Morgunblaðið - 11.04.2002, Síða 49
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 49
sig með pompi og pragt eftir að hafa
búið saman nokkurn tíma og bætt
við í strákahópinn.
Erna var skemmtileg stelpa með
mikla kímnigáfu, hún laðaðist að
kraftmiklu fólki, því þar fann hún
samleið. Hún snart alla sem henni
kynntust með léttu fasi og skörungs-
skap.
Hennar verður sárt saknað. Mér
var hún mín besta vinkona, hinn
helmingurinn af mér og þótti okkur
ekkert sem að hinni sneri óviðkom-
andi. Í blíðu og stríðu studdum við
hvor aðra, hlógum og grétum saman.
Varla leið sá dagur að við töluðumst
ekki við. Í dag er ég hrygg.
Elsku Ingó, Óttar, Örn og Dóri,
við biðjum góðan guð að vernda ykk-
ur og leiða í gegnum þessa miklu
sorg. Megi guð vera með ykkur.
Hafdís Rut, Aron,
Ágústa, Heiðrún og Hrefna.
Elsku Erna. Lífið er óútreiknan-
legt og svo er einnig með dauðann.
Oft finnst okkur lífið ósanngjarnt
þegar ungt fólk í blóma lífsins er
hrifsað svo snögglega burt frá fjöl-
skyldu, vinum og hinu daglega
amstri. Við hin sem eftir sitjum
verðum að líta á björtu hliðarnar og
halda í trúna á að þeir deyi ungir
sem guðirnir elska mest.
Kær vinkona okkar og nágranni,
Erna Rós, er nú látin langt fyrir ald-
ur fram eftir harða baráttu við hinn
illvíga sjúkdóm krabbameinið.
Kynni okkar hófust fyrir allmörgum
árum en urðu enn nánari eftir að við
fjölskyldan fluttum í Ásgarð fyrir
tæpum þremur árum. Á þessum ár-
um höfum við átt margar góðar
stundir saman, bæði heima og heim-
an, sem ánægjulegt er að minnast.
Ekki voru það síst strákarnir okkar
sem nutu gestrisni ykkar Ingós því
það þótti nú ekki tiltökumál þótt
tveir strákar bættust í hópinn og oft
sáust fjórir strákar hlaupandi á milli
húsa því það var jú t.d. alveg upplagt
að athuga í hvoru húsinu var betra í
matinn í það og það skiptið.
Þegar kom að félagslífi sveitarinn-
ar mátti ávallt reiða sig á þátttöku
Ernu, enda leitun að öðrum eins
drifkrafti til að koma málum í fram-
kvæmd, og fyrir vikið valdist hún
oftar en ekki til forystu í ýmsum fé-
lögum og klúbbum. Það var eins hún
gæti alltaf bætt meiru á verkefna-
listann, hvort sem var að klippa ná-
grannana, halda veislur á vegum
kvenfélagsins, fara á fundi eða hvað
annað sem að höndum bar. Enda
undruðust menn oft hvernig í ósköp-
unum ein manneskja gæti komist yf-
ir alla þessa hluti, en á einhvern
óskiljanlegan hátt gekk þetta alltaf.
Síðastliðið vor er við vorum að
skipuleggja afmælisferð Kvenfélags
Hólahrepps til Færeyja, ræddum
við um að rétt væri að drífa í að fara,
meðan þær elstu í félaginu hefðu
heilsu til ferðalaga, en ég þori að
fullyrða að það hvarflaði ekki að
nokkrum manni að það yrði Erna
sem yfirgæfi þessa jarðvist á undan
öðrum í félaginu. Svona er nú lífið
óútreiknanlegt en við erum vafa-
laust allar þakklátar fyrir það að
Erna og aðrir dugnaðarforkar í fé-
laginu skyldu stuðla að því að þessi
ferð væri farin því úr henni eigum
við allar góðar minningar. Ekki síst
tengdar Ernu og öllum þeim góðu
stundum sem við áttum þar saman.
Barátta Ernu við þennan skæða
sjúkdóm stóð kannski ekki mjög
lengi en eitt er víst að hart var bar-
ist. Segja má án nokkurs vafa að ef
einhver hefði haft möguleika og
rétta hugarfarið til að sigra þennan
illvíga fjandvin þá var það hún Erna
með sinni óbilandi þrautseigju og
bjartsýni. Já, Erna var ekki kona
sem lét vandamálin buga sig, heldur
stóð alltaf teinrétt og bar sig vel
hvað sem á gekk. Í þetta skipti
dugðu þó því miður þrautsegja og
baráttuvilji ekki til, enda maðurinn
með ljáinn vanur að fara sínu fram.
