Morgunblaðið - 03.05.2002, Side 18
AKUREYRI
18 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Nú er sumarið hafið
í Tjaldvagnalandi.
Verið velkomin á
sýningu í Reykjavík
og á Akureyri, þar
sem við sýnum
Palomino fellihýsin,
Ægisvagninn og allt
það sem þarf til að
fullkomna sumarfríið.
TRYGGVABRAUT 12,
AKUREYRI
SÝNING
Sumar
OPIÐ LAUGARD. 12-17 OG SUNNUD. 13-17
Lokað í dag
frá kl. 13-15 vegna jarðarfarar
Kaupvangsstræti 1, Akureyri
heimahjúkrun aldraðra, m.a. með því
að koma á sólarhringsþjónustu alla
daga ársins. Kristín Sigfúsdóttir, sem
skipar 3. sæti listans, sagði að ekki
lægi enn fyrir hver kostnaður væri,
en verið væri að skoða alla fleti máls-
ins hvað það varðaði. Jóhannes Árna-
son, sem er í 4. sæti listans, benti á að
þjónusta við sjúklinga heima við væri
mun ódýrari fyrir samfélagið en sú
sem veitt væri inni á stofnunum, eink-
um ef einnig þyrfti að byggja nýjar
stofnanir undir þjónustuna.
Meðal stefnumála Vinstri grænna
á Akureyri má nefna að flokkurinn
MIKIL áhersla er lögð á uppbygg-
ingu lífsnauðsynlegrar þjónustu svo
sem á sviði öldrunarmála fremur en
bygginga af ýmsu tagi, „sem kalla má
lúxus eða gæluverkefni,“ svo notuð
sér orð Valgerðar H. Bjarnadóttur,
oddvita Vinstri grænna á Akureyri,
en framboðið kynnti stefnuskrá sína
fyrir bæjarstjónarkosningar nú í maí
á fundi í gær.
Valgerður sagði stefnuskrá Vinstri
grænna ganga út frá grundvallar-
markmiðum VG um sjálfbæra þróun
og væri því mjög horft til framtíðar,
þ.e. þess sem börnum bæjarins kæmi
best til lengri tíma litið. „Við brjótum
upp viðtekinn hugsunarhátt sem set-
ur málaflokka í sérstök hólf. Við telj-
um allt sem gert er til menningar
samfélagsins og þar greinir okkar
framboð sig frá öðrum,“ sagði Val-
gerður.
Grípa verður til ráðstafana
í öldrunarmálum strax
Hún nefndi að á sama tíma og nú-
verandi bæjarstjórn virtist hafa
gleymt að huga að sjúkum öldruðum,
sem mjög færi fjölgandi, væru að
hefjast framkvæmdir við fótboltahús.
Það myndi ekki koma á óvart þótt
kostnaðurinn við það færi upp í 700
milljónir króna, þó að áætlun hljóðaði
upp á um 500 milljónir. „Þegar staðan
er orðin þetta alvarleg þýðir ekki að
benda á ríkið og segja að það eigi að
redda málum. Neyðin er sár og það
verður að gera eitthvað strax,“ sagði
Valgerður.
Eitt af stefnumálum VG er að efla
vill niðurfellingu leikskólagjalda
fimm ára barna, styðja mjög við þró-
unarstarf í leik- og grunnskólum, sér-
staklega hvað varðar raungreina-
kennslu, mötuneyti í alla skóla sem
starfa á vegum bæjarins, fjölga
hjúkrunarrýmum fyrir aldraða um 30
á næsta ári og koma upp þjónustu-
kjörnum í öllum bæjarhverfum, sem
m.a. myndu nýtast öldruðum.
Þá má nefna að flokkurinn vill
leysa húsnæðismál Menntasmiðjunn-
ar og Punktsins varanlega, kanna
þörf og möguleika á opnun kvenna-
athvarfs í bænum, efla málm- og
skipasmíðaiðnað, kanna möguleika á
dýpkun við Oddeyrarbryggju þannig
að stór skemmtiferðaskip geti lagst
þar að og þá er nefnt í stefnuskránni
að Akureyri verði ein af höfuðborgum
norðurslóða.
VG hefur á sinni stefnuskrá að
byggja menningarhús í samstarfi við
ríkið og vill að trygg áætlun þar aðlút-
andi liggi fyrir næsta haust. Að öðr-
um kosti verði Akureyrarbær að leita
annarra leiða til að leysa aðkallandi
húsnæðimál leiklistar og tónlistar.
