Morgunblaðið - 03.05.2002, Blaðsíða 22
Á kynningunni verður haldinn fjarfundur
bæði með SONY í Hollandi og með
innlendum notanda SONY fjarfundabúnaðar.
Skráning á kynninguna er hafin. Skrá má
þátttöku á veffangið www.acotaeknival.is/sony
eða hjá Gunnari Gunnarssyni í símum 550 4373 /
696 4005. Kynningin er opin öllum sem telja sér
hag í að kynnast því nýjasta í samskiptatækni.
fjarfundabúnaður
Kynning á Grand Hótel 7. maí 2002.
AcoTæknival efnir til kynningar á SONY
fjarfundabúnaði í Hvammi, Grand Hótel,
þriðjudaginn 7. maí. Þar munu erlendir
sérfræðingar frá SONY kynna leiðandi
framleiðslu fyrirtækisins á fjarfundabúnaði.
Einnig verða skjávarpar og plasmaskjáir frá
SONY kynntir.
Kynningin hefst kl. 9:00
og stendur til kl. 13:00
Changing the way
business communicates
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
22 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HAGNAÐUR Landsbanka Íslands á
fyrstu þremur mánuðum ársins nam
735 milljónum króna samanborið við
136 milljónir á sama tímabili í fyrra.
Hreinar vaxtatekjur námu 1.993,9
milljónum króna og aðrar rekstrar-
tekjur námu 1.547,5 milljónum
króna. Alls námu hreinar rekstrar-
tekjur bankans því 3.541,4 milljónum
króna. Á sama tímabili í fyrra námu
hreinar rekstrartekjur 2.497,4 millj-
ónum króna.
Rekstrargjöldin námu 2.600,9
milljónum króna, þar af nam framlag
í afskriftarreikning útlána 572 millj-
ónum króna en það nam 399 millj-
ónum króna á sama tíma í fyrra.
Fyrstu þrjá mánuði síðasta árs voru
rekstrargjöld Landsbankans 2.288,8
milljónir króna.
Kostnaðarhlutfall tímabilsins
lækkar um 9%
Reiknaðir skattar eru 201 milljón
króna samanborið við 63 milljónir
fyrstu þrjá mánuði síðasta árs.
Eigið fé bankans hefur aukist um
59 milljónir króna, úr 15.505 millj-
ónum í 15.564 milljónir króna. Arð-
semi eigin fjár eftir skatta nemur
19% sem er aukning úr 4% árið á
undan. Í tilkynningu frá Landsbank-
anum kemur fram að markmið bank-
ans um arðsemi eigin fjár eftir
skatta hafi verið hækkuð úr 8-11% í
13-16%. Því er arðsemi eiginfjár nú
þó nokkuð umfram endurnýjuð arð-
semismarkmið bankans. Kostnaðar-
hlutfall tímabilsins lækkar úr 66% í
57%.
Í tilkynningu frá bankanum kem-
ur fram að enn sem fyrr er það
kjarnastarfsemi bankans sem leggur
grunn að afkomu bankans. „Góð af-
koma og aukinn eignarhlutur í Her-
itable Bank úr 70% í 95% hefur einn-
ig bætt hag Landsbankans. Þá hafa
heldur hagstæðari skilyrði á verð-
bréfamörkuðum á fyrstu mánuðum
ársins bætt afkomuna nokkuð, meðal
annars í góðri afkomu af gjaldeyris-
og hlutabréfaviðskiptum,“ að því er
segir í tilkynningu.
Vaxtamunur nam 1.994 milljónum
króna á tímabilinu samanborið við
1.766 milljónir á 1. ársfjórðungi 2001.
Vaxtamunur af meðalstöðu heild-
arfjármagns var 2,9% á tímabilinu
samanborið við 3,5% fyrir allt árið
2001.
Hreinar þóknunartekjur jukust
um 36% frá fyrra ári og námu 978
milljónum á tímabilinu.
Gengishagnaður fyrsta ársfjórð-
ungs 2002 nam 350 milljónum sam-
anborið við 50 milljóna tap á 1. árs-
fjórðungi 2001.
Heildareignir voru 277 milljarðar
króna í lok tímabilsins og jukust um
3,2%. Útlán bankans hækkuðu um
0,8% og námu 201 milljarði króna
samanborið við 199 milljarða króna í
lok árs 2001.
CAD-hlutfall samstæðunnar að
teknu tilliti til hagnaðar tímabilsins
nam 10,1% í lok tímabilsins saman-
borið við 10,4% í lok ársins 2001.
Í tilkynningu kemur fram að
Landsbankinn hefur breytt reikn-
ingsskilaaðferðum og lagt verð-
bólgureikningsskil af frá og með síð-
ustu áramótum. Áhrif breytinganna
á rekstrarniðurstöðu fyrsta ársfjórð-
ungs eru óverulegar.
