Morgunblaðið - 17.05.2002, Page 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KARL Kristjánsson, heilsu-
gæslulæknir í Hafnarfirði, varði 1.
mars sl. doktorsritgerð sína við
Gautaborgar-
háskóla. Ritið
nefnist Blood
pressure, blood
pressure dev-
elopment and
potential risk
factors for hyp-
ertension with
special reference
to metabolic
factors and kidney function. Leið-
beinendur Karls við þessar rann-
sóknir voru Calle Bengtsson, fyrr-
verandi prófessor við
heimilislæknisfræðildeild Gauta-
borgarháskóla, og prófessor Jó-
hann Ágúst Sigurðsson við heim-
ilislæknisfræði læknadeildar
Háskóla Íslands. Andmælandi var
Matti Klockars, prófessor í sam-
félags- og atvinnulækningum við
Háskólann í Helskinki, Finnlandi.
Rannsóknir Karls eru samvinnu-
verkefni þessara tveggja háskóla
og byggjast á hóprannsókn
Hjartaverndar og hóprannsókn á
konum í Gautaborg, en þessar hóp-
rannsóknir hófust báðar á svip-
uðum tíma á árunum 1967–1968 og
hefur verið haldið áfram til dags-
ins í dag. Efniviðurinn skapar
þannig einstakt tækifæri til þess
að skoða þróun ýmissa áhættu-
þátta hjarta- og æðasjúkdóma á
mjög löngum tíma. Eins og titill
rannsóknarinnar gefur til kynna
beindust rannsóknir Karls að lang-
tíma þróun blóðþrýstings, tíðni há-
þrýstings og ýmissa þátta sem
geta haft áhrif á hækkun á blóð-
þrýstingi með árunum.
Stór hluti eldri kvenna
þjáist af háþrýstingi
Samkvæmt eldri skilgreiningum
á háþrýstingi höfðu allt að 77% 78
ára kvenna háþrýsting og þessi
tala fór upp í 95% í sama ald-
urshóp ef stuðst væri við núver-
andi skilgreiningar (efri mörk 140
og/eða neðri mörk 90 mm Hg).
Niðurstöður sýndu að offita og
þyngdaraukning eykur verulega
áhættuna á að fá háþrýsting. Þær
konur sem höfðu háþrýsting voru
einnig í tvöfalt meiri áhættu að fá
sykursýki en aðrar. Rannsóknirnar
styðja margar aðrar rannsóknir
sem sýna að bæði sykur og insúlin
hækkar í blóði mörgum árum áður
en vart verður við háþrýsting og
að minnkað næmi fyrir insúlíni í
fitu og vöðvavef geti verið sameig-
inlegur orsakaþáttur fyrir syk-
ursýki og háum blóðþrýstingi.
Enda þótt ístra sé talin áhættu-
þáttur hjarta- og kransæða-
sjúkdóma virtist aukin ístrusöfnun
ekki hækka blóðþrýstinginn til
lengri tíma. Eggjahvíta í þvagi hjá
frískum konum virtist ekki spá
fyrir um þróun blóðþrýstings
næstu 24 árin.
Niðurstöðurnar efla skilning vís-
indamanna á orsökum og samvirk-
andi þáttum efnaskipta sem geta
leitt til hjarta og æðasjúkdóma.
Auðvelt er að mæla þessa áhættu-
þætti í heilsugæslunni og efla
þannig forvarnir þegar það á við.
Karl Kristjánsson er fæddur
1958. Hann vinnur sem heilsu-
gæslulæknir við Heilsugæslustöð-
ina Sólvangi í Hafnarfirði. Karl er
giftur Steinunni G. Helgadóttur
myndlistarmanni og eiga þau fjög-
ur börn.
Rannsóknarverkefnið var styrkt
af fyrrnefndum háskóladeildum,
Vísindasjóði Félags íslenskra
heimilislækna og Heilsugæslustöð-
inni Sólvangi, Hafnarfirði.
Varði
doktors-
ritgerð
um há-
þrýsting
INDVERSKAR stúlkur sem lokið
hafa stúdentsprófi frá menntaskóla
á vegum Sameinuðu indversku
kirkjunnar í þorpinu Kethanak-
onda í Andhra Pradesh-héraði á
Indlandi íhuga margar
hverjar að hefja nám í
háskólum fáist til þess
fjármagn. Stúlkurnar
hafa í mörgum til-
fellum staðið sig betur
í námi en drengir, að
sögn séra John Winst-
ons, leiðtoga Samein-
uðu indversku kirkj-
unnar, UCCI, sem
hefur starfað að hjálp-
arstörfum og kristni-
boði í Andhra Pradesh
í yfir 30 ár. Hann segir
einnig brýnt að bæta
aðbúnað í mennta-
skólanum en þar eru
nú um 700 nemendur
en voru 30 árið 1989.
