Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 51 skyldirðu fá áður en þú færir heim. Að sjálfsögðu varð það raunin. Þegar heim var komið var mamma þín hin allra rólegasta og taugahrúg- an ég staulaðist heim og beið við sím- ann. Krístín Líf fæddist nú ekki fyrr en daginn eftir að mig minnir. Falleg- asta barn sem við höfðum augum lit- ið. Þú varst svo stolt og sagðir að enginn vissi hvað ást væri fyrr en sá hinn sami eignaðist barn. Ég veit að þú elskaðir litlu stúlk- una þína ofurheitt og fjölskylduna þína alla. Þú áttir svo marga vini því þú varst svo sannarlega einstök. Arna ég mun aldrei gleyma þér og minn- ingarnar lifa áfram hjá okkur öllum. Ég veit að þú ert á góðum stað og þér líður vel. Takk fyrir samfylgdina elsku vin- kona. Kæri Valur, Kristín, Sigrún, Þór- dís, Unnar og Kristín Líf. Megi drottinn hjálpa ykkur á þessum erf- iðu tímum. Hjartanlegar samúðarkveðjur Íris Anita. Það er þungt að kveðja svo dýr- mæta vinkonu. Þegar ég fer að gramsa í minningum sem ég hef eignast á þeim ellefu árum, sem ég hef verið þess aðnjótandi að eiga þig að, er svo ótalmargt sem stendur upp úr. Þú varst alltaf svo lifandi að engin leið var að láta sér leiðast í ná- vist þinni, með ómótstæðilegan húm- or og persónutöfra sem létu fáa ósnortna. Mér er það minnisstætt þegar við vorum unglingsstelpur, og óaðskiljanlegar vinkonur eins og gengur og gerist, að eitt skiptið þeg- ar við gistum saman vaknaði ég upp um miðja nótt við mikil ræðuhöld með tilheyrandi handabendingum og áherslum, og svo lagðist þú bara aft- ur á koddann og hélst áfram að sofa. Þessi minning mín er svo lýsandi um hvernig manneskja þú varst, ávallt með vel orðuð og góð ráð á reiðum höndum, – jafnvel þótt þú svæfir. Fáa hef ég hitt á lífsleiðinni með jafn frjótt ímyndunarafl og húmor eins og þig og ekki voru þau fá skiptin sem þú fékkst mig til þess að veina úr hlátri yfir heimatilbúnum brönd- urum og einlægum hlátri sem var ólýsanlega smitandi. „Rósa ég held að við verðum alltaf vinkonur“ er dýrmætasta setningin sem ég man frá þér og hana geymi ég í hjarta mínu þar til við hittumst á ný. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Kristín Líf, Valur, Kristín Aðal- björg, Þórdís, Sigrún og aðrir að- standendur. Ykkur votta ég mína dýpstu samúð. Rósalind Guðmundsdóttir. Elsku Arna, það er erfitt að trúa því að þú sért dáin.Við viljum þakka þér fyrir þann tíma sem við áttum með þér. Með þessum fáu orðum viljum við kveðja þig og votta elsku Kristínu Líf og fjölskyldu þinni okk- ar dýpstu samúð. Úr mjallhvítri marmaraskál er minningin endurskírð. Lindanna ljúflingsmál er ljóðið um heimsins dýrð. Vatnsins gimsteinaglit. Og glóandi perlutár vitna með villtum þyt um vængjuð og hverful ár. Lífið er eins og lind, sem lifandi perlum gýs. Við glitrum af gleði og synd í geislum frá ljóssins dís. Við syngjum uns bresta brár við biðjum af hjarta og sál og drjúpum sem daggartár í dauðans marmaraskál. (Davíð Stefánsson.) Guðrún, Hlöðver, Ragnar Elías, Arnar og fjölskylda. Elsku Arna. Þegar við rákumst á þig síðast í Smáralind fyrir aðeins þremur vikum hefðum við aldrei trú- að að það væri í síðasta skipti sem við hittumst, að minnsta kosti í þessu lífi. Elsku Arna, við viljum þakka þér allar góðu stundirnar sem við áttum með þér og að þú varst alltaf fyrsta manneskjan til að rétta fram hjálp- arhönd ef einhverjum leið illa. Þú varst með blíðari og tryggari mann- eskjum sem maður kynnist á lífsleið- inni. Þú varst góður og tryggur vin- ur, þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur, þú munt ávallt eiga stað í hjarta okkar og bænum. Megi Guð geyma þig elsku Arna. Elsku litla Kristín, orð fá ekki lýst því hvað þú ert að ganga í gegnum núna en mundu að mamma þín verð- ur alltaf hjá þér og mun alltaf vaka yfir hverju fótspori þínu. Kæru Kristín Líf, foreldrar Örnu og syst- ur, megi góður Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Innilegar sam- úðarkveðjur. Ólafur Jónsson og Esther Ósk Erlingsdóttir. Elsku besta Arna mín. Ég skrifa þér nú nokkrar línur í síðasta sinn. Mér finnst það svo óraunverulegt að hugsa mér það að ég fái ekki að sjá