Morgunblaðið - 07.12.2001, Page 41

Morgunblaðið - 07.12.2001, Page 41
Glæsilegt og aðgengilegt stórvirki eftir Ara Trausta Guðmundsson handa almenningi um eldvirkni á Íslandi með á fimmta hundrað ljósmynda, korta og skýringarteikninga. Hér birtist íslensk náttúra í öllu sínu veldi. Stórfróðleg bók eftir Val Ingimundarson um samskipti Íslands, Bandaríkjanna og Nato á árunum 1960-1974 þegar deilt var hart um vestrænt samstarf og þjóðin átti í þorskastríði við Breta. Nýjar upplýsingar úr innsta hring! „Brakandi snilld: Ógleymanleg skáldsaga, grípandi og áhrifamikil.“ Úlfhildur Dagsdóttir, Kastljós. „Saga Haralds færir mann beint inn í hita baráttu sem enn er háð víða um heim ... Hann er aðeins peð í örlagaríkri heimsskák síns tíma, en saga hans er skrifuð af innlifun og stílsnilld og á ekki sinn líka á íslensku.“ Silja Aðalsteinsdóttir, DV. „ ... mér finnst þessi saga vera mikið þrekvirki og skortir í raun orð til að hrósa henni nóg. ... frábærlega samin, afreksverk og fólk á endilega að lesa þessa bók.“ Páll Baldvin Baldvinsson, Ísland í dag. „Skemmtilega skrifuð og lifandi. ... Höfundar Njálu er stórgott og alþýðlegt fræðirit sem sannar áframhaldandi langlífi eða jafnvel eilífð Njálu.“ Steinunn Inga Óttarsdóttir, Mbl. „Jón Karl skrifar skemmtilegan stíl sem er á mörkum hins fræðilega og skáldlega. Njáluhefðin varpar ljósi á menningarsögu síðustu aldar. Við erum miklu nær um hana eftir lestur þessarar bókar ...“ Ármann Jakobsson, DV. Vefur Darraðar (Margmiðlunardiskur fylgir bókinni) „Diskurinn er vel hannaður og þægilegur í notkun, hreinlega hvalreki fyrir kennara, nemendur og alla áhugamenn um Njáls sögu.“ Steinunn Inga Óttarsdóttir, Mbl. Stórvirki um eldstö›var Sögulegt uppgjör Yfir Ebrofljóti› „Höfundur Íslands er magnað skáldverk og hefur alla burði til að hrífa og hneyksla, rétt eins og forverar hennar snemma á síðustu öld. Sagan er í senn grípandi raunsæissaga af mannlegum örlögum og harmleik og fræðileg úttekt á öldinni. Hún er óræk sönnun þess að Hallgrímur Helgason er einhver frumlegasti og snjallasti höfundur sem við eigum.“ Jón Yngvi Jóhannsson, DV. „Hér hafa orðið mikil tíðindi, bókmenntaviðburður. Þetta er makalaus bók, snilldarverk.“ Egill Helgason, Silfur Egils. „Rís upp úr meðalmennskuflóðinu fyrir bókajólin eins og klettur í hafi.“ Björn Þór Vilhjálmsson, Mbl. Til hamingju með tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna Njála á n‡ Höfundur Íslands Hallgrímur Helgason Jón Karl Helgason Valur Ingimundarson Álfrún Gunnarsdóttir Ari Trausti Guðmundsson ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S E D D 1 61 77 12 /2 00 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.