Morgunblaðið - 11.04.2002, Page 1
83. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 11. APRÍL 2002
OLÍUVERÐ lækkaði nokkuð í gær
er ljóst var orðið, að Íranar og Líb-
ýumenn ætluðu ekki að fara að dæmi
Íraka og draga úr framleiðslunni.
Ali Rodriguez, framkvæmdastjóri
OPEC, Samtaka olíuframleiðslu-
ríkja, sagði í gær, að þau væru and-
víg því að beita olíuvopninu svokall-
aða vegna hernaðar Ísraela í
Palestínu en auk þess var búist við,
að Sádi-Arabía og önnur OPEC-ríki
myndu auka framleiðsluna kæmi til
einhvers skorts á markaði. Einnig
var talið, að ríki utan OPEC, til
dæmis Rússland, Mexíkó og Noreg-
ur, myndu gera slíkt hið sama.
Verð á Brent-olíu lækkaði í gær
um 92 sent og var þá 26,10 dollarar.
Olíuvopni
ekki beitt
London. AP.
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands og Gerhard Schröder Þýska-
landskanslari, hafa leyst áralangar
deilur um óuppgerðar skuldir frá
tímum Austur-Þýskalands gamla
sem varð hluti sambandslýðveldis-
ins þýska árið 1990. Munu Rússar
greiða Þjóðverjum 500 milljónir
evra, um 43 milljarða króna. Einnig
náðist samkomulag um að Þjóðverj-
ar styddu aukin áhrif Rússa í starfi
Atlantshafsbandalagsins, NATO.
Tveggja daga fundi leiðtoganna
lauk í Þýskalandi í gær. Schröder
hrósaði Rússum fyrir að hafa und-
anfarin ár greitt skilvíslega af er-
lendum skuldum. Taldi hann líklegt
að vegna þessa yrði hægt að ná fjöl-
þjóðlegum samningum um lánsfrest
vegna skuldanna frá sovétskeiðinu
sem alls eru um 48 milljarðar
Bandaríkjadollara.
Bætt samskipti við NATO
Embættismenn í aðalstöðvum
NATO í Brussel segja að vel gangi
að semja við Rússa um aukna þátt-
töku þeirra í störfum bandalagsins
en samningur um nýtt samstarfsráð
NATO og Rússa verður til umfjöll-
unar á fundi utanríkisráðherra
bandalagsins og Rússlands í
Reykjavík í maí. Schröder sagði á
blaðamannafundi í gær að vænt-
ingar Pútíns um bætt samskipti við
bandalagið væru „réttlætanlegar“.
Rússneski forsetinn sagði að
leyfa ætti Rússum að taka þátt í að
móta ákvarðanir á vegum banda-
lagsins og fylgja þeim eftir. Hann
nefndi að samvinna gæti tekist á
sviði baráttu gegn hermdarverkum
og tilrauna til að hindra frekari út-
breiðslu kjarnorkuvopna. En Pútín
tók skýrt fram að Rússar væru ekki
að fara fram á neitunarvald í mál-
efnum NATO.
Weimar, Brussel. AP.
Schröder
og Pútín
semja um
skuldir
YASSER Arafat er leiðtogi palestínsku þjóðar-
innar og gegnir lykilhlutverki í tilraunum til að
koma á vopnahléi í átökum Palestínumanna og
Ísraela, að sögn Colins Powells, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, í gær. „Það er mikilvægt
fyrir mig að hitta Arafat að máli ... palestínska
þjóðin og arabískir leiðtogar sem ég hef hitt síð-
ustu daga telja að hann sé viðmælandi sem Ísr-
aelar hljóti að ræða við þegar sá tími rennur
upp,“ sagði ráðherrann sem hyggst hitta Arafat í
byrgi leiðtogans í Ramallah á laugardag. Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur harmað
þá ákvörðun Powells en mun ekki koma í veg fyr-
ir fundinn. Ísraelski leiðtoginn sagði í gær að her-
inn myndi halda áfram að ráðast gegn vopnuðum
flokkum Palestínumanna þar til þeir hefðu verið
yfirbugaðir, hvað sem liði þrýstingi Bandaríkja-
manna.
