Morgunblaðið - 11.04.2002, Qupperneq 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Gjafabréf
Íslandsbanki
–flar sem gjafirnar vaxa!
Framtí›arreikningur
Íslandsbanka
Fermingargjöf
er framtí›arsjó›ur
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
UM síðustu áramót námu ábyrgðir
Ríkisábyrgðasjóðs 571 milljarði. Þar
af námu ábyrgðir vegna stríðs- og
hryðjuverkatryggingar flugrekenda
227 milljörðum. Langstærstur hluti
ríkisábyrgðar er vegna Íbúðalána-
sjóðs, en ríkisábyrgð er á öllum
skuldbindingum sjóðsins. Þær námu
um síðustu áramót 306 milljörðum
króna.
Í ársskýrslu Lánasýslu ríkisins
fyrir árið 2000 kemur fram að und-
anfarin ár hafi ríkisábyrgðir til einka-
aðila að mestu horfið. Á síðustu fjór-
um árum hafi verið stofnað til nýrra
ríkisábyrgða nær eingöngu vegna
lána sem ríkisstofnanir og fyrirtæki
sem ríkissjóður á hlut í hafa tekið.
Nýjar ríkisábyrgðir á árinu 2000
námu 37,5 milljörðum, en þar af
námu ábyrgðir vegna húsbréfa og
húsnæðisbréfa 33,5 milljörðum. Þar á
eftir kom Lánasjóður landbúnaðarins
með 1,6 milljarða.
Fátítt að ríkisábyrgðir
falli á ríkið
Ríkisábyrgðir jukust hins vegar
verulega á síðasta ári, en sl. haust
ákvað Alþingi að heimila ríkisábyrgð
á stríðs- og hryðjuverkatryggingum
flugrekenda. Þessi ákvörðun var tek-
in í framhaldi af uppnámi sem varð í
flugheiminum í kjölfar hryðjuverk-
anna í Bandaríkjunum 11. septem-
ber. Ríkisábyrgðirnar vegna flugvél-
anna hafa nú nýlega verið
framlengdar út maímánuð, en laga-
heimildin gildir út árið.
Samkvæmt upplýsingum Haralds
Andréssonar, hjá Lánasýslu ríkisins,
námu ríkisábyrgðir í árslok 2001
samtals 571 milljarði. Hann sagði að
inn í þá tölu vantaði ábyrgðir sem
hvíldu á lánum Landsvirkjunar en
ríkið ber ábyrgð á þeim í hlutfalli við
eign sína í fyrirtækinu. Hann sagðist
áætla að þessar ábyrgðir næmu ná-
lægt 43 milljörðum. Ennfremur væru
ekki meðtaldar ábyrgðir ríkissjóðs á
skuldbindingum viðskiptabankanna
sem mynduðust áður en þeir voru
hlutafélagavæddir, en þær skuld-
bindingar hafa farið minnkandi.
Harald sagði mjög fátítt að ríkis-
ábyrgðir féllu á ríkið. Þeir sem fá rík-
isábyrgðir þurfa að greiða áhættu-
gjald sem rennur í ríkissjóð.
Ríkisábyrgðir 571
milljarður í lok árs
Hefur ekki/12
HELGI Sigurðsson og Jón Hjörtur
Stefánsson voru að laga Bláustofu í
Glaumbæ í Skagafirði þegar ljós-
myndara Morgunblaðsins bar að
garði. Þeir félagar kunna skil á
fornum vinnubrögðum og verkhátt-
um við torfhleðslur og torfskurð.
Þeir sóttu torfið í Glaumbæjareyjar
og sögðu nóg af góðu efni þar.
Torfið er skorið eftir kúnstarinnar
reglum eftir því hvort það er notað
í þakið eða klömbrur í gafl hússins.
Efnið er síðan þurrkað áður en það
er lagt. Helgi sagði nóg af verk-
efnum hér á landi fyrir vana torf-
hleðslumenn.