Einnig er nefnt að finna þurfi lausn á
húsnæðisvanda Tónlistarskólans.
Loks má nefna að VG vill ljúka að-
kallandi verkefnum í Glerárdal,
vernda þá strandlengju sem enn er
ósnortin í bæjarlandinu og ganga frá
umhverfi Pollsins. Þá er nefnt að gera
þurfi göngu- og hjólaleið úr miðbæ í
Kjarnaskóg, ekki eigi að taka útivist-
ar- og tómstundasvæði undir bygg-
ingar og almannasamgöngur þurfi að
efla.
Leggja áherslu á þjónustu
fremur en gæluverkefni
Morgunblaðið/Kristján
Valgerður H. Bjarnadóttir, odd-
viti Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs á Akureyri.
Vinstri grænir kynna stefnuskrá fyrir kosningar
KRISTJÁN Þór Júlíusson bæj-
arstjóri tók fyrstu skóflustunguna
að nýjum nemendagörðum fram-
haldsskólanna á Akureyri í gær að
viðstöddu fjölmenni. Eins og stund-
um áður tók bæjarstjóri fyrst
skóflustungu með stunguspaða en
settist síðan upp í vélskóflu og bætti
um betur. Nýja húsið mun rísa aust-
an við núverandi heimavistarhús
MA og verður að meginhluta fimm
hæðir en að hluta sex hæðir og alls
um 900 fermetrar að grunnfleti.
Tryggvi Gíslason skólameistari MA
sagði við þetta tækifæri, að bygg-
ingin markaði nýja sókn fyrir
skólabæinn Akureyri og báða fram-
haldsskólana, MA og VMA. Jarð-
vegsframkvæmdir fara nú í gang
en húsinu skal að fullu lokið næsta
sumar. Tryggvi sagðist vonast til
að byggingastjóri hússins skilaði
því af sér kl. 12.15 hinn 15. júní
2003.
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri tekur fyrstu skóflustunguna að nem-
endagörðum framhaldsskólanna á Akureyri.
Fyrsta skóflustunga
að nemendagörðum
Nemenda-
tónleikar
TÓNLEIKAR á vegum Tón-
listarskólans á Akureyri verða
haldnir í Laugarborg, Eyja-
fjarðarsveit, n.k. laugardag, 4.
maí og hefjast kl. 11. Þar koma
fram nemendur á aldrinum 7 til
14 ára og eru allir velkomnir.
KEPPNI í yngri flokkum á Skák-
þingi Norðlendinga fer fram á Ak-
ureyri um helgina en keppni í opnum
flokki fer fram í Grímsey 22. og 23.
júní nk. Keppni þeirra yngri hefst kl.
13.30 á laugardag í Íþróttahöllinni en
keppt verður í unglinga-, drengja-,
barna- og stúlknaflokki.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin í hverjum flokki en
keppnisgjald er 300 krónur. Um-
hugsunartími er 15 mínútur á kepp-
anda. Hraðskákmótið í þessum ald-
ursflokkum fer fram á sunnudag og
hefst kl. 13.30. Öllum unglingum 16
ára og yngri er heimil þátttaka.
Keppni í skólaskák á Norðurlandi
eystra fer senn að ljúka en í kvöld,
föstudaginn 3. maí, kl. 19.30 fer kjör-
dæmamótið fram í Íþróttahöllinni á
Akureyri. Sigurvegarar úr kjör-
dæmamótinu vinna sér rétt til þátt-
töku á landsmóti í skólaskák sem
fram fer á Ísafirði 9.–12. maí nk.
Skákþing Norðlendinga
Keppni í yngri
flokkum um helgina
SAMSTARF hefur orðið með Radio-
naust og Tal hf. og hafa af því tilefni
verið gerðar endurbætur á verslun
Radionausts við Glerárgötu 32 á Ak-
ureyri. Samstarfið mun leiða til auk-
innar samkeppni á fjarskiptamark-
aði á Akureyri segir í frétt vegna
samstarfsins. Tal veitti Háskólanum
á Akureyri styrk sem felur í sér fría
GSM-þjónustu til tveggja ára í svo-
kallaðri Hóptalsáskrift, þar sem 5
eða fleiri tala frítt sín á milli, en það
var gert í tilefni af samstarfinu við
Radionaust.
Tal og Radionaust í samstarf