Morgunblaðið - 17.05.2002, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SKÓLADAGUR sjö til níu
ára barna verður lengdur um
eina klukkustund þar sem
heimanámi verður sinnt undir
leiðsögn kennara endur-
gjaldslaust gangi tillögur
starfshóps borgarráðs um
skóladagvist eftir. Sömuleiðis
verða sérstök frístundaheim-
ili starfrækt á vegum ÍTR í
öllum grunnskólum borgar-
innar fyrir sex til níu ára börn
að loknum skóla. Borgarráð
lýsti því yfir á fundi sínum í
vikunni að það væri hlynnt því
að fjárhagslegt svigrúm yrði
veitt til að tillögurnar næðu
fram að ganga og var málinu
vísað til athugunar fjármála-
deildar.
Tillögur starfshópsins eru í
12 liðum og miða að því að
gera grundvallarbreytingar á
skóladagvist sex til níu ára
barna. Er lagt til að skilið
verði milli skólastarfs og tóm-
stundastarfs fyrir þennan ald-
urshóp og að umsjón með
tómstundastarfi verði færð
frá Fræðslumiðstöð til
Íþrótta- og tómstundaráðs
sem starfræki svokölluð frí-
stundaheimili í öllum grunn-
skólum borgarinnar.
Heimanámi sinnt í skól-
anum endurgjaldslaust
Lagt er til að skóladagur
sjö til níu ára barna verði
lengdur um eina vinnustund
þar sem þeim gefist kostur á
að sinna heimanámi undir
handleiðslu kennara endur-
gjaldslaust. Þessi vinnustund
yrði þó ekki hluti skólaskyld-
unnar. Yrði skóladagurinn
skipulagður með þeim hætti
að hjá sex ára börnum lyki
honum klukkan 14 en klukkan
15 hjá sjö til níu ára börnum.
Þegar skóladeginum lyki
tæki frístundaheimilið við þar
sem boðið yrði upp á tóm-
stundastarf fyrir sex til níu
ára börn. Yrði það starf á
ábyrgð og forræði ÍTR. Lagt
er til að gjaldið fyrir frí-
stundaheimilið verði 9.500
krónur á mánuði fyrir eina til
þrjár klukkustundir á dag en
fyrir systkini og börn ein-
stæðra foreldra yrði það 7.600
krónur.
Ókeypis íþróttaskóli
fyrir yngstu börnin
Tillögurnar gera ráð fyrir
að frístundaheimilin verði
staðsett í húsnæði skólanna
en ekki komi til greiðslur frá
ÍTR til Fræðslumiðstöðvar
fyrir afnotin af því.
Þá er lagt til að sex ára
börnum bjóðist tvisvar í viku
íþróttaskóli hjá íþróttafélagi
viðkomandi hverfis án sér-
stakrar greiðslu. Sömuleiðis
bjóði íþróttafélögin eldri
börnum aðgang að íþrótta-
skóla á kostnaðarverði innan
ramma skóladagvistarinnar.
Tillögurnar ná einnig til
tónlistarskólanna því lagt er
til að þeir bjóði forskólanám í
tónlist gegn sérstöku gjaldi
innan skóladagvistarinnar í
eða við hvern skóla. Er gert
ráð fyrir því að Reykjavíkur-
borg standi straum af kostn-
aði við kennslu en foreldrar
greiði námsgögn og sérstakt
gjald vegna annars kostnaðar.
Gert er ráð fyrir því að hið
nýja fyrirkomulag verði inn-
leitt í þremur áföngum frá
hausti 2002 þannig að allir
skólar borgarinnar starfi
samkvæmt því árið 2004.
Loks er lagt til að fjárhags-
áætlun vegna verkefnisins
verði á bundnum lið á fjár-
hagsáætlun borgarinnar á
þeim árum sem fyrirkomulag-
ið verður innleitt. „Með því er
reglubundnum rekstri ÍTR
ekki stefnt í hættu, né nyti
ávinnings af tekjum umfram
spá.“
Tillögurnar eru unnar á
grunni tilraunar með breytt
form skóladagvistar í fjórum
skólum í Breiðholti en hún
stóð yfir frá því í apríl árið
2000 til aprílmánaðar ársins í
ár. Í þeirri tilraun var slíkum
frístundaheimilum komið á
fót í skólunum og í viðhorfs-
könnun sem gerð var vorið
2001 meðal notenda þjónust-
unnar kom í ljós að þeir voru
jákvæðir í garð hennar. Í
greinargerð um tilraunina
kemur fram að þegar foreldr-
ar voru spurðir hvort þeir
teldu barn sitt ánægt á frí-
stundaheimilinu svöruðu 93%
að barnið sitt væri ánægt eða
frekar ánægt. Þegar börnin
sjálf voru spurð sögðu 88%
þeirra að þeim fyndist gaman
á frístundaheimilinu, 65%
starfsmanna skóla voru mjög
eða frekar ánægðir með starf-
semina og allir starfsmenn
frístundaheimilisins voru
mjög eða frekar ánægðir.
