Morgunblaðið - 17.05.2002, Blaðsíða 6
Hef lengi haft á tilfinning-
unni að svona gæti farið
GUÐJÓN Þórðarson sagðivið Morgunblaðið að í raunog veru væri langur að-dragandi að brotthvarfi
hans frá félaginu og hann hefði lengi
haft á tilfinningunni að svona gæti
farið.
„Segja má að fyrst hafi borið á milli
mín og stjórnarmanna félagsins í
fyrravor eftir að samningi mínum við
félagið var breytt. Þá
var gerð sú krafa að
Stoke færi upp í vetur,
ég fékk ákveðinn leik-
mannahóp til umráða
og við mig var sagt að
ef leikmenn yrðu seldir
úr honum, yrðu pening-
arnir nýttir til að
styrkja hópinn í stað-
inn. Síðan voru Peter
Thorne og Graham
Kavanagh seldir og þá
kom í ljós að stjórnar-
menn félagsins stóðu
ekki við það sem þeir
sögðu – ég fékk ekki
menn í staðinn og orð
þeirra skiptu ekki máli þegar á
reyndi.“
Hafðir þú engin samskipti við
stjórnarmenn síðustu vikurnar?
„Þau voru mjög lítil, enda hef ég
haft um nóg annað að hugsa. Ég var
mest í samskiptum við varaformann-
inn, Stefán G. Þórisson, sem var sá
eini sem í raun var hægt að tala við.
Það er hinsvegar ekki rétt að við
Gunnar Gíslason stjórnarformaður
höfum ekki talast við. Ég ræddi oft
við hann, eftir honum hefur verið haft
að það hafi verið á fagmannlegum
nótum en í þær viðræður vantaði fag-
mennskuna hjá honum. Viljinn til
samskipta var ekki mikill af þeirra
hálfu. En þeir geta ekki fært nein rök
fyrir þeim fullyrðingum að um sam-
starfsörðugleika hafi verið að ræða.
Ég var ekki sammála þeim, það er allt
og sumt.“
Varst þú aldrei boðaður á fund eftir
sigurinn á Brentford?
„Eftir leik hvatti ég stjórnarmenn
til að ganga hratt til verks því nú
þyrfti að vinna í málum af fullum
dampi. Þeirra svar við því var að reka
mig. Það er ljóst að þeim líkaði ekki
að ég væri að segja þeim fyrir verk-
um. En ég var bara að benda á stað-
reyndir. Vegna úrslitakeppninnar
voru önnur félög komin með 2-3 vikna
forskot á okkur í að skoða markaðinn
og undirbúa sig fyrir næsta tímabil.
Um þetta leyti er óvenju mikið af leik-
mönnum með lausa samninga og þar
voru margir sem ég var búinn að
sigta út og taldi að myndu styrkja
okkur. Ég taldi mikilvægt að ná réttu
mönnunum inn og ganga strax í það
að gera réttu samningana.“
Kom þér niðurstaða fundarins á
miðvikudagskvöld á óvart?
„Ekki beinlínis því ég sá í hvað
stefndi. Á þessum fundi var afgerandi
meirihluti fyrir því að segja mér upp,
en ég tel að það segi ekki alla söguna.
Á fundinn vantaði marga af stjórn-
armönnum Stoke Holding. Ég taldi
reyndar að formaður þess félags,
Magnús Kristinsson, styddi mig, en
hann gerði það ekki þegar á reyndi.
En þeir ákváðu þetta, og það er í
þeirra valdi – þeir eiga félagið. Það er
hinsvegar dálítið sérstakt, eftir að
hafa kynnst því hjá Englendingum að
þar skulu orð manna standa, og menn
eru hiklaust leiddir fyrir dómstóla ef
svo er ekki. Íslendingar virðast setja
önnur viðmið; að það sé ekki skilyrði
að standa við það sem menn segja.
Það er líka ljóst að stjórnarmenn
Stoke gera sér ekki grein fyrir öllu. Í
nýja samningnum sem gerður var við
mig í fyrravor var eins mánaðar upp-
sagnarfrestur, þeirra varnagli þannig
að þeir gætu sagt mér
upp án skuldbindinga og
tilkostnaðar ef liðinu
gengi ekki vel í vetur.
Ég féllst á það, gat ekki
annað í þeirri stöðu sem
ég var í þá. Síðan næ ég
settu marki fyrir þá, fer
með liðið upp í 1. deild,
og þá er ég verðlaunað-
ur með því að mér er
sagt upp þremur dögum
eftir að haldið er upp á
sigurinn.“
„Þú talar um upp-
sögn, Guðjón, en er ekki
um það að ræða að
samningur þinn við fé-
lagið sé látinn renna út og ekki end-
urnýjaður?