Íslendingar hafa fyrir milli-
göngu Hjálparstarfs kirkjunnar
tekið að sér um 440 skólabörn á
vegum UCCI sem þeir sjá um að
kosta til náms. Reistar hafa verið
skólabyggingar og sjúkrahús fyrir
íslenskt fé og sem dæmi var ráðist
í að byggja iðnskóla fyrir fé sem
framhaldsskólanemendur sáu um
að afla með söfnunarátakinu Ís-
lenskt dagsverk árið 1997. Iðnnám-
ið hefur nýst stéttlausum og geta
nemendur lagt stund á saumaskap,
klæðskurð, bifvélavirkjun og járn-
smíði. Að auki er boðið upp á hefð-
bundið bóknám, sem fyrr segir, og
nýtist þeim sem stefna á há-
skólanám.
Um 200 prestar starfa á vegum
safnaðarins, að sögn Winstons,
bæði við kristniboð
og kennslu. Heima-
vistir á vegum kirkj-
unnar eru starf-
ræktar í þorpinu
Kethanakona og
borgunum Vijaya-
wada, Tenali og Hyd-
erabad sem annast
rúmlega 900 börn
alls. Þá starfrækir
söfnuðurinn skóla á
öllum skólastigum í
sömu borgum með
hátt á annað þúsund
nemendum, meðal
annars Emmanuel
menntaskólann í
Kethanakonda.
„Við útvegum börnunum frítt
húsnæði, fæði, föt, kennslubækur
og læknisþjónustu,“ segir Winston.
Hann bendir á að húsakostur
skólans sé orðinn of lítill og þegar
sé búið að leggja hornsteininn að
byggingu nýrrar skólabyggingar.
Hvenær hún muni rísa velti á frek-
ari fjárframlögum.
Örar breytingar
í ljósi hnattvæðingar
Að sögn Winstons hefur stúlkum
við skólann gengið mjög vel í námi
og betur í sumum tilfellum en
drengjum. Hann segist ekki hafa
einhlíta skýringu á því en nefnir að
þær séu iðnari við námið og hafi
oft meiri tíma aflögu en dreng-
irnir. Engu að síður séu væntingar
þeirra og líkur á starfsframa minni
en drengja í ljósi þeirrar stöðu sem
karlmenn njóta í indvesku sam-
félagi.
„Góður árangur eldri nemenda
hefur hins vegar áhrif á þá sem
yngri eru sem keppast við að fá
góðar einkunnir eins og þeir.“
Hann bendir á að sex nemendur
íhugi nú möguleika á að stunda há-
skólanám og hann merkir mikinn
mun á nemendum sínum og því
starfi sem söfnuðurinn hefur staðið
fyrir á undanförnum árum. Mestu
breytingarnar hafi orðið á síðast-
liðnum árum með aukinni hnatt-
væðingu og innreið vestrænna
gilda í indverskt samfélag.
„Fólk er meðvitaðra um gildi
menntunar nú en áður. Breyting-
arnar gerast hratt og þar leikur
sjónvarpið stórt hlutverk.“
Winston er þakklátur fyrir þau
fjárframlög sem borist hafa frá Ís-
lendingum í gegnum tíðina og
væntir frekara samstarfs.
„Ég hef rætt við forsvarsmenn
Hjálparstarfs kirkjunnar og komið
á framfæri óskum um að þeir sendi
Íslendinga utan til að aðstoða okk-
ur við að byggja upp starfsemina.
Einnig vantar okkur fjármuni og
styrki vegna lagfæringa á eldra
húsnæði og byggingar á nýju
skólahúsnæði,“ segir John Winst-
on.
Íslendingar styrkja 440 börn á vegum UCCI á Indlandi
Séra John Winston
Stúlkur standa sig
oftar betur í skóla
„SAMSTAÐA almennings um allan
heim er helsta vonin gegn hern-
aðarhyggjunni. Ég er mjög ánægð
með að fá að koma hingað til Ís-
lands, þar sem samtök hernáms-
og herstöðvaandstæðinga hafa
starfað í fimmtíu ár og beitt sér
gegn Nato-stöðinni hér á landi,“
segir Sara Flounders, einn ræðu-
manna á alþjóðlegri friðarráð-
stefnu, sem Samtök herstöðvaand-
stæðinga héldu um síðustu helgi.