Morgunblaðið/RAX
Fornum vinnubrögðum beitt í Skagafirði
ÆÐI rann á hjartasjúkling sem
beið aðgerðar á hjartaskurðdeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss
við Hringbraut í fyrrinótt. Lagði
hann hendur á sjúkraliða og ógn-
aði starfsfólki með hnífi og þurfti
að kalla á lögreglu til að yfirbuga
manninn.
Maðurinn lá í sjúkrarúmi á
deildinni en gera átti á honum
aðgerð um morguninn. Snemma
um nóttina virðist sem æði hafi
runnið á hann. Hann tók harka-
lega á sjúkraliða á deildinni sem
reyndi að róa hann niður og fór
við svo búið inn í eldhús þar sem
hann tók upp hníf. Hann ógnaði
síðan starfsfólki með hnífnum og
var þá brugðið á það ráð að óska
eftir aðstoð lögreglu sem yfir-
bugaði manninn. Var hann róað-
ur niður með lyfjum og aðgerð-
inni, sem gera átti á honum,
frestað um ótilgreindan tíma.
Ekki hlutust alvarleg meiðsli af
þessu.
Þetta staðfesti Bjarni Torfa-
son, yfirlæknir hjartaskurðdeild-
ar, við Morgunblaðið í gær.
Bjarni segir slík atvik afar fátíð
og kunni engar skýringar á hegð-
un mannsins. Málið sé til athug-
unar hjá spítalanum og í fram-
haldi af því verði metið hvort og
hvenær maðurinn muni gangast
undir aðgerð á spítalanum.
Æði rann á
sjúkling sem
beið aðgerðar
ÍSLENSKA ríkið og Reykjavík-
urborg undirrita í dag í Háskóla-
bíói samning um byggingu tónlist-
ar- og ráðstefnuhúss við
Reykjavíkurhöfn. Undirritunin fer
fram klukkan 9:30 við upphaf loka-
æfingar Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands á verkinu Draumur Ger-
ontiusar eftir Edward Elgar í
stjórn Vladimirs Ashkenazys.
Áætlaður kostnaður við byggingu
hússins er tæpir 6 milljarðar
króna, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Stefnt er að því
að á þessu ári verði unnið að gerð
útboðs fyrir einkaframkvæmd og
gæti útboðið farið fram í byrjun
næsta árs, árið 2003.
Miðað við áætlaðan byggingar-
tíma verður húsið í fyrsta lagi tek-
ið í notkun í lok ársins 2006.
Samningur um byggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss
Skrifað undir á hljóm-
sveitaræfingu í dag
ALMENNINGUR og fagstéttir
hafa ríka tilkynningaskyldu til
barnaverndarnefnda ef grunur
vaknar um að börn séu beitt líkam-
legu ofbeldi, að sögn Braga Guð-
brandssonar, forstjóra Barnavernd-
arstofu. Hann segir að í
undirbúningi sé að semja leiðbein-
andi reglur vegna ákvæða um til-
kynningaskyldu þessara mála.
Bragi segir lækna, hjúkrunar-
fræðinga, kennara, leikskólakennara
og aðra sem sinna börnum vera
bundna þessari tilkynningaskyldu,
sem er ríkari trúnaðarskyldu, að
hans sögn.
Hann segir ýmis álitaefni koma
upp við samningu reglnanna svo sem
hvernig meta eigi grun um líkamlegt
ofbeldi eða vanrækslu og hverjir eigi
að taka þátt í slíku mati. Einnig þurfi
að meta hverjir taki ákvörðun um að
tilkynna mál, hvort hver deild á
sjúkrahúsinu geri það fyrir sig eða
ein þverfagleg nefnd sinni þessu fyr-
ir allar deildir. Sömuleiðis þurfi að
huga að tímamörkum, upplýsingum
til foreldra eða annarra nákominna
og nafnleynd og setja þurfi ákvæði
um framkvæmd skoðana og hvernig
skýringa sé leitað hjá foreldri og
barni, sé það talandi.
Leiðbein-
andi regl-
ur í undir-
búningi
Frumskýrslutaka /36–37
Barnaverndarmál