Morgunblaðið - 03.05.2002, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 03.05.2002, Qupperneq 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 29 CARL Maria von Weber (1786- 1826) var undrabarn og var far- inn að starfa sem píanisti ellefu ára og hafði áður notið kennslu Michaels Haydns í Salzburg. Hann var alla tíð pasturslítill og fyrir utan tæringuna, sem leiddi hann til dauða, þjáðist hann af meðfæddri slæmsku í mjöðm. Þrátt fyrir mótmæli læknis hans, tókst hann ferð á hendur til Eng- lands, til að ljúka við óperuna Oberon og stjórna uppfærslu á verkinu, sem var stórkostlegur „success“ svo að endurtaka varð forleikinn og ýmis atriði úr verk- inu. Öll þessi vinna gekk svo nærri honum, að hann lést 5. júní, degi áður en haldið skyldi heim til Dresden. Hann vildi eng- an hafa inni hjá sér og læsti að sér, svo að brjóta varð upp hurð- ina að svefnherbergi hans, hvar hann hafði andast um nóttina. Forleikurinn að Oberon er skemmtileg og falleg tónlist, er var að mörgu leyti líflega leikin undir stjórn Zuohuang Chen, þótt nokkur augnablik óvissu kæmu fyrir. Ognibene lék hið fræga og skelfandi þriggja tóna upphaf verksins fallega. Meginatburður kvöldsins var leikur Erlings Blöndals Bengts- sonar í sellókonsert eftir William Walton. Verkið er fallegt á köfl- um, sérlega vel ritað fyrir hljóm- sveit og var hreint ótrúlega vel flutt af Erling Blöndal Bengts- syni. Ber þar sérstaklega að nefna kadensurnar og einleiks „improvisasjónir“ sem tónskáldið kallaði kaflaskipanina í lokaþætt- inum en önnur og fjórða eru samdar fyrir einleiksselló og þar var leikur sellósnillingsins hreinn einleikaragaldur, svo sem segja má í raun um allan flutning ein- leikarans. Hljómsveitin átti góða spretti þó aðnokkuð vantaði á að hljómsveitarstjórinn legði meiri áherslu á mótun blæbrigða, sér- staklega þar sem hljómsveitin átti „orðið“. Lokaverk tónleikanna var sú „sjöunda“, dansasinfónían, eftir Beethoven. Það sem einkenndi mótun hljómsveitarstjórans var galsi og allt að því grófheit, þar hann lagði alveg sérstaka áherslu á „svart-hvítan“ flutning, þ.e. á sterkar andstæður í styrk og krafði t.d. blásarana um fullan styrk, þó að oft væri hlutverk þeirra nánast undirhljómur þess tónefnis sem fiðlusveitin flutti og varðaði meginefni tónlistarinnar. Hvað sem þessu líður var heild- arsvipur sinfóníunnar hressilegur og laus við lognmollu. Þrátt fyrir að annar kaflinn hafi yfirskriftina Allegretto, hefði vel mátt halda ögn í hraðann og styrkleikann, svo að „söngurinn“ hefði notið sín betur, búið yfir þeirri ró sem upphefur allan tíma en þessi ró týndist í hamrandi hljómi undir- leikshugmyndarinnar, sem var allt of sterk leikin, sérstaklega í upphafi, þannig að aðkoman var allt að því hlaðin óþoli, svo að þegar mótstefið birtist „skeði ekki neitt“. Hvað um það, þá var sú sjöunda hressilega flutt og auðheyrt að Zuohuang Chen er slyngur hljómsveitarstjóri og „tempo“-maður. Einleikaragaldur TÓNLIST Háskólabíó Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti verk eftir Weber, Walton og Beethov- en. Einleikari: Erling Blöndal Bengts- son. Stjórnandi: Zuohuang Chen. Fimmtudagurinn 2. maí, 2002. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Jón Ásgeirsson Erling Blöndal Bengtsson HUGMYNDIN að þessari mynd er góð og umfjöllunarefnið þarft, þar sem deilt er á bandaríska heilsu- gæslukerfið. Þar sem fólki er ekki bjargað frá dauðum ef aðstandendur hafa ekki heilu milljónirnar á milli handanna. Og að tryggingarfélögin, oftar en ekki, ráðskast með og svíkja fólkið sem er að borga þeim. Hér segir frá meðaljóninum John Q, sem Washington leikur. Hann er verkamaður í peningakreppu, en hef- ur þó séð til þess að vera vel tryggð- ur. Hann og konan eiga þennan líka indæla og skemmtilega dreng sem stundar hafnabolta. Á einum leikn- um hnígur hann niður og í ljós kemur að hjartað hans er alltof stórt vegna mikillar og óheilbrigðrar áreynslu og hann þarf hjartaígræðslu. Trygging- arfélagið svíkur John Q, sem tekur til sinna ráða, tekur fólk í gíslingu á bráðadeild sjúkrahússins og heimtar að syni sínum sé bjargað. Leikstjórinn Nick Cassavetes gerði fína mynd um árið She’s so Lovely. Faðir hans, hinn frábæri leikstjóri John Cassavetes, skrifaði handritið og má segja að myndin hafi verið í anda hans seinni verka. Með John Q færir Nick sig nú inn á aðrar brautir í kvikmyndaheiminum og tekst á við mun dæmigerðara Holly- wood-handrit. Kynningin á persónunum er aga- lega vanaleg, þar sem maður fylgist með hamingjusömum fjölskyldu- stundum. Og þótt það séu væmnar tuggur, þá koma þær við mann og virka. Myndin sem dregin er upp af hinum bandaríska verkamanni með derhúfu og bjór í hönd að horfa á hafnabolta er líka frekar mikil klisja. Ófrumleikinn er þó ekki versta hlið myndarinnar, heldur er handrit- ið í heildina mjög óhnitmiðað. Á bráðadeildinni myndast skemmtilegt samfélag gíslanna sem eru lokaðir inni í einu herbergi. Svoleiðis „kammer-spiel“ aðstæður eru alltaf áhugaverðar þegar vel tekst til. Hér verða sum atriðin eru áhugaverð, en höfundur er samt ekki nógu sterkur til að mynda áhugaverða stemmn- ingu. Oft verða samtölin að leiðinleg- um staðreyndum um galla heilsu- kerfisins. Það á að sýna en ekki segja. Myndin nær því sjaldnast að verða mjög spennandi. Þó á tímabili í lok myndarinnar lítur út fyrir að allt muni fara á versta veg. Bíófélaga mínum fannst að þannig hefði það átt að fara. Ég sat hins vegar með brjóstið fullt af réttlætiskennd, og vonaði að allt bjargaðist á einhvern yfirnáttúrulegan hátt í lokin. Sem það og gerir. Það er hins vegar ekki spurning að félagi minn hafði rétt fyrir sér. Myndin gengur út á það að gagnrýna raunveruleikann. Með því að gera aðstæður síðan eins óraun- verulegar og frekast er unnt, er myndin komin í andstæðu bæði við sjálfa sig og allt sem verið er að reyna að segja með henni. En enginn vill sjá mynd sem endar illa, og þar með hafa aðstandendur komist í hina endalausu bíómyndaklemmu vest- ursins: að gera upp við sig hvort maður vilji selja eða segja eitthvað. Reiður faðir KVIKMYNDIR Háskólabíó og Sambíó Álfabakka Leikstjóri: Nick Cassavetes. Handrit: James Kearns. Kvikmyndataka: Rogier Stoffers. Aðalhlutverk: Denzel Wash- ington, Robert Duvall, James Woods, Anne Heche og Ray Liotta. 118 mín. USA. New Line Cinema 2002. JOHN Q Hildur Loftsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.