Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 53
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 53 EIN mesta tilfærsla verkefna sem orðið hef- ur milli ríkis og sveitar- félaga var er rekstur grunnskólanna var færður til sveitarfélag- anna. Megintilgangur- inn með þeirri aðgerð var vitanlega sá að færa stjórn skólahaldsins nær íbúunum sjálfum sem aftur yrði til efling- ar skólahalds og menntunar í landinu. Jafnhliða voru sett ákveðin markmið sem miðuðu að því að gera skólahaldið markviss- ara, svo sem að allir skólar yrðu einsetnir og vinnudagar skólafólks, bæði kennara og nem- enda, yrði í meira samræmi við það sem gerist hjá öðrum stéttum í land- inu. Vitanlega er það mjög mismunandi hvernig til hefur tekist við fram- kvæmd og útfærslu þessarar breyt- ingar. Máttur sveitarfélaga til þess að takast á við verkefnið er misjafn en þarna kemur einnig til spurning um vilja – hversu mikið sveitarfélög- in leggja upp úr þessum þætti starf- semi sinnar. Í Garðabæ var þegar ákveðið að taka þessi mál mjög föstum tökum og ekki aðeins ná fram þeim megin- markmiðum sem sett höfðu verið, heldur gera betur og búa svo að skól- um bæjarins að hin ytri umgjörð hindraði ekki að þeir gætu gegnt því gífurlega mikla hlutverki sem skólar og menntun gegna í nútímasam- félagi. Árangur þeirrar stefnu hefur berlega komið í ljós. Samkvæmt könnunum eru íbúar Garðabæjar ánægðari með skóla og menntunar- stefnu bæjarins en íbúar nokkurs annars bæjar- eða sveitarfélags á landinu. Einn þátturinn í skólastarfseminni í Garðabæ var að móta heildstæða skólastefnu sem nær yfir öll skóla- stigin sem bæjaryfirvöld hafa yfir að ráða. Við vinnslu hennar var beitt ný- stárlegum vinnubrögðum í þeim til- gangi að gera starfið markvisst og nýta þekkingu og viðhorf þeirra sem hafa bestu yfirsýn yfir þennan mála- flokk og láta hann sig miklu varða. Úti í skólunum komu að starfinu fulltrúar kennara, foreldra og skóla- stjórnenda ásamt fulltrúum stjórn- sýslunnar og mótuðu þeir stefnu hvers og eins skóla en stýrihópur fór síðan yfir og samræmdi niðurstöð- urnar. Í stýrihópnum sátu formenn viðkomandi skólanefnda, forstöðu- maður fræðslu-og menningarsviðs Garðabæjar, ásamt fulltrúum meiri- og minnihluta í bæjarstjórn. Miðað við hvað hér er um umfangsmikinn og viðkvæman málaflokk að ræða verður ekki annað sagt en að starfið hafið gengið ótrúlega vel fyrir sig og var skólastefnan samþykkt sam- hljóða í bæjarstjórn fyrir skemmstu. Í Garðabæ eru starfræktir sjö leik- skólar, einn tónlistarskóli og þrír grunnskólar, þar af tveir fyrir yngri bekki og einn safnskóli fyrir ung- linga. Lætur nærri að í skólum sem starfræktir eru á vegum bæjarins séu rúmlega tvö þúsund nemendur, eða fjórði hver bæjarbúi. Það gefur því auga leið að hlutverk þessara stofnana er mikið og þeir koma til með að móta verulega líf og starf allra þeirra er þangað sækja. Mark- miðið með nýju skólastefnunni er í sjálfu sér einfalt. Það miðar að því að í Garðabæ fái allir skólanemendur, hvort heldur viðkomandi er í leik- skóla eða efsta bekk grunnskóla, þann aðbúnað og menntun sem hæfir þroska hans og verði á þann hátt tilbúinn að taka þátt í síbreytilegu þjóðfélagi á fullorðinsárum sínum. Með þessu á að leggja grunn að því að í Garðabæ vaxi upp ábyrgir ein- staklingar sem láti gott af sér leiða. Það er einlægur ásetningur bæj- aryfirvalda í Garðabæ að hin nýsamþykkta skólastefna bæjarins verði ekki orðin tóm, heldur verði henni framfylgt í hvívetna. Í því felst ekki eingöngu það að af hálfu bæjarins verði staðið við fyrir- heit um