Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 31
bestu mögulegu að- stæður. Ef þörf er á einhvers konar aðstoð við framkvæmd og sköpun verksins eða annars konar hjálp, þá sér DCA um að lista- maðurinn fái þá að- stoð. Í þessu getur fal- ist að finna bestu aðstoðarmenn sem völ er á við uppsetningu verksins á Ítalíu, að afla styrktaraðila, eða koma listaverkinu á sýningarstaði annars staðar eftir að Tvíær- ingnum lýkur.“ Mikilvægi listastarfsemi vanmetið á Íslandi Það hljóta að vakna spurningar um það hvers vegna Ólafur Elíasson sýnir fyrir hönd Danmerkur en ekki Íslands. „Ég hef nokkrum sinnum sýnt á sýningum með íslenskum lista- mönnum, en boð um það hafa þá komið frá sýningarstjórunum sjálf- um, ekki frá Íslandi. Ég myndi aldr- ei hafa nokkuð á móti því að sýna fyrir Íslands hönd, ekkert frekar en ég er nú að sýna fyrir hönd Dan- merkur. Hvar sem ég kem reyni ég að vekja áhuga á Íslandi, nátt- úrunni og fólkinu. En þegar kemur að umræðu um menningarpólitík og listmenntun þá reyni ég að komast hjá því að nefna Ísland. Það er skoð- un mín að íslenska ríkið vanmeti al- gjörlega samfélagslegt og pólitískt mikilvægi vel upp byggðrar menn- ingarstefnu og öflugs listræns starfs í landinu. Það er gífurleg gróska í samvinnu og samskiptum innan listgeirans í Evrópusamfélag- inu, hvort sem er í myndlist, bók- menntum, tónlist eða kvikmynda- gerð. Mér sárnar fyrir hönd ungra íslenskra listamanna hve Ísland hef- ur setið hjá í þessum efnum vegna þess eins að íslenska ríkið hefur ekki haft burði til að byggja þeim brýr yfir í þennan listaheim. Maður sér það svo oft, þegar íslenskir lista- menn fá tækifæri til að sýna erlend- is, að þeir standa sig sjálfir mjög vel og listræn gæði verka þeirra eru mikil. Vandamálið er að þeim gef- ast of fá tækifæri til að sýna úti. Ís- lensk menningarstefna ætti að gegna miklu víðtækari hlutverki en nú er og það þarf að sjá til þess að til verði áætlun um það hvernig Ís- land vill kynna sjálft sig í listum á erlendum vettvangi, með þarfir Ís- lendinga í huga. Þetta er eitthvað sem ekki verður gert án stuðnings ríkisins, vegna þess að sköpun snýst ekki um skreytingu og hönnun, heldur um óhlutbundið endurmat á þeim samfélagslegu gildum sem skipta máli í hinni upprunalegu hugmynd okkar um lýðræði.“ Skiptir máli að fá réttu hjálpina Ólafur segir að sé tækifærið á Feneyjatvíæringnum nýtt rétt og vel, geti þátttaka hans þar haft gíf- urleg áhrif á feril hans. „Þetta er tvímælalaust ein af mikilvægustu sýningum sem ég tek þátt í á ævi minni. Ef hins vegar tækifærin á Feneyjatvíæringnum eru ekki rétt nýtt, getur verið að ekkert verði úr neinu, tækifærin glatist og að þátt- takan sé bara sóun á peningum. Þetta snýst auðvitað fyrst og fremst um það að skapa mjög gott verk, en það er engu að síður mikilvægt að fá réttu hjálpina við þetta og stuðn- inginn frá sýningarstjóranum og DCA. Það er í gangi mikil alþjóðleg umræða í myndlistinni og með þátt- töku í Tvíæringnum hef ég tækifæri til að komast inn í þessa umræðu og kynna hugmyndir mínar og viðhorf til ýmissa mála er snerta listina. Að verða þátttakandi í þessari umræðu og að ná góðu skipulagi á sýning- unni sjálfri er miklu mikilvægara í sjálfu sér en að þetta sé beinlínis kynning á einhverri þjóð. Það er miklu mikilvægara fyrir danska menntamálaráðuneytið sem stend- ur straum af kostnaðinum við verk- efnið, að sýna að Danmörk hefur fulla burði til að geta tekið þátt í al- þjóðlegri listaumræðu á þessum vettvangi, heldur en að sýna stakt verk á grundvelli einnar þjóðar. Getan til að taka þátt í menningar- umræðunni á þrepinu fyrir ofan þjóðlega planið; – þ.e. á alþjóð- legum vettvangi og mikilvægi þess fyrir Danmörku, ráða vali þeirra á listamanni til að sýna í Feneyjum. Þeir áttu þess vegna ekkert í vand- ræðum með að leita til mín, enda kalla þeir mig dansk-íslenskan lista- mann.