Morgunblaðið - 17.05.2002, Side 29
! "# $
!"#$#% '&"
# ( # )
* + "
, -% #.
% ! !
&
'#
" !(
"'( ! ! &
!"#"$ )
'"'#
" '"$
* +) ' , ! % & ' (
. ( % /
' "
0 , $1 '",
''"'$
2 3$ )
& '*& +
4"
' '
! " "
##$$' $ "
! '
'# '4"
!"#"$
+
'
%
/
'
5
6
6
5
7
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 29
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
NÝR risastór ísjaki hefur brotnað
frá íshellunni á Suðurskautsland-
inu og flýtur við hliðina á Ross-
íshellunni. Að sögn bandarísku
hafísstofnunarinnar NIC er jak-
inn, sem nefndur er C-19, 200 km
langur og 31,2 km breiður eða
3.890 ferkílómetrar. Hann er því
stærri en Lúxemborg, sem er
2.586 ferkílómetrar.
Nafnið er dregið af því að þetta
er 19. ísjakinn sem brotnar frá ís-
hellunni á þessu svæði frá því
byrjað var að fylgjast með því ár-
ið 1976. Fyrir tæpri viku losnaði
annar jaki, C-18, frá íshellunni á
þessu svæði en hann var mun
minni eða 75 km langur og 7,3 km
breiður.
Í mars losnaði annar risajaki
frá íshellunni á öðru svæði á Suð-
urskautslandinu. Hann var nefnd-
ur B-22 og var 6.512 ferkílómetr-
ar að stærð. Í mars brotnaði
einnig stór ísjaki á svæðinu.
Nýjar mælingar benda þó til
þess að ísinn sé að þykkna á sum-
um svæðum Suðurskautslandsins
en fyrri mælingar bentu til þess
að hann væri að bráðna. Vís-
indamenn segja að heldur hafi
hægt á hafstraumum við Ross-
íshelluna sem hafi leitt til þess að
íshellan hafi þykknað. Ekki er vit-
að hvort um er að ræða skamm-
tímabreytingar.
AP
Ísjakinn C-19 sést hér norðan við Ross-íshelluna og t.h. er ísjakinn C-18 sem brotnaði frá íshellunni fyrir viku.
Stór ísjaki brotnar frá
Suðurskautslandinu
Washington. AFP.
ÚRSLIT sveitarstjórnarkosn-
inganna í Svartfjallalandi voru
sigur fyrir Milo Djukanovic,
forseta landsins, og þá, sem
vilja segja skilið við sam-
bandsríkið Júgóslavíu og lýsa
yfir fullu sjálfstæði. Eru þeir
nú í meirihluta í 10 sveitar-
félögum af 19 en stuðnings-
menn sambandsríkisins í átta.
Flokkur fólks af albönskum
uppruna sigraði í einu. Kjör-
sókn var um 71% og meiri en
venjulega. Fréttaskýrendur
túlka niðurstöðuna þannig, að
hún sé sigur þeirra, sem vilja
sem nánast samband við Evr-
ópu, og ósigur sósíalista og
þeirra, sem hatast við vestræn
ríki.
Ekki
óhugsandi
að páfi segi
af sér
JÓHANNES Páll páfi II hef-
ur ekki útilokað, að hann segi
af sér haldi heilsa hans áfram
að versna.
Var það
haft eftir
Oscar
Andres
Rodriguez
Maradiaga
kardinála
og erkibisk-
up í Teguc-
igalpa í
Hondúras í
gær. Páfi, sem verður 82 ára á
morgun, þjáist af Parkinsons-
veiki auk þess sem hann er illa
haldinn af gigt. Fór hann til
ítölsku eyjarinnar Ischia fyrr í
mánuðinum og duldist þá eng-
um, að hann er líkamlega mjög
illa á sig kominn. Hann er þó
ekki hættur ferðalögum því að
hann fer í næstu viku til Búlg-
aríu og síðan til Azerbaídsjan.
Í júlí og ágúst stendur til, að
hann fari til Kanada, Gvat-
emala, Mexíkó og Póllands.
Verkföll í
Danmörku
ÞÚSUNDIR launþega í Dan-
mörku lögðu niður vinnu um
stund í gær til að mótmæla
þeim fyrirætlunum ríkis-
stjórnar borgaraflokkanna að
heimila vinnuveitendum að
semja beint við starfsmenn
um vinnutíma og laun. Verka-
lýðsfélögin segja, að þetta
þýði í raun, að vinnuveitendur
geti skipað fastráðnu fólki að
vinna hlutastarf og þá með
þeirri launalækkun, sem
fylgir. Vegna verkfallsins varð
SAS að aflýsa 115 ferðum frá
Kaupmannahöfn til borga í
Evrópu.
STUTT
Sigur
fyrir
sjálfstæð-
issinna
Jóhannes Páll
II. páfi.
Sakaðir
um að fá
ólögleg
framlög
Berlín. AFP.
EDMUND Stoiber, kanslara-
efni kristilegu flokkanna í
Þýskalandi, vísaði í fyrrradag á
bug þeim ummælum fyrrver-
andi vopnasala, að hann hefði
stutt flokk Stoibers með ólög-
legu framlagi.
Þýskir fjölmiðlar hafa áður
haldið því fram, að vopnasalinn,
Karlheinz Schreiber, hafi lagt
tugmilljónir króna í sjóði
Kristilega demókrataflokksins,
flokks Helmuts Kohls, fyrrver-
andi kanslara, og það vakti því
mikla athygli er Schreiber lýsti
yfir, að hann hefði einnig gefið
um 45 millj. kr. til flokks Stoib-
ers, Kristilega sósíalsambands-
ins í Bæjaralandi. Sagði hann,
að það hefði verið gert með vit-
und og vilja Stoibers en gat þó
ekki lagt fram nein gögn máli
sínu til stuðnings. Stoiber neit-
ar þessu eins og fyrr segir en
ákveðið hefur verið, að hann
skýri sitt mál betur fyrir þing-
nefnd í næsta mánuði.
Schreiber, sem hefur þýskt
og kanadískt ríkisfang, var
handtekinn í Kanada 1999 en
hann er sakaður um spillingu,
mútur og skattsvik í tengslum
við störf fyrir þýsk hergagna-
fyrirtæki.
Flokkur Stoibers
í Bæjaralandi