Dagskrá taki mið
af líðan barnanna
Kemur fram í greinargerð-
inni að við uppbyggingu frí-
stundaheimilanna hafi verið
sótt í smiðju sænskra og
danskra frístundaheimila og
sömuleiðis til bandarískra
hugmynda. „Niðurstaðan hef-
ur verið fjölbreytt starfsemi
sem tekur mið af hverjum og
einum þátttakenda þar sem
lögð er áhersla á að hlusta á
og ræða við börnin. Skipulag
dagskrárinnar hefur tekið
mið af líðan barnanna og þeim
takti sem hentar eftir langan
og strangan skóladag,“ segir í
greinargerðinni.
Bæði Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur og ÍTR lýsa yfir
stuðningi við þessar tillögur í
bréfum sem lögð voru fram í
borgarráði á þriðjudag og
segir í bréfi Fræðslumið-
stöðvar að sérstaklega sé
fagnað að með samþykkt til-
lögunnar væri verið að lengja
vinnudag nemenda í 2.–4.
bekk til klukkan 15 á daginn. Í
bréfi formanna foreldraráða
tilraunaskólanna fjögurra er
mikil áhersla lögð á mikilvægi
þess að heimanámsaðstoðin
sé endurgjaldslaus enda hafi
nánast allir í bekkjunum þeg-
ið hana meðan tilraunin stóð
yfir. „Þarna er því mikið jöfn-
unartæki á ferð og fellur það
vel að markmiðum fræðsluyf-
irvalda um jafnræði með nem-
endum óháð efnahag foreldr-
anna eða öðrum þáttum.,“
segir í bréfinu. Sömuleiðis
lýsa skólastjórar skólanna
fjögurra yfir mikilli ánægju
með tilraunina í öðru bréfi.
Borgarráð jákvætt í garð tillagna um breytingar á skóladagvist fyrir sex til níu ára börn
Reykjavík Tómstundastarf
verði í umsjón ÍTR
Tillögurnar gera ráð fyrir að börnum á aldrinum sex til níu ára bjóðist tómstundastarf á
vegum ÍTR að loknum skóladegi í sama húsnæði og skólinn þeirra er.
SAMKVÆMT tillögunum
verður nýtt fyrirkomulag á
skóladagvistun í grunn-
skólum Reykjavíkur inn-
leitt í þremur áföngum sem
hér segir, svo fremi sem
borgaryfirvöld samþykkja
þær eins og þær liggja fyr-
ir nú:
Haust 2002: Breiðholts-
skóli, Fellaskóli, Seljaskóli,
Ölduselsskóli, Hólabrekku-
skóli, Vesturbæjarskóli,
Grandaskóli, Melaskóli og
Austurbæjarskóli.
Haust 2003: Húsaskóli,
Hamraskóli, Foldaskóli,
Rimaskóli, Borgaskóli, Vík-
urskóli, Korpuskóli og
Engjaskóli.
Haust 2004: Álftamýr-
arskóli, Breiðagerðisskóli,
Fossvogsskóli, Laug-
arnesskóli, Hlíðaskóli, Há-
teigsskóli, Hvassaleit-
isskóli, Ártúnsskóli,
Árbæjarskóli, Selásskóli,
Ingunnarskóli, Klébergs-
skóli, Vogaskóli og Lang-
holtsskóli.
Innleiðing nýs fyrirkomu-
lags samkvæmt tillögum
Heimanámi
sinnt í
skólanum
Heilbrigðisráðherra hefur
óskað eftir því að Garðabær
tilnefni fulltrúa í nefnd um
framtíðarnýtingu Vífils-
staða, en bæjarstjórn hefur
lagt áherslu á það í viðræð-
um við ráðherra að starf-
semi verði áfram á Vífils-
stöðum. Þetta kemur fram í
frétt frá Garðabæ.
Þar kemur ennfremur
fram að land Vífilsstaða sé í
eigu ríkisins. Þar hefur ver-
ið rekin heilsustofnun í yfir
90 ár og er staðurinn nú
hluti af Landspítala-há-
skólasjúkrahúsi. „Í janúar á
þessu ári skilaði nefnd, sem
heilbrigðisráðherra skipaði
til að fjalla um og gera til-
lögu að framtíðaruppbygg-
ingu Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss, skýrslu þar sem
hún leggur til að Landspít-
ali-háskólasjúkrahús verði
byggður upp við Hring-
braut. Frá þeim tíma hefur
ríkt óvissa um framtíð Víf-
ilsstaða.