“ Ólafur Elíasson sýnir fyrir Dani á Feneyjatvíæringnum Ein af mikilvægustu sýningum ævi minnar ÓLAFUR Elíasson myndlistarmaður hef- ur verið valinn til að vera fulltrúi Danmerk- ur á Tvíæringnum í Feyneyjum árið 2003. Ólafur er Íslendingur, en hefur búið lengi ytra. Verk hans hafa vakið mikla athygli víða um heim. Í sam- tali við Morgunblaðið segist Ólafur ekki vera búinn að ákveða end- anlega hvers konar verk hann vilji búa til fyrir sýninguna í Fen- eyjum. „Ég er rétt að byrja að hugsa um þetta, en ég ætla að vinna úr nokkr- um ólíkum hugmyndum, vegna þess að danski sýningarskálinn er mjög stór, og mig langar til þess að koma fram með margþætta hugmynd sem sýnir ólíkar hliðar verka minna. Mikilvægur þáttur í verkefninu verður að fá til liðs við mig unga rit- höfunda, arkitekta og tónlist- armenn til að fá breiðari fókus á sýningarskálann og til að komast út úr fastmótuðum hugmyndum um að sýningarskálinn sé kynning á grundvelli þjóðernis. Það skiptir minna máli í listrænu samhengi.“ 29 milljónir til verkefnisins Ólafur segir að danski skálinn í Feneyjum sé rekinn af Dönsku sam- tímalistarstofnuninni DCA og þar komi einnig til sýningarstjóri sem DCA og hann sjálfur velji í samein- ingu. „Sýningarstjórinn hefur um- sjón með framkvæmd verkefnisins í heild. Hann skipuleggur framgang sýningarinnar, sér um að gefa út bók um verkefnið, heldur utan um kynningarmál og fleira slíkt í ná- inni samvinnu við mig, og með að- stoð frá DCA. Fjárhagsáætlun fyrir verkefnið hljóðar upp á 2,5 millj- ónir danskra króna, eða rúmlega 29 milljónir íslenskra króna, og sú upphæð á að dekka allan kostnað, auk greiðslu til listamannsins og sýningarstjórans. Inni í þessari upphæð er áætlað að ein milljón danskra króna, eða rúmlega 11,5 milljónir íslenskra króna fari í lista- verkið sjálft. Danir gera ráð fyrir því að listamaðurinn hafi 12–16 mánuði til að undirbúa verkið við Ólafur Elíasson LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 31 LEIKRITIÐ Völuspá eftir Þórarin Eldjárn, verður flutt á sænsku í Öldutúnsskóla í dag kl. 11.20 og er það í fyrsta sinn sem leikritið er flutt á sænsku hérlendis. Það er 40 kvenna hópur frá Svíþjóð ásamt ís- lenskum sænskunemum í Öldutúns- skóla, sem ætla að sjá sýninguna. Þá ætlar bandarísk sjónvarpsstöð að fylgjast með þessari útgáfu verksins og hafa til kynningar vestanhafs. Möguleikhúsið fékk John Sweden- mark til þess að þýða Völuspá yfir á sænsku. Leikstjóri sýningarinnar er danski leikarinn Peter Holst. Pétur Eggerz leikur öll hlutverkin og Stef- án Örn Arnarson leikur á selló. Völuspá á sænsku ÞAÐ er sérkennilegt með hvaða hætti listaverk koma til fólks, oft þá er skapandi þeirra er genginn, og einnig hvern- ig verk þeirra, er nutu mikillar athygli, hverfa af vettvangi. Að þessu leyti er sagan oft dynt- ótt og fer sjald- an að settum leikreglum líð- andi stundar, svo enginn veit endanlega niður- stöðu um gildi þess sem geyma skal eða gleyma. Einstaka tekst að klífa þrítugan hamarinn og gnæfa þar æ síðan, þar sem til sést um alla vegu og því skal trúað, að Halldór Laxness sé einn þeirra er hæst ber við himin háan. Fyrir börnin í dag er Halldór Laxness að finna í sögum hans og ljóðum og af því sem marka má af söng og upplestri barnanna í Kárs- nesskóla á tónleikum þeirra í Saln- um sl. föstudagskvöld, eru þar í millum miklir kærleikar. Tónleik- arnir hófust á braghendunni (eða afhendingu hinni meiri) Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga, við lag sem Ingi T. Lárusson samdi við Sólskríkjuna eftir Pál Ólafsson. Af