Morgunblaðið - 03.05.2002, Síða 30

Morgunblaðið - 03.05.2002, Síða 30
bandarískra frumbyggja frá því fyrir tíma Kólumbusar. „Þótt verurnar í verkum Greipa Ægis séu andlitslausar eru stell- ingar þeirra oft afbakaðar á lýs- andi máta.“ Gagnrýnandinn líkir því næst verkum listamannsins við verk hins breska Henry Moore, sem hann segir einnig meðhöndla mannslíkamann líkt og mann- gervandi þætti landslagsins. Að mati Gallery & Studio hefur Greipar Ægis það þó fram yfir Moore að skúlptúrar hans búa yfir aukinni nánd og lýkur umfjöllun- inni á þeim orðum að eftir nýlega sýningu listamannsins í Agora- galleríinu sé óhætt að telja að þessa hæfileikaríka höggmynda- listamanns bíði frekari viðurkenn- ing. ÍSLENSKI listamað- urinn Ægir Geirdal, sem notar lista- mannsnafnið Greipar Ægis, hlaut fyrir stuttu mjög svo lof- samlega umfjöllun í tímaritinu Gallery & Studio í tengslum við sýningu sína í Agora- galleríinu í New York. Sú aðferð Greipa Ægis að móta verk sín úr þurrum sandi án þess að nota form, eða sérhæfð verkfæri vakti töluverða at- hygli tímaritsins, sem kvað listamanninn beita þessari aðferð af því að hún byggi yfir sveigjanleika við- arins, mýkt leirsins, hörku steinsins og fínleika glersins. „Í verkaseríu sinni sem nefnist Tár tím- ans, notar Greipar Ægis form sem líkt hefur verið við skúlptúra Brancusi og teikningar Matisse. Í fyrrnefnda dæminu er átt við dýnamíska abstraksjón, en fljót- andi fígúratífa eiginleika þess síð- ara. Þessar tvær samlíkingar gætu virst í mótsögn hvor við aðra ef ekki væri fyrir það að skúlptúrar listamannsins eru bæði abstrakt og fígúratífir í bókstaflegri merk- ingu. Sterk lífræn form hlutanna virðast við fyrstu sýn vera ab- strakt að lögun með bogadregnar útlínur og samspil jákvæðs og nei- kvæðs rýmis,“ segir í skrifum gagnrýnandans. Hann segir abstrakt formin þó taka á sig einfaldaða mannsmynd við nánari athugun. Fígúratíf formin séu oft flókin að gerð og minni jafnvel á útskurðarverk Tár tímans greypt í sandinn Lofsamleg umfjöllun um Greipar Ægis Eitt af verkunum í seríu listamannsins Greip- ar Ægis sem fær lofsamlega umfjöllun. LISTIR 30 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HALDINN verður op- inn umræðufundur um bók dr. Vals Ingi- mundarsonar, Upp- gjör við umheiminn, á Grand Hótel í Reykja- vík á morgun, laugar- dag, kl. 14. Þátttak- endur verða auk Vals dr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís- lands, Styrmir Gunn- arsson, ritstjóri, og Ragnar Arnalds, fyrr- verandi ráðherra. Fundurinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Uppgjör við um- heiminn kom út fyrir síðustu jól og var m.a. tilnefnd til Íslensku bók- menntaverðlaunanna. Bókin, sem nú kemur út í kilju, fjallar um sam- skipti Íslands við Bandaríkin og NATO á árunum 1960-1974. Ólafur Ragnar Grímsson er doktor í stjórnmálafræði og hefur um árabil fjallað um alþjóðamál. Ragn- ar Arnalds var for- maður Alþýðubanda- lagsins 1968-1977 á þeim tíma sem deil- urnar um varnarmál- in, NATO og Banda- ríkjaher voru hvað mestar hér á landi. Morgunblaðið kemur mjög við sögu í bók Vals en Styrmir Gunnarsson hefur verið ritstjóri blaðsins frá 1972. Valur Ingimundarson er doktor í sagnfræði frá Columbia-háskóla í New York og er nú lektor í sagn- fræði við Háskóla Íslands. Hann hefur um árabil rannsakað sögu kalda stríðsins, m.a. í innlendum og erlendum skjalasöfnum, og varpað með bókum sínum nýju ljósi á þetta tímabil Íslandssögunnar. Greint frá nýjum upplýsingum í bókinni Í bókinni Uppgjör við umheim- inn segir frá deilum um herstöðina í Keflavík, aðildina að NATO og þorskastríðum við Breta á sjöunda áratugnum og fram á þann átt- unda. Þá skóku hatrömm átök þjóðfélagið þar sem þjóðernis- hyggja og innanlandsátök