Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 11 ÍGOR Ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, telur að hið mikilvæga samkomulag sem náðist milli Atl- antshafsbandalagsins (NATO) og Rússlands á utanríkisráðherrafundi NATO hér í Reykjavík á þriðjudag verði ávallt tengt við nafn borgarinn- ar. Kveðst hann telja að ferlið sem hófst í Reykjavík verði hvatinn að bættu öryggi og samvinnu í Evrópu. Ívanov átti í gær fund með Hall- dóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra í ráðherrabústaðnum í Reykjavík. Í samtali við fréttamenn að fundinum loknum þakkaði hann íslenskum stjórnvöldum fyrir einkar hlýlegar móttökur og afburðagott skipulag á fundunum sem fram fóru milli full- trúa NATO og Rússlands. „Við trú- um því að það mikilvæga samkomu- lag sem náðst hefur milli NATO og Rússlands verði ávallt tengt við nafn Reykjavíkur,“ sagði hann. Ívanov sagði rússnesk stjórnvöld vera afar ánægð með samband og samskipti Íslands og Rússlands og að þessi góðu tengsl hefðu verið stað- fest þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fór í opinbera heim- sókn til Rússlands nýverið. „Á næsta ári minnumst við þess að sextíu ár verða liðin frá því Íslend- ingar og Rússar tóku upp stjórn- málasamband og við erum sannfærð- ir um að við munum þá komast að því að þetta samband hefur orðið til gagns á mörgum sviðum,“ sagði Ív- anov. „Við munum áfram eiga náið og gott samstarf við íslenska utanríkis- ráðuneytið, bæði hvað varðar tvíhliða mál ríkjanna og um alþjóðamál, og það er okkur ánægjuefni að vita að afstaða Íslendinga og Rússa til margra mála er svipuð eða sú sama.“ Engin óleyst vanda- mál milli ríkjanna Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sagði að fundur sinn og rúss- nesks starfsbróður síns hefði verið ákaflega góður. Sagði Halldór að þeir Ívanov hefðu sérstaklega rætt vorfund Atlantshafsbandalagsins í Reykjavík og árangur hans. Einnig fóru þeir ofan í saumana í málefnum Mið-Austurlanda og sagði Halldór að þær upplýsingar sem Ívanov veitti honum um málefnið væru gagnlegar í ljósi þess að Halldór fer til Mið- Austurlanda eftir tíu daga. Þá sagðist Halldór hafa fengið upplýsingar hjá Ívanov um fund Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, og George W. Bush Bandaríkjafor- seta, sem haldinn verður á næstunni í Moskvu. Halldór sagði að gagnkvæm sam- skipti Íslands og Rússlands væru af- ar góð en ráðherrarnir ræddu þau ít- arlega í Moskvu nýverið. Hann sagði að engin óleyst vandamál væru milli ríkjanna og því hefði ekki verið þörf á að verja löngum tíma til að ræða samskiptin nú. Ígor Ívanov um samkomulag Rússlands og NATO Verður ávallt tengt nafni Reykjavíkur Morgunblaðið/Golli Ígor Ívanov og Halldór Ásgrímsson ræða við blaðamenn í gær. Maðurinn lengst til hægri er túlkur Ívanovs. Ígor Ívanov og Halldór Ás- grímsson ræða við blaðamenn. FYRIRTÆKIÐ Liðsinni ehf., sem selur þjónustu hjúkrunar- fræðinga til heilbrigðisstofnana og fjallað var um í Morgunblaðinu á laugardag, verðleggur útselda vinnu í tímakaupi. Að sögn Önnu Sigrúnar Bald- ursdóttur, framkvæmdastjóra Liðsinnis, vilja forsvarsmenn fyr- irtækisins hins vegar ekki gefa upp meðaltaxta hjúkrunarfræð- inga sem þar starfa þar sem verð- ið sé breytilegt eftir eðli vinnunn- ar og þeim samningum sem gerðir eru. Engu að síður sé taxtinn full- komlega samkeppnishæfur við yf- irvinnu fastráðinna hjúkrunar- fræðinga. Hún segir að hjúkrun- arfræðingar Liðsinnis njóti hærri launagreiðslna en gengur og ger- ist á markaðnum og að launin hækki jafnan um 5–7 % að þremur mánuðum liðnum sem helgast af eðli vinnunnar og síbreytilegum aðstæðum og vinnuumhverfi. Þá sé meðalstarfsaldur yfir 20 ár. Taxti ræðst af eðli vinnunnar GUÐMUNDUR Þóroddsson, for- stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, undr- ast hversu stórt er tekið til orða í ný- legri skýrslu um stöðu bókhaldsmála og innra eftirlit hjá fyrirtækjum í eigu Reykjavíkurborgar, þar sem gerðar eru athugsemdir við bókhald Orkuveitu Reykjavíkur auk Bíla- stæðasjóðs og Reykjavíkurhafnar. Hann segir að Borgarendurskoðun hafi farið yfir 10% af öllum færslum í bókhaldi fyrirtækisins, sem alls séu rúmlega 45 þúsund talsins á ári. Gerðar voru athugasemdir við 45 færslur sem alls hljóði upp á 7 millj- ónir króna. „Það er náttúrulega óhugsandi í svona stóru kerfi að vera algjörlega villufrír,“ segir Guðmund- ur og segir að honum finnist forkast- anlegt að í skýrslunni sé ekki tekið fram við hversu margar færslur voru gerðar athugasemdir. Í skýrslu Borgarendurskoðunar segir að meðferð virðisaukaskatts hafi verið áfátt hjá OR, vanskilavextir