Morgunblaðið - 17.05.2002, Side 2
Lárus Orri Sigurðsson er búinn
að semja við WBA / C1
8 SÍÐUR Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Í sandölum og ermalausum bol/B1
Fordómar alltof mikil einföldun/B2
FÍT – Fiðlur, ígerðir og tjón/B4
Edrú og frjáls/B6
Auðlesið efni/B8
Í l r l l
r r llt f i il i f l
Í i l r, í r ir tj
r frj l
l i f i
Sérblöð í dag
Hannes Þ. Sigurðsson vekur
athygli í Noregi / C4
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TVEIR pólskir ljósmyndarar, Tom-
ek Gkowacki og Jakub Kowalczyk,
gengu frá Stafafelli í Lóni um
Lóns- og Snæfellsöræfi út í Hrafn-
kelsdal og voru á ferðinni í hret-
unum sem nú eru að ganga yfir
Austurland.
Í fyrrakvöld hringdu ábúendur á
Stafafelli í lögregluna á Höfn í
Hornafirði og lýstu áhyggjum sín-
um yfir afdrifum mannanna, þeir
hafi ætlað að hringja og láta vita af
ferðum sínum en ekki gert. Hóf
lögregla eftirgrennslan og í gær
var lýst eftir Pólverjunum í svæð-
isútvarpi Austurlands. Í framhald-
inu hringdi fréttaritari Morgun-
blaðsins á Vaðbrekku í Jökuldal í
lögreglu og tjáði henni að menn-
irnir hefðu gefið sig fram á bænum
á sunnudag.
Í samtali við fréttaritara kom
fram að Pólverjarnir hrepptu af-
takaveður við Geldingafell og í
Hálsi við Jökulsá á Dal enda ekki
heiglum hent að vera gangandi um
öræfin á þessum árstíma, þó sumar
sé komið samkvæmt dagatalinu.
Þeir Tomek og Jakub gengu frá
Stafafelli í Lóni upp með Jökulsá í
Lóni um Víðidal og Kollumúla til
Geldingafells. Á leiðinni milli
Kollumúla og Geldingafells
hrepptu þeir aftakaveður og gekk
illa að finna Geldingafellsskálann
en þeir voru með kort sem skálinn
var vitlaust merktur inn á.
Lengsta dagleiðin var frá Geld-
ingafelli í Snæfellsskála um Eyja-
bakkajökul en þeir voru 11 tíma að
ganga þá leið. Næsti áfangi var úr
Snæfellsskála vestur í Háls þar sem
þeir gistu í Lindum. Þar reyndu
þeir að vaða Jökulsá á Dal til að
komast í bað á Laugavöllum en áin
var of straumþung og er reyndar
alls ekki væð á þeim slóðum.
Sneru þeir þess vegna til Hrafn-
kelsdals um Búrfell og hrepptu aft-
ur aftakaveður á þeirri leið og
sögðust hafa haldið að þeirra síð-
asta stund væri runnin upp. Kom-
ust þeir samt við illan leik ofan í
Glúmstaðadal og náðu að tjalda við
Tungusporð þar sem var skárra
veður. Gengu þeir þaðan út í Vað-
brekku og fengu bílfar til Egils-
staða alls hugar fegnir.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Tomek Gkowacki og Jakub Kowalczyk á hlaðinu á Vaðbrekku.
Gengu Lónsöræfi og
hrepptu aftakaveður
Í DAG verður lögð fyrir Íþrótta-
og tómstundaráð tillaga fulltrúa
Sjálfstæðisflokks um að kanna
hug íþróttafélagsins Fjölnis í
Grafarvogi um að selja bygging-
arrétt á lóðum sem nú eru ætl-
aðar fyrir æfingasvæði og nýta
fjármuni til að byggja strax upp
æfingaaðstöðu annars staðar.
Á fundi borgarstjórnar í gær
sagðist borgarstjóri viljug til að
ræða hvort önnur svæði en
Gylfaflöt væru hentugri sem
íþróttasvæði Fjölnis. Sagði hún
að til greina kæmi að gera lóð-
ina að byggingarlóð en íþrótta-
svæði yrði byggt upp annars
staðar.
