Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Í PALESTÍNU geisar ekki stríð, heldur er gerð tilraun til að brjóta undirokaða þjóð á bak aftur. Þar eig- ast ekki herir við, heldur er öflugur her að kvelja og drepa varnar- laust fólk. Palest- ínumönnum hefur verið bannað að bera vopn að und- anskilinni lög- reglu heima- stjórnarinnar. Grjót hefur verið helsta vopn Palestínumanna nema hvað einhverjir hafa komist yfir stol- in vopn. Það varð uppi fótur og fit þegar upp komst um skip sem flutti vopn til Palestínu en engin athuga- semd gerð við þúsundfalda vígvæð- ingu Ísraelshers. Palestínumenn heyja þjóðfrelsisbaráttu, en Ísr- aelsher ásamt fámennum hópum Palestínumanna fremja hryðjuverk á óbreyttum borgurum. Ísraelsríki stendur í landvinning- um. Ástandið er líkt og þegar Evr- ópumenn voru að leggja undir sig Ameríku og slátra nokkrum milljón- um Indíána sem þar voru fyrir. Það er ömurlegt að horfa upp á slíka villi- mennsku í upphafi 21. aldar. Blóð deyjandi fórnarlamba fossar úr sjón- varpstækjunum um vestræn stofu- gólf og fréttir af þjóðarmorði þjóta eftir símalínum um allan heim. Af- skiptaleysi er ekki hægt að afsaka með fáfræði því allir sem vilja geta séð hvað þarna er að gerast. M.a. eigum við Íslendingar áreiðanleg vitni á staðnum sem flytja okkur hörmulegar fréttir. Ísland átti þátt í að stofna Ísr- aelsríki á palestínsku landi fyrir hálfri öld. Í nafni Sameinuðu þjóð- anna var Gyðingum frá Evrópu út- hlutað hálfu landinu gegn vilja íbú- anna árið 1947. Þeir reyndu að verja land sitt en voru yfirbugaðir, drepnir og hraktir á flótta af hroðalegum hryðjuverkasveitum undir stjórn manna sem urðu forystumenn Ísr- aelsríkis. Nokkrum áratugum síðar (1967) hafði Ísrael hernumið alla Palestínu og hrakið meirihluta íbú- anna á flótta frá eignum sínum og landi. Meirihluti palestínsku þjóðar- innar er enn landflótta og talsverður hluti býr í flóttamannabúðum á veg- um SÞ, sumar hverjar margsundur- skotnar eftir Ísraelsher. Óslóarsamkomulagið gaf vonir um að Palestínumenn fengju að stofna ríki á aðeins fimmtungi landsins. Í þessari málamiðlun gáfu Palestínu- menn mikið eftir. Stjórn Arafats stóð við sinn hluta en stjórn Ísraels stóð nánast ekki við neitt. Þessu hefur Bush gleymt þegar hann útmálar Arafat mann sem ekki sé hægt að semja við. Ísraelsríki þverbrýtur ekki aðeins Óslóarsamkomulagið heldur sam- þykktir Sameinuðu þjóðanna um grundvallarmannréttindi og um mál- efni Palestínu. Hroðalegt er að verða vitni að því hvernig þeir fótum troða Genfarsáttmálann um meðferð á fólki í stríði, sem þeir hafa þó skrifað undir. Svo langt er gengið í að hindra hjúkrunarliða í að bjarga blæðandi fólki að Rauði krossinn varð að draga sig í hlé og mótmæla opinber- lega brotum Íslraelsríkis á Genfar- sáttmálanum, sem mun vera eins- dæmi. Þögn er sama og samþykki. Þess vegna verðum við öll að mótmæla kröftuglega og sýna á einhvern hátt í verki að rétturinn til lífs og lands sé okkur heilagur. Ef glæpsamlegt at- ferli Ísraelsríkis verður ekki stöðvað munu aðrir fara að dæmi þeirra og hver veit hvenær röðin kæmi að okk- ur. ÞORVALDUR ÖRN ÁRNASON, líffræðingur og situr í stjórn fé- lagsins Ísland–Palestína. Þögn er sama og samþykki Frá Þorvaldi Erni Árnasyni: Þorvaldur Örn Árnason EFTIRFARANDI er opið bréf til frambjóðenda í komandi bæjar- og sveitarstjórnarkosningum í Bessa- staðahreppi, Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og Seltjarn- arnesi. Á undanförnum árum hafa sveit- arfélög stækkað og nýir leikskólar verið byggðir en leikskólakennur- um ekki fjölgað að sama skapi og því mikill skortur á fagþekkingu þeirra í mörgum leikskólum. Leik- skólinn er fyrsta skólastig barnsins og samkvæmt lögum um leikskóla nr. 78/1994, grein 12, skulu allir starfsmenn leikskóla hafa menntun leikskólakennara. Hvað ætlið þið að gera til að fjölga leikskólakennurum þannig að öll börn á leikskólaaldri fái notið þeirrar fagmenntunar sem leik- skólakennarinn hefur upp á að bjóða? Undanfarnar vikur hefur verið mikil umræða um leikskólaskyldu fimm ára barna þannig að öll börn fái notið kennslu leikskólakennara. Hvaða skoðun hafið þið á þessum hugmyndum og hvernig hyggist þið bregðast við þeim? Við óskum þess að umræða um þetta verði opinber og svör berist sem fyrst. Fyrir hönd stjórnar 2. deildar Félags leikskólakennara, BJÖRK ÓTTARSDÓTTIR. Opið bréf til frambjóðenda Frá stjórn 2. deildar Félags leik- skólakennara:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.