Colin Powell, spænski utanríkisráðherrann
Josep Pique og talsmenn Evrópusambandsins,
Sameinuðu þjóðanna og Rússlands sendu frá sér
sameiginlega yfirlýsingu í gær í Madrid og hvöttu
til þess að bundinn yrði endi á ofbeldið. Voru Ísr-
aelar hvattir til að draga her sinn umsvifalaust
frá svæðum Palestínumanna en einnig sagt að
Arafat ætti að halda aftur af hryðjuverkamönn-
um. „Hryðjuverk, þar á meðal sjálfsmorðsárásir,
eru ólögleg og siðlaus,“ sögðu talsmennirnir. Kofi
Annan, framkvæmdastjóri SÞ, gagnrýndi stjórn
Sharons með mun harkalegra orðalagi en notað
var í yfirlýsingunni og sagðist „skelfingu lostinn“
yfir ástandinu sem nú ríkti á hernumdu svæð-
unum vegna árása Ísraelshers. Þing ESB sam-
þykkti í gær ályktun um að stöðva viðskipti við
Ísrael en samþykktin er ekki bindandi.
Sjálfsmorðsárás í Haifa
Palestínskur sjálfsmorðingi úr Hamas-samtök-
unum sprengdi sig í strætisvagni í gærmorgun í
Haifa í Ísrael og tók átta óbreytta, ísraelska
borgara með sér í dauðann. Ari Fleischer, tals-
maður George W. Bush Bandaríkjaforseta, sagði
að árásin sýndi hve brýnt væri að báðir aðilar
reyndu að koma á friði. Fleischer sagði hins veg-
ar að forsetinn efaðist um að Arafat myndi grípa
til nauðsynlegra aðgerða í þá veru.
Enn sátu ísraelskir hermenn í gær um Fæð-
ingarkirkjuna í Betlehem en þar hefur hópur
vopnaðra Palestínumanna leitað skjóls í einum
hluta kirkjunnar. Skotið var á armenskan munk
við kirkjuna í gær og hann særðist illa, deiluað-
ilar kenndu hvor öðrum um árásina. Prestur á
staðnum, David Jaeger, sagði ástandið mjög
slæmt og hætta væri á að til blóðugra bardaga
kæmi, hvorki væri vatn né rafmagn í umsetna
hlutanum. Lögð var fram sáttatillaga um að pal-
estínsku vígamennirnir fengju að fara í friði til
Gaza en ekki var ljóst hvort hún yrði samþykkt.
Um 300 Palestínumenn, þ.á m. konur og börn,
gáfust í gær upp í Jenin-flóttamannabúðunum á
norðurhluta Vesturbakkans en þar hafa átökin
verið einna hörðust. Um 13.000 manns bjuggu í
Jenin en flestir hafa flúið hana og talsmenn Pal-
estínustjórnar saka Ísraela um að varpa fórn-
arlömbum átakanna í fjöldagrafir. Talið er að
hundruð Palestínumanna hafa fallið síðustu daga
auk a.m.k. 28 ísraelskra hermanna.
AP
Palestínskir karlmenn og unglingsdrengir með bundnar hendur í húsagarði við Al Ain-flóttamannabúðirnar í
Nablus á Vesturbakkanum í gær. Hermenn notuðu gjallarhorn til að hvetja Palestínumenn til að gefast upp.
Powell leggur áherslu
á mikilvægi Arafats
Varað við blóðugum
átökum við Fæðing-
arkirkjuna í Betlehem
Madrid, Jerúsalem, Jenin, Ramallah. AP, AFP.
Martröð/24
♦ ♦ ♦
BANDARÍKJASTJÓRN hef-
ur opinberlega sagt Ísraelum
að þeim beri að kalla herlið sitt
„án tafar“ frá heimastjórnar-
svæðum Palestínumanna en
um leið hafa talsmenn stjórn-
arinnar látið í veðri vaka í
einkasamtölum við Ariel Shar-
on, forsætisráðherra Ísraels, að
hann geti smám saman dregið
úr aðgerðum Ísraelshers á
Vesturbakkanum. Bandaríska
blaðið The Boston Globe hafði
þetta eftir tveim bandarískum
embættismönnum í gær. Hvor-
ugur vildi láta nafns síns getið.
Óformlegt samkomulag var
um, að Sharon myndi hefja um-
talsverðan brottflutning herja
frá svæðum Palestínumanna
um sama leyti og Colin Powell,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, kæmi til Jerúsalem, að
sögn heimildarmannanna.
Þeir sögðu að Bandaríkja-
stjórn liti ekki á aðgerðir Ísr-
aela sem ögrun við George W.
Bush forseta. „Sharon veit
hversu langt hann má ganga.“
Ekki að hlusta
Embættismaður í varnar-
málaráðuneytinu sagði að Mið-
Austurlandaför Powells hefði
beinlínis verið hagað þannig
„að Sharon fengi meiri tíma“.
Annar embættismaður stað-
festi þetta. „Ísraelar eru ekki
fyrst og fremst að hlusta á það
sem við segjum, heldur fremur
fylgjast með því sem við ger-
um.“
Reynt að
kaupa
Sharon
tíma?