þig aftur í þessu lífi, heyra röddina þína og hlæja með þér. Ótal minn- ingar skjóta upp kollinum. Það er svo stutt síðan ég sá þig og það er erfitt að sætta sig við að ég sé búin að missa þig, en ég veit að ég get tal- að við þig hvenær sem ég vil í hug- anum og að þú ert nú hjá Guði og fylgist stundum með okkur hinum. Nú hefurðu loksins fengið frið í sál- ina þína og þjáningar þínar eru á enda og þér líður vel. Ég hugga mig við það. Mér þykir svo vænt um þig elsku vinkonan mín. Við bundumst sterkum vináttuböndum í þann tíma sem við áttum hér saman og okkur fannst við alltaf hafa þekkst. Við gát- um talað um allt og treystum hvor annarri fullkomlega og töluðum um hvað það væri mikils virði. Þú hefur alltaf gefið svo mikið af þér og sama hvernig þér leið þá gátum við hlegið og grínast. Þú varst alltaf svo góð við mig og blíð – þótt þú værir þessi töff- ari sem faldir líðan þína sagðirðu mér að þér liði samt ekki vel og að nú þyrftirðu á mér að halda. Ég vildi óska þess að hlutirnir hefðu farið öðruvísi og að ég hefði verið betur til staðar fyrir þig. Þú verður að vita hvað ég elskaði þig mikið, elsku góða vinkona. Þú varst svo sérstök og vel gefin og komst manni sífellt á óvart, það var alltaf svo gaman að vera ná- lægt þér. Við hlustuðum á tónlist og töluðum hvor í kapp við aðra eins og tvær gaggandi hænur, og hlógum áhyggjulausar. Okkur leið alltaf vel saman og vorum svo nánar. Ég sakna þín sárt, fallega góða Arnan mín, þú gafst mér svo margt sem ég mun aldrei gleyma, en þú varst líka orðin ósköp þreytt og kvalin af veik- indum þínum. Mér datt ekki í hug að þetta væri í síðasta skiptið sem ég sæi þig á laugardagskvöldið og við héldumst í hendur og tókum mynd af okkur. Mér finnst ég eiga svo margt ósagt við þig og á erfitt með að sætta mig við að þú sért farin, þú hafðir svo margt að gefa. En veikindi þín náðu yfirhendinni og drógu þig að lokum til dauða, en nú lifir þú sem fagur engill á himnum og einhvern tíma sjáumst við aftur. Elsku Valur, Kristín, Þórdís, Sig- rún, Unnar og Kristín Líf, góður Guð veri með ykkur í þessari miklu sorg og vaki með ykkur alltaf. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. (23. Davíðssálmur, 2.–4. vers.) Þín vinkona að eilífu, Guðrún Steingrímsdóttir. Ég vaknaði á páskadagsmorgun og fékk þær hörmulegu fréttir að Arna Hildur frænka mín og vinkona væri dáin. Ég fraus allur að innan og gat ekki komið upp orði. Hvernig gat þetta gerst, að svona góð og hjartahlý manneskja væri tekin frá okkur sem þykir vænt um hana í blóma lífsins aðeins 25 ára gömul? Arna var einstaklega ljúf mann- eskja, hún var alltaf tilbúin að veita þeim sem voru í vanda staddir hjálp- arhönd, hún vildi öllum vel og var einstaklega hæfileikarík í að sjá allt það góða í fólki. Hún var mjög ráða- góð og hafði oftast svörin á hreinu. Hún var mér sem klettur þegar faðir minn lést, því mun ég vera henni þakklátur að eilífu. Arna var ekki bara frænka mín, hún var góður vinur minn og vorum við mjög náin. Við höfðum mjög svip- aðan húmor og hlógum oft að sömu hlutunum. Við vorum aldrei uppi- skroppa með umræðuefni, við gátum rætt um heima og geima. Við vorum systkinabörn og hefur samgangur milli heimila okkar alltaf verið mikill og náinn. Missir okkar allra sem þótti vænt um hana er mikill, sérstaklega Vals, Kristínar, Sigrúnar, Þórdísar og Kristínar Líf, en eitt var sagt við mig, þegar sorgin bankaði upp á hjá mér, sem sefar sorgina, er að sá sem hefur misst mikið hefur líka átt mik- ið. Elsku Arna mín þakka þér fyrir öll þau ár sem þekktumst, þakka þér fyrir allar skemmtilegu samveru- stundirnar og allan stuðninginn sem þú veittir mér. Minningarnar um þig eru svo margar og mun ég geyma þær í hjarta mínu um ókomna tíð. Ég á eftir sakna þín svo mikið að ég fæ því ekki lýst. Ég trúi því að þú sért nú komin á betri stað þar sem þér líður vel. Megi guð styrkja okkur öll á þess- um erfiðu tímum. Þinn frændi Snorri Valur. Mig langar svo að skrifa nokkur orð um hana Örnu, hún var besta vinkona hennar mömmu minnar. Hún var alltaf svo skemmtileg og góð við mig og Birtu systur mína, passaði okkur oft og við gerðum margt skemmtilegt saman. Ég man svo vel þegar hún giftist Unnari, hún var svo falleg þann dag, og ég sagði við mömmu að ég ætlaði að verða al- veg eins og hún þegar ég myndi gifta mig, hún var alveg eins drottning, kjóllinn hennar var líka svo flottur. Ég er alveg viss um að Arna er fal- legasti engillinn á himnum núna, því að hún var með hjarta úr gulli. Elsku Kristín Líf, krúttið mitt, ég mamma og Birta verðum alltaf til staðar fyrir þig. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Kveðja Guðrún Lísa Harðardóttir. Elsku besta Arna mín er dáin. Ég get varla fundið réttu orðin til að lýsa því hvað ég sakna þín mikið. Mig langar svo mikið til að halda ut- an um þig dúllan mín, ég veit hvað þú þurftir mikið á því að halda. Þú varst mér alltaf svo blíð og góð og mér fannst svo gott að eiga þig að og get- að leitað til þín með öll mín vanda- mál, því að þú varst svo klár og alltaf svo fljót að hugsa, komst alltaf að niðurstöðu sem hentaði fyrir alla að- ila, nema sjálfa þig. Ég gat treyst þér fyrir öllu því að þú varst svo hjartahlý og skilningsrík, tókst mér alltaf opnum örmum, sama hvað var. Þú varst svo yndislega góð mamma, Kristín Líf litla fallega yndið þitt sem þú elskaðir svo mikið, hún á allt- af eftir að búa að þeirri ást sem þú gafst henni. Þrátt fyrir alla erfiðu tímana eru góðu stundirnar okkur efst í huga. Nú sé ég þig fyrir mér sem brosandi fallegan engil sem vakir yfir okkur, því að ég veit að þér líður vel núna og þá áttu eftir að blómstra og finna sjálfa þig á ný. Ég elska þig svo mik- ið og mér fannst svo sárt að sjá þig þarna um daginn, hvað þér leið illa og þú varst orðin eitthvað svo lítil í þér og veikburða, þú talaðir um að þér væri alltaf svo kalt og að þú vær- ir alveg að gefast upp. Ég sagði við þig, ekki gefast upp, mundu eftir öll- um góðu stundunum sem við áttum, manstu hvað okkur leið vel þegar við vorum alltaf að gera eitthvað skemmtilegt. Dætur okkar léku sér vel saman, við fórum í sumarbú- staðaferðir og mér fannst svo gott að fá þig í heimsókn til mín þegar ég var fyrir norðan, við elduðum okkur góðan mat og fengum okkur göngu- túra út í náttúrunni. Það var erfitt að vera án þín í þetta tæpa ár sem þú varst úti í Belgíu og Kanada, þá reyndi á vinskap okkar, en við vorum nú samt voða duglegar að skrifast á, og ég var svo stolt af þér hvað þú varst dugleg þarna úti. Mér finnst svo sárt að lesa bréfin sem þú sendir mér, ég sakna þín svo mikið núna því að ég veit að þú ert farin miklu lengra í burtu frá mér. Það er bara til ein ARNA, þú varst svo yndislegur karakter, mikill húm- oristi og prakkari í þér, það var svo gaman að hlæja og fíflast með þér, við gátum alveg grenjað úr hlátri út af ótrúlega fáránlegum hlutum. Það er mikill missir fyrir mig og alla þína vini og ættingja að hafa þig ekki lengur hjá okkur, en þú varst bara alveg hætt að geta séð sjálfa þig í réttu ljósi, ég reyndi eins og ég gat að fá þig til að sjá og skilja hvað þú værir yndisleg stelpa. Ég er svo þakklát yfir því að þú hafir komið inn í mitt líf, þú gafst mér svo marga gullmola sem ég mun alltaf geyma í hjarta mínu. Ég veit að þegar ég dey kemur þú og tekur vel á móti mér, þarna hinum megin... Elsku Kristín Líf, Unnar, Valur, Kristín, Sigrún og Þórdís, ég bið góðan Guð að gefa ykkur allan þann styrk sem til er í þessari miklu sorg. Ég ætla að kveðja þig Arna mín eins og þú kvaddir mig í bréfunum þínum, elsku besta vinkona mín, Guð og englarnir vaki yfir þér, sakna þín. Þúsund kossar og faðmlög. Er augum ég beini út í ómælisgeim, ertu samt nálæg mér, því stjarnanna blik og birtan frá þeim, ber mér glampa frá þér. Þín vinkona að eilífu Sonja Berglind Hauksdóttir. &    *   &&   2       2       /    /&   &?  0& *& +/# 7 #! $ (% /   4)  !$               ) <&0J &  '  '  0  )     )       5#/ 1  &          %*%      4    ) .  # ! #  I     $&. !   !      ! //%).      ""5!"""5$ &  2    /             &     &  '  &  /# 4  '5  +# $ .0   *         /          )& :    9# /  6  $% &      6.#0 '#! '% '# $ >  *  %  2   /   /&%   B&6(   '5  4/5;> #-+./%+$ :/ *      <  '#6  $ Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.