Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 45 FRAMUNDAN eru spennandi tímar í Garðabæ. Á næstu ár- um verða byggð mörg ný hverfi í Garðabæ sem skapa mikla breidd í húsnæðisfram- boði í bænum. Lítum á nokkur þeirra verkefna sem framundan eru. Í fyrsta lagi er nú unnið að lokafrágangi á deiliskipulagi á nýju hverfi við Arnarnesvog sem gengur undir nafn- inu strandhverfið en þar verður boðið upp á afar fjölbreytt úrval íbúða í fjölbýlishúsum. Lögð er áhersla á samræmda hönn- un og frágang á hverfinu en í þessu glæsilega hverfi munu alls verða 770 íbúðir og þar af um 200 íbúðir sem eru sérstaklega ætlaðar eldri íbúum. Við gerð deiliskipulagsins hefur ver- ið haft að leiðarljósi að skapa fagurt hverfi sem er með opin græn svæði og gott aðgengi gangandi bæði um hverfið sem og meðfram strand- lengjunni. Í skipulaginu er lögð áhersla á fjölbreytileika þannig að bæði ungir og aldnir fái húsnæði við hæfi. Í öðru lagi er framundan vinna við deiliskipulag fyrir fyrsta hluta Garðahverfis. Í þessu glæsilega hverfi verður mjög mikið og fjöl- breytt framboð af húsnæði og má þar nefna fjölbýlishús bæði af minni og stærri gerð, minna og stærra sér- býli. Í fyrsta hluta hverfisins verður uppbygging á umtalsverðri þjón- ustu, m.a. grunnskóla og leikskóla. Á Garðaholti verður jafnframt hugað að atvinnusvæðum enda er gert ráð fyrir blandaðri byggð á svæðinu þ.e. íbúabyggð og atvinnustarfsemi. Í þriðja lagi er nýlokið hugmynda- samkeppni um miðbæ Garðabæjar þar sem fram komu glæsilegar hug- myndir. Í keppnislýsingu var lögð áhersla á að tillögurnar feli í sér hug- myndir að heildaruppbyggingu mið- bæjarsvæðisins, þ.e. fyrirkomulagi og stærð bygginga, torgmyndunum, stígakerfi, bílastæðum og öðru sem máli skiptir til að mynda heildstæðan og aðlaðandi miðbæjar- kjarna. Spennandi verður að vinna að upp- byggingunni á svæðinu út frá þessum hug- myndum þó að enn hafi ekki verið tekin endan- leg afstaða til þess hvernig uppbygging verður á svæðinu. Í til- lögunum kemur fram að þétting byggðar í miðbænum er afar mikilsumverð til þess að efla þjónustuna í kjananum og í þeim er gert ráð fyrir 80–120 nýjum íbúðum í miðbænum. Á þessu eftirsótta svæði verður því án efa eft- irsótt að búa bæði fyrir unga sem aldna. Í fjórða lagi hefur í Urriðaholti verið unnið deiliskipulag sem gerir ráð fyrir hátæknigarði. Hugmyndin er að skapa atvinnutækifæri í nýjum greinum í hátækniiðnaði og mörg rök hníga að því að Urriðaholt sé spennandi valkostur. Þó að hér hafi einungis verið nefnd nokkur af þeim skipulagsverkefnum sem nú eru í gangi í Garðabæ er ljóst að það eru spennandi tímar fram- undan í Garðabæ. Uppbyggingarhverfin hvort held- ur sem er strandhverfið, Garðaholtið eða Urriðaholtið gera ráð fyrir mik- illi fjölbreytni og fullvíst er að bæði ungir og aldnir eiga að geta fundið húsnæði við hæfi í bænum. Fjölbreytt hús- næðisframboð Laufey Jóhannsdóttir Garðabær Framundan er aukið framboð, segir Laufey Jóhannsdóttir, á hús- næði í Garðabæ. Höfundur er formaður skipulags- nefndar og forseti bæjarstjórnar í Garðabæ. FLESTIR setja upp- skeru og uppskeru- hátíðir í samband við haustið, en hjá okkur sem störfum að skóla- málum kemur uppsker- an í ljós á vorin. Það er stórkostlegt að verða vitni að þeirri miklu gerjun og krafti sem býr í reykvískum grunnskólabörnum og birtist okkur í metnað- arfullum verkefnum vetrarins, sem þau hafa m.a. annars verið að kynna aðstandendum vítt og breitt um borg- ina. Við sem höfum stýrt skólamálum borgarinnar undangengin átta ár, lítum einnig ánægð yfir uppskeruna. Þessi ár hafa verið einhver mestu breytingaár varðandi grunnskólann í manna minnum. Þar hefur farið saman yfirfærslan á öllum rekstri grunnskólans frá ríki til sveitarfé- laga og einsetning alla skólanna. Strax árið 1994 var stefnufast og skipulega gengið að verki og undir- búningur þessara miklu verkefna hafinn með skýra framtíðarsýn að leiðarljósi. 