mótuðu mjög afstöðu manna til þessara hitamála. Í bók Vals var í fyrsta sinn greint frá nýjum upplýsingum um kjarnorkustefnu Bandaríkjamanna gagnvart Íslandi og um það hvort kjarnorkuvopn hafi verið staðsett hér á landi. Fjallað um bókina Upp- gjör við umheiminn Valur Ingimundarson TROÐFULLT var í Gamlabíó- húsinu á frumsýningu Perlukabar- etts Gospelsystra á sunnudag, jafn- vel á efstu og fótrýmissnauðustu svölum. Uppákoman var einhvers staðar á mörkum hefðbundins tón- leikahalds og „shows“ (víðtækara hugtak en ,sýning’). Sviðið var ljós- aröndum prýtt í anda Broadways, og hinar liðlega hundrað Gosp- elsystur komu fram á ögrandi lit- klæðum að hætti stórborgarnætur- drósa. Þó að engin eiginleg atburðarás ætti sér stað, virtist reynt að raða lögum niður eftir sam- hengi. Það var reyndar enginn hægðarleikur, því efnisvalið var tek- ið úr a.m.k. tíu söngleikjum frá 80 ára löngu tímabili, auk einstakra dæma úr öðrum greinum. Því miður var ekkert ársett í annars glæsilega litprentuðu prógramminu svo áhugasamir hlustendur gætu gert sér grein fyrir stílþróun á þessu langa skeiði. Leikar hófust með It’s the hard- knock life úr söngleiknum „Annie“ eftir Strouse í meðförum Söng- leikjadeildar Domus Vox [hví ekki Vocis?]. Þá fyrst kom Hljómsveit- arforleikur eftir ónefndan samsetj- ara, án frekari skýringa en sóttur héðan og þaðan úr eftirfarandi söng- atriðum frá ýmsum söngleikjum. Bryndís Petra Bragadóttir kabar- ettstjóri fór næst með Willkommen [… bienvenu, welcome] úr „Cab- aret“ Kanders af viðeigandi smeðju- þokka, og SDV með Magic to do („Pippin“/Schwartz). Kórinn söng Calm as the night e. Bohm, og Katr- ín Ósk Einarsdóttir gamla djass- standarðinn Basin street blues e. Williams með á köflum góðum til- þrifum. Eftir það höfðaði Gospel- systrahópur samfara til fýsnar og rausnar karlpenings með Big spend- er („Sweet charity“/Coleman), og Bergþór Pálsson brauzt úr skápnum af glæsibrag í I am what I am („La Cage aux Folles“/Jerry Herman). Kórinn söng í kjölfarið I’m gonna wash that man right outa my hair („South Pacific“/Rodgers & Hamm- erstein). Kórsöngurinn var þar frek- ar máttlaus en gerðist aftur á móti gustmeiri í America („West Side Story“); því miður nokkru stytt. Gamla faðm-lag Berlins, Cheek to cheek („Top Hat“), hlaut fínlega út- tekt Jóhönnu Maríu Gunnarsdóttur. Bergþór gerði mikla lukku með Sín- ötrunúmerinu klassíska, New York, New York (ekki eftir Kander & Ebb heldur L. Bernstein & Comden/ Green og úr „On the Town“). Síðan söng kórinn „medley“, þ.e. syrpu, úr „Showboat“ e. Kern með Bergþór í frekar eirðarlausri túlkun á Ole man river. Hann náði sér þó aftur upp í öðru Sínötrunúmeri, My way, á út- opnu „belti“. Einnig söng hann, með kórnum, Memory („Cats“/Webber), og kórinn lauk perlukabarettnum með fallega negrasálminum Every night. Undirtektir áheyrenda voru upp til hópa dúndrandi góðar. Engu að síður er meira en að segja það að gera perlum Broadways virkilega sannfærandi skil á jafnþröngum músíkmarkaði og hinum íslenzka, þar sem vönduð millimúsík hefur alltaf átt erfitt uppdráttar. Efnið er flestu fullveðja fólki vel kunnugt, og samanburðurinn við fagmennsku stóra heimsins auðfenginn og mis- kunnarlaus. Samt virðist enn eima eftir af losarabrag fyrri tíma áhuga- mennsku hér á landi, s.s. að „létt“ tónlist hljóti að vera auðveld í flutn- ingi. Svo er hins vegar ekki. Þar að auki eru hlustendur orðnir vanari atvinnumennsku í sígildri listmúsík en áður var. Kröfuhörðustu hlust- endum hefði því eflaust verið betur sinnt með þriðjungi smærri úrvals- kór, enda hefur áður verið bent á að sjálfur gríðarlegur mannfjöldinn er Gospelsystrum mestur Þrándur í Götu til listrænna afreka. Engu að síður tókst konunum víða vel upp, einkum í