Morgunblaðið - 07.12.2001, Blaðsíða 51
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 51
✝ Guðrún Ingveld-ur Björnsdóttir
fæddist á Hrapps-
stöðum í Víðidal í
Vestur-Húnavatns-
sýslu 1. febrúar
1921. Hún lést á
sjúkrahúsinu á
Hvammstanga 28.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Björn Ingvar
Jósefsson, f. 11.9.
1896 á Hrappsstöð-
um, d. 4.8. 1971, og
Sigríður Jónsdóttir,
f. 29.3. 1892 í Gröf,
Lundarreykjadal, d. 29.11. 1972.
Guðrún Ingveldur var önnur í röð-
inni af ellefu systkinum, eitt dó
tæplega tveggja mánaða, en hin
eru: 1) Tryggvi, f. 29.5. 1919, d.
21.3. 2001. 2) Jósefína, f. 31.3.
1924. 3) Bjarni Ásgeir, f. 15.8.
1925. 4) Sigurvaldi, f. 22.2. 1927. 5)
Steinbjörn, f. 22.9. 1929. 6) Guð-
eiga þau Katrínu Ósk, f. 11.12.
1995. 2) Leifur, f. 3.3. 1975, kvænt-
ur Jóhönnu Birnu Einarsdóttur, f.
15.11. 1974, þeirra börn Aníta Brá,
f. 20.9. 1994, og Guðmundur, f.
15.2. 2000. 3) Edda Lilja, f. 31.1.
1978, sambýlismaður Kjartan Þór-
isson, f. 13.11. 1975. 2) Sæmundur
Garðar, f. 24.8. 1947, kvæntur
Nönnu Ólafsdóttur, f. 14.1. 1950.
Börn þeirra eru 1) Svanhvít Dröfn,
f. 30.8. 1969, sambýlismaður Ing-
var Guðmundsson, f. 31.7. 1969. 2)
Þórunn Elfa, f. 19.2. 1972, sam-
býlismaður Ægir Þórðarson, f. 5.9.
1968, þeirra börn Arnþór Örvar, f.
17.8. 1995, Elfa Björg f. 2.4. 2001,
og Sæunn Nanna, f. 2.4. 2001. 3)
Róberta, f. 22.6. 1955, gift Garðari
Þór Guðmundssyni, f. 17.11. 1952.
Börn þeirra eru 1) Ingi Þór, f. 15.9.
1976, 2) Íris Rut, f. 11.6. 1988, 3)
Rakel Rún, f. 26.7. 1993. 4) Björn
Víglundur, f. 17.1. 1957, kvæntur
Sigrúnu Björk Valdimarsdóttur, f.
16.10. 1955. Börn þeirra eru 1)
Hrafnhildur Ýr, f. 16.8. 1978. 2)
Vilmar Þór, f. 1.7. 1984. 3) Kristinn
Rúnar, f. 26.10. 1988.
Útför Guðrúnar Ingveldar fer
fram frá Hvammstangakirkju í
dag og hefst athöfnin klukkan 14.
mundína Unnur, f.
15.2. 1931. 7) Álfheið-
ur, f. 15.2. 1931. 8) Sig-
rún Jóney, f. 18.6.
1933. 9) Gunnlaugur,
f. 24.3. 1937.
Guðrún Ingveldur
giftist eftirlifandi eig-
inmanni sínum, Gunn-
þóri Guðmundssyni,
9.5. 1944. Gunnþór er
fæddur 19.6. 1916 og
foreldrar hans voru
Guðmundur Friðrik
Jónasson, f. 27.3. 1868
á Efra-Vatnshorni í
Kirkjuhvammshreppi,
d. 22.6. 1939, og Ingibjörg Árna-
dóttir, f. 14.6. 1873 á Mýrum,
Hrútafirði, d. 23.8. 1955. Guðrún
Ingveldur og Gunnþór eiga fjögur
börn. 1) Sigríður Helga, f. 24.12.
1944, gift Guðmundi Leifssyni, f.
6.12. 1943. Börn þeirra eru 1) Inga
Katrín, f. 22.6. 1968, gift Sigurfinni
Óskari Grímssyni, f. 11.9. 1963, og
Elsku Inga amma, þegar ég hugsa
til þín kemur margt upp í hugann.
Nýbökuð hjónabandssæla og hafra-
kex (spes fyrir Villa og afa), laukboll-
ur með brúnni sósu, nýuppteknar
kartöflur, hnepptar prjónapeysur,
vinnulúnar hendur, sérstök kímni-
gáfa og óþrjótandi dugnaður eru að-
eins brot af því. Ég man svo vel dag-
inn sem ég kom fyrst að Dæli með
mömmu. Þegar við keyrðum í hlað á
gamla Trabantinum með græna þak-
inu stóðst þú úti og sópaðir stéttina
með Trygg þér við hlið. Frá þeim degi
varst þú partur af lífi mínu, hún Inga
amma sem sagði svo skringilega R.
