Morgunblaðið - 01.12.2001, Blaðsíða 67
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001 67
kaffið á eftir rennur óskipt til
mæðrastyrksnefndar Kópavogs.
Stjórnun og undirbúningur er í
höndum Safnaðarfélags Digra-
neskirkju. Aðventuhátíðin hefst kl.
20:30.
Aðventukvöld
Laugarneskirkju
AÐVENTUKVÖLD er að venju
haldið í Laugarneskirkju fyrsta
sunnudag í aðventu kl. 20. Gunnar
Gunnarsson og Sigurður Flosason
munu gleðja okkur með samleik
sínum.
Kór Laugarneskirkju mun einn-
ig syngja undir stjórn Gunnars. Sr.
Bjarni Karlsson leiðir stundina en
ræðumaður kvöldsins er Helgi
Seljan. Börn úr Tíu til tólf ára
starfi kirkjunnar sýna helgileik,
fermingarbörn lesa frumsamdar
bænir og sóknarnefnd Laugarnes-
kirkju býður upp á heitt súkkulaði
og smákökur í messukaffi á eftir.
Komið og njótið með okkur.
Söfnuður Laugarneskirkju.
Kökubasar
mömmumorgna
Laugarneskirkju
HINN árlegi kökubasar mömmu-
morgnakvenna verður haldinn í
Laugarneskirkju að lokinni messu
kl. 11. Við messuna er reiknað
jafnt með börnum og fullorðnum
því að sunnudagaskólinn er hluti af
dagskránni og áður en kemur að
prédikun ganga börnin yfir með
kennurum sínum, undir stjórn sr.
Jónu Hrannar Bolladóttur, þar sem
leikbrúður spjalla, hreyfisöngvar
eru sungnir og sögur sagðar. Verið
velkomin í Laugarneskirkju.
Aðventuhátíð
fjölskyldunnar í
Hafnarfjarðarkirkju
Á MORGUN, sunnudag, er fyrsti
sunnudagur í aðventu. Undirbún-
ingstíminn fyrir hátíð jólanna
gengur þá í garð. Það er nú orðin
hefð fyrir því að halda fjöl-
skylduhátíð í Hafnarfjarðarkirkju
á þessum degi. Kirkjurútan ekur
eins og venjulega, en auk þess mun
strætisvagn aka frá Hvaleyr-
arskóla rétt fyrir kl. 11.
Aðventuhátíð fjölskyldunnar
hefst síðan kl. 11 í kirkjunni. Munu
allir sunnudagaskólar Hafn-
arfjarðarkirkju taka þátt í henni
ásamt leiðtogunum sínum. Þeir
hafa stofnað hljómsveit í tilefni
dagsins sem leikur undir söng. Á
hátíðinni verður lítið barn borið til
skírnar. Að því búnu mun barna-
og unglingakór kirkjunnar syngja
jóla og aðventusöngva undir stjórn
Helgu Loftsdóttur. Kórinn ætlar
líka að kenna öllum krökkum í
kirkjunni nýja söngva. Og svo
verður sögð glærusaga, auk þess
sem við ætlum okkur að syngja
mikið. En við byrjum auðvitað á því
að kveikja á fyrsta ljósinu á aðven-
tukransinum.
Hátíðinni lýkur með veislu í safn-
aðarheimilinu Strandbergi þar sem
boðið verður upp á góðgæti. Prest-
ar á hátíðinni eru þau sr. Þórhildur
Ólafs og sr. Þórhallur Heimisson.
Allir eru velkomnir að sjálfsögðu
og gleðilega aðventuhátíð.
Tónlistarmessa í
Hafnarfjarðarkirkju
VIÐ tónlistarmessu í Hafnarfjarð-
arkirkju kl. 17 fyrsta sunnudag í
aðventu 2. desember nk. mun Ár-
mann Helgason leika valin verk á
klarinett og fermingarbörn sýna
aðventuhelgileik. Prestur er sr.