Rætt um
að flytja
íþróttasvæði
Fjölnis
TRYGGVI Rúnar Guðjónsson var í
gær dæmdur í 10 ára fangelsi af
Hæstarétti, fyrir að flytja inn tæp-
lega 17.000 e-töflur, um 200 grömm
af kókaíni og rúmlega 8 kg af hassi.
Þetta er þyngsti dómur sem Hæsti-
réttur hefur kveðið upp í fíkniefna-
máli. Með broti sínu rauf Tryggvi
skilorð á eftirstöðvum tveggja ára og
þriggja mánaða fangelsisrefsingar.
Þá var þyngsta refsing fyrir fíkni-
efnabrot 10 ára fangelsi en vegna
skilorðsrofsins dæmdi Héraðsdómur
Reykjavíkur hann í 11 ára fangelsi.
Aðalmeðferð málsins fór tvisvar
fram í héraði þar sem dómarinn, sem
fór með málið í fyrra skiptið, reynd-
ist vanhæfur.
Tryggvi og ríkissaksóknari áfrýj-
uðu málinu til Hæstaréttar. Krafðist
Tryggvi þess aðallega að dómnum
yrði vísað heim í hérað til nýrrar að-
almeðferðar en ríkissaksóknari vildi
fá refsinguna þyngda. Kröfu um
ómerkingu byggði Tryggvi á því að
við síðari aðalmeðferðina hefðu tvö
vitnanna ekki komið að nýju fyrir
dóm og hið þriðja hefði neitað að tjá
sig. Fram kemur í dómnum að sú
sem neitaði að tjá sig var fyrrum
sambýliskona hans, eitt vitnið sinnti
ekki kvaðningu fyrir dóm en þriðja
vitnið bar að hún hefði fengið hótanir
frá og hræddist Tryggva og menn
sem honum tengdust. Þá hefði hún
fengið ótal hringingar frá Tryggva
kvöldið áður en hún átti að mæta fyr-
ir dóm. Hún vísaði til þess sem hún
hefði áður sagt fyrir dómi og hún
hefði engu við það að bæta.
Hæstiréttur taldi að héraðsdóm-
ari hefði gert rétt með því að líta til
framburðar vitnanna við fyrri aðal-
meðferð málsins og nægar sannanir
væru komnar fyrir sekt Tryggva.
Ekki var fallist á að héraðsdómur
hefði þurft að vera fjölskipaður eða
að Tryggvi Rúnar hefði talið að hann
væri að flytja inn hass í stað e-taflna.
Sigríður J. Friðjónsdóttir sak-
sóknari sótti málið f.h. ríkissaksókn-
ara en Kristinn Bjarnason var til
varnar. Málið dæmdu hæstaréttar-
dómararnir Guðrún Erlendsdóttir,
Garðar Gíslason, Haraldur Henrys-
son, Hrafn Bragason og Pétur Kr.
Hafstein.
10 ára fangelsi fyr-
ir fíkniefnasmygl
eru hlið við hlið í sama húsinu. „Ég
hafði heyrt að við hefðum sameig-
inlegt klósett þarna, það er nú ekki
nema eitt klósett, en framtíðin er
ekki björt því samvinnan byrjaði
með þeim hætti að Halldór læsti
þessu klósetti þannig að við höfum
ekki aðgang að því,“ sagði Guðni.
Umræddur Halldór er Jónsson
og skipar hann efsta sæti A-listans.
Til að bregðast við orðum Guðna
komu A-listamenn fyrir útikamri
fyrir utan skrifstofurnar í gær-
morgun og buðu framsóknarmönn-
um að létta af sér. Um miðjan dag
KOSNINGABARÁTTAN fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar á Ísa-
firði tók nokkuð sérkennilega
stefnu í gær þegar fulltrúar A-lista
Nýs afls lögðu útikamri fyrir utan
kosningaskrifstofur listans og buðu
framsóknarmönnum að nota hann
að vild. Kamarinn var síðar fjar-
lægður að kröfu lögreglustjóra.
