Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 52
UMRÆÐAN 52 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ALFREÐ Þor- steinsson, stjórnarfor- maður Orkuveitu Reykjavíkur, ritar grein í Morgunblaðið miðvikudaginn 15. maí sl. þar sem hann vitnar í skýrar yfirlýsingar mínar um þau áform Sjálfstæðisflokksins að selja Orkuveitu Reykjavíkur. En Al- freð heldur áfram og segir: „En það eru fleiri en Ólafur F. Magnús- son úr herbúðum Sjálf- stæðisflokksins, sem lýst hafa yfir áhuga á sölu á veitufyrirtækj- um borgarinnar.“ Ekki er hægt að skilja þessi orð öðruvísi en að Alfreð haldi því fram að ég sé fylgismaður þeirrar einkavinavæðingar sem Björn Bjarnason og félagar hans í forystuliði Sjálfstæðisflokksins hafa staðið fyrir. Því fer víðs fjarri að svo sé og ég hlýt að mótmæla þessum orðum Alfreðs harðlega. Sama dag og grein Alfreðs birtist í Morgunblaðinu skrifaði ég grein í blaðið undir heitinu „Sjálfstæðis- flokkurinn vill einkavæða Orkuveit- una“. Þar er nákvæm- lega gerð grein fyrir því hvernig ég hef án árangurs barist gegn bylgju harðrar ný- frjálshyggju og þar á meðal áformum um að selja Orkuveitu Reykjavíkur innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins þar til ég sagði mig úr Sjálfstæðisflokknum 20. desember sl. En á sama hátt og ég tel áform um einkavæð- ingu Orkuveitu Reykjavíkur hættuleg fyrir Reykvíkinga og hagsmuni þeirra gagnrýni ég afleita meðferð fjármuna Orkuveitunnar hjá R-listanum. Þar á bæ eru fjár- munir þessarar dýrmætu sameignar okkar notaðir í pólitísk gæluverkefni á borð við línu.net og í rándýrar byggingarframkvæmdir. Þessu til viðbótar hefur stjórnarformaður Orkuveitunnar lýst yfir áhuga sínum á að fyrirtækið fjármagni ýmis verk- efni sem eru með öllu óskyld starf- semi og tilgangi Orkuveitunnar. Þetta sukk R-listans með fjármuni Orkuveitunnar hefur leitt til gífur- legrar skuldaaukningar fyrirtækis- ins og langt umfram það sem arð- bærar fjárfestingar á Nesjavöllum geta skýrt. F-listinn vill stöðva þessa óráðsíu R-listans með fjármuni Orkuveitunnar en minnir jafnframt á hin hættulegu einkavæðingaráform D-listans. Orkuveitu Reykjavíkur má líkja við góða mjólkurkú fyrir Reykvík- inga, því hún skapar mikinn auð fyrir borgarbúa og útvegar þeim vatn og orku á viðráðanlegu verði. Góður bóndi fer hvorki illa með bestu mjólkurkúna sína eins og R-listinn gerir né selur hana eins og D-listinn vill gera. Hann fer vel með bestu kúna og tryggir fjölskyldu sinni betri lífskjör með sölu á afurðum frá henni. Þannig hyggst F-listinn standa að verki varðandi Orkuveit- una og sýna ráðdeildarsemi og ábyrgð með fjármuni borgarbúa. Margt bendir nú til að F-listinn geti náð inn manni í borgarstjórn Reykjavíkur og veitt spilltum og valdþreyttum fylkingum R-lista og D-lista nauðsynlegt aðhald við stjórn fjármála og fyrirtækja borgarinnar. Borgarbúar verða að nýta þetta tækifæri til að hleypa inn óspilltu og fersku afli í stjórn borgarinnar. Það er í þágu almannahagsmuna að F- listinn komi þar að málum. Ólafur F. Magnússon Höfundur er læknir og borg- arfulltrúi. Hann skipar 1. sæti F-listans í Reykjavík. Reykjavík F-listinn vill stöðva óráðsíu R-listans með fjármuni Orkuveit- unnar, segir Ólafur F. Magnússon, en minnir jafnframt á hin hættu- legu einkavæðing- aráform D-listans. Rangfærslur Alfreðs um Orkuveituna R-LISTINN hefur sýnt af sér ótrúlegt ábyrgðar- og getuleysi í skipulagsmálum borgarinnar. Alvarleg- ust eru skipulagsmis- tök og aðgerðarleysi í skipulagningu nýrra íbúða- og atvinnu- hverfa. Á átta ára valdatíma R- listans í Reykjavík hefur hann aðeins deiliskipulagt eitt svæði í Grafarholti undir íbúðabyggð og selt lóðir úr hluta þess, aðallega á upp- boði. Einstaklingar og byggingafyrirtæki, sem vilja byggja sér íbúðar- og at- vinnuhúsnæði í Reykjavík og fá ekki lóðir leita til annarra sveitar- félaga eða neyðast til að kaupa lóð- ir í borginni á uppsprengdu verði. Úthlutun lóða dregst saman Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór með meirihluta í borginni 1982– 1994 var úthlutað lóðum undir rúm- lega 5.700 íbúðir eða um 440 íbúð- um árlega. Í valdatíð R-listans hef- ur verið úthlutað og seldur byggingaréttur fyrir rúmlega 2.600 íbúðir eða u.