Gunnþór Þ. Ingason.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Aðventukvöld
í Víðistaðakirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í Víð-
istaðakirkju 1. sunnudag í aðventu,
2. desember nk., kl. 20. Boðið verð-
ur upp á fjölbreytta dagskrá í tali
og tónum. Fram koma m.a. Kirkju-
kór Víðistaðasóknar undir stjórn
Úlriks Ólasonar, barna- og ung-
lingakór Víðistaðakirkju undir
stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur,
Sigurður Skagfjörð Steingrímsson
söngvari og Kjartan Óskarsson
klarinettuleikari. Ræðumaður
verður Gunnsteinn Ólafsson tón-
listarmaður. Eftir dagskrá í kirkj-
unni verður systrafélagið með
kaffisölu í safnaðarheimilinu.
Aðventusamkoma
í Lágafellskirkju
AÐVENTUSAMKOMA verður í
Lágafellskirkju kl. 20.30 nk.
sunnudag. Ræðumaður kvöldsins
verður Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra. Stundin hefst með
því að kveikt verður á fyrsta að-
ventukertinu en að vanda verður
síðan boðið upp á fjölbreytta tón-
listardagskrá í flutningi lands-
þekktra listamanna. Meðal efnis er
einsöngur Gyðu Björgvinsdóttur
sópransöngkonu. Matthías Nard-
eau leikur á óbó, Martial Nardeau
á flautu og Sveinn Þórður Birg-
isson á trompet. Strengjasveit leik-
ur og Skólakór Mosfellsbæjar og
Kirkjukór Lágafellssóknar syngja.
Stjórnendur eru Guðmundur Ómar
Óskarsson og organistinn Jónas
Þórir. Sóknarprestur flytur ritn-
ingarlestur og bæn. Að lokinni að-
ventustundinni verður boðið upp á
kirkjukaffi í safnaðarheimilinu.
Sóknarprestur – sóknarnefnd.
Barnaguðsþjónusta
og sunnudagaskóli í
Lágafellskirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu, 2.
desember, bjóðum við öllum börn-
um og foreldrum í barnastarf
kirkjunar kl. 13 í Lágafellskirkju.
Við ætlum að kveikja á fyrsta
kertinu á aðventukransinum sem
er spádómskertið. Leikhópurinn
„Sannir vinir“ úr Lágafellsskóla
sýnir frumsamið leikrit um vinátt-
una. Leikhópurinn er skipaður
nemendum í 5. E.A. og heita: Andr-
ea Ösp, Anna Kristrún, Ásthildur
Ólöf, Björk, Elísabet Inga, Eva
Dröfn, Guðrún Eva, Hrafnhildur
Anna, Íris Dröfn, Kartrín Ósk og
Þórhildur Dana. Kirkjukaffi, djús
og spjall í skrúðhúsinu eftir stund-
ina. Umsjón hafa Þórdís, Sylvía,
Jens og Jónas Þórir.
Aðventusamkoma í
Hveragerðiskirkju
AÐVENTUSAMKOMA verður í
Hveragerðiskirkju að kvöldi 2. des-
ember kl. 20:30. Flutt verður fjöl-
breytt dagskrá með söngvum og
tónlist tengdri aðventu og jólum.
Flytjendur eru Kirkjukór Hvera-
gerðis- og Kotstrandarsókna undir
stjórn Jörg E. Sondermann ásamt
barnakór kirkjunnar sem Gyða Þ.
Halldórsdóttir æfir. Jón Hólm Stef-
ánsson syngur einsöng. Berglind
Halldórsdóttir og Hulda Jónsdóttir
leika á klarinett og fiðlu. Ferming-
arbörn lesa jólasögu og ritning-
arlestra. Ræðumaður kvöldsins
verður Pjetur Hafstein Lárusson
rithöfundur.
Aðventusamkomur þjóna þeim
tilgangi að minna okkur á að hátíð
fer að höndum og að mikilvægasti
undirbúningur jólanna er að minn-
ast þess „að yður er frelsari fædd-
ur“. Það er eina jólagjöfin sem
skiptir máli og fegursta jólaskraut-
ið verður hvorki keypt né fram-
leitt, heldur er sú prýði hugar og
hjarta, sem býr í kærleikanum.
