Morgunblaðið - 11.04.2002, Síða 56

Morgunblaðið - 11.04.2002, Síða 56
FRÉTTIR 56 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Er uppskipting markaðsráðandi fyrirtækja lausnin? Samtök verslunarinnar - FÍS efna til ráðstefnu sem haldin verður í Þingsal 1, Hótel Loftleiðum, þriðjudaginn 16. apríl nk. kl. 13:30-17:00. SETNING Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunarinnar. ÁVARP Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. RÆÐUMENN Breskar siðareglur um samskipti stórmarkaða og birgja. John Ward, lögfræðingur hjá bresku samkeppnisstofnuninni. Skipting fyrirtækja með opinberu valdboði. Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Kaffihlé „Brotið eða bundið - jafngildir valkostir fyrir neytendur?“ Þórólfur Matthíasson, dósent við viðskiptadeild Háskóla Íslands. PALLBORÐSUMRÆÐUR Pallborðsumræður með þátttöku frummælenda auk Birgis Rafns Jónssonar, forstjóra Kjarans ehf. og Þórunnar Guðmundsdóttur, hrl. Stjórnandi pallborðsumræðna: Guðrún Ásta Sigurðardóttir, lögmaður Samtaka verslunarinnar. Þátttökugjald er kr. 4.500 fyrir félagsmenn en kr. 6.000 fyrir aðra þátttakendur. Vinsamlega skráið þátttöku í síma 588 8910 eða á netfang: lindabara@fis.is 15. apríl er lokadagur fyrri umsóknarfrests um nám við Háskólann í Reykjavík veturinn 2002–2003. Þeir sem sækja um 15. apríl eða fyrr fá svar innan þriggja vikna. Síðari umsóknarfrestur er til 5. júní. Umsóknir er hægt að nálgast á www.ru.is og á skrifstofu skólans Ofanleiti 2, sími 510 6200. Þitt tækifæri til að ná lengra • Lögfræði • Viðskiptafræði • Tölvunarfræði • Háskólanám með vinnu ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H IR 17 36 9 04 /2 00 2 Á UNDANFÖRNUM árum hafa nýj- ungar í útgáfu frímerkja verið að koma fram öðru hvoru hér á landi. Þar má nefna aukna gerð frímerkja- hefta, með alla vega ótökkuðum hliðum frímerkjanna. Einnig má nefna myntbréf frímerkt og stimpl- uð með minnapeningi í sama um- slagi. Þá hafa verið gefin út frímerki án verðgildis, en með uppgefnum grammafjölda sem má vera í póst- sendingunni. Mikið aukinn fjöldi svonefndra gjafamappa, með frí- merkjum í og nú síðast gjafamappa með minnablokk 100 ára afmælis Halldórs Kiljans Laxness, með ekta gyllingu á upphleyptri mynd af Nób- els-verðlaunapeningnum. Þetta eykur íslensku söfn- unarflóruna og er yfirleitt vel tekið af söfnurunum. Þó kveinkar buddan sér hjá ýmsum, er verðið fer upp í 1.700kr. á stykkið eða jafnvel meira, fyrir gjafamöppu eða myntbréf. Eitt er þó það sem við höfum ekki fengið ennþá, en það eru sjálflím- andi frímerki. Þau eru nú í fullu gengi um víða veröld, í örkum, heft- um og stök, jafnvel kringlótt. Það mun hafa verið um 1963 að Togo hóf að gefa út kringlótt frí- merki, sem þurfti að fjarlægja bak- hliðina af, til að líma það á bréfin. Þetta voru frímerki með upphleyptu letri og mynd, og litirnir úr málm- blöndu, jafnvel eðalmálmum. Ýms fleiri lönd tóku þetta svo upp á næstu árum, eins og lýðveldið Umm Al-Qiwain, Burundi, Bhutan og Sharjah. Gekk þetta nokkra stund og jafnvel með gylltum frímerkjum, en svo lauk þessu, enda reyndist þetta dýr frímerkjaprentun og þau lítið notuð á póst. Þegar þessari tilraun lauk tóku svo ýms lönd að framleiða sjálflím- andi frímerki, sem þarf að plokka af bakhliðinni. Lím þeirra leysist upp í vatnsbaði. Nú eru að koma út frímerki, á 100 ára afmæli Halldórs Kiljans Lax- ness, sem eru prentuð á blokk, þar sem verðlaunapeningi er þrykkt í pappírinn, en slíkt hefir ekki verið gert hér síðan um 1911, er út komu merkin með höfðum Jóns Sigurðs- sonar og Danakonungs. Auk þess er gulli þrykkt á blokkina sem frímerk- ið er í, en þar er mynd af Nóbels- verðlaunapeningi þeim sem Halldór fékk. Þessi blokk verður aðeins í gjafamöppu, sem gefin er út á 100 ára fæðingardegi Halldórs. Það væri synd að segja að ekki sé nokkur tilbreytni í frímerkjaútgáfu okkar á þessum síðustu tímum. Þar má einnig nefna frímerki úr heftum, sem eru ótökkuð á einni eða tveim hliðum, sbr. sænsku frímerkjaheftin. Sigurður