Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 47
Álftaneshreyfingin
er hreyfing þeirra fjöl-
mörgu sem vilja efla
og treysta sjálfstætt
sveitarfélag í Bessa-
staðahreppi. Hún hef-
ur sett umhverfismál
og bætt mannlíf efst á
stefnuskrá sína.
Í samræmi við þess-
ar kröfur verða skipu-
lagsmál í hreppnum til
endurskoðunar, en á
vettvangi þeirra ræðst
hvort þær náttúru-
perlur sem Álftanesið
er svo ríkt af verði
varðveittar fyrir kom-
andi kynslóðir.
Á sama hátt stendur Álftanes-
hreyfingin fyrir þau mál sem oft
eru kölluð mjúku málin. Hér er átt
við málefni grunnskólans, leikskóla-
mál, æskulýðsmál, menningarmál,
þjónustu við aldraða og félags- og
heilbrigðismál almennt. Í öllum
þessum málaflokkum hefur Álfta-
neshreyfingin sett fram metnaðar-
fulla framtíðarsýn þar sem áhersla
er lögð á innra starf og umbætur.
Góðar undirtektir
Það er ljóst af þeim undirtektum
sem Álftaneshreyfingin hefur feng-
ið í kosningabaráttunni að íbúar
Bessastaðahrepps fagna tilkomu
þessa nýja afls í sveitarstjórnar-
málum. Hvarvetna þar sem mál
hreppsins hafa verið til umræðu
undanfarið hefur tillögum Álftanes-
hreyfingarinnar verið vel tekið.
Íbúarnir fagna líka þeirri samvinnu
og samstöðu sem Álftaneshreyfing-
in stendur fyrir.
Strax í vetur þegar skoðana-
könnun var haldin um val á fram-
boðslista kom þessi áhugi fram.
Þannig voru þátttakendur um 250
eða fleiri en í prófkjöri D-listans.
Mikið fjölmenni var við opnun
kosningamiðstöðvar Álftaneshreyf-
ingarinnar í Eyvindarholti, en þar
mættu á annað hundrað stuðnings-
menn.
Á fundi með foreldrum barna í
Álftanesskóla um skólamál fögnuðu
fundarmenn vönduðum og fagleg-
um málflutningi fulltrúa Á-listans.
Á þessum fundi varð hins vegar
flestum ljóst að D-list-
inn var á flótta frá
eigin tillögum í mál-
efnum unglingadeildar
skólans. Þeir ætla að
þrengja að núverandi
skólastarfi og hafa
ekki metnað til að
undirbúa, eins og þarf,
skólaumhverfi fyrir
komu unglingadeildar-
innar.
Í síðustu viku boð-
uðu svo konur innan
Álftaneshreyfingarinn-
ar til samkomu í Ey-
vindarholti og þar
mættu um 100 konur,
m.a. fjölmargar konur
nýfluttar í hreppinn. Sú gleði sem
þar ríkti er merki um þann sterka
vilja til að efla þessa nýju hreyf-
ingu íbúanna.
Þessir viðburðir sýna að Álfta-
neshreyfingin hefur hljómgrunn
meðal íbúa Bessastaðahrepps og
opinberar að núverandi meirihluti
er þreyttur og úr tengslum við
fólkið.
Ábyrg stefnuskrá
gegn loforðaflaumi
Álftaneshreyfingin hefur sent frá
sér ábyrga stefnuskrá sem grund-
vallast á þeim áherslum sem áður
eru nefndar, umhverfi og mannlífi.
Stefnuskráin er ábyrg og traust og
laus við þann óábyrga loforðaflaum
sem D-listinn setur fram. Þannig er
ákveðið að stilla framkvæmdir að
fjárhagsgetu og tvinna saman þarf-
ir umhverfis og fólks.
Skuldastefna D-listans hefur
jafnframt verið gagnrýnd, en
skuldir hafa á fjórum árum vaxið
úr 150 milljónum í 600 miljónir.
