Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 63
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 63
FRAMBJÓÐENDUR Reykjavíkur-
listans bjóða til grillveislu í Graf-
arvogi laugardaginn 18. maí kl. 14,
fyrir utan kosningamiðstöðina í
Spöng.
Einnig verður boðið upp á grill-
veislu í Árbæ sama dag kl. 16, fyrir
utan sundlaugina. Á dagskrá á báð-
um stöðum verða: Gunni og Felix,
Sönghópurinn Blikandi stjörnur og
rapparinn Bent úr XXX Rottweiler-
hundum.
Ungt Reykjavíkurlistafólk stend-
ur fyrir hátíð á Ingólfsstræti á laug-
ardagskvöld, þar verður m.a.: Á Ara
í Ögri spilar 5ta herdeildin, á Prik-
inu verða skífuþeytararnir Gullfoss
og Geysir og þar verða jafnframt
fríar veitingar meðan birgðir endast
milli kl. 20–22, í Húsi málarans
verða Geirfuglarnir.
Sunnudaginn 19. maí kl. 14 býður
Reykjavíkurlistinn til fjölmenning-
arhátíðar í Hlaðvarpanum. Þar
verður á boðstólum matur frá ýms-
um þjóðlöndum. Fjöllistamenn og
tónlistarmenn stíga á svið og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri flytur ávarp með aðstoð túlka.
Allir velkomnir, segir í frétt frá
Reykjavíkurlistanum.
Grillveisla og
fjölmenning-
arhátíð R-lista
UNDANFARNA mánuði hefur
staðið yfir undirbúningur að stofnun
hollvinasamtaka Framhaldsskólans
á Húsavík.
Ákveðið hefur verið að boða til
stofnfundar á skólaslitadegi, 25. maí
kl. 16 í Framhaldsskólanum. Allir
sem bera hag skólans fyrir brjósti
eru velkomnir á stofnfundinn. Hægt
er að skrá sig hjá ritara skólans, Jó-
hönnu Björnsdóttur.
Undirbúningsnefndin vinnur að
því í samvinnu við skólayfirvöld að
gera könnun á námsgengi allra
þeirra sem útskrifast hafa með stúd-
entspróf frá FSH. Skólaslit og
brautskráning stúdenta frá Fram-
haldsskólanum á Húsavík verða
laugardaginn 25. maí kl. 14, segir í
fréttatilkynningu.
Hollvinir FSH
stofna samtök
UNGIR sjálfstæðismenn í Reykja-
vík halda kosningagleði á Thorvald-
sensbar í Austurstræti laugardags-
kvöldið 18. maí kl. 21. Allir eru
velkomnir.
Léttar veitingar verða á boðstóln-
um og sjálfstæðistilboð á barnum.
Palli Steinars og Daddi diskó þeyta
skífum, segir í fréttatilkynningu.
Kosningagleði á
Thorvaldsensbar
FÆREYSK samkoma verður á
hvítasunnudag 19. maí kl. 16, í Sjó-
mannaheimilinu Örkinni, Brautar-
holti 29.
Gestir á samkomunni verða hjónin
Simin og Elin Hansen frá Skopun,
Erland Rasamussen frá Argjum, Ás-
björn Jacobsen og Árni Jacobsen frá
Leirvik, munu þau tala og syngja á
samkomunni.
Þetta er seinasta samkoman í Sjó-
mannaheimilinu að sinni, en þær
hefjast aftur í haust. Færeyska sjó-
mannaheimilið hefur gistiaðstöðu og
er opið allt árið, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Færeysk
samkoma
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Umferðarráði:
„Margir nota hvítasunnuna til
ferðalaga og þess vegna er ástæða
til að staldra við og velta fyrir sér
ýmsum þáttum sem tengjast um-
ferðaröryggi.
Samkvæmt athugunum Vega-
gerðarinnar hefur hraði á vegum
landsins aukist á undanförnum
misserum og því fylgir aukin hætta
á umferðarslysum. Skilaboð Um-
ferðarráðs eru því skýr:
Fylgi ökumenn hámarkshraða-
reglum er ljóst að hægt er að koma
í veg fyrir stóran hluta alvarleg-
ustu slysanna. Hraði þarf að miðast
við aðstæður hverju sinni, sumir
kjósa að fylgja umferðarhraðanum
og það er besti kosturinn, en vilji
menn aka hægar eru þeir hvattir til
að hleypa þeim sem á eftir koma
framúr við fyrsta tækifæri.