Sara Flounders starfar með
samtökunum International Action
Center í New York, sem stofnuð
voru árið 1992. Einn stofnenda
samtakanna var Ramsey Clark,
fyrrverandi dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna. „Samtökin voru
stofnuð í kjölfar stríðsrekstrar
Bandaríkjanna gegn Írak,“ segir
Sara Flounders. „Þau hafa það að
markmiði að berjast gegn hern-
aðarumsvifum og stríðsrekstri
Bandaríkjanna víða um heim og
hafa látið til sín taka vegna efna-
hagsþvingana gegn írösku þjóðinni,
hernaðaraðgerða í Sómalíu, árásar
á lyfjaverksmiðju í Súdan og
stríðsaðgerða í Júgóslavíu, svo
dæmi séu nefnd. Samtökin hafa
gefið út ýmis rit og heimasíða
þeirra, www.iacenter.org, er mjög
mikið lesin, telst reyndar til mest
sóttu heimasíðna á Netinu. Að auki
vinnum við mikið á heimavelli í
Bandaríkjunum, bæði við að berj-
ast gegn kynþáttafordómum og
styðja pólitíska fanga í baráttu
þeirra. Fyrir hálfum mánuði skipu-
lögðu samtökin mótmæli í Wash-
ington, þar sem yfir hundrað þús-
und manns komu saman til að
berjast fyrir frelsi Palestínu og
gegn hernaði við Írak.“
Flounders segir að samtökin hafi
lagt mikla áherslu á að kynna al-
menningi í Bandaríkjunum hver
kostnaður þjóðarinnar af hermál-
um sé. „Ýmis félagsleg vandamál í
Bandaríkjunum mætti hæglega
leysa ef það fjármagn, sem nú
rennur til hermála, færi í að
byggja upp menntakerfið og heil-
brigðiskerfið. Í þessu auðuga stór-
veldi er barnadauði svipaður og
gerist í fátækustu löndum Suður-
Ameríku og lífslíkur eru hærri í
Bangladesh en meðal þeldökkra
karla í Bandaríkjun-
um. Um 30 milljónir
manna njóta alls engr-
ar heilsugæslu. Það er
ekki nema von að fólk
eigi erfitt með að trúa
þessu, en svona er
ástandið samt, enda
er helmingur útgjalda
alríkisins eyrnamerkt-
ur stríðsrekstri á einn
eða annan hátt.“
Almenningur
gagnrýnni
en áður
Sara Flounders seg-
ir að almenningur í
Bandaríkjunum sé nú
farinn að spyrja gagn-
rýnni spurninga en áður um stefnu
yfirvalda. „Hryðjuverkaárásirnar
11. september urðu til þess að
margir fóru að velta fyrir sér hvers
vegna hatur á Bandaríkjamönnum
væri svo djúpstætt víða um heim.
Stjórnvöld gættu þess að beina at-
hyglinni frá þessum spurningum
og réðust í stríðið í Afganistan, þar
sem ráðist var gegn þeim öflum
sem bandarísk yfirvöld höfðu stutt
við bakið á árum saman og báru
mesta ábyrgð á að komist höfðu til
valda.“
Sara er ekki í vafa um hver sé
drifkraftur hernaðarátaka. Þar
liggi ekki hugsjónir að baki. „Stríð-
ið gegn Írak er skýrt dæmi. Þar
var barist um olíu, fyrst og fremst,
og Bandaríkin komu
sér upp herstöðvum í
Saudi-Arabíu, Kúveit,
Sameinuðu fursta-
dæmunum og raunar
um allt svæðið. Þarna
hafa Bandaríkin því
komið sér vel fyrir,
rétt eins og gerðist
þegar settar voru upp
herstöðvar Bandaríkj-
anna og Nato í Kos-
ovo, Bosníu, Króatíu,
Albaníu og Makedón-
íu.“
Hún vísar í ræðu,
sem Donald Rumsfeld
varnarmálaráðherra
hélt um stríðsrekstur-
inn í Afganistan.