„Þegar Gunnar hringdi í mig eftir
fundinn á miðvikudag sagði hann mér
að samningurinn yrði ekki endurnýj-
aður. Síðan barst mér bréfið frá þeim
í morgun og þar kom fram að um upp-
sögn væri að ræða. Þar með komst ég
að því að þeir væru með þessu að
spara sér tíu daga launagreiðslu til
mín, því ég átti inni sumarfrí. Þetta
eru stórhuga menn; þessar aðferðir
segja meira um mennina sem standa
að þessari ákvörðun en nokkurn tíma
um mig, og sýnir þakklætið í minn
garð fyrir þau störf sem ég hef lagt á
mig fyrir þá.“
Í yfirlýsingu frá stjórn Stoke segir
að þú hafir ekki alltaf sætt þig við þær
peningalegu takmarkanir sem þú haf-
ir orðið að vinna við?
„Þetta finnst mér einmitt forvitni-
legast við yfirlýsinguna því þessar
fjárhagslegu forsendur voru aldrei
ræddar við mig. Þeir sögðu að ég gæti
ekki unnið á þeim nótum sem þeir
myndu setja. En þeir hafa aldrei rætt
við mig um annan samning, starfs-
vettvang, eða neitt annað, og það að
segja að samstarfsörðugleikar séu
ástæðan fyrir uppsögninni eru afar
léttvæg rök. Þeir geta ekki bent á
neitt þar sem ég hef gengið á sveig við
samþykktir stjórnar. Þeir eiga alltaf
lokaorðið í öllum málum og ég gat
aldrei skuldbundið félagið fjárhags-
lega. Það eina sem ég gat gert var að
leggja til að þeir gerðu ákveðna hluti,
síðan var það í þeirra valdi hvort þeir
færu eftir því. Það má vel vera að
þeim fyndist ég ekki fara að þeirra
ráðum en ég taldi mig vera í þeirri
stöðu að ég þyrfti ekki á þeirra ráðum
að halda. Ef vel á til að takast við upp-
byggingu félags þarf að byggja upp
samstöðu leikmanna og starfsliðs,
liðsandinn skiptir miklu máli. Líka að
fólkið sem vinnur í kringum liðið sé í
jafnvægi og í lagi, og góður starfsandi
í húsinu, hjá öllu starfsfólki félagsins.
Sumir líta bara á starfsmennina sem
tölur í bókhaldi, sem hægt er að
skipta út með einföldum hætti og
setja aðra tölu inn í staðinn.“
Ertu að segja að viðhorf stjórnar-
manna Stoke til starfsfólks félagsins
sé á þann veg?
„Ég læt þér alveg eftir að túlka
það. En einn hérlendur fréttamaður
sagði við mig áðan: „Hvernig fara
þeir með útlendingana, þegar þeir
fara svona með sinn besta mann.“ Það
verður forvitnilegt að sjá og margir
spyrja sig þeirrar spurningar.“
Þú áttir sjálfur hugmyndina að ís-
lensku yfirtökunni á Stoke. Nú halda
yfirráð Íslendinganna áfram en þú
hverfur á braut. Einkennileg staða?
„Þetta er mjög sérstök staða, eink-
um eftir að hafa náð félaginu svona
vel á veg eins og raun ber vitni. Það
verður sárt að sjá annan mann upp-
skera og njóta ávaxtanna af minni
vinnu. Þessi viðskilnaður við félagið
er mér mjög sár. Það hefur ekki verið
átakalaust að breyta hlutunum hérna
en mér hefur tekist að búa til
skemmtilegt fótboltalið sem var jafn-
framt tilbúið til að takast á við barátt-
una í 2. deildinni. Það var talað um að
minn helsti galli væri að ég reyndi að
spila of mikinn fótbolta í þessari deild
en ég sagði alltaf að ég yrði að búa til
gott fótboltalið. Þegar að því kæmi að
það færi upp í 1. deild yrði ég að vera
með lið í höndunum sem gæti haldið
áfram að þróast þar en væri ekki á
byrjunarreit þegar upp væri komið.
Og þetta Stoke-lið er ekki á neinum
byrjunarreit í 1. deild. Það er því afar
svekkjandi að fara frá félaginu á þess-
ari stundu, það er leiðinlegt að yfir-
gefa sköpunarverk sitt og láta aðra
njóta góðs af öllu því erfiði sem maður
hefur lagt á sig. Frá því undirbún-
ingstímabilið hófst í júlí á síðasta ári
og þar til seinnipartinn í mars átti ég
einn frídag, sem var jóladagur. Í
þessari vinnu eru dagarnir oft langir;
ég keyrði til að horfa á leiki, kom
heim klukkan 11-12 á kvöldin og var
mættur upp á völl klukkan 9 morg-
uninn eftir. Það voru 2-3 leikir í gangi
í viku, ég kappkostaði að fylgjast með
varaliðinu og fara á leiki annarra liða.