Framúrakstur er ávallt varasam-
ur. Hann má aldrei eiga sér stað á
heilli óbrotinni línu og menn verða
alltaf að vera vissir um að geta ekið
framúr með öruggum hætti.
Bílbeltin eru sá öryggisbúnaður í
bílum sem hvað oftast hefur sannað
gildi sitt og þess vegna á að vera
sjálfsagt mál að allir spenni beltin.
Börn eiga að njóta þess öryggis
sem fylgir hentugum öryggisbún-
aði.
Ökumenn eru eins og venjulega
minntir á að akstur og neysla
áfengis má aldrei eiga samleið og
hefur reynst mörgum örlagarík.
Menn þurfa jafnframt að hafa í
huga að oft getur áfengi mælst í
blóði manna daginn eftir drykkju.
Akstur og neysla annarra vímuefna
er einnig vaxandi áhyggjuefni.
Fleiri atriði er ástæða til að hafa
í huga, einkum ef menn ætla að aka
um langan veg. Að vera vel hvíldur
áður en ekið er af stað og ef syfja
sækir á í akstri að stöðva bílinn og
fá sér frískt loft í góða stund.
Farþegar þurfa að aðstoða öku-
menn í þessum efnum, m.a. með því
að fylgjast vel með þeim. Einnig
getur það reynst syfjuðum öku-
manni erfitt að hafa sofandi far-
þega sér við hlið. Í því sambandi er
rétt að benda farþegum á að stór-
hættulegt er að leggja bak fram-
sætis aftur til þess að fá sér blund.
Við þær aðstæður koma eiginleikar
bílbelta ekki að nema mjög tak-
mörkuðu gagni.
Lögregla um land allt verður á
ferðinni um helgina til að fylgjast
með umferð og skapa eins mikið
öryggi og kostur er. Verum ábyrg í
akstri, sýnum varúð. Umferðarráð
óskar vegfarendum farsældar í um-
ferðinni um helgina og í allt sum-
ar.“
Hvatt til aðgæslu
í umferðinni um
hvítasunnuna
ÞAÐ var margt um manninn þegar
Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR
opnaði formlega vínbúð á Djúpa-
vogi 15. maí. Vínbúðin er rekin í
samvinnu við Kaupás sem rekur
Kjarvalsverslun á staðnum. Versl-
unin býður upp á 80 vörutegundir.
Þetta er fertugasta vínbúðin sem
ÁTVR opnar.
Verslunarstjóri er Hallgrímur H.
Garðarsson sem jafnframt er versl-
unarstjóri Kjarvals. Myndin er af
Höskuldi og Hallgrími við opn-
unina.
ÁTVR opn-
ar vínbúð á
Djúpavogi
Djúpavogi. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir
Náttúrulandfræði
Röng fyrirsögn var á frétt um
doktorsvörn Rannveigar Ólafsdótt-
ur í blaðinu á miðvikudag. Hið rétta
er að Rannveig er doktor í náttúru-
landfræði. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Rangur myndatexti
Föðurnafn Eyþórs Rafns Þór-
hallssonar misritaðist undir mynd af
honum með grein í blaðinu í gær, en
hann var sagður Sigurþórsson. Er
það leiðrétt hér með og hlutaðeig-
endur beðnir velvirðingar á mistök-
unum.
Alnöfnur í listinni
Ranghermt var í umsögn um ör-
leikrit Ragnheiðar Gestsdóttur rit-
höfundar að hún hefði tekið þátt í
starfi fjöllistahópsins Tema Teater.
Þar á hlut að máli alnafna hennar,
Ragnheiður Gestsdóttir leikari. Eru
þær beðnar velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
OPNAÐ hefur verið stuðnings-
sambýli fyrir heimilislausa á veg-
um Samhjálpar í samvinnu við Fé-
lagsþjónustuna í Reykjavík. Býlið
er á Miklubraut 20 og undirrituðu
Lára Björnsdóttir félagsmála-
stjóri Reykjavíkurborgar og Heið-
ar Guðnason forstöðumaður Sam-
hjálpar samning vegna býlisins á
miðvikudag.