eldri við- fangsefnum sínum. Á hinn bóginn var hljómsveitin í allra minnsta lagi. Þrátt fyrir valinn mann í hverju rúmi virtist sextettinn ekki nógu vel samspilaður, sem bendir til að sam- æfingar hafi verið skornar við nögl. Né heldur var jafnvægið sem bezt; einkum var trommusettið allt of há- vært og bassinn of langt til baka. E.t.v. hefði mátt magna upp blás- arana – ekki til styrkingar heldur hljómfyllingar, enda 1 sax, 1 tromp- et og 1 básúna anzi væskilsleg í jafn- steindauðu húsi. Einnig mátti stundum hnjóta um frjálslegt hljómaval í útsetningum, jafnvel stöku sinni til hins verra – e.t.v. vegna ákveðinna „djössunartil- hneiginga“ sem tókust misvel miðað við leikhúsgerð sígildustu laganna. En í nýju og tilraunakenndu upp- setningarformi sem þessu var kannski varla við öðru að búast. TÓNLIST Íslenzka óperan „Perlukabarettinn“; ýmis bandarísk söngleikjalög o.fl. Bergþór Pálsson barý- ton og kvennakórinn Gospelsystur. Kabarettstjóri: Bryndís Petra Bragadótt- ir. Söngatriði: Söngleikjadeild Domus Vox. Hljómsveitarstjóri: Stefán S. Stef- ánsson. Stjórnandi: Margrét J. Pálma- dóttir. Sunnudaginn 29. apríl kl. 20. KABARETTTÓNLEIKAR Athygliverð tilraun Ríkarður Ö. Pálsson Á AÐALFUNDI Félags íslenskra tónlistarmanna sem haldinn var á dögunum voru veittir þrír styrkir úr Hljómdiskasjóði félagsins. Styrki hlutu Camilla Söderberg, blokkflautuleikari, til að hljóðrita íslenska samtímatónlist, Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleik- ari, til að hljóðrita öll píanóverk Sveinbjörns Sveinbjörnssonar og Marta Guðrún Halldórsdóttir, söngkona og Örn Magnússon, píanóleikari til hljóðritunar á klassískum ljóðasöngvum. Morgunblaðið/Kristinn Styrkþegarnir ásamt Margréti Bóasdóttur, formanni FÍT. FÍT veitir styrki VEGNA fjölda fyrirspurna hefur verið ákveðið að framlengja Kristnisýninguna í Þjóðmenning- arhúsinu um viku eða til 12. maí næstkomandi. Sýningin var sett upp fyrir tveimur árum til að minnast þess að þúsund ár voru frá kristnitök- unni á Íslandi, en sýningin rekur sögu kristni og kirkju á Íslandi í þessi þúsund ár. Það var Þjóð- skjalasafn Íslands sem stóð að þessari sýningu með tilstyrk kristnihátíðarnefndar og hefur hún verið fjölsótt þessi tvö ár sem hún hefur staðið. Lætur nærri að um 30 þúsund manns hafi séð sýn- inguna. Kristnisýningin framlengd um viku Trúarhugmyndir í Sonatorreki eftir Jón Hnefil Að- alsteinsson er 57. hefti í rit- röðinni Studia Is- landica, íslensk fræði. Í þessari bók fjallar Jón Hnefill um trúar- hugmyndir í Sona- torreki. Hann gerir grein fyrir heim- ildum um trúarbrögð á Íslandi á tíundu öld og ræðir ítarlega um dán- arheima í heiðnum sið en snýr sér síðan að kvæðinu sjálfu. Trúarheimur sá sem birtist í Sona- torreki kemur heim við þær hug- myndir sem finna má í öðrum heim- ildum. Þó hefur Óðinsdýrkun þar meira vægi og hlutur sjávargoðanna Ægis og Ránar er einnig stærri. Engin ótvíræð merki um kristinn hug- myndaheim er að finna í kvæðinu. Þrátt fyrir að kvæðið hafi brenglast telur höfundur það heillegt og ólíklegt að það hafi varðveist í munnlegri geymd þar sem afbakanir í kvæðinu séu fremur ritvillur en brenglun munn- legrar geymdar. Niðurstaða hans er sú að það hafi verið rist með rúnum um leið og það var ort og jafnvel lík- legt að Þorgerður dóttir Egils hafi rist það á kefli eins og Egils saga segir. Dr. Jón Hnefill Aðalsteinsson (f. 1927) er prófessor emeritus í þjóð- fræði við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Eftir hann liggja fjölmargar bækur og greinar um trúarbragða- fræði og þjóðfræði. Útgefandi er Bókmenntafræði- stofnun Háskóla Íslands og Háskóla- útgáfan. Bókin er 184 bls. kilja og kostar 2.980 kr. Íslensk fræði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.