Þetta var því mikil vinna, en ég kann
ekki annað, ég er gífurlega metnaðar-
gjarn og set allt mitt stolt í það sem
ég tek mér fyrir hendur.“
Ætlar þú að höfða mál á hendur
Stoke vegna uppsagnarinnar?
„Ég gekk í samtök knattspyrnu-
stjóra í deildakeppninni strax og ég
kom til Stoke og þau eru geysilega
sterk. Forsvarsmaður þeirra, John
Barnwell, hafði samband við mig
strax í morgun og bauð mér aðstoð.
Samtökin eru með lögfræðinga á sín-
um snærum og sjá um þetta allt sam-
an. Ég sendi þeim öll mín gögn, samn-
inginn við Stoke, líka þann gamla sem
var ógiltur í fyrravor. Ef þessir lög-
fræðingar telja að á mér hafi verið
brotið, munu þeir skrifa Stoke og
gera félaginu grein fyrir því. Það er
ekkert grín að glíma við þessa menn,
því hafa margir kynnst.“
Hefur þú fengið viðbrögð frá leik-
mönnum og stuðningsmönnum?
„Einn leikmaður hefur haft sam-
band við mig enn sem komið er, það
er allt of sumt. En ég er búinn að fá
þúsundir tölvuskeyta, korta og bréfa
frá stuðningsfólki félagsins þar sem
ýmist er óskað eftir því að ég verði
áfram hjá Stoke eða mér þakkað fyrir
störf mín fyrir félagið. Þau viðbrögð
hafa verið afar sterk. Hinir almennu
stuðningsmenn Stoke hafa sýnt mér
mikinn skilning í vetur. Þessi þróun
mála er greinilega mikið áfall fyrir
marga, stuðningsmenn sem starfs-
fólk félagsins. Það væri forvitnilegt
fyrir marga að tala við mitt sam-
starfsfólk hjá félaginu og spyrja það
um samstarfsörðugleikana. Þá fengju
menn eflaust nýja sýn á málin.“
Hver var þín framtíðarsýn fyrir
hönd Stoke?
„Það var lögð mikil vinna í liðið í
vetur og það nánast byggt upp frá
grunni. Ætlunarverk okkar tókst
þrátt fyrir mikla erfiðleika vegna
meiðsla á tímabilinu, ég þurfti að
glíma við 7 beinbrot, tvenn brjósklos,
slitin krossbönd og blóðtappa í leik-
mannahópnum. Samt fórum við upp.
Þetta er tiltölulega ungt lið sem
myndi lifa af 1. deildina en ekki gera
neinar rósir. Ég hafði hugsað mér að
setja upp þriggja ára áætlun sem
gekk út á það að liðið myndi festa sig í
sessi í 1. deild á fyrsta ári, komast upp
í miðja deild á öðru ári og gera atlögu
að sæti í úrslitakeppninni um úrvals-
deildarsæti á þriðja ári. Þetta taldi ég
að væri raunhæft mat, sem síðan færi
eftir því fjármagni sem fengist. Hjá
Stoke var heildarlaunareikningur
fyrir tímabilið aðeins þrjár milljónir
punda. Í 2. deild voru Cardiff, Hudd-
ersfield, Reading, Wigan og Bristol
City öll með hærri launagreiðslur.
Cardiff keypti leikmenn fyrir sjö
milljónir punda, en lið Stoke sem sló
Cardiff út í úrslitakeppninni kostaði
500 þúsund pund.“
Hvaða tilfinningar berð þú til
Stoke eftir þessar lyktir mála?
„Stoke á frábæra stuðningsmenn
sem hafa stutt vel við bakið á mér,
sérstaklega síðustu vikurnar, og hafa
um leið verið mjög skilningsríkir. Ég
mun horfa til tímans hjá Stoke sem
mjög góðs hluta af mínu lífi. Þetta er
búinn að vera skemmtilegur tími, um
leið gífurlega erfiður og krefjandi, en
ég hef notið hverrar mínútu. Ekki síst
þess að hafa tekist að færa þessu frá-
bæra fólki 1. deildarfótboltann sem
það hefur beðið lengi eftir. Starfsfólk-
ið hér er stórkostlegt og það var afar
erfitt að kveðja það í morgun; þá
sáust tár á hvörmum.“
Hvert horfir Guðjón Þórðarson á
þessari stundu?
