Morgunblaðið - 11.04.2002, Síða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 13
YFIRLÆKNI slysadeildar Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss lýst afar vel á hugmyndir um að læsa
dyrum deildarinnar að næturlagi í öryggisskyni
og vonar að af því geti orðið sem fyrst. Forstjóri
spítalans segir að auka verði öryggi starfsmanna
og sjúklinga en segir ekki víst hvort það verði
gert með því að efla gæslu eða læsa dyrum.
Á sunnudagsmorgun kom til harðra átaka á
biðstofu slysadeildar og voru fjórir menn hand-
teknir í kjölfarið. Í Morgunblaðinu á þriðjudag
sagði Friðrik Sigurbergsson, sérfræðingur á
slysadeild, að slík ráðstöfun væri nauðsynleg til
að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks. Með
því að læsa dyrunum megi koma í veg fyrir að of-
beldismenn komist inn á deildina.
Jón Baldursson, yfirlæknir slysadeildar, segir
að þetta þurfi í sjálfu sér ekki að vera flókið mál
og lítinn undirbúning þyrfti til að hægt yrði að
hafa þennan háttinn á og útidyrum hafi endrum
og sinnum verið læst af öryggisástæðum þegar
ofbeldismenn hafa viljað komast inn á slysadeild-
ina. Jón ætlar að ræða þessi mál við yfirmenn
sína.
„Það er grafalvarlegt mál ef öryggi starfs-
manna eða sjúklinga er í hættu,“ segir Magnús
Pétursson, forstjóri Landspítalans. Yfirstjórn
spítalans líti málið alvarlegum augum og hafi rætt
það sín á milli í gær en engin ákvörðun verið tek-
in. Fyrst þurfi að funda með stjórnendum á slysa-
sviði spítalans.
Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss
Auka þarf öryggi sjúklinga og
starfsfólks á slysadeildinniEKKI NÆST GSM-símasambandfrá Víetnam hjá Landssímanum og
Tali. Íslandssími er með reiki-
samning við British Telecom og
næst samband frá Víetnam í gegn-
um GSM-kerfi Íslandssíma.
Heiðrún Jónsdóttir, forstöðu-
maður upplýsinga- og kynningar-
mála Símans, segir aðspurð að
Landssíminn sé enn sem komið er
ekki með reikisamning í Víetnam.
Hún segir að eftir því sem næst
verði komist séu Víetnamar ný-
byrjaðir að semja við utanaðkom-
andi aðila og það sé skýringin á
því að ekki náist samband enn sem
komið er.
Heiðrún vildi aftur á móti minna
á að Landssíminn sé nú með 197
virka reikisamninga í 83 þjóðlönd-
um en í vinnslu séu 33 samningar
(búið að skrifa undir samning en
verið að vinna í tæknimálum/und-
irbúningi). „Samtals er því um að
ræða 230 samninga í rétt um níu-
tíu löndum.“
Þórólfur Árnason, forstjóri Tals,
segir að Tal sé ekki með reiki-
samning við Víetnam en félagið sé
þó með slíkan samning í mjög
mörgum löndum í Suðaustur-Asíu.
„Að vísu er til dæmis ekkert GSM-
kerfi í Suður-Kóreu og það er
heldur ekki GSM-kerfi í Japan,
þessi lönd nota önnur kerfi eða
staðla. Þannig að það er víða heim-
inum sem ekki næst samband
gegnum GSM-kerfið.“
Íslandssími
einn með
reikisamning
við Víetnam
Fleiri grun-
aðir en fyrst
var talið
FLEIRI starfsmenn í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar eru grunaðir um
að hafa í óleyfi keypt tollfrjálsan
varning í fríhöfninni en lögregla taldi
í upphafi.
Málið kom upp um páskana í kjöl-
far þess að tollverðir urðu varir við
að starfsmenn keyptu vörur á rým-
ingarútsölu íþróttabúðar í flugstöð-
inni og var í kjölfarið gerð leit í vist-
arverum starfsmanna. Þar fannst
nokkuð magn tollfrjáls varnings en
starfsmenn mega ekki kaupa slíkan
varning nema þeir eigi leið um flug-
stöðina sem farþegar. Vörurnar sem
fundust voru ekki eingöngu úr
íþróttabúðinni heldur ekki síður úr
öðrum verslunum í flugstöðinni. Ósk-
ar Þórmundsson, yfirlögregluþjónn á
Keflavíkurflugvelli, segir ljóst að
koma þurfi í veg fyrir að slíkt geti
gerst á ný. Komi þar til álita að haga
málum þannig að aðeins þeir sem
hafa brottfararspjald geti verslað í
fríhöfninni. Slíkur háttur sé hafður á
víðast í nágrannalöndum okkar.
Leifsstöð
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
kr. 81.90
0.- k
r. 91.000
.-
kr. 12.50
0.-
kr. 62.50
0.-
kr. 54.90
0.-
Hæð: 1
80cm -
Breidd:
150cm
- Dýpt:
40cm
kr. 109.0
00.-
Dæmdur í
sex mánaða
fangelsi fyrir
þjófnaði í starfi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær fyrrverandi örygg-
isvörð Securitas hf. í sex mánaða
fangelsi, þar af þrjá mánuði skil-
orðsbundna í tvö ár, fyrir þjófnaði
sem hann framdi í starfi sínu árið
2001.
Maðurinn, sem er á þrítugsaldri,
játaði fyrir dómi öll ákæruatriðin
sem voru sex talsins. Hann var
ákærður fyrir að stela fjármunum,
bæði íslenskum krónum og öðrum
gjaldmiðli, auk ýmissa persónulegra
muna frá viðskiptavinum öryggis-
þjónustufyrirtækisins Securitas hf.
sem hann starfaði fyrir sem örygg-
isvörður.
Dómari var Jón Finnbjörnsson.