Morgunblaðið - 03.05.2002, Qupperneq 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 27
ERIK Lindbergh, 37 ára barna-
barn flugkappans fræga, Charles
Lindbergh, veifaði til viðstaddra
þegar hann hafði lent flugvél
sinni á Le Bourget-flugvelli við
París í gær eftir að hafa end-
urtekið sögufrægt flug afa síns,
er varð fyrstur manna til að
fljúga einn síns liðs yfir Atlants-
hafið 1927.
Erik lenti klukkan hálf tíu í
gærmorgun, að íslenskum tíma,
og hafði ferðin frá New York þá
tekið 17 tíma. Farkosturinn var
eins hreyfils Lancair Columbia
300, nefnd The New Spirit of St.
Louis. Ferð Charles Lindberghs
þessa sömu leið, á flugvél sem bar
nafnið The Spirit of St. Louis, tók
33 og hálfa klukkustund. Með-
alflughraði vélar Eriks, sem smíð-
uð er úr gleri og kolefnisblöndu,
var 296 km/klst., en meðalhraði
afa hans var 174 km/klst.
AP
Lindbergh í París
BILL Clinton, fyrrverandi Banda-
ríkjaforseti, átti fund með fram-
kvæmdastjórum sjónvarpsstöðvar-
innar NBC í Hollywood sl.
miðvikudag til þess að ræða mögu-
leika á að hann taki að sér að
stjórna spjallþætti í sjónvarpi, að
því er haft var eftir nokkrum heim-
ildamönnum í sjónvarpsgeiranum.
Þótt viðræður forsetans fyrrver-
andi og sjónvarpsstjóranna séu á
frumstigi sagði einn heimildar-
mannanna að Clinton hefði mikinn
áhuga og krefðist fimmtíu milljóna
dollara í árstekjur, eða tæplega
fimm milljarða króna, og stefndi
Clinton að því „að verða næsta Opr-
ah Winfrey“.
Ráðamenn NBC vildu ekki tjá
sig um málið. Og á skrifstofu Clin-
tons í New York var engu svarað
þegar fréttamenn spurðust fyrir
um málið. Clinton er í Los Angeles í
þessari viku, þar sem hann mun
taka þátt í fjáröflun
fyrir Demókrata-
flokkinn.
Heimildamenn í
sjónvarpsbransanum
segja að ólíklegt sé að
Clinton sé reiðubúinn
til að verða við þeim
kröfum sem spjall-
þáttur á borð við þann
sem Winfrey stjórnar
leggur á herðar
stjórnandanum. Taka
þurfi upp daglega í 39
vikur. Forsetinn fyrr-
verandi, sem er 55
ára, hefur tjáð fram-
kvæmdastjórum í
Hollywood, sem hafa spurt hann út
í mögulegan sjónvarpsframa, að
ekkert sé hæft í þessum sögusögn-
um.
Þess eru engin dæmi að samið
hafi verið við fyrrverandi forseta
um umsjón sjón-
varpsþáttar. Richard
Nixon olli deilum 1975
þegar sjónvarpsmað-
urinn David Frost
greiddi honum 600
þúsund dollara (tæp-
ar sextíu milljónir
króna) fyrir viðtals-
þáttaröð.
Bandaríkjaforsetar
mega samkvæmt
stjórnarskrá ekki
sitja lengur en tvö
kjörtímabil. Þegar
þeir hafa yfirgefið
Hvíta húsið hafa þeir
flestir tekið sæti í
stjórnum fyrirtækja, sinnt mann-
réttinda- og mannúðarmálum,
skrifað bækur, flutt ræður og unnið
að uppsetningu bókasafna sinna.
Sumir sérfræðingar segja að
Clinton myndi tefla stöðu sinni sem
heimsþekkts stjórnmálamanns í
tvísýnu ef hann léti bendla sig við
málefni á borð við þau sem jafnan
eru rædd í síðdegisspjallþáttum á
borð við Oprah, s.s. framhjáhald,
nauðganir, kynferðisafbrot og
barneignir unglingsstúlkna.
„Það sem þetta myndi kosta
hann er svo margfalt meira en það
sem hann kynni að hafa upp úr
þessu,“ sagði Robert Thompson,
prófessor í fjölmiðlafræði og dæg-
urmenningu við Syracuse-háskóla.
„Clinton hugsar varla um annað en
orðstír sinn og spjallþáttur er ekki
besta leiðin til að stroka út Monicu
Lewinsky.“
Fyrir nokkrum dögum kom upp
sá orðrómur að Clinton væri að
ræða við ráðamenn fjölmiðlarisans
CBS, sem m.a. dreifir spjallþætti
Oprah, en Leslie Moonves, yfir-
framkvæmdastjóri sjónvarpsdeild-
ar CBS, sagði ekkert hæft í þeim
sögusögnum og bætti við að það
væri fáránleg hugmynd að Clinton
tæki að sér stjórn spjallþáttar.
Oprah Winfrey, sem er ein hæst
launaða konan í bandarísku sjón-
varpi, hefur tilkynnt að hún hyggist
hætta með þátt sinn 2006, en þá
verða tuttugu ár síðan þátturinn
hóf göngu sína.
Clinton vill verða
„næsta Oprah Winfrey“
Hollywood. Los Angeles Times.
Clinton
BÚRMÍSKI lýðræðissinninn Aung
San Suu Kyi verður innan skamms
látin laus úr stofufangelsi og vænt-
ir þess að þáttaskil verði í stjórn-
málalífi landsins á allra næstu dög-
um, að því er leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í landinu
sagði í gær. Tin Oo, varaformaður
flokks Suu Kyi, Þjóðarfylkingar um
lýðræði, tjáði fréttamönnum að Suu
Kyi hefði verið bjartsýn er hann
fundaði með henni á heimili hennar
í Rangoon, þar sem hún hefur setið
í stofufangelsi undanfarna 19 mán-
uði.
Sá orðrómur hefur verið á kreiki
í Búrma undanfarið að þess væri
að vænta að Suu Kyi yrði látin laus
eftir að sérstakur sendifulltrúi
Sameinuðu þjóðanna, Razali Isma-
il, kom til landsins í þrjá daga í
apríllok.
Herstjórnin í Búrma heimilaði í
gær tugum erlendra fréttamanna
að koma til landsins, en fátítt er að
stjórnin veiti slík leyfi. Renndi
þetta stoðum undir þann orðróm að
Suu Kyi yrði látin laus. Slíkar sög-
ur hafa áður komist á kreik, en Tin
Oo sagðist telja að nú myndi raun-
verulega draga til tíðinda. „Við er-
um mjög bjartsýn,“ sagði hann.
Þátta-
skil næstu
daga?
Rangoon. AP.
Aung San Suu Kyi
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Antik er fjárfesting
Antik er lífsstíll
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
20%afsláttur
af n‡jum sportfatna›i
Tilbo›
föstudag,
laugardag
og sunnudag
Opi›: Smáralind mán. - föst. kl. 11-19 • lau. kl. 11-18 • sun. 13-18
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
17
66
5
05
/2
00
2
Glæsibæ mán. - föst. kl. 10-18 • lau. kl. 10-16
Sumar jakkar , buxur , ves t i og margt f l e i ra .