1. Það var skipuð nefnd 1995 til að sjá til að ekkert yrði okkur að van- búnaði að taka alfarið við grunnskól- anum. Nefndin vann gott starf og allt gekk upp. 2. Við fengum utanaðkomandi að- ila til að taka út allar skólabyggingar borgarinnar með tilliti til einsetning- ar. Búin var til forsögn og viðmið um skólastarf og bygging- ar og allir skólarnir metnir út frá þessum viðmiðum. Þessi vinna var kynnt í öllum hverfum borgarinnar á opnum fundum vorið 1996. Í kjölfarið var unnin fimm ára áætlun um einsetningu allra skóla borgarinnar. 3. Strax haustið 1996 (eftir yfirfærsluna) var sest niður með foreldr- um, skólafólki og fulltrúum ÍTR til að móta 6–7 stunda vinnu- dag nemenda. Árið 2002 Það er einlæg sannfæring mín að ársins 2002 verði minnst í skólasögu Reykjavíkurborgar. Það er árið þeg- ar búið var að einsetja alla skólana og 50 þús fermetrar höfðu verið byggðir í skólahúsnæði eða sem samsvarar 10 ráðhúsum að stærð. Það er árið þegar skóladagur yngstu nemenda okkar er til kl. þrjú á daginn foreldrum að kostnaðarlausu. Reykjavíkurborg hefur bætt við um klukkustundarhléi í hádeginu til þess að nemendur okkar geti átt næðis- stund með kennara, matast og leikið sér úti. Það er árið sem Reykjavíkurlist- inn lengdi viðveru yngstu barnanna í skólunum eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og geta þau fengið m.a. aðstoð við heimanám. Það er árið sem nemendur eiga kost á niðurgreiddri heitri máltíð í skólunum, annað hvort úr mötuneyt- iseldhúsi skólans eða aðkeyptum mat. Hlutverk stjórnmálamannsins er að móta framtíðarsýn málaflokka og hafa eftirlit með að henni sé fram- fylgt. Það er því gleðilegt að geta staðið upp úr stóli formanns fræðslu- ráðs eftir átta annasöm ár og sjá og skynja að verkið sem undirbúið var í byrjun er að mestu í höfn. Skólamál- in eru langstærsti málaflokkur borg- arinnar og tekur þar af leiðandi mest til sín af fjármagni. Skólamál eru ótæmandi upp- spretta auðlindar og þess vegna er og verður ætíð hægt að gera meira og betur í dag en í gær. Reykjavík- urlistinn hefur sett metnað í þennan málaflokk. Það hefur verið alltaf verið ásetn- ingur undirritaðrar að fara vel með fé borgarbúa og samkvæmt endur- skoðunarskýrslu borgarendurskoð- enda borgarinnar eru fræðslumál borgarinnar afar vel rekin einnig í fjárhagslegu tilliti. Uppskeruhátíð! Sigrún Magnúsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi Reykja- víkurlistans og formaður fræðslu- ráðs Reykjavíkur. Reykjavík Skólamál, segir Sigrún Magnúsdóttir, eru ótæmandi uppspretta auðlindar. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1, Ísafirði þriðjudaginn 21. maí 2002 kl. 14:00 á eftirfarandi eignum: Aðalstræti 25, Þingeyri, þingl. eig. Ásta Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær. Álfabyggð 4, Súðavík, þingl. eig. Halldór Rúnar Jónbjörnsson, gerðar- beiðandi Íbúðalánasjóður. Ehl. Gunnars K. Ásgeirssonar í skipinu Þokki ÍS-210, skrnr. 