„Hann talaði um „blitzkrieg“, eða
leifturstríð, eins og nasistar köll-
uðu hraða sókn sína þvert yfir Evr-
ópu, þar sem þeir náðu yfirráðum
yfir landi og auðlindum. Hið sama
hefur gerst í Afganistan og ná-
grannaríkjum, þar sem vitað er að
olía finnst í jörðu. Þar hafa Banda-
ríkjamenn nú hreiðrað um sig.“
Aðspurð segist Sara Flounders
leggja bandarísk hernaðaryfirvöld
og Nato að jöfnu. „Nato hefur frá
upphafi verið að mestu stjórnað frá
Bandaríkjunum og þegið vopna-
búnað sinn þaðan. Bandarísk yf-
irvöld styðja af öllum mætti við
samtökin, því þau vilja alls ekki að
upp rísi sérevrópskt hernaðar-
bandalag. Útþensla Nato til aust-
urs hefur gríðarlega þýðingu fyrir
framleiðendur herbúnaðar í Banda-
ríkjunum, enda þarf hvert nýtt að-
ildarríki að setja framtíð sína að
veði með því að verja helmingi út-
gjalda sinna, næsta áratuginn að
minnsta kosti, til að byggja upp
herlið sitt í þágu Nato. Þar hagn-
ast enginn nema hergagnafram-
leiðendur í Bandaríkjunum, sem
eru öflugustu fyrirtækin þar í
landi.“
Heimsveldi eru
merkilega skammlíf
Sara Flounders segist fyllast
bjartsýni þegar hún sér hvers and-
staða almennings er megnug.
„Bandaríkin eru núna heimsveldi,
en heimsveldi eru merkilega
skammlíf. Græðgin verður þeim
alltaf að falli. Barátta Palestínu-
manna er eitt lítið dæmi um hvern-
ig hægt er að sameina milljónir
manna um allan heim í baráttu fyr-
ir réttlætinu og um leið leggja
stein í götu heimsveldisins, sem
ætlaði sér að ráðast næst gegn
Írak. Vissulega höfðu nánast öll
ríki heims hvatt Bandaríkin til að
fara varlega í slíkan stríðsrekstur,
en stjórnvöld létu það sem vind um
eyru þjóta. Það var ekki fyrr en al-
menningur sýndi samstöðu sína
gegn Ísraelum, sem Bandaríkin
hafa ávallt stutt með ráðum og dáð,
sem Bandaríkin sáu sitt óvænna og
hafa nú a.m.k. frestað árás á Írak.
Samstaða fólks um allan heim er
ógurlegt afl, sem fátt fær staðist.
Ekkert ríki getur staðið uppi í
hárinu á Bandaríkjunum í hernaði,
en andstaða fólks um allan heim er
önnur saga. Nú hefur allur heim-
urinn aðgang að sömu fréttum á
þeirri stundu sem þær gerast og
það breytir heimsmyndinni. Nú
ráðum við, ekki bara herforingj-
arnir.“
Sara Flounders, fulltrúi friðarsamtakanna International Action Center
Sara
Flounders
„Nú ráðum við,
ekki bara her-
foringjarnir“
LEIÐANGRI íslenskra
fjallaleiðsögumanna þvert yf-
ir Grænlandsjökul er lokið.
Leiðangursmennirnir Leifur
Örn Svavarsson,
Pétur Pétursson og Alvin
Arnold náðu föstu landi á svo-
kallaðri hæð 660 á Syðra-
Grænlandi þann 12. maí sl.
Höfðu þeir félagarnir þá ver-
ið16 daga á jökli. Stefnt er að
því að þeir komi til Íslands nú
í lok vikunnar.
Þetta er þriðji íslenski leið-
angurinn sem fer yfir Græn-
landsjökul. Settu þeir þre-
menningarnir nýtt íslenskt
hraðamet yfir jökulinn þar
sem fyrri tveir leiðangrar
hafa farið leiðina á um 25
dögum.
Voru mun fljótari í förum
en reiknað var með
Leiðangurinn hófst 25. apr-
íl og voru lagðir að baki 600
km frá þorpinu Isertoq yfir í
Syðri-Straumfjörð á austur-
strönd Grænlands. Leiðang-
ursmennirnir gerðu upphaf-
lega ráð fyrir að vera þrjár
vikur á leiðinni og voru með
31 dags vistir, en voru fljótari
í förum en þeir bjuggust við.
Þeir fengu góðan vind í bakið
á þriðja degi ferðarinnar sem
er sjaldgæft á þessum slóðum
og lentu ekki í alvarlegum
áföllum utan þess að elds-
neyti lak yfir talsverðan hluta
vista þeirra.
Yfir Græn-
landsjökul
á nýju Ís-
landsmeti