þ.b. 325 íbúðir árlega. Þrátt fyrir verulega fólksfjölgun í Reykjavík á undanförnum 20 árum, eða um 26 þúsund íbúa frá árinu 1982, minnkar framboð lóða um- talsvert á þeim árum sem R-listinn hefur stýrt málum í höfuðborginni. Lóðaskortur og lóðauppboð Ástæða fyrir því að lóðaverð hefur hækk- að um 140% í Reykja- vík, er að stærstum hluta vegna þess að í borginni ríkir lóða- skortur og ennfremur að R-listinn ákvað að setja nær allar lóðir í Grafarholti á uppboð. Vegna lóðaskortsins seldust lóðirnar á óheyrilega háu verði sem leiddi til þess að meðalstór 2ja her- bergja íbúð í fjölbýlis- húsi hækkaði um 30–40% eða u.þ.b. tvær milljónir. Úrræða- og stefnuleysi Þessi stefna hefur leitt til þess að langflestir einstaklingar sem sækja um lóð í Reykjavík fá neitun. Það sama gildir um fyrirtæki sem sækja um íbúða- og atvinnulóðir. Úrræða- og stefnuleysi í skipulags- málum einkennir störf R-listans í dag. Nákvæmlega sama staða var staðreynd í þessum málaflokki hjá vinstri flokkunum í Reykjavík 1978–1982 þegar þeir höfðu meiri- hluta í borginni en vegna lóða- skorts á þeim tíma var sett á fót svokallað punktakerfi, sem ól af sér ranglæti í lóðaúthlutun og stórfellt brask með íbúðalóðir. Afleiðingar þessa ástands eru hrikalegar. Ferlið er eftirfarandi: Lóðaskortur, lóðir settar á uppboð, lóðaverð hækkar, byggingarkostn- aður hækkar, íbúðaverð hækkar, fasteignamat hækkar og fasteigna- skattur, holræsagjald og eigna- skattur, sem reiknast ákveðin pró- senta af fasteignamati húss og lóðar, hækka. Hærra fasteignamat hækkar nettóeign margra og getur leitt til þess að réttur húseigenda til ýmissa félagslegra bóta minnkar eða fellur niður Ég er þess fullviss að þúsundir Reykvíkinga hafa að undanförnu áttað sig vel á þessari óheillaþróun. Fasteignaskattar og eignaskattar hafa hækkað ótæpilega og samtím- is hækkun á nýju húsnæði hefur eldra íbúða- og atvinnuhúsnæði hækkað sambærilega. Afleiðingin er sú að ungt fólk, sem er að kaupa sína fyrstu íbúð þarf nú að greiða fyrir hana þremur til fjórum millj- ónum meira en fyrir þremur árum. Stór hópur ungs fólks, sem er að festa sér húsnæði í fyrsta sinn, neyðist því til að skuldsetja sig langt umfram það sem eðlilegt má teljast. Þessi alvarlega staða hefur örugglega leitt til þess að margt ungt fólk treystir sér ekki í íbúðar- kaup og leitar leiguhúsnæðis, ýmist á almennum markaði eða í fé- lagslega húsnæðiskerfinu og þá einkum hjá borginni. Húsaleiga á almennum markaði í Reykjavík hefur á sl. þremur árum hækkað um allt að 100%. Skortur á minni íbúðum Í ljós hefur komið að söluskil- málar vegna lóðanna í Grafarholti hafa beinlínis stuðlað að því að framboð á minni íbúðum í fjölbýlis- húsum hefur aldrei verið jafn lítið. Skilmálarnir undirstrika þetta. Þeir eru mjög leiðandi í þeim til- gangi að réttlæta hátt lágmarks- söluverð lóðanna. Samkvæmt skipulagsskilmálum í Grafarholti er meðalstærð íbúða í fjölbýlishúsum 130 ferm.