Kæru Ingó, Óttar, Örn Óskar og
Halldór. Missir ykkar er mikill, því
slíkt skarð verður seint fyllt. Verum
þess þó minnug að tíminn læknar sár
og því verðum við, jafnvel á erfiðustu
tímum lífs okkar, að horfa fram á veg-
inn með bjartsýni í hjarta. Við eigum
þó a.m.k. alltaf minninguna um ein-
staka móður, eiginkonu og vinkonu.
Guð styrki fjölskyldu og aðstand-
endur Ernu á þessum erfiðu tímum.
Inga og fjölskylda
Ásgarði vestri.
Erna Rós Hafsteinsdóttir átti rík-
an þátt í samfélaginu hér heima á
Hólum og var tengd staðnum nánum
böndum. Hún tengdist staðnum
fyrst þegar maðurinn hennar, hann
Ingólfur, kom hingað til að læra fisk-
eldi og þau settust síðan að hér í
sveitinni. Strákahópurinn stækkaði
og Erna tók virkan þátt í öllu sem þá
varðaði, foreldrafélögum leik- og
grunnskóla, ungmennafélaginu og
auk þess kvenfélaginu, svo fátt eitt
sé nefnt. Hvar sem hún lagði hönd á
plóginn var það af einstökum dugn-
aði og ákveðni. Hún var leiðtogi,
skjótráð, hafði kjark til að taka
frumkvæði og hæfileikann til að
hrífa fólk með sér í verkefnin.
Erna hafði reynslu af rekstri og
stjórnun eigin fyrirtækja, var
menntuð sem hárskeri og hár-
greiðslumeistari og starfaði jafn-
hliða við það. Hún hafði hug á að
mennta sig meira og notaði tækifær-
ið að stunda þau námskeið á ferða-
málabraut Hólaskóla sem nýttust
henni best. Í haust kom hún svo til
liðs við Hólaskóla sem hótelstjóri.
Erna hafði mikinn metnað í starfinu
og sinnti því af brennandi áhuga.
Þar nýttust leiðtoga- og skipulags-
hæfileikar hennar mjög vel og hún
var fljótlega búin að setja sinn svip á
staðinn. Hún sinnti því hlutverki að
taka á móti gestum á Hólastað af
áhuga og gleði þannig að ferðaþjón-
ustunni á Hólum var sómi að. Það er
gaman að vinna með góðu fólki og
það var hreinlega spennandi að
koma í vinnuna hvern dag og fylgj-
ast með því hve góð tök hún hafði á
starfinu og þeim ótrúlega árangri
sem hún náði á skömmum tíma.
Ótrúlegum, því í raun var hún fár-
sjúk í allt haust.
Það voru dimmir dagar sem fóru í
hönd þegar ljóst var hve alvarleg
veikindi hennar voru. Því miður
tókst ekki, þrátt fyrir ítrekaðar
heimsóknir hennar til lækna, að
greina krabbameinið fyrr en langt
var liðið á síðasta ár. Á vinnustaðn-
um og í sveitinni var hugur fólks all-
ur hjá henni og strákunum. Vonin
var alltaf sterk, og í raun var það
kraftaverk að Ernu tókst að ná
nokkrum kröftum eftir alvarlega
sýkingu í lungum eftir áramótin og
njóta samvista við fjölskyldu sína í
fáeinar vikur til viðbótar. Lengri
frestur gafst ekki og nú kveðjum við
frábæran vinnufélaga og vinkonu
með söknuði og þökk fyrir sam-
veruna og samstarfið. Megi okkur
takast að heiðra minningu hennar í
okkar störfum í framtíðinni.
Við vottum öllum ættingjum Ernu
og vinum en sérstaklega Ingólfi, Ótt-
ari, Erni Óskari og Halldóri innilega
samhug okkar og vonum að þau
bönd vináttu og kærleika sem henni
tengdust verði þeim stoð og styrkur
um ókomna tíð.
Samstarfsfólkið á Hólum.
Ernu fylgdi ávallt jákvæð og
skapandi orka. Og sá eiginleiki kom
skýrt í ljós eftir að hún tók við starfi
hótelstjóra Ferðaþjónustunnar á
Hólum sl. haust. Áður en margar
vikur voru liðnar var hún búin að
hrinda í verk hlutum sem höfðu
sveiflast manna á milli vikum og
jafnvel mánuðum saman. Áhugi
hennar smitaði svo sannarlega útfrá
sér og við áttum mörg samtöl um
stór sem smá framtíðarverkefni
Ferðaþjónustunnar. Reiðarslagið
var því mikið þegar hún greindist
með krabbamein á háu stigi og ljóst
var að tvísýnt væri að hún kæmi aft-
ur til starfa.
