Morgunblaðið - 11.04.2002, Qupperneq 33
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 33
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
lagði fram á Alþingi 8. apríl sl.
stjórnarfrumvarp til breytinga á
lögum um húsnæðismál. Sam-
kvæmt frumvarpinu er m.a. lagt til
að sveitarfélögum sé heimilt að
falla frá kaupskyldu félagslegra
eignaríbúða óski eigandi íbúðarinn-
ar þess enda greiði hann upp skuld
við framkvæmdaraðila og þau lán
sem veitt hafa verið af Bygging-
arsjóði verkamanna áður en íbúðin
er seld á almennum markaði.
Upphaf þessarar breytingar á
lögum um húsnæðismál má rekja
til eftirfarandi samþykktar bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar frá 1. júní
1999 með samhljóða atkvæðum
allra bæjarfulltrúa:
„Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
samþykkir með vísan til IV. ákvæð-
is til bráðabirgða „Sala og ráðstöf-
un eignaríbúða“ í lögum um hús-
næðismál, nr. 44/1998, að falla frá
forkaupsrétti að öllum félagslegum
eignaríbúðum í Hafnarfirði og
neyta því eingöngu forkaupsréttar
bæjarfélagsins þegar því er það
skylt lögum samkvæmt, sem er í
þeim tilvikum þegar eigandi íbúð-
ar, þar sem kaupskylda varir,
krefst innlausnar og við nauðung-
arsölu.“
Með samþykktinni var eigendum
félagslegra íbúða í Hafnarfirði gert
kleift að selja íbúðir sínar á al-
mennum fasteignamarkaði, að upp-
greiddum lánum frá Byggingar-
sjóði verkamanna og Hafnarfjarð-
arbæ.
Samþykkt bæjarstjórnar var
byggð á 1. mgr. IV. ákvæðis til
bráðabirgða í lögum nr. 44/1998 um
húsnæðismál sem segir svo:
„Eftir gildistöku laga þessara
getur eigandi félagslegrar eignar-
íbúðar hvenær sem er, að virtum
ákvæðum um forkaupsrétt sveitar-
félaga, selt íbúð sína á almennum
markaði, greiði hann upp skuld við
framkvæmdaraðila og lán sem veitt
hafa verið af Byggingarsjóði verka-
manna. Forkaupsréttur sveitarfé-
laga skal aldrei vera lengri en 30 ár
frá útgáfu síðasta afsals íbúðar.
Sveitarstjórn er heimilt að stytta
þann tíma hvenær sem er“.
Ljóst var að vilji löggjafans stóð
til þess með setningu l. nr. 44/1998
að losa eigendur félagslegra íbúða
úr þeirri spennitreyju sem gamla
kerfið var þeim. Engu að síður sá
félagsmálaráðherra og Varasjóður
viðbótarlána ástæðu til að mót-
mæla þessari ákvörðun bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar og hefja
lögsókn á hendur Hafnarfjarðarbæ
til viðurkenningar á því að kaup-
skyldan gilti áfram og var staðfest
með dómi Hæstaréttar 20. septem-
ber 2001 að svo væri.
Framlagning félagsmálaráð-
herra nú á frumvarpi til breytinga
á húsnæðislögunum er staðfesting
á því viðhorfi Hafnarfjarðarbæjar
að tilgangi löggjafans með setningu
l. nr. 44/1998 var ekki náð að þeim
óbreyttum eftir að dómur Hæsta-
réttar lá fyrir.
Ákvörðun Hafnarfjarðarkaup-
staðar um að falla frá forkaupsrétti
að félagslegum eignaríbúðum
mæltist mjög vel fyrir á meðal eig-
enda félagslegs húsnæðis og í
mörgum tilvikum gjörbreytti við-
horfi þeirra til eigna sinna og opn-
að útgönguleið fyrir þá sem
óánægðir voru og gerði þeim kleift
að eignast annað húsnæði án ann-
arrar félagslegrar fyrirgreiðslu,
nema þá e.t.v. viðbótarlána. Þá eru
dæmi þess að þetta bjargaði fólki
frá því að missa íbúðir á nauðung-
arsölu.
Eftir gildistöku nýju laganna var
ekki lengur um íbúðarskipti innan
kerfis að ræða heldur urðu eigend-
ur félagslegs húsnæðis, ef for-
kaupsréttinum er haldið til streitu,
að láta íbúð sína á uppreiknuðu
verði og kaupa á almennum mark-
aði fyrir allt annað og hærra verð.
Hér á þessu svæði er það efnalitlu
fólki oft ofviða ef það þarf að sæta
innlausn íbúðar sinnar.
Það að falla frá forkaupsréttin-
um samhliða tilkomu viðbótarlána
dró úr þeirri flokkun sem var áður í
þjóðfélaginu í félagslegar íbúðar og
annað húsnæði og þar með var
dregið úr þeim fordómum sem ver-
ið hafa í samfélaginu gagnvart íbú-
um í slíku húsnæði.
Fullyrða má að framangreindar
breytingar hafa eflt sjálfsímynd og
sjálfsbjargarviðleitni margra og án
efa gert ýmsa að nýtari þjóðfélags-
þegnum en ella.
Allt frá því að fallið var alfarið
frá forkaupsrétti að félagslegum
eignaríbúðum í Hafnarfirði hefur
félagsmálaráðherra og stjórn Vara-
sjóðs viðbótarlána sett sig á móti
þeirri ákvörðun og haldið því fram
að hún sé óheimil og byggt þá
skoðun sína á því að kaupskyldan
sé fortakslaus og henni beri að
beita þótt í óþökk eiganda/seljanda
sé. En sá skilningur hefur verið hér
í Hafnarfirði að á kaupskyldu eigi
því aðeins að reyna vilji eigandi/
seljandi nýta sér hana. Undir þenn-
an skilning Hafnarfjarðarbæjar
hefur félagsmálaráðherra nú tekið
með framlagningu fyrrgreinds
frumvarps til breytinga á húsnæð-
islögunum og er það vel.
Frumkvæði Hafnarfjarðar-
bæjar skilar árangri
Magnús
Gunnarsson
Kaupskylda
Sá skilningur hefur
verið hér í Hafnarfirði,
segir Magnús Gunnars-
son, að á kaupskyldu
eigi því aðeins að reyna
vilji eigandi/seljandi
nýta sér hana.
Höfundur er bæjarstjóri
í Hafnarfirði.