Ég er viss um að þú hefur stundum
fórnað höndum yfir þessari stelpu-
skjátu sem hvorki gat samkjaftað né
verið kyrr, en aldrei léstu mig finna
fyrir því, þú komst alltaf fram við mig
eins og öll hin barnabörnin. Ég man
reyndar eftir einu skipti sem ég varð
svolítið hrædd við þig. Það var þegar
ég stalst inn til hænsnanna í Gamla
bænum. Mér fannst þetta stórmerki-
leg dýr, enda ekki með mikla reynslu
af sveitalífinu. Mér fannst sérstak-
lega skemmtilegt hvernig þær blök-
uðu vængjunum þegar ég elti þær
fram og til baka um herbergin og var
staðráðin í því að hætta ekki fyrr en
ég hefði kennt þeim að fljúga. Stundu
síðar komstu askvaðandi vesalings
hænunum til bjargar. Ég held að ég
hafi aldrei séð þig jafn reiða! Ég man
líka hvað ég var glöð þegar ég gat far-
ið að kalla þig ömmu, mér fannst ég
svo rík! Það hafði líka sína kosti að
eiga ömmu sem hét svona skrítnu
nafni, Ingveldur, og það færði mér
ófáa sigra í Hollí-hú-keppnum.
Seinna þegar þið afi fluttuð á
Hvammstanga, í nýja húsið, kom ég
oft í heimsókn og gisti hjá ykkur. Þú
varst svo stolt af garðinum sem þú
hafðir útbúið og máttir vel vera.
Stundum fórstu með mig í göngutúr
og þá fékk ég að leiða þig. Það var
alltaf svo gott að halda í höndina á
þér. Þú varst ekki manneskja sem
áttir auðvelt með að sýna tilfinningar
þínar og því jafnaðist traust handtak-
ið á við fyrirtaks faðmlag. Ég man
þegar þú fórst að vinna í bakaríinu.
Ég og Ingi frændi stálumst stundum
til þín og oftar en ekki gafst þú okkur
dýrindis súkkulaðisnúða, brostir svo
prakkaralega brosinu þínu og sagðir
að við mættum ekki segja neinum.
Elsku amma, ég vil þakka þér fyrir
allar þær stundir sem þú gafst mér.
Þú hleyptir mér inn í líf þitt og sýndir
mér bæði hlýju og væntumþykju á
þinn sérstaka hátt. Nú lít ég upp til
himins og sé að skær og falleg stjarna
hefur bæst í hóp hinna og ég veit að
þetta ert þú amma mín að fylgast með
okkur. Ég samgleðst þér í hjarta
mínu yfir því að þinni löngu baráttu
skuli vera lokið og þú hafir loksins
fengið hvíldina. Ég er þakklát fyrir að
hafa fengið tækifæri til að halda aftur
í höndina á þér og kveðja þig á réttan
hátt, það var mér svo mikils virði og
ég veit að þú vissir af mér hjá þér. Ég
bið að heilsa Tryggva bróður þínum,
því ég er viss um að hann hefur tekið
á móti þér með nýjustu kjaftasögum
úr himnaríki, eins og honum einum er
lagið.
Elsku afi, pabbi, Helga, Sæmi og
Berta, ég votta ykkur og allri fjöl-
skyldunni mína dýpstu samúð. Elsku
amma, megi góður Guð geyma þig og
blessa um alla eilífð. Sofðu vært. Þín
Hrafnhildur Ýr.
Mig setti hljóðan er ég fékk fregn
um að Inga, móðursystir mín, væri
látin. Síðustu árin hefur hún verið
nær rúmföst af hrörnunarsjúkdómi,
sem hafði betur á endanum, en dauð-
inn kemur alltaf á óvart, þótt vitað sé
hvert stefnir. Minningar úr sveitinni í
Víðidal flugu gegnum hugann. Ég
varð þeirrar gæfu aðnjótandi sem
polli, að fá að fara í sveit norður í land
í Dæli til Ingu frænku og Gunnþórs
og barna þeirra. Á eftir komu nokkur
ógleymanleg sumur. Mér er minnis-
stæð fyrsta rútuferðin í ullarnærföt-
um, sem móðir mín klæddi mig í org-
andi, vegna þess að þar væri svo kalt.
En þegar á leiðarenda var komið í sól
og blíðu og skipta átti á ferðafötum
yfir í hversdagsfötin, hafði frænka
mín á orði, hvort ég vildi ekki skipta
um nærföt, en þá tók ég það ekki í mál
þann daginn, orðinn vel þvalur og ull-
in hætt að stinga. Þetta voru mín
fyrstu kynni af Ingu, sem ég man.