Hagnaður Landsbankans
735 milljónir króna
EJS-samstæðan hefur verið endur-
skipulögð með það fyrir augum að
bæta þjónustu við íslenska viðskipta-
vini og renna styrkari stoðum undir
útrás.
Hugbúnaðarsvið EJS hefur verið
flutt yfir til Hugar, dótturfyrirtækis
EJS, og verður með lausnir sem
hugsaðar eru fyrir alþjóðlegan
markað, s.s viðskiptalausnir, banka-
lausnir og verslanalausnir. EJS mun
hins vegar einbeita sér að sölu bún-
aðar og þjónustu við tölvukerfi við-
skiptavina sinna, auk hýsingar og
ráðgjafar. Fyrirtækið er m.a. með
umboð fyrir Dell, Sun, NCR, 3Com,
Microsoft og Cisco og er það með
gæðavottun á allri starfseminni.
Olgeir Kristjónsson lætur af störf-
um sem forstjóri EJS, eftir að hafa
gegnt því starfi í 12 ár, og verður
starfandi stjórnarformaður EJS-
samstæðunnar. Nýr framkvæmda-
stjóri EJS verður Viðar Viðarsson,
sem gegnt hefur stöðu þróunarstjóra
hjá EJS. Páll Freysteinsson verður
framkvæmdastjóri Hugar, en hann
var áður framkvæmdastjóri þjón-
ustu- og hugbúnaðarsviðs EJS.
Gunnar Ingimundarson, sem verið
hefur framkvæmdastjóri Hugar,
mun taka við stöðu sölu- og markaðs-
stjóra hjá Hug.
Olgeir Kristjónsson segir að end-
urskipulagningin sé löngu tímabær
og að verkaskiptingin sem með
þessu hljótist sé eðlileg. Erfitt sé að
reka saman sölu á búnaði, annars
vegar, og á lausnum, hins vegar. EJS
hafi átt við vaxandi samkeppni að
etja vegna þess hvað starfsemin sé
breið. Upphaflega hugmyndin með
kaupunum á Hug á árinu 1999 hafi
einmitt verið að fara í endurskipu-
lagningu á fyrirtækinu.
„Með þessum breytingum erum
við að nýta sóknarfærin á markaðn-
um,“ segir Olgeir. „Ég lít á þetta sem
eðlilega þróun, þar sem við erum að
bregðast við breyttu samkeppnis- og
markaðsumhverfi og skapa okkur
styrk til að hasla okkur völl erlend-
is.“
Að sögn Olgeirs verður stofnað
sérstakt eignarhaldsfélag sem mun
hafa það hlutverk að stjórna framtíð-
armálum bæði EJS og Hugar.
Endurskipulagning fyrirtækisins
var kynnt fyrir starfsmönnum í gær
og hefur þegar tekið gildi.
EJS-samstæðan endurskipulögð
Ísland er þrítugasta landið í heim-
inum sem tekur upp þýdda útgáfu
af viðskiptahugbúnaðinum. Þetta
samkomulag við Oracle tryggir
að allar framtíðarútgáfur af hug-
búnaðinum verða gefnar út á ís-
lensku. Ísland nýtur sömu þjón-
ustu og önnur lönd og verður
íslensk útgáfa af hugbúnaðinum
gefin út tveimur vikum eftir
bandarísku útgáfuna, samkvæmt
SKÝRR hf. og Þýðingarsetur Há-
skóla Íslands hafa gert með sér
samstarfssamning um þýðingu á
viðskiptahugbúnaðinum Oracle
e-Business suite. Þessi samningur
tryggir notendum Oracle við-
skiptalausna hér á landi íslenskt
notendaviðmót. Stefnt er að því
að nýta þau orð og þýðingar sem
þegar hafa náð fótfestu í íslenskri
tungu, en einnig er nokkur ný-
yrðasmíði fyrirsjáanleg.
Skýrr hf. hefur gert sam-
komulag við Oracle Corporation
um stuðning þess við þýðing-
arverkefnið. Oracle leggur til
verkefnisins ráðgjöf og aðgang að
sérhæfðum þýðingartólum sem
notuð verða við þýðingarvinnuna.
upplýsingum frá Skýrr. Hjá Þýð-
ingarsetri Háskóla Íslands eru
sérfræðingar í þýðingum sem
leggja verkefninu til ráðgjöf,
bæði er varðar stefnumótun í
upphafi og ennfremur við lausn á
verkefnum og gæðaeftirlit. Jafn-
framt munu sérfræðingar frá
Þýðingarsetri háskólans koma
með tillögur að nýyrðum og rýni
á öðrum tillögum sem fram koma.
Viðskipta-
hugbúnaður
þýddur á
íslensku
Morgunblaðið/Ásdís
Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, og Hreinn Jakobsson, forstjóri
Skýrr, handsöluðu þýðingarsamninginn í gær.
VEÐUR mbl.is