Forsagan er sú að í blaðinu Bæj-
arins besta var viðtal við Guðna
Geir Jóhannsson, oddvita fram-
sóknarmanna, þar sem hann lýsir
samstarfinu við A-lista, en kosn-
ingaskrifstofur A-lista og B-lista
var kamarinn hins vegar fjarlægður
að kröfu lögreglustjórans en m.a.
var gerð athugasemd við að kam-
arinn stæði uppi á gangstétt. „Hing-
að komu lögreglumenn með þau
skilaboð frá lögreglustjóra að kam-
arinn skyldi fjarlægja hið fyrsta.
Við urðum að sjálfsögðu strax við
þeim óskum og fjarlægðum kamar-
inn, enda er A-listinn skipaður fá-
dæma löghlýðnum einstaklingum,“
sagði Halldór í samtali við Bæjarins
besta og óskaði um leið framsókn-
armönnum góðs gengis við lausn
salernismála sinna.
Framsóknarmenn
máttu nota náðhúsið
Tekist á um salernismál í kosningabaráttunni á Ísafirði
INGA Jóna Þórðardóttir borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks gerði að
umtalsefni á borgarstjórnarfundi í
gærkvöldi viljayfirlýsingu, dagsetta
26. apríl, milli Reykjavíkurborgar,
Frumafls og Markarholts, um að
stofna félag um byggingu hjúkr-
unarheimilis í Sogamýri. Yfirlýs-
ingin hafði verið kynnt í borgarráði
áður en viljayfirlýsing heilbrigðis-
ráðherra og borgarstjóra var kynnt
fyrr í vikunni.
Á fundi borgarráðs 7. maí óskuðu
sjálfstæðismenn eftir að fá upplýs-
ingar um fyrri viljayfirlýsinguna og
spurðu hvort Frumafl kæmi til með
að reisa og reka heimili í Sogamýri.
„14. maí kom ný yfirlýsing og þá
voru þessir aðilar ekki lengur inni í
myndinni og ég kann ekki skýringu
á því. En ég velti fyrir mér hvort
hugmyndir um þátttöku Frumafls
og umræða í fjölmiðlum um það
hafi komið illa við vinstrigræna í R-
listanum,“ sagði Inga Jóna.
Þess freistað að losa
R-listann úr vandamálum
Sagði Inga Jóna að vinstrigrænir
hefðu áður lýst andstöðu við að
einkaaðilar komi til liðs við opin-
bera aðila við uppbyggingu í vel-
ferðarkerfinu. „Það má vel vera að
þetta hafi að einhverju leyti verið
ástæðan fyrir því að borgarstjóri
fór á stúfana og freistaði þess að
leita eftir samkomulagi við ríkis-
valdið til að losa R-listann úr þeim
vandamálum sem hann þarna var
kominn í.“
Sagði hún R-listann hafa varið
litlum fjármunum til uppbyggingar
þjónustu aldraðra miðað við þá
fjármuni sem Sjálfstæðisflokkurinn
lagði fram á sínum tíma. Inga Jóna
sagði uppbyggingu í tíð R-listans
hafa verið fyrir tilstilli og forgöngu
annarra.
Eðlilegt að ríkið komi að
þjónustunni í meiri mæli
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri lagði áherslu á að eðli-
legt væri að ríkið kæmi að upp-
byggingu þjónustu fyrir aldraða í
meiri mæli en verið hefur. Benti
hún á að ríkið kæmi með 40% fram-
lag á móti borginni í þessum efnum
en 60% yrði að finna eftir öðrum
leiðum. Benti hún á að Fram-
kvæmdasjóður aldraðra hefði verið
stofnaður sérstaklega til þessa, en
sífellt meira væri tekið úr honum í
rekstur og æ minna til uppbygg-
ingar. „Gert er ráð fyrir að Reykja-
víkurborg leggi 1,4 milljarða til
uppbyggingar hjúkrunarrýma aldr-
aðra á komandi árum og tel ég
þeim fjármunum vel varið, vegna
þess að sá áfangi sem náðst hefur í
þetta sinn í þessum samningum er
að ríkið komi með 70% framlag.“
Yfirlýsing um hjúkrunar-
heimili rædd í borgarstjórn