Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 63 DAGBÓK Mörkinni 6, sími 588 5518 Opið laugardag frá kl. 10-15 Nýjar vörur Jakkar Stuttkápur Hörkápur Vínilkápur Regnkápur frá 5.900 Gerum grín að rauða strikinu Fiskirúllur og -bollur, fylltar með sósu, 340 kr. kg, roðlaus harðfiskur, 3.100 kr. kg, meðan birgðir endast. Verslunin Svalbarði, Framnesvegi 44, sími 551 2783. Í BRIDSBÓKUM er hamr- að á því hversu mikilvægt það er að geta talið upp á þrettán. En hver getur ekki talið upp á þrettán? Það er ekki meginvandinn – hitt er vandasamara að vita hve- nær eigi að staldra við og telja. Þú ert í vestur í vörn gegn þremur gröndum: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ G5 ♥ K8752 ♦ DG109 ♣Á2 Vestur ♠ K87 ♥ D93 ♦ 74 ♣109875 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 tígull Pass 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 3 tíglar Pass 3 grönd Pass Pass Pass Þú spilar út lauftíu, lítið úr borði og makker tekur með kóng og spilar þristin- um til baka, en suður fylgir með tveimur smáspilum. Sagnhafi spilar nú tígul- drottningu og -gosa, og þriðja tíglinum á ásinn heima, en makker reynist eiga kónginn þriðja. Svo kemur smár spaði að blind- um. Spilið er úr smiðju skoska bridshöfundarins Hughs Kelseys og á þessu andar- taki spyr Kelsey: Hvað viltu gera? Nú er að telja. Spila- mennskan í lauflitnum sýnir að suður hefur byrjað með DGxx – með KGx hefði makker spilað gosanum undir ásinn. Vitað er að suð- ur byrjaði með ásinn fjórða í tígli og í sögnum hefur hann sýnt fjórlit í spaða. Skipting suðurs er því 4-1-4-4. En slagirnir? Fjórir á tígul og þrír á lauf. Sagnhafi á níu slagi ef hann er með blankan hjartaás, svo það er rétt að gera ráð fyrir því spili hjá makker – rjúka upp með spaðakóng og skella hjarta- drottningu á borðið: Norður ♠ G5 ♥ K8752 ♦ DG109 ♣Á2 Vestur Austur ♠ K87 ♠ 10432 ♥ D93 ♥ Á1064 ♦ 74 ♦ K32 ♣109875 ♣K3 Suður ♠ ÁD96 ♥ G ♦ Á865 ♣DG64 Kunni menn að telja á annað borð er þetta alls ekki svo erfitt, en við spilaborðið þarf vestur að gera sér grein fyrir því að úrslitastundin er runnin upp þegar sagnhafi spilar spaða að blindum. Og til þess þarf annan mjög mikilsverðan eiginleika – gott stöðumat. Það er eig- inleiki sem ekki er hægt að þjálfa með lestri bridsbóka – því miður. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake HRÚTUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert hugrakkur bjart- sýnismaður en þolinmæði og háttsemi eru ekki þínar sterku hliðar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Vertu óhræddur við að segja hug þinn allan því þú hefur engu að tapa. Þér býðst tæki- færi til að taka þátt í nýju og spennandi verkefni. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú gætir staðið frammi fyrir erfiðum málum á vinnustað en þú hefur alla burði til að tak- ast á við þau. Gefðu þér tíma til að hlusta á vin í vanda. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Treystu ekki hverjum sem er fyrir þínum hjartans málum. Mundu að þjóð veit þá er þrír vita. Taktu lífið ekki of alvar- lega. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Ef þú vilt að fólk hlusti á þig og taki mark á þér skaltu gæta þess að segja ekkert vanhugsað og velja vandlega stað og stund til að ræða mál- in. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það er nauðsynlegt að þú ger- ir það upp við þig hvort þú viljir komast að samkomulagi og halda friðinn eða vera stíf- ur og eiga í stöðugum deilum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Einhver vandamál koma upp í sambandi við náinn ættingja. Þú þarft að vera sveigjanleg- ur og setja þig í hans spor til að hægt sé að leysa málin. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er kominn tími til að hitta gömlu félagana, endurnýja kynnin og rifja upp góðar minningar. Eitthvað mun koma þér ánægjulega á óvart. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Einhver hefur mistúlkað orð þín og þú þarft að gera allt sem í þínu valdi stendur til að leiðrétta misskilninginn. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Vertu óhræddur við að viðra hugmyndir þínar því það gæti borgað sig. Láttu af þeim leiða vana að efast um eigið ágæti. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér finnst þú tilbúinn að tak- ast á við fjárhagslegar skuld- bindingar. Þú ættir þó að ganga úr skugga um að þú getir staðið við þær áður en þú gengur að samningaborðinu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þeir eru margir sem vilja ná fundi þínum til skrafs og ráða- gerða. Gættu þess að hleypa ekki of mörgum að þér og vandaðu val þeirra. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú lætur fólk fara í taugarnar á þér. Gleymdu því ekki að þú þarft sjálfur að leggja eitt- hvað að mörkum ef þú vilt lífga upp á tilveruna. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 11. apríl, er sjötugur Jón Þór- arinn Tryggvason, fram- leiðslustjóri, Hafnargötu 29, Grindavík. Jón og Guð- ríður Bogadóttir, eiginkona hans, ætla að verja afmæl- isdeginum á æskuslóðum Jóns. Þessar dugmiklu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu til stuðn- ings Rauða krossi Íslands og söfnuðust 4.078 krónur. Þær heita Konný Björg Jónasdóttir, Eydís Ósk Jónasdóttir og Bríet Inga Bjarnadóttir. Morgunblaðið/Einar Falur LJÓÐABROT Stökur Augun mín og augun þín, ó, þá fögru steina. Mitt er þitt, og þitt er mitt; þú veizt, hvað eg meina. Langt er síðan sá eg hann, sannlega fríður var hann; allt, sem prýða má einn mann, mest af lýðum bar hann. Man eg okkar fyrri fund forn þó ástin réni; nú er eins og hundur hund hitti á tófugreni. Vatnsenda-Rósa 1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. Bc4 Bg7 4. 0–0 e6 5. d4 cxd4 6. Rxd4 a6 7. Rc3 Re7 8. Bg5 Dc7 9. Bb3 Rbc6 10. Rxc6 Rxc6 11. Dd2 0–0 12. Bh6 b5 13. Bxg7 Kxg7 14. Had1 Db6 15. Df4 Dc5 16. Hfe1 f6 17. Kh1 Hf7 18. Dg3 Dg5 19. Dd6 De5 20. Dd2 g5 Staðan kom upp á Síma- skákmótinu, minningarmóti um Dan Hansson, sem lauk fyrir skömmu. Sigurvegari mótsins, tékkneski stór- meistarinn Tom- as Oral (2542), hafði hvítt gegn Rússanum Vla- dimir Malakhov (2647). 21. Rd5! Dd6 22. f4! Mannsfórn sem opnar svörtu kóngstöðuna upp á gátt. Fram- haldið varð: 22... exd5 23. e5! fxe5 24. fxe5 Dg6 25. Dxd5 Hf5 26. Dg8+ Kh6 27. Hd6 Rxe5 28. Hxg6+ Rxg6 29. Dd8 Bb7 30. Dxd7 Haf8 31. Kg1 Ba8 32. Bg8 g4 33. Dxh7+ Kg5 34. c4 Bxg2 35. Kxg2 Rh4+ 36. Kg1 Rf3+ 37. Kf2 Rxe1+ 38. Kxe1 Hf1+ 39. Kd2 H8f3 40. Dg7+ Kf5 41. Bh7+ Ke6 42. Dxg4+ Ke7 43. Dg7+ Kd6 44. Dd4+ Ke7 45. De5+ Kf7 46. Bd3 H3f2+ 47. Be2 og svartur gafst upp. Skák Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Bridsfélag Hveragerðis Aðalsveitakeppni Bridsfélags Hveragerðis stóð yfir fimm kvöld og lauk þriðjudaginn 19. febrúar. Úrslit urðu þessi: Ólafur Steinason, Gísli Þórarinsson, Garðar Garðarss., Brynjólfur Gestss. 2693 Úlfar Guðmundsson, Jón Guðmundsson, Guðmundur Sæm., Hörður Thorarens. 2500 Össur Friðgeirsson, Birgir Pálsson, Valtýr Jónasson, Kjartan Kjartansson Bjarni Þórarinsson 2365 Fimm kvölda aðaltvímenningi fé- lagsins lauk síðan 26. mars. Úrslit urðu þessi: Kjartan Kjartansson – Valtýr Jónasson 338 Sefán Short – Loftur Guðmundsson 318 Össur Friðgeirsson – Birgir Pálsson 318 Nú stendur yfir þriggja kvölda tví- menningur. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Glæsibæ, mánudaginn 25. mars. 24 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 244 Kristján Ólafsson – Ólafur Gíslason 244 Ólafur Ingvarss. – Bergur Þorvaldss. 243 Árangur A-V: Eysteinn Einarsson – Jón Stefánsson 266 Finnbogi Arndal – Hörður Guðmundss. 257 Gunnar Hámundars. – Kristján Jónss. 237 Tvímenningskeppni spiluð fimmtudaginn 4. apríl. 24 pör. Með- alskor 216 stig. Árangur N-S: Halla Ólafsdóttir – Ingunn Bernburg 259 Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 251 Óli Kristinsson – Halldór Kristinss. 246 Gunnar Hersir – Haukur Guðmundss. 246 Árangur A-V: Aðalbjörn Bened. – Leifur Jóhanness. 276 Ingibjörg Stefánsd. – Jóhann Lútherss. 260 Viggó Nordquist – Þórólfur Meyvantss. 237 Bridsfélag Suðurnesja Eftir eitt kvöld af þremur í aðaltví- menningi félagsins standa þessi pör best: Karl Karlsson – Gunnlaugur Sævarss. 21 Sigfús Yngvason – Elías Guðmundss. 11 Arnór Ragnarsson – Kjartan Ólason 9 Karl Einarsson – Björn Dúason 9 Gísli Torfason – Svavar Jensen 7 Næsta umferð verður spiluð mánudaginn 15. apríl. Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Þegar lokið er 10 umferðum í Að- alsveitakeppni 2002 er röð efstu sveita eftirfarandi: Sveit Bergplasts 216 Sveit Guðlaugs Sveinssonar 191 Sveit Helgu Sturlaugsdóttur 175 Sveit Viðars Jónssonar 173 Sveit Friðriks Jónssonar 166 Eftir er að spila þrjár umferðir. Kolbrún og Björn sigurvegarar í svæðamótinu fyrir norðan Kolbrún Guðveigsdóttir og Björn Þorláksson urðu öruggir sigurvegar- ar í paramóti Nl. eystra í tvímenn- ingi sem fór fram í Hlíðarbæ sl. sunnudag. Þau hlutu nákvæmlega 60% skor í heildina eftir gott gengi í lokaumferðunum og skildu 27 stig að í lokin. Pétur Guðjónsson og Una Sveinsdóttir urðu jöfn Ólínu Sigur- jónsdóttur og Reyni Helgasyni með 28 stig en samkvæmt reglugerð um innbyrðis viðureign hlutu Una og Pétur 2. sætið. Lokastaðan: Kolbrún-Björn 55 Una-Pétur 28 Ólína-Reynir 28 Ragnhildur Gunnarsd.-Gissur Jónss. 22 Soffía Guðmundsd.-Stefán Vilhjálmss. 14 Gullsmárabrids Gullsmárar spiluðu tvímenning á tíu borðum mánudaginn 8. apríl. Meðalskor 168. Efst vóru: NS Þorgerður Sigurgeirsd. – Stefán Friðbj. 217 Filip Höskuldsson – Páll Guðmundss. 209 Sigurður Jóhannss. – Kristján Guðm. 184 AV Stefán Ólafss. – Sigurjón H. Sigurjónss. 211 Þórhallur Árnason – Valdimar Hjartars. 178 Guðmundur Pálsson – Kristinn Guðm. 177 Félag eldri borgara í Kópavogi Það mættu 27 pör þriðjudaginn 2. apríl og að venju spilaður Michell tvímenningur. Lokastaðan í N/S: Ólafur Ingimundarss. - Jón Pálmason 399 Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 355 Eysteinn Einarss. - Kristján Ólafss. 354 Hæsta skor í A/V: Bragi Salomonss. - Magnús Jósefss. 397 Magnús Oddsson - Guðjón Kristjánss. 368 Birgir Sigur - Bragi Björnss. 345 Sl. föstudag mættu svo 23 pör og þá urðu úrslitin þessi: Auðunn Guðmundss. - Bragi Björnsson 258 Eysteinn Einarss. - Jón Stefánsson 244 Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 243 Lokastaðan í A/V: Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddsson 260 Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 243 Magnús Halldórss. - Þorsteinn Laufdal 239 Hlutavelta BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 7. apríl sl. í Árbæj- arkirkju af séra Pálma Mattíassyni Jakobína Ósk- arsdóttir og Friðþjófur Daniel Friðþjófsson. Þau eru búsett í Noregi.             
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.