Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 1
114. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 17. MAÍ 2002
KONUR bíða þess að röðin komi að
þeim á kjörstað í Santo Domingo,
höfuðborg Dóminíska lýðveldisins,
í gær þar sem fram fóru þing- og
sveitarstjórnarkosningar. Kjör-
fundir fóru víðast hvar friðsamlega
fram, en einn lést og sjö slösuðust
er til átaka kom milli fylgismanna
flokka. Að sögn lögreglu brutust
óeirðir út í gærmorgun, áður en
kjörstaðir voru opnaðir.
Fréttaskýrendur telja allar líkur
á að flokkur Hipolitos Mejias for-
seta, Dóminíski byltingarflokk-
urinn, beri sigur úr býtum bæði í
þingkosningunum og sveitar-
stjórnarkosningunum víðast hvar.
Flokkurinn hefur nú meirihluta í
báðum deildum þingsins. Hefð er
fyrir því að millistéttin í landinu
styðji stjórnarflokkinn, en stærsti
stjórnarandstöðuflokkurinn, Frels-
isflokkurinn, nýtur meiri stuðnings
meðal fátækra.
AP
Kosið í skugga óeirða
STJÓRN George W. Bush Banda-
ríkjaforseta var hart gagnrýnd í
gær fyrir að hafa ekki brugðist við
upplýsingum sem hún fékk frá
leyniþjónustumönnum nokkrum
vikum fyrir árásirnar 11. septem-
ber um að hryðjuverkamenn hygð-
ust ræna bandarískum flugvélum.
Talsmenn Hvíta hússins hafa við-
urkennt að Bush hafi fengið ýmsar
almennar viðvaranir um yfirvofandi
árásir og jafnframt að menn á veg-
um Osama bin Ladens væru meðal
þeirra sem hefðu slíkar aðgerðir í
hyggju.
„Afleiðingin var sú að gerðar
voru margvíslegar ráðstafanir til að
efla öryggi. Allt sem skylt er var
gert til að bregðast við þeim upp-
lýsingum um ógn sem Bandaríkja-
stjórn fékk í hendur,“ sagði Ari
Fleischer, talsmaður Bush, í gær.
Málið hefur vakið hörð viðbrögð
hjá leiðtogum á þingi og helstu blöð
landsins fjölluðu um það í forsíðu-
greinum. Kröfðust þingmenn op-
inberrar rannsóknar en miklar um-
ræður hafa að undanförnu farið
fram vestra um að stofnanir sem
annast söfnun upplýsinga um hugs-
anlega fjendur ríkisins hafi hunsað
ýmis hættumerki. Þykir einnig
skorta á að helstu stofnanir vinni
nógu vel saman og deili með sér
upplýsingum.
Þingmenn óánægðir
„Við fengum ekki þessar upplýs-
ingar og ég tel að þingið hefði átt
að fá þær, ætti að fá þessar upplýs-
ingar ... við þurfum að komast til
botns í þessu á næstu dögum,“
sagði Dick Gephardt, leiðtogi
demókrata í fulltrúadeildinni, í
gær. Tom Daschle, leiðtogi demó-
krata í öldungadeildinni, tók undir
gagnrýni Gephardts. Repúblikan-
inn Richard Shelby, sem er áhrifa-
maður í leyniþjónustunefnd öld-
ungadeildarinnar, sagði að kanna
yrði frammistöðu CIA og alríkis-
lögreglunnar, FBI, áður en árás-
irnar í september voru gerðar. Yf-
irmaður FBI, Robert Mueller,
viðurkenndi í liðinni viku að stofn-
unin hefði að mestu sleppt því að
kanna nánar viðvörun frá starfs-
manni stofnunarinnar í Arizona
sem benti á að óvenju mikill fjöldi
manna frá Miðausturlöndum hefði
skráð sig í flugþjálfun og virtist
tengjast al-Qaeda, samtökum bin
Ladens. Að sögn The Washington
Post hefur Mueller sagt að honum
þætti miður að upplýsingum FBI-
mannsins hefði ekki verið fylgt eft-
ir en hins vegar hefðu umræddir
nemar ekki tengst hryðjuverkun-
um.
Ari Fleischer sagði að margar
viðvaranir um hættuna á árásum
gegn bandarískum skotmörkum,
einkum utan Bandaríkjanna, hefðu
borist forsetanum sl. sumar og
stofnunum öryggismála hefði verið
gert viðvart en það hefði ekki verið
gert í opinberum yfirlýsingum.