öðrum lögum má nefna Búkolla mín bu, bu, bu, Hvert örstutt spor (Jón Nordal) en einsöng í því lagi söng Sara Dís Hjaltested, Enginn gisti að Gunn- vöru, lagstúf úr Atómstöðinni (Þorkell Sigurbjörnsson), Hve bjart er veður (Vorvísa), þú varst alinn upp á trosi, við þó nokkuð sniðugt og einfalt lag eftir Hörð Torfason. Þar eftir voru tvö lög eftir Atla Heimi Sveinsson, Klem- entínudans og hið fallega lag hans við Maríukvæði, og lauk söngþætt- inum með Maístjörnunni. Kórinn söng mjög fallega, sér- staklega lag Atla við Maríukvæðið og Maístjörnuna, sem uppfærð var af mikilli reisn. Með söngvurunum lék Marteinn H. Friðriksson á pí- anó og strengja- og flautuleikarar voru Guðrún Mist Sigfúsdóttir, Steinunn Aradóttir, Þorkell Helgi Sigfússon, Örn Ýmir Arason og Vilborg Gísladóttir. Inn á milli söngvanna lásu og léku kórfélagar nokkur atriði, þar sem börn koma við sögu, úr Brekkukotsannál, Heimsljósi, Sölku Völku og úr Degi hjá munk- um og áttu sum börnin hreinan stjörnuleik, svo af þessu tiltæki varð hin besta skemmtan. Leikles- arar voru Sigrún Bjarnadóttir, Benedikt Clausen, Helga Gunn- laugsdóttir, Ingvi Björgvinsson, Helen Inga Stankiewicz, Sigrún Skaftadóttir, Fríða Margrét Pét- ursdóttir, Jón Eyþór Gottskálks- son, Sunneva Tómasdóttir, Hjördís Ásmundardóttir, Valdís Ýr Vigfús- dóttir, Helga Gunnlaugsdóttir og Elín Jakobsdóttir, er var kynnir. Bæði söngur og upplestur var einstaklega fallega uppfærður, frjáls og einlægur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur, er hefur sérstakt lag á að laða fram vand- aðan söng og varðveita þá gleði, sem börnum er eiginleg, og gerir söng og framkomu þeirra svo yf- irmáta fallega. Söngur og leiklestur TÓNLIST Salurinn Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur flutti söngva við kvæði eftir Halldór Laxness og lesið var upp úr verk- um hans, þar sem börn koma við sögu. Föstudagurinn 5. apríl, 2002. SÖNGUR OG UPPLESTUR Jón Ásgeirsson Þórunn Björnsdóttir ÁSA Richardsdóttur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins, en alls bárust 20 um- sóknir um starf- ið. Ása Richards- dóttir hefur starfað í listum og fjölmiðlun síð- astliðin sextán ár. Hún starfaði hjá Ríkissjón- varpinu á árun- um 1985–1991, síðast sem frétta- maður í erlend- um fréttum. Árið 1994 stofnaði hún Kaffileikhúsið og stýrði rekstri þess til ársins 1999. Hún hefur unnið sjálfstætt að fjölmörgum verkefnum á sviði menningar og lista og var meðal annars stjórnandi Evrópska lista- þingsins sem haldið var í Reykjavík haustið 2000 á vegum Sjálfstæðu leikhúsanna. Þá hefur hún kennt menningarstjórnun við Háskóla Ís- lands og Listaháskóla Íslands. Ása situr í stjórn evrópska tengslanets- ins IETM, sem spannar margar helstu stofnanir og hópa á sviði sviðslista í Evrópu. Ása stundaði framhaldsnám í al- þjóðasamskiptum og stjórnmálum við University of Kent í Kantara- borg, Englandi, á árunum 1986– 1989. Árið 1999 lauk hún diploma- gráðu í menningarstjórnun frá Fondation Marcel Hicter í Brussel, en það nám nýtur sérstakrar við- urkenningar Evrópusambandsins. Með framkvæmdastjórastarfinu hjá ID stundar Ása MBA-nám við Háskólann í Reykjavík. Íslenski dansflokkurinn Nýr framkvæmda- stjóri ráðinn Ása Richardsdóttir Hönd í hönd, styrkur og leiðsögn á erfiðum stundum, hefur að geyma hugleiðingu fimmtíu Íslendinga um það hvernig hægt er að bregðast við áföllum í lífinu, erfiðleikum eða sorg, settar fram í sögum, ljóðum og stuttum íhug- unum. Höfundar koma úr ýmsum áttum og eru á öllum aldri sem hafa öll með einum eða öðrum hætti glímt við erfiðleika í líf- inu. Útgefandi er Skálholtsútgáfan. Bókin er 146 bls. Verð: 2.200 kr. Hugleiðingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.