byggingar- framkvæmdir og kaup á nauðsynlegum bún- aði, heldur verði ekki síður hugað að innra starfi skólanna og rækt við alla einstaklinga sem þá sækja. Það hef- ur verið meginstyrkur skóla- og menntunar í bæjarfélaginu að til skólanna hefur valist úrvals starfsfólk sem hefur verið tilbúið til þess að leggja mikið á sig til þess að árangurinn yrði sem bestur og að markmið næðust. Áhugi og starf foreldra hefur jafnan verið mikið og áhersla lögð á að virkja krafta þeirra í þágu skólastarfsins. Eins og í öðrum málaflokkum hef- ur Sjálfstæðisflokkurinn haft forystu um mótun og framkvæmd skólamála í Garðabæ. Það er engin tilviljun að í stefnuskrá flokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar er mjög ít- arlega fjallað um skólamálin og þar lögð fram metnaðarfull framtíðar- áætlun, bæði hvað varðar skólabygg- ingar og skólastarf. Er ástæða til þess að hvetja alla Garðbæinga að kynna sér þá stefnu og jafnframt má vitna til þess að reynslan sýnir að sjálfstæðismenn í Garðabæ hafa jafnan staðið við kosningafyrirheit sín. Ekki er hægt að fjalla um skólamál í Garðabæ án þess að fara nokkrum orðum um fyrirhugaða byggingu nýs skóla fyrir Ása- og Strandhverfi, en í kosningabaráttunni hefur verið reynt að gera það tortryggilegt að skólanum hefur ekki verið valinn endanlega staður. Búið var að ætla skólanum ákveðinn stað, en vegna breyttra áforma um skipulag í svo- nefndu Strandhverfi hafa komið upp ný viðhorf. Nokkrir staðir koma til greina fyrir skólann og hafa sjálf- stæðismenn lýst yfir því að staðsetn- ingin verði ákveðin í samvinnu og sátt við íbúa skólahverfisins. Það er mikill misskilningur hjá stjórnarand- stöðunni í Garðabæ ef þeir halda að það sé styrkleiki í kosningabaráttu að rjúka til og setja skólann niður þar sem þeir halda að íbúar Ásahverfis- ins vilji helst hafa hann. Hér er um stærra mál að ræða en svo að skyndi- ákvarðanir séu réttlætanlegar. Slík- ar ákvarðanir eru aldrei annað en veikleikamerki. Við treystum íbúum umrædds skólahverfis fyllilega til þess að vera okkur til ráðuneytis um lokaákvörðun málsins og við erum líka þess fullviss að íbúarnir munu treysta okkur sjálfstæðismönnum til að við stöndum við fyrirheit sem gef- in hafa verið að tekið verði fullt tillit til óska þeirra og viðhorfa. Markviss og heildstæð skóla- stefna í Garðabæ Erling Ásgeirsson Garðabær Samkvæmt könnunum, segir Erling Ásgeirs- son, eru íbúar Garðabæjar ánægðari með skóla- og mennt- unarstefnu bæjarins en íbúar nokkurs annars bæjar- eða sveitar- félags á landinu. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ í komandi kosningum. sumar Nú eru komnar spennandi vörur fyrir sumarið í Mogga- búðina, kjörið tækifæri fyrir fríska ferðalanga. Þú getur keypt boli, sundpoka, töskur, golfvörur, geisladiskahulstur, klukkur, reiknivél o.fl. á einstöku verði beint af Netinu með öruggum hætti. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is og færð þær sendar heim til þín eða á vinnustað. Líttu inn hjá okkur fyrir ferðalagið! Hvítur bolur, nú 500 kr. Brúnn bolur, nú 500 kr. Armbandsúr, nú 750 kr. Þú getur líka komið við hjá okkur í Morgunblaðshúsinu, Kringlunni 1, og skoðað vörurnar þar. EINFALT OG ÞÆGILEGT! sumartilboð 50% afsláttur! Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr. Derhúfa, aðeins 800 kr. Síðermabolir, aðeins 1.300 kr. Sundpoki, aðeins 1.000 kr. Reiknivél, aðeins 950 kr. Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr. Músarmotta, aðeins 450 kr. Íþróttataska, aðeins 2.400 kr. í Moggabú›inni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.