Leyniþjónustan, CIA, hefði í ágúst
skýrt forsetanum stuttlega frá
hættunni á flugvélaráni en talsmað-
urinn neitaði eindregið að minnst
hefði verið á að ræningjarnir
myndu ef til vill nota vélarnar eins
og flugskeyti til að gera sjálfs-
morðsárásir.
The New York Times hafði eftir
Fleischer að þessi viðvörun hefði
ekki þótt jafnmikilvæg og ljóst
væri nú að hún hefði verið. „Notuð
var ný aðferð í árásunum [11. sept-
ember] sem menn höfðu ekki séð
fyrir,“ sagði Fleischer.
Deilur vegna viðvarana CIA um yfirvofandi flugrán fyrir 11. september
Bush kveðst hafa gripið
til viðeigandi ráðstafana
Washington. AFP, AP.
NETNOTENDUR geta nú
fylgst með ferðum tveggja ís-
bjarna með því að fara á vefsíð-
una www.panda.org/polarbears
þar sem er að finna upplýsingar
um hvar birnirnir, Louise og
Gro, halda sig. Á björnunum
eru hálsólar með senditæki sem
sífellt sendir upplýsingar um
staðsetningu þeirra um gervi-
hnött til vísindamanna á vegum
náttúruverndarsamtakanna
World Wildlife Fund (WWF)
og Norsku heimskautastofnun-
arinnar (NPI).
Hækkun hitastigs
Markmiðið með því að
merkja birnina og fylgjast með
ferðum þeirra er að afla upplýs-
inga um hvernig ísbirnir muni
bregðast við hækkun hitastigs
á jörðinni. Í nýlegri rannsókn á
vegum WWF kemur fram, að
norðurheimskautssvæðið sé
eitt þeirra svæða á jörðinni þar
sem hækkun hitastigs komi
hvað fyrst fram og áhrifin verði
mikil. Lofthiti hafi að meðaltali
hækkað um fimm gráður und-
anfarna öld.
Yfir sumartímann fara ís-
birnir út á hafísinn og veiða og
éta seli og safna þannig fitu-
forða. En með hækkandi hita-
stigi bráðnar ísinn fyrr og
þannig styttist það tímabil sem
birnirnir geta verið á veiðum. Í
rannsókn WWF segir, að þetta
leiði til þess að þyngd bjarn-
anna sé minni, sem aftur leiði
til þess að birnur framleiði
minna af mjólk fyrir húnana og
niðurstaðan sé sú, að dánar-
tíðni húnanna fari hækkandi.
Ísbirnir
á Netinu
París. AFP.
FLOKKUR Pim Fortuyns í Hol-
landi kaus sér í gær nýjan leiðtoga
en Fortuyn var myrtur níu dögum
fyrir þingkosn-
ingarnar í fyrra-
dag. Nýi leiðtog-
inn heitir Mat
Herben og er 49
ára gamall, fyrr-
verandi blaða-
maður. Flokkur-
inn, er nefnist
Listi Pim Fort-
uyns, hlaut 26
þingsæti og er næststærsti flokkur-
inn á þingi en þar sitja 150 manns.
Flokkurinn hefur einkum vakið at-
hygli fyrir að leggjast gegn auknum
innflutningi fólks frá fátækum lönd-
um í þriðja heiminum, hann hefur
mótmælt aukinni glæpatíðni og kraf-
ist niðurskurðar opinberra útgjalda.
Kristilegur demókrati
líklegur forsætisráðherra
Talið er líklegt að Jan Peter Balk-
enende, leiðtogi Kristilegra demó-
krata, verði næsti forsætisráðherra
Hollands en flokkurinn vann mikinn
sigur og er stærstur á þingi með 43
sæti. Balkenende er 46 ára gamall og
prófessor í heimspeki. Hann hefur
lýst mikilli andstyggð á þeirri stefnu
hollenskra stjórnmálamanna að
samþykkja lög sem heimila líknar-
dráp, er á móti hjónaböndum sam-
kynhneigðra og umburðarlyndi
gagnvart hassneyslu.
Nýr leið-
togi flokks
Fortuyns
kjörinn
Haag. AFP.
Matt Herben
Innflytjendamál/26