Þessi ábyrga stefnuskrá fór mjög
fyrir brjóstið á frambjóðendum D-
listans. Í kosningabaráttunni hafa
þeir reynt að stimpla Álftanes-
hreyfinguna sem afturhaldsafl
andsnúið framkvæmdum. Þessi
kosningaáróður hefur ekki bitið. Í
örvæntingu sinni nú undir lok
kosningabaráttunnar hefur D-list-
inn snúið áróðri sínum við. Þannig
segja þeir í nýútkomnum Grásteini
að fyrirhugaðar framkvæmdir
Álftaneshreyfingarinnar muni
skuldsetja sveitarsjóð meira en
áform D-listans. Bullað er með töl-
ur og áætlanir út og suður þannig
að hvað rekur sig á annars horn.
Er frambjóðendum D-listans ekki
lengur sjálfrátt? Þessi umskipti í
áróðri þeirra ber vott um tauga-
veiklun, enda brosir fólk í hreppn-
um að þessum vandræðagangi.
Kvíði við úrslitin í maí birtist líka
í geðvonskuskrifum, t.d. í grein
oddvita þeirra í Morgunblaðinu í
síðustu viku, þar sem slengt er
fram útslitnum frösum í stað þess
að ræða málin af yfirvegun. Þessi
umskipti í áróðri og vonskuskrif
munu ekki bíta frekar en áróður
þeirra áður.
Álftaneshreyfingin stendur
fyrir samstöðu íbúanna
Álftaneshreyfingin er breiðfylk-
ing fólks úr þremur flokkum og
óflokksbundins fólks. Þetta fólk
hefur fundið farveg fyrir hugsjónir
sínar í málefnum Bessastaðahrepps
innan Álftaneshreyfingarinnar.
Álftaneshreyfingin er komin til að
vera. Hún biður um umboð til að
stjórna Bessastaðahreppi næstu
fjögur árin og heitir íbúunum að
leiða málefni hreppsins til fram-
fara. Við frambjóðendur Álftanes-
hreyfingarinnar hvetjum alla
stuðningsmenn okkar til að vinna
vel þá fáu daga sem eftir eru til
kosninga. Allir þurfa að leggjast á
eitt til að sigurinn verði okkar í
maí. Gerum hugsjónir okkar um
vistvænt og mannvænlegt samfélag
í Bessastaðahreppi að veruleika í
starfi og uppbyggingu. Setjum X
fyrir framan Á.
Íbúar Bessastaðahrepps taka
undir með Álftaneshreyfingunni
Sigurður
Magnússon
Bessastaðahreppur
Þessir viðburðir sýna,
segir Sigurður
Magnússon, að Álfta-
neshreyfingin hefur
hljómgrunn meðal íbúa
Bessastaðahrepps.
Höfundur skipar efsta sæti Á-listans.
Það er
Verslun
Kringlunni
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
SS
1
77
90
05
/2
00
2
islandssimi.is
að gefa
gott
GJAFADAGAR Í KR INGLUNNI
16 . - 18 . MAÍ
Frítt ADSL
mótald
Aztech ADSL PCI módem fylgir
12 mánaða áskrift.
Mánaðargjald
256 kb/s frá 2.900 kr.
Stofngjald 6.225 kr.
Veldu pakka sem hentar
256 Kb/s 100 MB 2.900
512 Kb/s 100 MB 5.400
2,49 kr. fyrir hvert umfram MB
256 Kb/s 1GB 5.600
512 Kb/s 1GB 8.100
Frítt innanlands á kvöldin. 75% afsláttur á daginn.
20% afsláttur af erlendu niðurhali á kvöldin.
Intnernet aðgangur innifalinn.
fyrir bjarts‡na
fiegar flig vantar sólgleraugu
A
B
X
/S
ÍA
9
0
2
0
7
0
7
-1