6248, þingl. eig. Gunnar Kristinn Ásgeirsson, gerðarbeiðandi Leifur Árna- son hdl. Fjarðargata 40, 2. hæð t.v., Þingeyri, þingl. eig. Aðalsteinn Einarsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Fjarðarstræti 4, íbúð 0301, Ísafirði, þingl. eig. Hulda Björk Liljudóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Ísafjarðarbær og Kreditkort hf. Góuholt 8, Ísafirði, þingl. eig. Arnar Kristjánsson, gerðarbeiðendur Ingvar Helgason hf., Ísafjarðarbær og Lífeyrissjóður Vestfirðinga. Hlíðarvegur 42, Ísafirði, þingl. eig. Rannveig Hestnes, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóður Vestfirðinga og Sparisjóður Bolung- arvíkur. Kolfinnustaðir, Ísafirði, þingl. eig. Einar Halldórsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna. Mjallargata 1, J, 0304, Ísafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Ísafjarðar- bæjar, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Pramminn Fjölvi, skskrnr. 2196, þingl. eig. Sjóverk ehf., Ísafirði, gerð- arbeiðendur Byggðastofnun og Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Sundstræti 36, 0101, fiskmóttökuhús og ísframleiðsluhús, Ísafirði, þingl. eig. Ljónið ehf., gerðarbeiðendur Ísafjarðarbær og Lífeyrissjóð- urinn Framsýn. Túngata 1, ásamt öllum tilh. rekstrartækjum, Suðureyri, þingl. eig. Timbur og íshús ehf., gerðarbeiðandi Byggðastofnun. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 16. maí 2002. TIL LEIGU Til leigu — laust strax Skrifstofuhúsnæði í bláu húsunum við Suður- landsbraut er laust til leigu strax. Húsnæðið er alls 150 m², 3ja hæð 86 m² og ris 64 m². Upplýsingar í síma 863 5512. Einnig má leggja inn umsókn á auglýsingadeild Mbl., merkta: "Húsnæði — 12305." NAUÐUNGARSALA Nauðungarsala Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, fimmtudaginn 23. maí 2002, kl. 14.00, á eftirtöldum eignum: Skuggabjörg, Sveitarfél. Skagafirði, þingl. eign Sigríðar Jó- hannsdóttur. Gerðarbeiðandi er Lífeyrissjóður Norðurlands. Öldustígur 15, efri hæð, Sauðárkróki, þingl. eign Svavars Júlíusar Garðarssonar. Gerðarbeiðandi er Íbúðalánasjóður. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 15. maí 2002. UPPBOÐ Uppboð Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins á Ránarbraut, Vík, sem hér segir á eftirfarandi eign: Arnardrangur, sumarhús, Skaftárhreppi, þingl. eig. Ólafur Logi Jón- asson, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf., fimmtudaginn 23. maí 2002 kl. 14.00. Sýslumaðurinn í Vík, 15. maí 2002. Sigurður Gunnarsson. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF Mánudagur 20. maí, annar í hvítasunnu; Hestfjall og Gull- foss að austanverðu. Í lok ferðar verða heimsóttir Sól- heimar í Grímsnesi þar sem heitt kaffi og kökur verða á boðstól- um (innifalið í fargjaldi). Verð 2.500/2.800 kr. Fararstjórar: Sig- urður Kristjánsson og Leifur Þor- steinsson. Brottför í báðar ferðir kl. 10.30 frá BSÍ og komið við í Mörkinni 6. Enn eru nokkur sæti laus í sum- arleyfisferð um Dali og Strandir 28. og í ferð um Vatna- leiðina 29. júní. www.fi.is, texta- varp RUV bls. 619. R A Ð A U G L Ý S I N G A R Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Miðbraut 11, Búðardal, fimmtudaginn 23. maí kl. 14.00 á eftirfarandi eign- um: Ægisbraut 11, Búðardal, þingl. eig. Hansína B. Einarsdóttir, gerðar- beiðendur Vesturbraut 20 ehf. og Lífeyrissjóður verslunarmanna. Sunnubraut 11, Búðardal, þingl. eig. Svavar Garðarsson, gerðarbeið- andi sýslumaðurinn í Búðardal. Sýslumaðurinn í Búðardal, 16. maí 2002. Anna Birna Þráinsdóttir. mbl.is FASTEIGNIR Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík Ryðfríar Blómagrindur y fríar Blómagrindur með hengi Tilboðsverð kr. 2.995 áður kr. 3,595 Klapparstíg 44 Sími 562 3614 KLUKKUR Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699 Stimpil Vefsíða: www.oba.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.