Það eru og voru mikil forréttindi fyrir
krakka að fá að fara í sveit sumar-
langt, fram yfir fjárréttir eins og tíðk-
aðist á árum áður, en virðist vera liðin
tíð í þeim mæli. Ég var svo heppinn
að komast að hjá skyldfólki mínu, sem
var í nágrenni við stóran frændgarð á
næstu bæjum í dalnum. Með aldrin-
um verður mér oft hugsað norður í
sveitina. Í minningunni vil ég þakka
fyrir dýrmæt og ógleymanleg ár.
Kindurnar, hana Bíldu og Mókollu,
sem ég fékk að gjöf, öll lömbin og ull-
ina, sem fóru inn á reikning í kaup-
félaginu og mörgum árum seinna sem
símsendir peningar fyrir forláta
íþróttaskóm. Philipps-rafmagnsrak-
vélina, fermingargjöfin sem kom loks
að góðum notum löngu seinna, og á ég
hana enn.
Inga var ein ellefu systkina frá
Hrappsstöðum, og bjuggu fimm
þeirra í dalnum. Inga bjó myndarlegu
búi með blandaðan búskap ásamt
Gunnþóri, eiginmanni sínum, í ára-
tugi. Eftir að þau brugðu búi tók Villi,
sonur þeirra, við því og rekur þar
myndarlega bændagistingu ásamt
fjölskyldu sinni. Snyrtimennskan og
alúðin við bústörfin eru mér og öðrum
minnisstæð. Ég man Ingu alltaf sí-
vinnandi og heilsuhrausta. Hún var
glaðsinna og hafði mikinn áhuga á
mönnum og málefnum. Ég man hana
vel við mjaltirnar, heyskapinn, bakst-
urinn, alla matseldina, sviðavinnuna,
sniðin og saumaskapinn á striga-
ábreiðunni á sætin og fúlgurnar og
undirbúninginn fyrir fjárréttir með
Gunnþóri, þegar farið var yfir reið-
tygi og annað, og öllum þeim spenn-
ingi sem því fylgdi. Berjatínslan á
haustin fyrir töðugjöldin, jafnvel
hjálp við að lita leggina fyrir okkur
krakkana, því við áttum líka stórbú í
brekkunni fyrir framan bæinn. Já,
fjölbreytnin var mikil. Eitt er mér
minnisstætt, að á sunnudögum feng-
um við krakkarnir að sofa út og
sluppum við að fást við kýrnar og flór-
inn! Fórum í hrein föt eftir bað kvöld-
ið áður. Hin seinni ár hefur sam-
bandið við frændfólið í sveitinni
minnkað mikið og er það miður. Ég
hitti Ingu á sjúkrahúsinu á Hvamms-
tanga fyrr á árinu og fékk tækifæri til
að þakka fyrir mig. Ég veit að hún
þekkti mig og skildi það sem ég hafði
á orði, og lyfti til mín lítillega hendi í
kveðjuskyni.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku Gunnþór, Helga, Sæmund-
ur, Berta, Villi, fjölskyldur og aðrir
aðstandendur, innilegar samúðar-
kveðjur.
Hvíl í guðs friði.
Óskar og fjölskylda.
GUÐRÚN INGVELD-
UR BJÖRNSDÓTTIR
!"
$ %&''
( !) * * +
!
!
!" #$$ #% &'( !
) )* ) ) )* '
,
+&, +
!! --
. .
-
.!
/
#
0
)
% #
%00'
& !/ #$$ 0
1! 2 #$$
&!!# 3
.
.! #$$ )* 4 $! 5
4 $ #$$ , 2 2
% #$$ 55 &!0
& !
2 $$4 #$$
) )* '
,
!
2
6+&
7
84,623
+
!121
/1
& !#
& 9" & #$$
4 $/
,
/2 $ #$$
)* 2 $ #$$
4 $2 #$$ '
/
7
(
4:
+ +
/ $!% 0!/
.) $;
( !/.%*5
-
"
%
+
+
$
%&''
4 $ <# #$$
" <# #$$
&!!# <# '
#
8 (
&
/!.*$=
. .
3 (# %!! *5/!#$$
)* #$$
& ! #$$$
#0
4 $ 4 $ ##$$
) )* ) ) )* '
4 *
>++23
+42 +
/?
. .
!
-
.!
5.
3 @ #$$ ( $ ('.)
.)& 0 !#%#$$
(# & * #$$ . #
) )* '
4 *
61&, +
5 '#0
3 &/.
A $ 0#$$ '