Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 51
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 51 Reykjavík í fyrsta sæti Kynntu flér málin og sko›a›u myndbandi› um Geldinganes á www.reykjavik2002.is GARÐMENN eins og aðrir landsmenn ganga að kjörborðinu laugardaginn 25. maí nk. og velja sér fulltrúa til að sitja í næstu sveitarstjórn. Í boði eru þrír listar skipaðir fólki sem örugglega vill vinna sínu sveitar- félagi sem best það getur. Skiptir þá nokkru máli hvað er kosið? Jú, kosningarn- ar snúast um það, hvort Garðmenn vilji áfram hafa þann meiri- hluta, sem stjórnað hefur síðustu árin eða breyta til. Ég hef gegnt starfi sveitarstjóra hér í Garði í tæp 12 ár eða frá árinu 1990. Á þessum árum hefur verið mikill uppgangstími hvað varðar margsvíslegar framfarir og umbæt- ur í samfélaginu. Á þessum tíma hefur íbúum fjölgað um 12,38%, sem er næst mesta fjölgun sveitarfélaga á Suðurnesjum í prósentum talið. Íbúar nú eru orðnir rúmlega 1.200. Íþróttamiðstöð af fullkomnustu gerð hefur verið byggð, Gerðaskóli hefur verið stækkaður, nýr leikskóli byggður, byggðasafn sett á stofn, átak gert í umhverfismálum, lóðir gerðar byggingarhæfar og átak gert í vatnsveitumálum, svo eitthvað sé nefnt. Atvinnuástand hefur verið og er gott. Er það ekki síst að þakka að það eru heimamenn, sem eiga og reka fyrirtækin og hafa metnað fyr- ir sínu sveitarfélagi. Framundan eru miklir fram- kvæmdatímar. Stór- átak í gatnagerð og lagningu gangstétta er að hefjast, bygging íbúða aldraðra hefur verið ákveðin, stækka á leikskólann og byggja enn frekar við grunnskólann. Staða sveitarfé- lagsins er sterk og framtíðin getur verið björt ef rétt er á hald- ið. Kjósendur þurfa nú að velta því fyrir sér hvað hagstæðast er fyrir Garðinn. Vilja kjósendur í Garði halda áfram á sömu framfarabraut og verið hefur og treysta núverandi meirihluta F-listans til áframhald- andi forystu og að undirritaður verði áfram sveitarstjóri? Þessari spurn- ingu svara kjósendur á kjördag. Ég trúi því að Garðmenn kunni að meta okkar störf og setji x við F á kjördag. Um þetta snúast kosning- arnar í Garði. Um hvað er kosið í Garðinum? Sigurður Jónsson Höfundur er sveitarstjóri í Garði. Garður Staða sveitarfélagsins er sterk og framtíðin getur verið björt, segir Sigurður Jónsson, ef rétt er á haldið. ÉG spyr þig strax, ágæti kjósandi, eru at- kvæði árið 2002 föl fyrir auglýsingar frá hæst- bjóðanda? Er lýðræði hugsanlega falt sé borið á það fé í hamslausum fjáraustri, rangfærslum og áróðri? Þessu svarar þú sem kjósandi í Reykjavík næstu daga. Björn Bjarnason leið- togi minnihluta borgar- stjórnar var kallaður fram af ungum Heim- dellingum og skírður til framboðs í gestaboði Hannesar eftir árs hráskinnaleik stuðn- ingsmanna í eigin flokki. Kraftmikl- um einstaklingum sem vildu leggja allt sitt undir var hrint úr vegi eins og Eyþóri Arnalds, Júlíusi Vífli og Ingu Jónu. Leiðtoginn mikli, Björn, fer mikinn þessa dagana. Meðal þess sem Björn ranghermir ítrekað í ræð- um og sjónvarpi er að „sjálfstæðis- menn fari betur með opinbert fé en aðrir“ og að hann sem leiðtogi „láti verkin tala“. Stundum er treyst á skammt minni kjósenda, lítið með mér á örfá dæmi: Þjóðleikhús, endur- bætur fóru margfalt fram úr áætlunum svo menn setti hljóða. Byggingarnefnd hélt áfram störfum eins og þekkt er í mörg ár eftir verklok án skipunar- bréfs og útdeildi fé og verkefnum eftirlitslaust (ábyrgð: menntamála- ráðherra). Þjóðminjasafn, verð- ur