H. Þorsteinsson Nýjungar í frímerkja- útgáfu Blokkin með mynd Halldórs Kiljans Laxness. Gyllt hringlaga frímerki, þrykkt fyrir Bhutan. HÚSAVÍKURLISTINN, fram- boðslisti Bæjarmálafélags H- listans á Húsavík og í Reykja- hverfi, var samþykktur á fundi 7. apríl sl. Framboðslisti til sveitarstjórnar- kosninga á Húsavík og í Reykja- hverfi 25. maí verður svohljóðandi: 1. Reinhard Reynisson bæjarstjóri, Húsavík, 2. Tryggvi Jóhannsson bæjarfulltrúi, Húsavík, 3. Gunnar Bóasson bæjarfulltrúi, Húsavík, 4. Þorbjörg Jóhannsdóttir grunn- skólakennari, Reykjahverfi, 5. Að- alsteinn Árni Baldursson skrif- stofumaður, Húsavík, 6. Valgerður Bjarnadóttir grunnskólakennari, Húsavík, 7. Dóra Fjóla Guðmunds- dóttir leikskólakennari, Húsavík, 8. Hulda Jónsdóttir hárgreiðslumeist- ari, Húsavík, 9. Hilmar Dúi Björg- vinsson skrúðgarðyrkjufræðingur, Húsavík, 10. Trausti Aðalsteinsson framkvæmdastjóri, Húsavík, 11. Þórdís Anna Njálsdóttir skrifstofu- maður, Húsavík, 12. Valgeir Páll Guðmundsson, tæknifulltrúi, Húsa- vík, 13. Yngvi Leifsson nemi, Húsavík, 14. Guðrún Kristinsdóttir íþróttakennari, Húsavík, 15. Þor- steinn Krüger framhaldsskóla- kennari, Húsavík, 16. Pétur Helgi Pétursson sjómaður, Húsavík, 17. Herdís S. Guðmundsdóttir fyrrv. bæjarfulltrúi, Húsavík, og 18. Kristján Ásgeirsson bæjarfulltrúi, Húsavík, segir í fréttatilkynningu. Húsavíkurlistinn HLUSTENDUR Radíó X 103,7 sem gefa blóð í Kringlunni milli kl. 13 og 18 í dag, fimmtudag, fá miða á for- sýningu myndarinnar BLADE 2 og næringu frá Coca Cola og Prince Polo, segir í fréttatilkynningu. Gefa blóð í Kringlunni FÉLAG áhugafólks um Downs-heil- kenni er með aðalfund í dag, fimmtu- daginn 11. apríl, kl. 20, í húsnæði Þroskahjálpar, Suðurlandsbraut 22, 2h. Að loknum aðalfundi halda Ás- laug Jónsdóttir sjúkraþjálfari og Erla Björk Sveinbjörnsdóttir iðju- þjálfi fyrirlestur um sjúkra- og iðju- þjálfun einstaklinga með Downs- heilkenni, segir í fréttatilkynningu. Aðal- og fræðslufundur NÁTTÚRULÆKNINGAFÉLAG Reykjavíkur heldur aðalfund í dag, fimmtudaginn 11. apríl, kl. 20 á Hótel Esju. Gunnlaugur K. Jónsson, formað- ur stjórnar HNLFÍ, flytur erindi um uppbyggingu á Heilsustofnun NLFÍ. Anna Pálsdóttir, upplýs- ingafulltrúi HNLFÍ, kynnir það nýjasta í starfsemi Heilsustofnun- ar Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði, segir í fréttatilkynn- ingu. Aðalfundur Náttúrulækn- ingafélagsins „NÝ vitund“ er yfirskrift fyrirlest- urs sem dr. Prashant Kakoday held- ur í Norræna húsinu sunnudaginn 14. apríl kl. 16. Kakoday sérhæfði sig í ENT- skurðlækningum við „Royal College of Surgeons“ í London. Hann kemur hingað til lands á vegum Lótus húss, Brahma Kumaris World Spiritual University. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er öllum opinn og aðgangur er ókeypis, segir í fréttatilkynningu. Fyrirlestur á vegum Lótuss húss MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirarandi ályktun frá stjórn Heimdallar: „Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykja- vík, mótmælir harðlega tillögu rík- isstjórnarinnar um að ríkissjóður ábyrgist útgáfu skuldabréfa vegna fjármögnunar nýrrar starfsemi Ís- lenskrar erfðagreiningar. Stjórn Heimdallar telur að það sé ekki hlutverk hins opinbera að taka þátt í einkarekstri. Þar á meðal eigi hið opinbera ekki að gangast í ábyrgð fyrir einkafyr- irtæki og taka þannig áhættu með fé skattborgaranna.“ Heimdallur gegn ríkisábyrgð LÆKNAR Læknalindar hafa ákveðið að fylgjast gaumgæfilega með sínum skjólstæðingum og kalla ákveðna hópa til skoðunar. Til að byrja með hefur verið ákveðið að kalla alla þá sem skráðir eru hjá Læknalind og eru á aldrinum 45 til 65 ára og gera á þeim nákvæmari athuganir en venja hefur verið hér á landi, en er gert víða í nágranna- löndum okkar. Fólk á öðrum aldri er einnig tekið inn í hópinn ef ástæða er til, eða það óskar sér- staklega eftir því sjálft, segir í fréttatilkynningu. Skipulegar heilsufars- skoðanir hjá Læknalind

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.