Á heimilinu verður rými fyrir
7–8 einstaklinga og mun hver
hafa eigið herbergi en önnur að-
staða er sameiginleg. Vakt stuðn-
ingsfulltrúa mun verða á heim-
ilinu allan sólarhringinn auk þess
sem fram mun fara verkleg þjálf-
un, en ætlunin er að hvetja mark-
visst til betri lífshátta, segir í
frétt frá Samhjálp.
Þörfin brýn
„Mikil þörf er fyrir heimili sem
þetta, en talið er að nokkrir tugir
manna hafi ekki átt fastan sama-
stað mjög lengi. Þá er aðeins ver-
ið að telja þá sem eru verst settir
og hafa dvalið langtímum saman
á götunni. Því er mikið fagnaðar-
efni að nú skuli vera hægt að
stíga þetta skref og bjóða hluta
þessara illa stöddu einstaklinga
upp á mannsæmandi aðstæður,
aðstæður sem flestir telja sjálf-
sagðar, þ.e. stað sem hægt er að
kalla heimili,“ segir í fréttinni.
Morgunblaðið/Sverrir
Heimilislausir fá hús
HÓPUR hjólreiðamanna frá Hreyf-
ingu – heilsurækt hjólar á Þingvöll
laugardaginn 1. júní. Þetta er
fimmta árið í röð sem lagt er upp í
þessa ferð og hefur þátttakan aukist
ár frá ári. Í fyrra var um 50 manna
hópur sem hjólaði þessa leið.
Lagt er af stað frá íþróttamiðstöð-
inni á Varmá kl. 10. Þegar á Þingvöll
er komið sér Salatbar Eika hjól-
reiðagörpum fyrir næringu. Þegar
komið er til baka í Mosfellsbæinn er
farið í Varmárlaug. Reikna má með
að ferðin taki í allt 4–5 klst., allt eftir
getu hvers og eins. Markmiðið er
ekki að fara leiðina á mettíma heldur
að hafa gaman af. Skráning í ferðina
fer fram í afgreiðslu Hreyfingar.
Hreyfing hjólar
á Þingvöll
LANDSFUNDUR Soroptimista-
sambands Íslands var haldinn í
Fella- og Hólakirkju laugardag-
inn, 27. apríl síðastliðinn og sátu
um 150 konur fundinn. Þar var
m.a. kynnt mappa sem ber heitið
Fræðsla um getnaðarvarnir.
Soroptimistasambandið hefur
staðið að gerð möppunnar og
verður henni dreift á allar heilsu-
gæslustöðvar í landinu til nota
fyrir fagfólk í starfi. Er mappan
framlag íslenskra soroptimista til
verkefnis Evrópusamtakanna
„Inn í 21. öldina með æskunni“.
Há tíðni ótímabærra þungana og
fóstureyðinga hér á landi var
hvatinn að þessu verkefni. Veg og
vanda af gerð möppunnar hafði
Sóley S. Bender dósent í hjúkr-
unarfræði.
Jafnframt var haldin sýning á
myndum grunnskólabarna úr
hugmyndasamkeppni sem efnt
var til í vetur vegna gerðar áróð-
ursplakats um að bæta umgengni
með tyggjóklessur sem alltof víða
sjást á gangstéttum borgarinnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Soroptimistar héldu sýningu á verkum grunnskólabarna. Frá vinstri:
Laufey Hannesdóttir, Kristín Einarsdóttir, Halla L. Loftsdóttir, Ásgerð-
ur Kjartansdóttir og Kolbrún Stefánsdóttir.
Soroptimistar styrkja
gerð fræðsluefnis
SAMTÖKIN Mannvernd halda op-
inn fund í dag kl. 17 í Odda, húsi
félagsvísindadeildar Háskóla Ís-
lands. Á fundinum munu þeir Ólaf-
ur Hannibalsson, Ragnar Aðal-
steinsson og Steindór J. Erlings-
son fjalla um samskipti Íslenskrar
erfðagreiningar og íslenskra
stjórnvalda frá sjónarhóli vísinda
og vísindafræða, lögfræði- og við-
skiptasjónarmiða, að því er kemur
fram í fréttatilkynningu frá sam-
tökunum.
Fundur hjá
Mannvernd