Fatasöfnun Hjálparstarf kirkj-
unnar minnir á starfsemi sína á að-
ventunni og mánudaginn 3. desem-
ber stendur sóknarnefndin fyrri
fatasöfnun. Móttaka verður í Safn-
aðarheimilinu kl. 17–21. Æskilegt
er að fötum sé skilað heilum og
hreinum og flokkuðum í kven-,
karlmanna og barnaföt. Munum
eftir baukunum. Einnig minnum
við á söfnunarbauka Hjálparstarfs-
ins, en söfnunarfé á aðventu stend-
ur undir stærstum hluta verkefna
Hjálparstarfsins víða um lönd.
Jón Ragnarsson.
Barna- og unglinga-
kór í Selfosskirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu kl. 11
verður messa þar sem barnakór
Selfosskirkju mun syngja og
sunnudagaskólinn verður á sama
tíma eins og undanfarið, kveikt
verður á fyrsta kertinu í aðventu-
kransinum, spádómskertinu.
Eftir messu heldur Kvenfélag
Selfosskirkju laufabrauðsbasar.
Þær bjóða upp á ávaxtasafa, kaffi
og smákökur eftir messu og þar
munu konur úr kvenfélaginu selja
laufabrauð. Það er liður í fjáröflun
félagsins. Konurnar komu saman
eina helgi, skáru út og steiktu
laufabrauðið. Það er alltaf svolítil
stemmning í kringum þetta.
Við vonum að fólk fjölmenni til
messunnar, þiggi veitingar og
kaupi laufabrauð í leiðinni.
Þá vekjum við athygli á því að
Unglingakór Selfosskirkju mun
halda tónleika í kirkjunni kl. 20 um
kvöldið.
Guðni Ágústsson í
Hraungerðiskirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í
Hraungerðiskirkju í Flóa nk.
sunnudagskvöld kl. 21. Ræðumað-
ur kvöldsins verður Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra. Nýsam-
einaðir kórar
Hraungerðisprestakalls undir
stjórn Inga Heiðmars Jónssonar
flytja vandaða tónlistardagsá. Þá
munu börn úr Þingborgarskóla
syngja jólalög undir stjórn Höllu
Aðalsteinsdóttur. Þá verður tendr-
að á aðventukrani um leið og börn
úr sókninni flytja hefðbundinn að-
ventusöng. Sóknarpresturinn, sr.
Kristinn Friðfinnsson, flytur að-
ventuhugleiðingu og stjórnar
fjöldasöng í lok samverunnar.
Aðventustund
í Þorlákskirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu er
hefðbundin aðventustund í Þor-
lákskirkju kl. 16 þar sem tónlist
skipar öndvegi og ræðumaður
verður Guðrún S. Sigurðardóttir
kennari. Söngfélag Þorlákshafnar
undir stjórn Roberts Darling og
Kyrjukórinn undir stjórn Stefáns
Þorleifssonar syngja aðventulög.
Þá mun kór frá Grunnskóla Þor-
lákshafnar undir stjórn Esterar
Hjartardóttur og Stefáns syngja
nokkur lög.
Aðventuhátíðina munu síðan
ramma inn lúðrasveitir staðarins
sem eru tvær – önnur kennd við
skólann og hinn bæinn – báðar
undir stjórn Stefáns Þorleifssonar.
Eftir aðventustundina verður
síðan hátíðarstund á Ráðhústorg-
inu á vegum sveitarfélagsins þar
sem kveikt verður á jólatré bæj-
arins.
Ástæða er til að hvetja Ölfusinga
til þessa að fjölmenna á aðvent-
ustund og á Ráðhústorgið og
marka þannig í huga sínum upphaf
að undirbúningstíma jólanna.
Baldur Kristjánsson.
