Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. HARALDUR Örn Ólafsson komst á tind Everest í gærmorgun eftir tólf og hálfs tíma göngu frá 4. búðum í Suðurskarði. Hann er fimmti maðurinn í heiminum til að komast á hæsta tind hverrar heimsálfu og suður- og norðurpól- inn. Með Everestgöngunni lauk Sjö- tindaleiðangri hans sem hófst með uppgöngu á Denali 9. júní í fyrra. Haraldur setti jafnframt heimsmet í því að komast á pólana og Há- tindana sjö á sem skemmstum tíma, eða hálfu fimmta ári. Haraldi var vel fagnað þegar hann hringdi til Íslands af tind- inum, en margmenni hafði vakað í höfuðstöðvum bakvarðasveitar- innar í fyrrinótt til að bíða eftir fréttum af gangi mála. Haraldur og félagar hans fengu mjög gott veður á tindadegi en lentu í þungu færi. Ekki komust allir upp og urðu nokkrir að snúa frá þrotnir að kröftum, m.a. einn öflugur klifrari. Þó komst kona á sjötugs- aldri á tindinn og setti heimsmet sem elsta konan á tindi Everest, 62 ára að aldri. Haraldur er fjórði Íslending- urinn sem fer á tind Everest, en fyrst komust Íslendingar á tindinn hinn 21. maí 1997. Ólafur Örn Haraldsson og Stein- ar Þór Sveinsson eru í grunn- búðum fjallsins og hafa aðstoðað Harald ofar á fjallinu. Haraldur Örn fer í heims- metabækur Haraldur Örn Ólafsson með snæviþaktan tind Everest í baksýn.  „Ég er á þaki…“/38–39 BJART veður var um allt land í gær og mun hlýrra en verið hefur undanfarna daga. Enda var mikið líf á Laugaveginum þar sem ungir og aldnir nutu veðurblíðunnar. Morgunblaðið/Sverrir Brosað í blíðviðrinu um 22,2 milljörðum króna en heild- argjöld voru tæplega 22,7 milljarðar og voru launagjöld um 64% eða 7,3% hærri en árið áður. Uppsafnaður halli var orðinn um 881 milljón um nýliðin áramót. Anna Lilja Gunnarsdóttir sagði að hallareksturinn mætti skýra út frá lægri fjárheimildum til spítalans og óhagstæðri gengisþróun krónunnar. Mikið væri keypt inn af sérhæfðum vörum samkvæmt rammasamning- um sem bundnir væru gengi, en það væri frábær árangur að raunkostn- aður hefði lækkað um 1,2%. „Árang- urinn af sameiningunni er farinn að LANDSPÍTALI – háskólasjúkrahús (LSH) var rekinn með 487 milljóna króna halla í fyrra, en reksturinn kostaði 1,2% minna en árið 2000 og 1,5% minna en árið þar áður. Kostn- aður á hvern sjúkling lækkaði úr um 199.000 kr. að meðaltali árið 2000 í um 195.000 að meðaltali á liðnu ári. Þetta kom meðal annars fram á ársfundi LSH, sem haldinn var í Salnum í tónlistarhúsi Kópavogs í gær. Anna Lilja Gunnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri fjárreiðna og upplýs- inga hjá LSH, gerði grein fyrir árs- reikningnum. Fjárheimildir námu skila sér,“ sagði hún við Morgun- blaðið. „Við höfum aukið framleiðni en minnkað kostnað.“ Í máli Önnu Lilju Gunnarsdóttur kom jafnframt fram að þar sem kostnaður á sjúkling hefði lækkað frá árinu áður hefði verið hægt að veita fleiri sjúklingum þjónustu án þess að kostnaður hefði aukist. Tveir kostir Guðný Sverrisdóttir, formaður stjórnarnefndar, sagði í ávarpi sínu að þegar horft væri til mikilla breyt- inga í rekstri, sameiningar sérgreina og aukinnar starfsemi á mörgum sviðum væri það góður árangur að hafa lækkað rekstrarkostnaðinn, en árangurinn hefði fyrst og fremst náðst vegna dugmikillar framgöngu starfsmanna spítalans. Hins vegar væri óviðunandi að reka stofnunina með halla ár eftir ár og tveir kostir væru í stöðunni. Annars vegar að halda sig innan ramma fjárlaga og þá sennilega draga úr þjónustu. Hinn kosturinn væri sá að stjórnvöld gerðu sér grein fyrir að það færi illa saman að hafa sjúkrahúsið á föstum fjárlögum en geta um leið aðeins að litlu leyti temprað aðstreymi að sjúkrahúsinu. Landspítali – háskólasjúkrahús rekinn með 487 milljóna króna halla í fyrra Kostnaður spítalans á hvern sjúkling lækkaði á milli ára Lögfræð- ingar skoða mál Guðjóns LÖGFRÆÐINGAR Samtaka knattspyrnustjóra í Englandi eru komnir með öll gögn í hend- ur varðandi samninga Guðjóns Þórðarsonar við enska liðið Stoke City í þeim tilgangi að gæta réttar hans eftir að stjórn félagsins ákvað að rifta samn- ingnum við íslenska knatt- spyrnustjórann á fundi sínum í fyrrakvöld. Guðjón Þórðarson segir að hann hafi lengi haft á tilfinning- unni að stjórnin tæki ákvörðun um að hann yrði ekki áfram hjá félaginu. Þegar ákvörðun stjórnarinnar hafi legið fyrir hafi forsvarsmaður Samtaka knattspyrnustjóra í Englandi haft samband við sig og boðið sér aðstoð. Í kjölfarið hafi hann sent lögfræðingum samtak- anna öll sín gögn, þar á meðal samninginn sem var ógiltur í fyrra. Ætlar að láta sérfræð- ingana um málið „Ef þessir lögfræðingar telja að á mér hafi verið brotið, munu þeir skrifa Stoke og gera félaginu grein fyrir því,“ segir Guðjón. „Ég læt sérfræðingana alveg um þetta og það kemur í ljós hvernig málinu verður lok- að í framhaldi af því. Hvort það verða málaferli eða málamiðlun munu fagaðilar sjá um.“ Gunnar Þór Gíslason, for- maður stjórnar Stoke, vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gærkvöldi.  Hef lengi/6 FAÐIR, sonur hans og tvær dætur voru flutt á sjúkrahúsið á Egilsstöðum eftir harðan árekstur jeppa og fólksbíls á veginum milli Eiða og Egils- staða í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum læknis voru þau ekki mikið slösuð. Að sögn lögreglunnar á Eg- ilsstöðum var jeppanum ekið út af afleggjara og í veg fyrir fólksbílinn sem skall framan á hann. Svo virðist sem ökumað- ur jeppans hafi ekki séð fólks- bílinn en sól var lágt á lofti þeg- ar slysið varð. Mæðgur, sem voru í jeppanum, slösuðust ekki. Bílarnir eru mikið skemmdir eftir áreksturinn, fólksbíllinn þó mun meira og er hann talinn ónýtur. Harður árekstur en lítil meiðsli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.