Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÁGÆTI lesandi. Þá er vorið á næstu grösum, farfuglarnir hóp- ast til landsins og vorilmur í lofti, a.m.k. suma daga. Við eigum sjálfsagt eftir að upplifa nokkur vorhret ef að líkum lætur, en samt er ráð að fara að huga að undirbúningi sumarstarfanna og jafnvel haustupp- skerunnar. Flest- um kálplöntum er gott að sá inni þeg- ar tvær til þrjár vikur eru liðnar af apríl. Þær þurfa a.m.k. 6–8 vikna uppeldi áður en þær eru settar út á guð og gaddinn, og þá er svo sem eins gott að allur gaddur sé langt að baki. Gulrætur eru það grænmeti sem fyrst er sáð til ut- an dyra, ég hefði nú átt að segja rótarávöxtur, ef ég hefði verið nákvæm. Fyrir stuttu bárust Blómi vikunnar nokkrir smáp- istlar frá Hermanni Lundholm, eins af reyndustu ræktendum landsins. Hermann var garð- yrkjustjóri Kópavogs um áratugi og þrátt fyrir háan aldur heldur Hermann enn vöku sinni og fylgist vel með í faginu. Hér kemur grein Hermanns um sán- ingu gulróta: Gulrótarfræ er lengi að spíra, spírunartíminn er um 3 vikur. Flest illgresi sem hrellir okkur í grænmetisgarðinum spírar mun hraðar. Meðan við bíðum eftir gulrótunum spírar illgresið og daginn sem gulræturnar koma upp, getur verið erfitt að finna örlitlar kímplönturnar innan um miklu stærri illgresisplöntur. Þetta vandamál má þó leysa á ýmsa vegu t.d. með því að fara yfir beðið með gasbrennara eða setja glerplötu yfir moldina þar sem gulrótunum hefur verið sáð, þetta myndar aukinn hita í mold- inni. Gulræturnar munu spíra nokkrum dögum seinna, en gæta verður þess að fjarlægja glerið sama dag og fræið spírar undir glerinu, annars getur spírun seinkað. Reyna má aðra aðferð: forspír- uðu fræi er sáð um 30. apríl, eða um leið og moldin er orðin þíð og örlítið byrjuð að hitna. 10 dögum seinna er það komið upp. Þá er illgresið naumast farið að taka við sér og miklu auðveldara að halda beðinu hreinu, ef gulræt- urnar fá gott forskot. Aðferðin við forspírun er auð- veld. Fræið er sett í skál og vatni hellt á svo það rétt nái að hylja fræið. Fræið er haft í vatninu nokkra klukkutíma eða yfir nótt, síðan er því hellt á kaffi- filter, sem er svo látið á oasisplötu, sem er látin í skál með vatni. Þá hald- ast fræin rök en hafa jafnframt að- gang að lofti. Skálin er svo látin vera u.þ.b. 14 daga í kæli. Þegar svo fræin eru að rifna í annan end- ann er kominn tími til að sá gulrótunum út í garð. Flestum hættir til að sá gul- rótum of þétt og ekki verður það auðveldara ef fræin eru rök, en það er til ráð við því, sem er grautargerð úr kartöflumjöli. Suðan er látin koma upp á 1 lítra af vatni. Á meðan eru 4–5 mat- skeiðar af kartöflumjöli hrærðar út í dálitlu af vatni. Þegar vatnið sýður er mjölhræran sett í pott- inn og hrært vel. Eftir smástund er grauturinn gagnsær og nokk- uð þykkur. Nú er grauturinn lát- inn kólna. Ágætt er að undirbúa gulrótarbeðið á meðan, ef það er ekki þegar búið og gert. Gerðar eru rásir fyrir fræið með hæfi- legu millibili, margir segja 15 sm bili, og svo er vökvað í rásirnar, sem eiga að vera grunnar, 1–1,5 sm. Þegar grauturinn er orðinn 30–35 gráða heitur, er röku fræinu hrært út í grautinn og blandað vel saman við. Fræ- grauturinn er svo settur í plast- poka og klippt smáhorn af. Fræ- ið er svo klemmt út eins og tannkrem úr túpu. Hæfilegt millibil milli fræja er 3–3,5 sm. Þetta virðist töluvert maus, en það er líklega mest á prenti. Kostirnir við að fá gulræturnar upp á undan illgresinu og að þurfa ekki að grisja sáninguna eru miklu meiri en fyrirhöfnin. Og bragðið af gulrótunum er jafnvel enn betra með þessari nýju aðferð. (Hermann Lundholm þýddi úr Haven 1997.) SNEMMVAXNAR GULRÆTUR, FORSPÍRUÐ FRÆ VIKUNNAR BLÓM Um s j ó n S i g r í ð u r H j a r t a r 467. þáttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.