Aðventan í
Landakirkju í
Vestmannaeyjum
FYRSTA sunnudag í aðventu verð-
ur hátíðarstemmning í Landa-
kirkju. Hún hefst með barnaguðs-
þjónustu kl. 11 árdegis og mun
stóri barnakórinn okkar, Litlir
lærisveinar syngja. Kveikt verður
á fyrsta kertinu í aðventukrans-
inum, sem er spádómskertið. Há-
tíðin nær svo hámarki í guðsþjón-
ustu kl. tvö eftir hádegi. Litlir
lærisveinar og Kór Landakirkju
syngja og flytja kórverk með
stjórnendum sínum, Guðrún Helgu
Bjarnadóttur, Michelle Gaskell og
Guðmundi H. Guðjónssyni.
Á eftir verður kaffi og vöfflusala
Kvenfélags Landakirkju í Safn-
aðarheimilinu með jólabasar, en
Kvenfélagið verður 60 ára um
miðjan desember. Í kaffinu syngur
barnakórinn einnig nokkur lög.
Annan eða þriðja sunnudag í að-
ventu kemur 6. bekkurinn úr Ham-
arsskóla og flytur helgileik í
barnaguðsþjónustu undir stjórn
kennara sinna, Huldu og Sig-
urlaugar. Verður það auglýst bet-
ur þegar nær dregur.
Þriðja sunnudag í aðventu, 16.
desember, verður aðventusamvera
kl. 16 síðdegis þar sem Kór Landa-
kirkju flytur jólalög og aðra hátíð-
lega tónlist í tilefni jólanna. Hug-
vekju flytur sr. Kristján Björnsson,
en undir lok samverunnar verður
kertaljósastund. Aðgangur er eng-
inn en kór kirkjunnar mun ekki
halda hefðbundna jólatónleika að
þessu sinni. Aðventusamvera þessi
kemur í staðinn fyrir þá og er ekki
messað kl. 14 þennan sunnudag.
Á Þorláksmessu, sem er fjórði
sunnudagur í aðventu, syngjum við
jólalögin í barna- og fjölskyldu-
samveru kl. 11 árdegis og tendrum
ljós á fjórða aðventukertinu.
Sr. Kristján Björnsson.
Aðventuhátíð í
Möðruvallakirkju
AÐVENTUHÁTÍÐ verður á
Möðruvöllum í Hörgárdal á 1.
sunnudag í aðventu hinn 2. desem-
ber kl. 20:30. Þá verður kveikt á
fyrsta kertinu á aðventukrans-
inum.
Aðalræðumaður kvöldsins verð-
ur Sigfríður Angantýsdóttir, skóla-
stjóri Þelamerkurskóla. Börn úr
Þelamerkurskóla munu syngja
Lúsíu undir stjórn sr. Gylfa Jóns-
sonar og fermingarbörn munu lesa
helgileik, sem byggður er upp af
ritningarlestrum aðventunnar.
Kirkjukórinn syngur aðventulög
og munu þær Sigrún Jónsdóttir og
Ingunn Aradóttir syngja tvísöng
með kórnum.
Að lokum verður helgistund í
umsjá sóknarprestsins sr. Sol-
veigar Láru Guðmundsdóttur.
KFUK-konur halda basar á Holtavegi 28
kl. 14. Handavinna og kökur. Vöfflusala.
KEFAS. Sunnudaginn 2. des. verður hald-
inn okkar árlegi basar. Þar verður boðið
upp á heimabakaðar kökur, mat og fönd-
urvörur ásamt öðrum fallegum gjafavör-
um. Lofgjörðarsveitin mun skarta sínu feg-
ursta og leika fallega hátíðartónlist. Kaffi
og nýbakaðar vöfflur. Hátíð í bæ á Vatns-
endavegi 602. Þriðjud.: Brauðsbrotning og
bænastund kl. 20.30. Miðvikud.: Ung-
mennastund kl. 20.30. Allir hjartanlega
velkomnir.
Hvammstangakirkja. Barnamessa kl. 11.
Safnaðarstarf