Morgunblaðið - 03.05.2002, Side 23
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 23
R
Nánari uppl‡singar hjá sölumönnum
EJS e›a á www.ejs.is
Dell PowerEdge 4600 netfljónn
1-2 Xeon örgjörvar 1,8 til 2,2GHz
Me› 400MHz minnisbraut
Allt a› 12GB High Speed DDR minni
6 x PCI-X raufar, n‡r sta›all
Gigabit netkort á mó›urbor›i
f
a
s
t
la
n
d
-
8
0
7
2
-
3
0
0
4
0
2
Skv. IDC seldust Dell netfljónar mest allra netfljóna
í Bandaríkjunum á sí›asta ári.
S É R S N I ‹ N A R L A U S N I R O G F Y R I R T Æ K J A R Á ‹ G J Ö F + I S O 9 0 0 1 V O T T A ‹ G Æ ‹ A K E R F I + H A F ‹ U S A M B A N D Í S Í M A 5 6 3 3 0 0 0 + W W W . E J S . I S
Dell PowerEdge 4600 er fyrstur í rö›inni af n‡rri kynsló› netfljóna
me› tveimur Xeon örgjörvum frá Intel og afköstum sem hinga› til
hafa a›eins fengist í stærri og d‡rari netfljónum.
Sá fyrsti af n‡rri kynsló›
ÖSSUR hf. – samstæða skilaði einn-
ar milljónar dala hagnaði á fyrsta
fjórðungi þessa árs. Upphæðin sam-
svarar um 93 milljónum íslenskra
króna miðað við gengi gærdagsins.
Sala á tímabilinu nam 18,6 milljón-
um dala eða um 1.730 milljónum
króna.
Samstæðan samanstendur í meg-
inatriðum af Össuri hf. á Íslandi,
samstæðu Össur Holdings Inc. í
Bandaríkjunum, samstæðu Össur
Holding AB í Svíþjóð og Össur Eu-
rope B.V. í Hollandi.
Reksturinn á fyrsta ársfjórðungi
gekk í meginatriðum í samræmi við
áætlanir, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Össuri. Framlegð, þ.e.
mismunur hreinna sölutekna og
kostnaðarverðs seldra vara, er dreg-
in sérstaklega fram og nam hún um
11 milljónum dala á tímabilinu eða
59,7% af sölu.
„Sala í Evrópu hefur gengið sam-
kvæmt áætlun, en við gerð rekstr-
aráætlunar var helst talin hætta á að
frávik yrðu í rekstri þar vegna þess
hversu róttækar breytingar höfðu
nýlega verið gerðar á rekstrarfyr-
irkomulagi og starfsmannamálum.
Sala í Norður-Ameríku var um 400
þúsund Bandaríkjadölum yfir áætl-
un og sala á Norðurlöndum var að-
eins undir áætlun. Sala á hlutum til
ígræðslu var yfir áætlun. Markmið
um sölu á öðrum mörkuðum náðust
hins vegar almennt ekki á fyrsta
ársfjórðungi og var frávikið um 400
þúsund dalir í heild. Skýringar á
þessu eru aðallega erfitt efnahags-
umhverfi á viðkomandi mörkuðum
og í sumum tilvikum gengisfall
gjaldmiðla,“ segir ennfremur í til-
kynningu Össurar. Sala í Norður-
Ameríku nam 10,9 milljónum dala.
Eignir Össurar hinn 31. mars sl.
námu 61,3 milljónum dala, eigið fé
31 milljón og skuldir 30,3 milljónum.
Veltufé frá rekstri var 2 milljónir,
eiginfjárhlutfall 51% og markaðs-
virði hlutafjár 156 milljónir dala.
93 milljón-
ir í hagnað
hjá Össuri
FRAMKVÆMDASTJÓRAR
Pfaff og Borgarljósa hafa und-
irritað samning um kaup Pfaff
á meirihluta rekstrar Borgar-
ljósa. Munu Borgarljós samein-
ast rekstri Pfaff og er stefnt að
því að sameiningin eigi sér stað
um næstu mánaðamót. Verður
nafni Pfaff breytt í Pfaff-Borg-
arljós.
Í samningnum felst að Pfaff
tekur yfir öll vöruumboð sem
Borgarljós hafa haft, en tækni-
deild Borgarljósa er undanskil-
in sameiningunni. Mun Haukur
Þór Hauksson, framkvæmda-
stjóri Borgarljósa, stýra henni.
Pfaff kaupir
meirihluta
í Borgar-
ljósum
alltaf á föstudögumDAGLEGT LÍF