Morgunblaðið - 11.04.2002, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 69
BANDARÍSKA leikkonan Halle
Berry varð fyrir óhappi við tökur á
nýrri James Bond-mynd á Spáni
þegar framkölluð var röð spreng-
inga. Leikkonan var flutt í skyndi á
sjúkrahús og gekkst undir hálfrar
klukkustundar aðgerð.
Brot úr reyksprengju lenti í aug-
anu á Berry og
þurfti hálftíma
aðgerð á
sjúkrahúsinu
Nuestra Sen-
ora de las Sal-
ud til að fjar-
lægja það.
Augað á leik-
konunni er
núna rautt og
þrútið en hún er þó sögð taka óhapp-
inu með jafnaðargeði.
Antonio Fernandez, læknirinn
sem sinnti Berry, segir að hún hafi
verið heppin að ekki fór verr.
Tökurnar fara fram í Cadiz. Í
myndskeiðinu sem verið var að taka
skýtur Pierce Brosnan, í hlutverki
Bond, niður þyrlu. Nafn persónunn-
ar sem Berry leikur í myndinni, sem
mun heita Not Another Day, er Jinx.
Í ljósi óhappsins á laugardag hlýtur
það að teljast viðeigandi en „jinx“
þýðir óheillakráka á ensku.
Hluti nýju Bond-myndarinnar var
tekinn hér á landi fyrr á árinu en
enginn af aðalleikurum myndarinnar
var viðstaddur þær tökur.
Berry fékk
sprengjubrot
í augað
Bond og Berry.
NÝLEGA afhenti formaður fræðsluráðs, Sigrún
Magnúsdóttir, rúmlega sextíu unglingum úr
grunnskólum Reykjavíkur viðurkenningar fyrir
að taka að sér að vera leiðbeinendur á tölvu-
námskeiðum fyrir eldri borgara. Námskeiðin
eru samstarfsverkefni Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur og Námsflokka Reykjavíkur og eru
haldin í tölvustofum grunnskólanna í borginni.
Tölvukennarar skólanna eru umsjónarmenn
námskeiðanna og nemendur leiðbeinendur.
Lokahátíð námskeiðanna í vetur var haldin í
Nýherja þar sem tveir eldri borgarar, Rúrik
Haraldsson leikari og Bent Jónsson lögreglu-
maður og aðalbókari, héldu ræður um ánægju
sína með námskeiðin og það hversu þægilegir
og þolinmóðir kennararnir ungu reyndust.
Í ræðu sinni kvaðst formaður fræðsluráðs
vera stoltur af þessu unga fólki sem léti ekki
sitt eftir liggja og væri sannarlega tilbúið að
leggja ýmislegt af mörkum án þess að krefjast
annars en ánægjunnar fyrir. Nemendurnir sem
þátt hafa tekið í verkefninu eru á aldrinum 11–
15 ára.
Þá hélt Hulda Óladóttir, nemandi í Breið-
holtsskóla, stutta ræðu þar sem hún lýsti
ánægju sinni með að taka þátt í kennslunni sem
henni fannst skemmtileg og gefandi. Brynjar
Magnússon nemandi í Breiðholtsskóla fékk veg-
lega gjöf frá Nýherja fyrir að hafa tekið ötulan
þátt í tölvukennslunni undanfarin þrjú ár.
Margir nemendur hafa góða þekkingu á tölv-
um og eru jafnframt tilbúnir að miðla af þekk-
ingu sinni á þessu sviði. Námskeiðin sem stóðu í
5 vikur voru ætluð byrjendum og áhersla sér-
staklega lögð á notkun tölvupósts og notkun
netsins.
Ungmennin sem veittu eldri borgurum leiðsögn um tölvuheima.
Leiðbeindu eldri borgurum á tölvur
Unglingar fá viðurkenningu
Hin léttleikandi Britney Spears í sinni fyrstu
bíómynd sem kemur öllum í gott skap. Hin
frábæru lög „I’m Not A Girl, Not Yet A Woman“,
„Over protected“ ofl. eru m.a. í myndinni.
Sýnd kl.4. Ísl tal. Vit 338
„Splunkunýtt framhald af
ævintýri Péturs Pan!“
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 357.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i.12. Vit 353.
Samuel L.Jackson og Ro-
bert Carlyle eru frábærir í
mynd þar sem hasar ogkol-
svartur húmor í anda
Snatch ræður ríkjum.
Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. Vit nr. 358.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
B.i.16. Vit 366.
Flottir bílar,
stórar byssur
og harður nagli
í skotapilsi.
HL. MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Vit . 351
kvikmyndir.is
kvikmyndir.com
HJ Mbl
ÓHT Rás 2
DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12. Vit 335.
Sýnd kl. 6 og 9.
B.i.12. Vit nr. 353 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Forsýning kl. 8
Sýnd kl. 10.20. B.i 16.
HK. DV
SV. MBL
Halle Berry fékk Óskarinn
sem besta leikkona í aðalhlutverki.
ll i
l i í l l i
1/2Kvikmyndir.com
1/2HJ. MBL RadioX
Missið ekki af fyndnustu mynd ársins
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
Sýnd kl. 5.30 B.i 16. Sýnd kl. 8 og 10.
L´argent de poche - Vasapeningar
Sýnd kl. 6.
Les 400 Coups - Æskubrek
Sýnd kl. 8.
Le Dernier Métro - Síðasta lestin
Sýnd kl. 10.
www.regnboginn.is
Yfir 25.000 áhorfendur
2 Óskarsverðlaun
Hverfisgötu 551 9000
30-50% afsláttur
af n‡jum vörum.
Vorútsala
11.-24. apríl.
Smáralind og Lækjargötu 2a
522 8383 • 561 6500