„Núna horfi ég til suðvesturs, til
sólar sem er hátt á lofti hér í Stoke
þessa stundina! Hjá mér er ekkert
fast í hendi, aðeins vangaveltur en
ekkert meira en það. Ég mun skoða
mín mál í rólegheitum. Ég hefði gam-
an af því að vera áfram hér í Englandi
en ég gæti þurft að fara héðan. Það
kom fram á fréttamannafundi sem ég
boðaði til að kveðja pressuna, að ég
væri búinn að ná árangri á hálfu
þriðja ári sem öðrum hefði ekki tekist
á mörgum árum og jafnvel aldrei. Ég
hef ekki hugmynd um hvað ég geri
næst. Ætli ég fari ekki fljótlega að líta
í kringum mig.“
Guðjón Þórðarson þjálfari um brotthvarf sitt frá enska knattspyrnuliðinu Stoke City
Guðjón Þórðarson stjórnar ekki lengur
enska liðinu Stoke City. Í fyrrakvöld var
ákveðið á stjórnarfundi hjá Stoke að rifta
samningnum við Guðjón. Víðir Sigurðsson
ræddi við Guðjón í gær um viðskilnað hans
við Stoke og meinta samstarfsörðugleika.
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐJÓN Þórðarson átti frum-
kvæði að því að í október árið 1999
gerði hópur íslenskra fjárfesta til-
boð í ráðandi hlut í enska knatt-
spyrnuliðinu Stoke City. Hann setti
sig í samband við Kaupþing, sem
hóaði saman hópi fjárfesta. Stofnað
var eignarhaldsfélagið Stoke Hold-
ing um kaupin.
Þetta tilboð hljóðaði upp á ríflega
700 milljónir króna. Fyrir 51%
hlutafjár yrðu greiddar 400 millj-
ónir, 115 milljónir færu til kaupa á
nýjum leikmönnum, annað eins til
greiðslu gjaldfallinna skulda og ríf-
lega fimmtíu milljónir til bættrar
æfingaaðstöðu. Svo virtist sem
heimamenn væru yfir sig ánægðir
með tilboðið, enda teldu þeir þörf á
nýju blóði í þetta forna knatt-
spyrnuveldi.
Tilboðið dregið til baka
Helst höfðu menn áhyggjur af
framtíð knattspyrnustjórans Gary
Megsons, sem nýlega hafði tekið við
liðinu og staðið sig afar vel. Til
gamans má geta að í ár var Megson
valinn knattspyrnustjóri ensku
fyrstu deildarinnar, en hann leiddi
lið West Bromwich Albion upp í úr-
valsdeildina á liðnu tímabili.
Í lok októbermánaðar kom þó
babb í bátinn. Við nánari skoðun
kom í ljós að fjárhagsstaða Stoke
var ekki jafn góð og gefið hafði ver-
ið í skyn. Þriðjudaginn 26. október
1999 var tilkynnt að fallið hefði ver-
ið frá kaupunum. Ástæðan var sögð
auknar kröfur um yfirtöku skulda.
Skoðun Kaupþings hf. á bókhaldinu
leiddi í ljós að bókfært verð leik-
manna liðsins var mun hærra en
markaðsverð, auk þess að skuldir
félagsins voru umtalsvert hærri en
tilboðið gerði ráð fyrir. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins námu
þær um 100 milljónum króna.
Nýtt tilboð samþykkt
Nokkrum dögum síðar var komið
annað hljóð í strokkinn. Sam-
komulag um kaup Stoke Holding á
knattspyrnufélaginu Stoke City FC
var undirritað að morgni 2. nóv-
ember 1999. Samkvæmt því nam
eignarhlutur íslensku fjárfestanna
66% og fyrir þann hlut voru greidd-
ar um 700 milljónir króna. Samn-
ingurinn var staðfestur með blaða-
mannafundi 15. nóvember. Þá
tilkynnti nýr stjórnarformaður
Stoke City, Gunnar Þór Gíslason, að
Guðjón Þórðarson væri ráðinn
knattspyrnustjóri í stað Gary Meg-
sons.
Fjölmargir enskir blaða- og
fréttamenn mættu á staðinn, breska
ríkisútvarpið útvarpaði beint frá
fundinum og meðal gesta voru
frammámenn í samtökum stuðn-
ingsmanna.
Blaðamannafundurinn gekk bet-
ur en bjartsýnustu menn höfðu þor-
að að vona. Íslendingunum var tek-
ið afar vel af íbúum Stoke-on-Trent,
sem margir sögðust binda miklar
vonir við hina nýju stjórn.
Frá undirskrift samnings um kaup Stoke Holding á Stoke City FC.
Kaupin á Stoke
hugmynd Guðjóns
vs@mbl.is
Guðjón Þórðarson