lokað tveim árum lengur og margfaldur kostnaður nú þegar vegna endurbóta, eng- inn treystir sér til að segja hver kostnaðurinn verður (ábyrgðarleysi: menntamálaráð- herra). Þjóðmenningarhús, endurbætur fóru hundrað milljónir umfram áætl- un, eftir það tók forstöðumaður við að aka fram úr heimildum (ábyrgðar- leysi: forsætisráðherra). Landssíminn, húseignir við Aust- urvöll seldar og endurleigðar af kaup- anda til nokkura ára þannig að kaup- andi er eftir örfá ár búinn að fá mestan hluta kaupverðsins til baka frá Landssímanum sem tryggar leigutekjur (ábyrgðarleysi: sam- gönguráðherra). Landssíminn, forstjóri rekinn með 30 milljónir sem nesti, nýr ráðinn sem verktaki fyrir 1,5 millj. mánaðarlaun, stjórnarformaður hafður á milljóna verktakalaunum, nýrri stjórn úthlut- að óumbeðið margföldum fyrri stjórnarlaunum, þeim hæstu sem þekkjast á almennum markaði (ábyrgðarleysi: samgönguráðherra). Skrifstofur Alþingis, leigð ný margra hæða húseign við Austur- stræti, breytingar og innréttingar á nýju leiguhúsnæði kostuðu hundruð milljóna, eða sem nam því að byggt hefði verið nýtt hús, en féð var í þess stað sett í innréttingar leiguhúsnæðis (ábyrgðarleysi: forseti Alþingis og fyrrv. ráðherra). Landsvirkjun, á þriðja milljarð eytt í rannsóknir, mannvirki og jarð- vegsfærslur vegna Kárahnjúka. Skyndilega kemur í ljós að á bakvið nokkurra milljarða kostnað stendur ekki neinn samningur né skuldbind- ing þegar eini sérfræðiaðilinn í ál- rekstri hleypur af velli (ábyrgðar- leysi: fyrrv. varaformaður Sjálfstæðisflokksins). Auðn og fjötrar blasa við heilum landshlutum og þjóðþekktum útgerð- arbæjum þar sem fiskurinn syndir nánast við bryggjusporðana eftir ára- langa rangsælisstefnu í veiðiréttar- málum í landinu (ábyrgðarleysi: sjáv- arútvegsráðherra). Gengisfall um tugi prósentna og gengisris á einu ári án þess að neinar haldbærar skýringar komi fram á ótrúlegu peningarhruni og sveiflum á velmektartímum (skýringarleysi: fjármálaráðherra/forsætisráðherra). Í þessari ríkisstjórn „fés án hirðis“ var Björn Bjarnason ráðherra með fulla ábyrgð! Manst þú, Björn? Manst þú t.d. loforð og bumbuslátt Björns leiðtoga um „menningarhús“ um allt land sem dreifa átti sem menningar- legum ostbitum í stærstu héruð? Get- ur þú bent á þau nú, jafnvel bara eitt? Eða er þetta eitt af mörgu í líki lof- orðalista Björns leiðtoga D-dánu- manna, loforðakostnaður upp á 10-15 milljarða úr vösum okkar Reykvík- inga í enn fleiri vanreiknuð loforð. Björnsmenn níða niður fyrirtæki, fjárfestingar og miðborgina og sjá skrattann á hverju götuhorni í okkar fallegu, friðsælu höfuðborg, Reykja- vík. Stefna þeirra í skipulagsmálum, flugvelli og framtíðarhöfn er engin, aðeins loðin svör og gamaldags glott. Nei! Við kjósendur getum ekki látið reka ósannindin um góða og hagsýna sjálfstæðismanninn öfug ofan í okkur, jafnvel þótt Björnsmenn vilji borga okkur fyrir að koma þeim til valda. Loforðalistinn var kynntur í blöðrum skrýddri Valhöll, við kjósendur vitum hve lengi loftið varir í uppblásnum blöðrum, treystum ekki vindinum, hann líður hjá. Atkvæðin í Reykjavík eru ekki til sölu fyrir áróður, vertu því ákveðinn, kjósum R fyrir Reykjavík, hvað annað! Atkvæði til sölu? Pálmi Pálmason Reykjavík Eru atkvæði árið 2002, spyr Pálmi Pálmason, föl fyrir auglýsingar frá hæstbjóðanda? Höfundur er stuðningsmaður R-lista og starfar sem markaðsstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.