Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 25
Fyrir fagurkera
og safnara
Antik Kuriosa
Grensásvegi 14
s. 588 9595 og 660 3509
Opið mán-fös. frá kl. 12-18
Lau. frá kl 12-17
Ofnæmisprófað
100% ilmefnalaust
Kaupauki! 7 hlutir
Ef þú kaupir tvo hluti frá Clinique,
er þessi gjöf þín:
Dramatically Different Moisturizing Lotion 15 ml
Total Turnaround 7 ml
Superbalanced Makeup 15 ml
High Impact Eye Shadow duo
Daily Shampoo 50 ml
Different Lipstick
Pink Whisper
Ásamt Clinique öskju
undir snyrtivörur/
skartgripi.
GÓÐ
GJÖF
Nýtt!
Total Turnaround
Aðeins fyrir þig
Two to Tango augnskuggar
Ráðgjafar Clinique verða í Hagkaup Kringlunni vikuna 11.-18. apríl
og veita þér fría húðgreiningu og ráðgjöf um förðun.
Tilboðið gildir í Hagkaup Kringlunni,
Hagkaup Skeifunni, Hagkaup Spönginni,
Hagkaup Smáralind, Hagkaup Akureyri.
w
w
w
.c
lin
iq
ue
.c
om
UMDEILDUR vísindamaður, sem
segist hafa einræktað fóstur, kann
að stofna bæði einræktaða barninu
og móður þess í mikla hættu, að
því er fram kemur í grein í breska
vikublaðinu New Scientist sem
kemur út á laugardag.
Læknar hafa varað við því að
einræktuð börn geti fæðst með
ólæknandi sjúkdóma eða vansköp-
uð og New Scientist segir að fram
hafi komið vísbendingar um að
gangi kona með einræktað barn
geti hún fengið sjaldgæft og ill-
kynja krabbamein í legi, svokallað
æðabelgskrabbamein. Blaðið hef-
ur eftir Richard Gardner, sérfræð-
ingi í fósturþróun við Oxford-há-
skóla, að ekki hafi enn verið
sannað að móðir einræktaðs barns
geti fengið æðabelgskrabbamein
því vísbendingarnar um það hafi
aðeins fengist við tilraunir á dýr-
um. Hann varar þó við því að hætt-
an á krabbameininu geti verið
mikil.
Dagblaðið Gulf News, sem gefið
úr út á ensku, skýrði frá því 3. apr-
íl að umdeildur sérfræðingur í
frjósemislækningum, Ítalinn Se-
verino Antinori, hefði tilkynnt á
ráðstefnu í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum að sér hefði tek-
ist að einrækta fóstur. Kona sem
gengi með fóstrið væri komin tvo
mánuði á leið.
Aðrir fjölmiðlar hafa ekki fengið
staðfestingu á þessari frétt og ekki
er vitað hver konan er. New Sci-
entist hefur eftir ítalska blaða-
manninum Giancarlo Calzolari,
vini Antinoris, að einræktunin hafi
átt sér stað í múslímaríki og faðir
einræktaða fóstursins sé „voldug-
ur auðjöfur“.
Ítalskur vísindamaður segist hafa einræktað fóstur
Bæði móðirin og
barnið sögð í hættu
París. AFP.
DAGBLAÐIÐ al-Hayat, sem gefið er
út á arabísku í Bretlandi, sagði í gær
að því hefði borist yfirlýsing frá al-
Qaeda hryðjuverkasamtökunum þar
sem fullyrt væri að Sádí-Arabinn
Osama bin Laden, leiðtogi al-Qaeda,
væri á lífi og fær í flestan sjó. Er bin
Laden sagður leggja á ráðin um ný
hryðjuverk.
Al-Hayat sagði yfirlýsinguna frá al-
Qaeda vera dagsetta 26. mars og er
þar m.a. fullyrt að átján bandarískir
hermenn hafi nýverið verið teknir af
lífi eftir að liðsmenn al-Qaeda og talib-
anar handsömuðu þá að loknum hörð-
um bardögum í Austur-Afganistan.
„Osama bin Laden er frískur og
fær í flestan sjó og undirbýr nú næstu
skrefin í baráttu sinni,“ sagði í yfirlýs-
ingunni sem barst al-Hayat.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
viðurkenndi síðast á föstudag að hann
hefði ekki hugmynd um hvar bin Lad-
en væri niðurkominn. „Ég bendi þér
hins vegar á þetta,“ sagði hann í við-
tali við breska sjónvarpsstöð, „það
heyrist sannarlega ekki mikið frá
honum þessa stundina. Kannski er
það af því að hann hefur grafið sig of-
an í holu einhvers staðar en það er
ekki til nógu djúp hola fyrir hann að
leynast í.“
„Við munum ná honum ef hann er á
annað borð enn á lífi,“ sagði Bush.
Bin Laden sagður á lífi
London. AFP.