–150 ferm. Í Grafarholti eru mjög fáar 2ja herbergja íbúðir og langflestar 3ja herbergja íbúðir eru mjög stórar eða á bilinu 100– 120 ferm. og sumar stærri. Íbúðir í fjölbýlishúsum í Graf- arholti eru að jafnaði 10–30% stærri í fermetrum en í öðrum hverfum borgarinnar. Þessi stefna R-listans hefur þær afleiðingar að sumir íbúðarkaupendur hreinlega neyðast til þess að kaupa stærri íbúð en þeir hafa þörf fyrir. Það eykur skuldsetningu þeirra og hækkar afborganir og vaxta- greiðslur. Íbúðabyggð á Geldinganes Sjálfstæðismenn ætla að byggja íbúðabyggð á Geldingarnesi fyrir 8–10.000 manns en hafna stefnu R-listans um að stærstur hluti landsins fari undir atvinnu-, iðn- aðar- og hafnarsvæði. Geldingar- nesið er stærsta og glæsilegasta byggingarsvæði undir íbúðabyggð meðfram ströndinni og eitt örfárra strandsvæða sem enn eru óbyggð. Allir sem unna nánasta umhverfi Viðeyjar, Eiðsvíkur og Grafarvogs ættu að láta sig þetta mál miklu varða. Sjálfstæðismenn vilja hraða byggingu Sundabrautar eins og kostur er en R-listinn leggur til að fyrst árið 2014 verði Sundabraut lögð úr Grafarvogi yfir í Geldinga- nes. Lóðaframboð í stað lóðaskorts Frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins hafa gagnrýnt vinnubrögð R-listans í lóðamálum harkalega en þau eru ekki síst fjandsamleg ungu fólki sem vill byggja íbúðarhúsnæði í Reykjavík og fyrirtækjum sem vilja reka sína starfsemi í borginni. Það verður eitt fyrsta verk okkar sjálfstæðismanna þegar kjósendur í Reykjavík veita okkur meirihluta á nýjan leik að tryggja nægt lóða- framboð, afnema lóðauppboð og lækka gatnagerðargjöld eða sölu- verð lóða til samræmis við kostnað borgarinnar við gerð nýrra bygg- ingasvæða. Lóðaskortsstefna R-listans eykur skuldir og álögur heimilanna Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Reykjavík Ungt fólk, sem er að kaupa sína fyrstu íbúð, segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þarf nú að greiða fyrir hana 3–4 milljónum meira en fyrir þremur árum. Höfundur er borgarfulltrúi. KÓPAVOGUR á að leggja rækt við vel- ferð og vellíðan fólks- ins í bænum og leggja sitt af mörkum til að mismunandi fjölskyld- ur geti blómstrað á eigin forsendum. Aðbúnað eldri borg- ar og fatlaðra þarf að setja í forgang á kjör- tímabilinu og auka að- stoð við þann hóp sem á því þarf að halda. Bæta þarf heimilis- þjónustuna, byggja heimili fyrir aldraða, aðstöðu í þjónustu- miðstöðvum og allan aðgang að þjónustu hins opinbera. Kynna þarf eldra fólki rétt sinn og þau úrræði sem eru í boði. Sér- staklega þarf að skoða samræmi í framboði í heilsugæslu, heima- hjúkrun, heimilisþjónustu og ann- arri aðstoð sem veitt er af opinber- um aðilum, og skapa þannig sem best öryggisnet. Aldraðir og fatlaðir Aldraðir og fatlaðir þurfa góða aðstoð til að geta búið á sínum heimilum, það skiptir svo miklu máli að geta búið að sínu svo lengi sem heilsan leyfir. Bærinn þarf að beita sér fyrir því að bæta möguleika lágtekju- fólks til að eignast húsnæði og stuðli auk þess að auknu framboði á leiguhúsnæði og félagslegu hús- næði. Aðgengi fyrir alla Huga þarf að umhverfismálum fyrir þessa hópa, gera góða göngu- stíga með slitsterku yfirborði. Þá þurfa að vera góðir fláar þar sem farið er yfir götu. Aðgengi að göngustígum þarf að vera gott, þannig að ekki þurfi að klöngr- ast yfir ófærur. Að- gengi þarf að vera fyrir alla að útivist- arsvæðum og fjölga þarf skipulögðum al- menningsgörðum. Vinna þarf að því í samvinnu við Reykja- víkurborg að tengja betur saman göngu- stíga þessara bæjar- félaga svo auðveldlega megi komast á milli Reykjavíkur og Kópa- vogs á reiðhjólum og hjólastólum. Við viljum reka traust almenn- ingssamgönugukerfi í samvinnu við önnur sveitarfélög, sem á að vera þægilegur, aðgengilegur og eðlilegur ferðamáti í bænum, þannig að það verði raunverulegur valkostur við einkabíla. Nú eru að koma í umferð nýir almennings- vagnar, sem eru aðgengilegri fyrir alla, jafnt hjólastólanotendur sem og aðra. VG í Kópavogi leggur áherslu á félagsmálin Sigurrós M. Sigurjónsdóttir Höfundur skipar annað sæti á fram- boðslista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Kópavogur Bærinn þarf að beita sér fyrir því, segir Sigurrós M. Sigurjóns- dóttir, að bæta mögu- leika lágtekjufólks til að eignast húsnæði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.