falli á fyrirtækið og upplýsingar vanti um hverjir njóti veitinga og gjafa og af hvaða tilefni. Þá hafi afstemmingu lánardrottna verið talsvert ábóta- vant, en að öðru leyti virðist þau ferli sem beitt er við eftirlit vera í góðu lagi. Hafa gripið til aðgerða Guðmundur segir að skýringin á athugasemdum er varða virðisauka- skatt sé að rangur bókhaldskóði hafi verið sleginn inn, þegar reikningarn- ir voru bókaðir. „Við höfum þegar gripið til aðgerða til að fækka þessum tilfellum,“ segir Guðmundur. Að- spurður um athugasemdir um risnu segist Guðmundur ekki hafa fengið neina skýringu á því hvað Borgar- endurskoðun eigi við í athugasemd- um sínum. Tilefni gjafa og risnu hjá fyrirtækinu sé skráð og segir hann risnu hafa dregist saman á árinu. Vanskilavextir hafi fallið á fyrir- tækið í undantekningartilfellum, þeg- ar ekki hafi náðst að samþykkja reikninga áður en þeir komu á gjald- daga. „Við greiðum náttúrulega van- skilavexti, alveg eins og við inn- heimtum vanskilavexti af skuldurum okkar,“ segir Guðmundur. Hvað af- stemmingu lánardrottna varðar seg- ist hann ekki vita betur en hún sé í lagi. Vinnuferlar hafi verið settir upp í samvinnu við Borgarendurskoðun og honum sýnist af athugasemdunum að Borgarendurskoðun vilji nú breyta því vinnuferli og sjálfsagt sé að fara eftir þeim athugasemdum. Hann segir að vegna mannabreyt- inga hjá Borgarendurskoðun hafi ný- ir endurskoðendur farið yfir reikn- inga fyrirtækisins í ár, sem virðist hafa aðrar skoðanir en fyrirrennarar sínir. Hann segir að þeir vinnuferlar sem farið sé eftir hafi verið settir á í samvinnu við Borgarendurskoðun og því sé mikið af gagnrýninni sem fram komi í skýrslunni í raun gagnrýni á Borgarendurskoðun sjálfa. „Við munum að sjálfsögðu grand- skoða þetta og breyta því sem hægt er til að vera í samræmi við okkar endurskoðendur, eins og við gerum á hverju ári. Við höfum átt mjög gott samstarf við Borgarendurskoðun og haft fullt samráð við þá um hvernig hlutirnir eru settir upp og munum halda því áfram,“ segir Guðmundur. Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur Óhugsandi að vera villufrír í svo stóru kerfi DAVÍÐ Oddssyni forsætisráð- herra hefur verið boðið að koma í opinbera heimsókn til Úkraínu og er vonast til að af heimsókninni geti orðið síðar á þessu ári. Anat- oliy Zlenko, utanríkisráðherra Úkraínu, greindi frá heimboðinu í gær en hann var þá í opinberri heimsókn á Íslandi, í framhaldi af utanríkisráðherrafundi Atlants- hafsbandalagsins (NATO) og sam- starfsríkja þess hér í Reykjavík. Zlenko ræddi við Davíð í gær- morgun og snæddi síðan hádeg- isverð með Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra. Kvaðst Zlenko í samtali við Morgunblaðið afar ánægður með heimsókn sína til Íslands. „Það er mikið ánægjuefni fyrir okkur að hafa verið boðið að koma til fundar [NATO] í Prag [í haust] og að við skulum hafa hlotið viðurkenningu sem samstarfsland NATO,“ sagði Zlenko, en á fundinum í Reykja- vík var samþykkt að stefna að því að auka enn frekar samstarf NATO og Úkraínu í öryggis- málum. Halldór sagði að þeir Zlenko hefðu m.a. rætt fjárfestingar Ís- lendinga í Úkraínu en í haust mun verða opnuð í nágrenni Kænugarðs, höfuðborgar Úkr- aínu, drykkjarvöruverksmiðja lettneska drykkjarvöruframleið- andans Gutta, sem er í eigu Lýðs Friðjónssonar og fjárfestingarfyr- irtækisins Nordic Industries, sem Gísli Reynisson stjórnar. Þá bar viðræður vegna fríversl- unarsamnings milli Úkraínu og EFTA, sem nú er í bígerð, á góma í samræðum þeirra Hall- dórs og Zlenkos. Í gærkvöldi opn- aði Zlenko síðan formlega ræð- ismannsskrifstofu Úkraínu á Laugavegi 7 í Reykjavík en ræð- ismaður Úkraínu á Íslandi er Jón G. Zoëga hæstaréttarlögmaður. Zlenko bauð Davíð Oddssyni til Úkraínu Morgunblaðið/Kristinn Anatoliy Zlenko, utanríkisráðherra Úkraínu, snæddi hádegisverð með Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra í Þjóðmenningarhúsi í gær. HALLDÓRA Friðjónsdóttir, for- maður Útgarðs – félags háskóla- manna, var kjörin formaður Bandalags háskólamanna á aðal- fundi samtakanna fyrir skemmstu. Herdís Sveinsdóttir, formaður Fé- lags íslenskra hjúkrunarfræðinga, var endurkjörin varaformaður. Aðrir stjórnarmenn eru Jörund- ur Guðmundsson, Félagi háskóla- kennara, Þóroddur Þórarinsson, Þroskaþjálfafélagi Íslands, Kol- brún Baldursdóttir, Stéttarfélagi sálfræðinga á Íslandi, Gunnsteinn Gíslason, Kennarafélagi Kenn- araháskóla Íslands og Þórólfur Már Antonsson, Félagi íslenskra náttúrufræðinga. Fráfarandi for- maður BHM er Björk Vilhelms- dóttir. BHM kýs sér nýjan formann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.