Morgunblaðið - 03.05.2002, Blaðsíða 64
64 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í KVÖLD kl. 20.30 hefjast vortón-
leikar í tónleikahúsi Ýmis, sem kan-
adíska söngkonan Tena Palmer
stendur fyrir, og munu 5% af ágóð-
anum renna til Samtaka um kvenna-
athvarf.
„Ég held tónleikana til að styrkja
konur og börn og hef valið lögin í
samræmi við það,“ segir Tena.
„Mörg laganna lofsyngja konur eða
fjalla á einhvern hátt um þeirra
heim. Ágóðinn verður kannski ekki
mikill en þetta er algerlega persónu-
legt framtak mitt.“
Ég þakka konunum fyrir mig…
„Í mínum uppvexti vandist ég því
að konur hefðu yfirleitt lítið vald og
áhrif á umhverfi sitt, ólíkt því sem
mér finnst það vera á Íslandi. Það
hefur verið virkilega uppörvandi og
falleg lífsreynsla að kynnast konum
sem eru svona sterkar og öruggar.
Og núna þegar ég er að flytja til Hol-
lands lít ég á þessa tónleika sem
tækifæri til að þakka fyrir mig,“ út-
skýrir Tena sem hefur búið á Íslandi
undanfarin sex ár og starfað bæði
sem tónlistarkennari og fjölhæfur og
margslunginn tónlistarmaður.
Fyrst mun Tena koma fram ásamt
píanóleikaranum Kjartani Valde-
marssyni en þau hafa mikið starfað
saman á undanförnum árum. „Við
flytjum alls konar lög, bæði djass,
popp og blús, en þetta er mjög per-
sónulegt lagaval og mér finnst það
mjög fallegt,“ segir söngkonan sem
einnig er höfundur nokkurra laga
sem þau flytja. „Svo er eitt lag sem
Kjartan samdi við texta eftir mig
sem er virkilega fallegt og ég held
bara að við höfum aldrei flutt það áð-
ur, en það var samið fyrir mörgum
árum. En þar segir í lokin „What
turned our love to water dear but
wine?““
Guðmundur Pétursson gítarleik-
ari og Ragnheiður Gröndal djass-
söngkona koma einnig fram, en það
er aldrei að vita hver spilar með
hverjum.
…og öllu tónlistarfólkinu
Tena stofnaði Bluegrass-hljóm-
sveitina Gras, sem tekur síðan við.
„Það hefur verið svo frábært að fá að
vinna með bæði Kjartani og strákun-
um í Gras og viðbrögðin hafa líka
verið svo góð,“ segir Tena og vill
taka fram fyrir þá sem hafa verið að
spyrja að Gras er á leiðinni í hljóðver
að taka upp disk.
– En eru þetta seinustu tónleik-
arnir þínir á Íslandi?
„Nei, blúsbandið mitt, Moses, spil-
ar á Kaffi List næsta fimmtudags-
kvöld og líklega leikur suðræna
bandið mitt Felicidade þar viku
seinna. Svo opnum við KK ljós-
myndasýningu Mary Ellen Mark á
Listahátíð. Við Matthías Hemstock
erum með dúett og komum líklega
fram í júní. Ég býst við að syngja
með Gras um verslunarmannahelg-
ina og kem einnig fram á menning-
arnótt. Þá verður reyndar fertugs-
afmælið mitt, en ég fæddist sama
dag og Reykjavíkurborg!“ segir
Tena og hlær. „Ég er komin í svo
mörg bönd og tónlistarleg sambönd
hér á Íslandi að þótt ég sé að flytja úr
landi á ég alltaf eftir að koma hingað
af og til, jafnvel oft!“
Vortónleikarnir Guð blessi börnin
Uppörvandi og falleg lífsreynsla
hilo@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Kanadíska söngkonan Tena
Palmer er að flytja frá Íslandi
og langar að þakka fyrir sig.
BRETAR er lítt hressir með að ver-
ið sé að setja upp ballettsýningu í
Danmörku byggða á lífi Díönu
prinsessu. Díana var verndari
Breska þjóðarballettsins, en fyrr-
verandi liststjórnandi hans Peter
Schaufuss, er höfundur og stjórn-
andi verksins sem hann samdi fyrir
danskan dansflokk sinn. Breska
ballerínan Zara Deakin mun fara
með hlutverk Díönu.
Schaufuss er stórt
nafn í ballettheim-
inum og fyrrverandi
stjarna bæði í New
York og með Bols-
hoj ballettinum. Hann er þekktur
fyrir umdeildar uppfærslur, t.d um
Bítlana og Elvis Presley. Hann vill
lítið tjá sig um nýju uppfærsluna,
en segist vilja fá breska poppsveit
til að sjá um tónlistina.
Díönuballett
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 358.
Mbl DV
Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit 337.
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. Vit nr. 370. Sýnd kl. 6. E. tal. Vit 368
kvikmyndir.is
kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
½ SG DV
Nýtt ævintýri er hafið. Fyrsta stórmynd
sumarsins er komin til Íslands.
„The Scorpion King“ sló rækilega í gegn í Bandaríkjunum.
Frá framleiðendum
The Mummy
Returns.
kvikmyndir.is
MBL
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i.12 ára. Vit 375.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 379.
Sýnd kl. 8. B.i. 12. Vit 335.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 367
kvikmyndir.is
Sýnd í lúxus kl. 4, 6, 8 og 10. B. i. 16. Vit nr. 360.
DV
ÓHT Rás 2
Frá framleiðendum AustinPowers2
Frá framleiðendum AustinPowers2 kemur þessi
sprenghlægilega gamanmynd um mann sem legg-
ur allt í sölurnar til að fara á vit ævintýranna.
Annað eins ferðalag hefur ekki sést!
MYND EFTIR DAVID LYNCH
Sýnd kl. 7 og 10. B. i. 16.
HK DV
HJ Mbl
Hér er hinn nýkrýndi Ósk-
arsverðlaunahafi Denzel
Washington kominn með
nýjan smell. Hér leikur
hann JOHN Q, föður sem
tekur málin í sínar hendur
þegar sonur hans þarf á
nýju hjarta að halda og öll
sund virðast lokuð.
Frá framleiðendum
The Mummy
Returns.
kvikmyndir.is ½
SG DV
Sýnd kl. 7.30. B.i. 12.
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 4.45, 8 og 10.15.
FRUMSÝNING: Treystu mér
Sannkölluð verðlaunamynd. Laura Linney var tilnefnd til
Óskarsverðlauna sem besta leikkona í aðalhlutverki. Auk þess
var handrit myndarinnar tilnefnt sem besta handrit ársins.
Hlý og mannbætandi kvikmynd sem kemur öllum í gott skap.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i.12 ára
Nýtt ævintýri er hafið. Fyrsta stórmynd
sumarsins er komin til Íslands.
„The Scorpion King“ sló rækilega
í gegn í Bandaríkjunum.
MULLHOLLAND
DRIVE
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
JOHN Q.
Sýnd kl. 5. Síðustu sýningar.
Ó.H.T Rás2
Strik.is
SG. DV
Sýnd kl. 10. B. i. 16.