
kvöld nk. sunnudag kl. 21. Ræðumaður
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra.
Kristinn Friðfinnsson.
AKRANESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Kveikt verður á fyrsta aðventukertinu.
Sóknarprestur.
BORGARPRESTAKALL: Borgarneskirkja.
Barnaguðsþjónusta kl. 11.15. Messa kl.
14. Akrakirkja. Messa kl. 16. Sókn-
arprestur.
MÖÐRUVALLAKIRKJA: Aðventukvöld
verður fyrir allt prestakallið sunnudag kl.
20.30. Kirkjukór Möðruvallaklaust-
ursprestakalls syngur aðventulög. Börn
syngja Lúsíu. Fermingarbörn lesa helgi-
leik. Sigfríður Angantýsdóttir, skólastjóri
Þelamerkurskóla, flytur hátíðarræðu.
Mikill almennur söngur. Helgistund í
umsjá sóknarprests. Komum öll til kirkju
í upphafi aðventu. Sóknarprestur og
sóknarnefnd.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Barnakór kirkjunnar leiðir sönginn. 3.
des. mánud: Kyrrðarstund kl. 18. Sókn-
arprestur.
KIRKJUBÆJARSÓKN: Barnastarf í Tungu-
búð kl. 11.
BAKKAGERÐISSÓKN: Aðventusamkoma
kl. 14 í Vinaminni í Borgarfirði.
EIRÍKSSTAÐA-, Hofteigs-, Kirkjubæjar-
og Sleðbrjótssóknir: Aðventukvöld í Brú-
arási fimmtudaginn 6. des. kl. 20.
EIÐA- og Hjaltastaðasóknir: Aðventu-
kvöld í Hjaltalundi 7. des. kl. 20.30.