Kraftur Ernu og einbeitni við allt
það sem hún tók sér fyrir hendur
gerði það hins vegar að verkum að
innst inni bjó með manni von að hún
gæti sigrast á krabbameininu sem
var búið að heltaka líkama hennar.
Og í raun finnst mér að hún hafi
unnið sigur. Sigur sem helgast af
kjarkaðri baráttu og ótrúlegu hug-
rekki undir gríðarlega erfiðum
kringumstæðum. Ég er þakklát að
hafa fengið tækifæri til þess að vinna
með Ernu á haustmánuðum og
kynnast henni á nýjan hátt. Erna
var sannarlega skemmtilegur og
hvetjandi vinnufélagi sem hafði
metnað og vilja til þess að hafa áhrif
á umhverfi sitt. Hennar er sárt
saknað.
Sárastur er þó söknuður fjöl-
skyldunnar og sendi ég henni mínar
dýpstu samúðarkveðjur. Kæru Ing-
ólfur, Óttar, Örn Óskar og Halldór,
megi minningar um frábæra konu
megna að deyfa sorg ykkar og þján-
ingar á þessum erfiðu stundum.
Guðrún Þóra,
ferðamálabraut Hólaskóla.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur af skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(Hallgr. J. Hallgr.)
Elsku Ingó, Óttar, Örn Óskar,
Halldór og fjölskyldur, guð veri með
ykkur á þessum erfiðu tímum.
Elsku Erna Rós, guð geymi þig.
Jóhanna Inga.
„Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á
því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sól-
arlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi
eða vinsemd.
„Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd
síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra.
„Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýr-
mætir og þeirra skarð verður aldrei fyllt.
„Einstakur“ er orð sem best lýsir þér.
(Jerry Fernandez.)
Nú þegar við kveðjum þig elsku
Erna Rós eigum við erfitt með að
setja orðin á blað, efst í hugum okk-
ar eru þakkir fyrir samfylgdina í
gegnum árin sem urðu alltof fá, en
því fáum hvorki við né aðrir breytt.
Við biðjum algóðan guð að varðveita
synina þrjá og hjartkæran eigin-
mann, foreldra þína, afa og ömmu,
svo og systur þínar og fjölskyldur
þeirra. Kæra vina, við óskum þér
góðrar heimkomu og þökkum þér
liðna tíð. Minning þín verður ljós í
lífi okkar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfin úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Ástvinum Ernu Rósar sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Friðrik, Sóley, Davíð Aron, Est-
er Linda, Aron Ingi, Lena Dögg,
Rakel Rós og Oddgeir.
Það er erfitt að skrifa minning-
argrein um elsku Ernu Rós. Hún
sem var alltaf svo hress, hjálpsöm,
tilfinningarík og góð kona.
Við stelpurnar áttum góð kynni af
henni, þegar við vorum ráðnar til
vinnu hjá þeim hjónum á söluskál-
ann Stöð-inn á Sauðárkrók. Þar var
gott að vinna og oft glatt á hjalla og
margt skrafað.
Við kveðjum þig með söknuði.
Hvíl í friði.
Elsku Ingó, Óttar, Örn og Halldór
og aðrir aðstandendur Megi Guð
styrkja ykkur á erfiðum tímum.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Guðrún, Ragndís, Erna María,
Sandra, Sigurlaug
og Bryndís.
Fleiri minningargreinar
um Ernu Rós Hafsteinsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
'
?&'?<0&
+!1/# ;=
#-+./%+
0 (
$ *
5
8
9%
"
/% ($! %'.
/0:/%
(.5/%
1?/% '# !!$
'
(&
$< *&
5DE
+#
0
!
:
&
5
!""
/ (! 1
% $(! -
!"5 $
;
*&F$$#G*
8 9%
&
5
6""
7
*&
# 7
) 0:0-!"# 4
0-
!/ !0-
0%F## !F##
4"# ! !.$@#!$
;
%
)
<&
&
% ;;
+#-
3
< &
5
""
)#! 1'#
#-
' $
7
&
& *&
C#
# 4 5
?#H#-.4
0
56
: %
= (
%
!""
7
*
$%&
%'+$
'B&*
*) *&
CI
%?#4#-.4
0. /
/=
%
*
+
1
&
(
=
%
5"
!""
1 /##
"5 #"5!""5$