Bæjaryfirvöld í Garðabæ
hafa lagt áherslu á að
áframhaldandi starfsemi
verði á Vífilsstöðum og hafa
þau átt í viðræðum við heil-
brigðisráðherra vegna máls-
ins um langt skeið. Í því
sambandi hefur m.a. verið
bent á að brýn þörf er á úr-
ræðum fyrir eldri borgara
bæjarins sem þurfa á hjúkr-
unarvistun að halda,“ segir í
fréttinni. Þar segir enn-
fremur að í skýrslu nefnd-
arinnar komi fram að land
Vífilsstaða bjóði upp á
marga möguleika. Í skýrsl-
unni segir: „Vífilsstaðasvæð-
ið verður í framtíðinni enn
meira miðsvæðis á höfuð-
borgarsvæðinu og framhjá
því liggur Reykjanesbraut
sem tengir það við Reykja-
vík, Kópavog, Garðabæ og
Hafnarfjörð. Í heild er
sjúkrahússvæðið aðgengi-
legt sjúklingum og gestum.
Sjúkrabílar eiga greiða leið
að svæðinu eftir stofnbraut-
um og aðflug þyrlu er enn-
fremur gott.“
Erindi heilbrigðisráð-
herra var tekið fyrir í bæj-
arráði Garðabæjar á þriðju-
dag og samþykkt var að vísa
því til afgreiðslu bæjar-
stjórnar að tilnefna fulltrúa
í samráðshópinn.
Nefnd um
framtíðarnýt-
ingu Vífilsstaða
Garðabær
MEÐLIMIR í Foreldra-
félagi Víðistaðaskóla í Hafn-
arfirði gengu ásamt nem-
endum fylktu liði
frá skólanum í
gærmorgun að
Bæjarskrifstofum
Hafnarfjarðar og
afhentu þar bæjar-
fulltrúum ályktun
þar sem þess var
krafist að byrjað
yrði á undirbún-
ingi framkvæmda
við skólann án taf-
ar.
Í frétt frá For-
eldrafélaginu kem-
ur fram að fram-
kvæmdirnar
krefjist breytinga
á aðal- og deili-
skipulagi svæðis-
ins ásamt hönnun-
arvinnu og
byggingafram-
kvæmdum. „Sam-
kvæmt tilskipun
menntamálaráðuneytis eiga
skólar að verða einsetnir
ekki seinna en 1. september
2004 og því er stuttur tími til
stefnu.
Víðistaðaskóli er 30 ára
gömul bygging, mjög illa
farin og ýmis mál í ólestri,
t.d. ódrykkjarhæft vatn í
hluta hans, klóaklykt í viss-
um vindáttum, húsnæðið
lekur og ýmsum aðbúnaði er
mjög ábótavant – skortur á
kennslustofum svo dæmi séu
tekin. Rífa þarf hluta hans
og einnig að byggja við
hann.
Ályktanir hafa verið send-
ar þar sem krafist var vissra
úrbóta og var orðið við ein-
hverjum þeirra, m.a. fengin
ný húsgögn og skólalóð
yngstu barnanna verður lag-
færð í sumar. Foreldrafélag-
ið fagnar þessu, en betur má
ef duga skal. Það er von okk-
ar að þessi ályktun beri ár-
angur,“ segir í fréttinni frá
Foreldrafélaginu.
Krafist úrbóta
Hafnarfjörður
Morgunblaðið/Kristinn
PÁLL Pétursson félags-
málaráðherra og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri tóku í vikunni
skóflustungu að fyrstu
íbúðum sem byggðar verða
í sérstöku átaki til upp-
byggingar 600 leiguíbúða á
næstu fjórum árum. Fyrsta
skóflustungan var tekin að
Þorláksgeisla 6-12 í Graf-
arholti en þar er fyr-
irhugað að byggja 58 íbúð-
ir.
Í frétt frá Búseta hsf.
segir að um sé að ræða
stóran áfanga í sögu Bú-
seta hsf. sem hefur stofnað
sérstakt félag, Leigufélag
Búseta ehf., vegna þessa
verkefnis en gert er ráð
fyrir að Búseti komi að
uppbyggingu og rekstri á
300 íbúðum af þeim 600
sem búið er að tryggja
fjármögnun fyrir.
Morgunblaðið/Jim Smart
Átak til bygging-
ar leiguíbúða
Grafarholt